Morgunblaðið - 28.06.2003, Page 40
MESSUR Á MORGUN
40 LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Hrólfur Valdi-marsson fæddist í
Vatnsfjarðarseli í
Vatnsfjarðarsveit, 17.
janúar 1917. Hann
lést á sjúkrahúsi Ísa-
fjarðar 23. júní síðast-
liðinn. Foreldrar hans
voru Björg Þórðar-
dóttir, f. á Kaldrana-
nesi í Strandasýslu
28.6. 1890, og Sigur-
geir Valdimar Steins-
son frá Hálshúsum í
Vatnsfjarðarsveit, f.
6.8. 1878. Hrólfur var
elstur fjögurra barna
þeirra er upp komust. Hin eru
Hans Aðalsteinn, f. 1918, Gunnar,
f. 1923, og Ingibjörg Steinunn, f.
1928.
Hrólfur ólst upp í Vatnsfjarðar-
seli hjá foreldrum og systkinum.
Árið 1945 taka þeir bræður hann
og Gunnar við búi þar
af foreldrum sínum
og árið 1949 flytja
þeir ásamt foreldrun-
um í Hörgshlíð í sömu
sveit og búa þar til
ársins 1952. Þá hefja
þeir búskap í Heydal
og búa þar til ársins
1987 að þeir bregða
búi og Gunnar flytur
til Ísafjarðar en Hrólf-
ur sest að ásamt Ingi-
björgu systur sinni á
Eyri í Mjóafirði. Þar
eru þau systkinin til
haustsins 2001 að þau
flytja til Ísafjarðar, fyrst í Sund-
stræti 24 en sl. haust keyptu þau
íbúð á Eyrargötu 6 á Ísafirði og
þar bjó Hrólfur til dauðadags.
Útför Hrólfs verður gerð frá Ísa-
fjarðarkirkju í dag og hefst athöfn-
in klukkan 13.30.
Ástkær bróðir er búinn að fá lang-
þráða hvíld. Hann hét Hrólfur Valdi-
marsson. Hann fæddist og ólst up á
afskekktum sveitabæ, í faðmi fá-
tækra en ástríkra foreldra. Hann
varð fljótt vel liðtækur í alla vinnu en
vegna fátæktar var ekki um skóla-
göngu að ræða utan nokkurra vikna í
farskóla, en handlagni og hugvit hafði
hann nóg og starfsvilja. Hann var vel
liðinn af þeim sem umgengust hann
og þekktu vel.
Hrólfur vann á ýmsum bæjum í
sveit sinni en lengst var hann í sex ár
vinnumaður hjá séra Þorsteini í
Vatnsfirði. Að þeim tíma liðnum kom
hann heim aftur og tók ásamt Gunn-
ari bróður sínum við búi foreldra
sinna í Seli.
Þeir fluttu síðan ásamt foreldrum
sínum og systur að Hörgshlíð og svo í
Heydal. Þar byggðu þeir upp hús,
ræktuðu tún og stækkuðu bú sitt.
Síðast bjó Hrólfur á Eyri sem er lítil
en þægileg jörð í sömu sveit. Á
níræðisaldri og þrotinn að kröftum
fluttist hann svo úr sveitinni til Ísa-
fjarðar og þóttu honum þá oft langir
dagarnir þar sem hann gat ekkert
unnið en geðprýði sinni hélt hann þó
alltaf.
Við kveðjum nú góðan dreng og
kæran bróður og minnumst hans með
þökkum og hlýhug.
Blessuð sé minning hans.
Inga, Hans og Gunnar.
Nú er Hrólfur frændi okkar allur.
Andlát hans bar að með svipuðum
hætti og líf hans allt. Friðsælt og til-
litssamt. Hann vissi að hverju dró og
var sáttur við það, hans hlutverki var
lokið.
Eftir sitjum við og rifjum upp
minningar um góðan frænda, sem
sýndi okkur hlýju og gaf okkur góð
ráð.
Bernskan er alltaf minnisstæð og
margt getum við, sem yngri erum,
lært af þeirri kynslóð, sem á undan
fór og ruddi brautina. Á frumbýlings-
árum afa og ömmu í Seli var ekki allt-
af mikið til, ekki einu sinni nóg af
mjólk og mat. Síðar fækkaði þó þeim
skiptum og silungur úr Selvatninu og
rætur ásamt fjallagrösum voru
kostafæða og aldrei þurftu þau að
láta börnin sín frá sér. Þegar árin liðu
og börnin uxu úr grasi varð auðvitað
allt léttara, þótt aldrei væri auður í
búi. Skólaganga Hrólfs var ekki löng,
einhverjir vetrarpartar í farskóla og
svo skóli lífsins. Við vitum að Hrói
frændi þráði að læra eitthvað, en að-
stæður leyfðu það aldrei. Hann var
því það sem kalla má sjálfmenntaður,
því hann las töluvert og fylgdist vel
með þjóðmálum. Þegar Inga gekk í
unglingaskólann fékk hann lánaðar
bækurnar hennar og lét hana segja
sér til í reikningi og fleiru. Skólabörn-
um nútímans þætti þetta víst frekar
undarleg hegðun, að sækjast eftir að
nýta frístundir sínar til að nema.
Hrólfur var afskaplega hagur maður
og var gaman að sjá hve marga fal-
lega hluti hann gat skapað þrátt fyrir
lítil efni. Koffort, kistla, kommóður,
töskur og þvottaklemmur, svo ekki sé
minnst á leikföngin, útskorin dýr og
fugla úr smáspýtum og fiskbeinum,
þetta voru listaverk. Sem fulltíða
maður réðst Hrólfur sem vetrarmað-
ur til Ólafs Ólafssonar í Skálavík en
síðan vinnumaður í Vatnsfjörð til
séra Þorsteins Jóhannessonar og var
þar í sex ár. Um líkt leyti og pabbi
okkar og mamma fara að búa í Mið-
húsum taka þeir föðurbræður okkar
við búinu í Seli. Síðar flytja þau öll úr
Selinu í Hörgshlíð og búa þar í þrjú
ár. Þá var það að bóndinn í Heydal
vildi bregða búi fyrir aldurssakir og
var honum ekki sama hver tæki við
jörðinni. Hann kom ítrekað að máli
við Hrólf og bauð honum Heydalinn.
Hrólfi fannst það í mikið ráðist fyrir
sig, einyrkjann, en þegar Gunnar
bróðir hans var tilbúinn að búa með
honum varð það ofaná að þeir fluttu í
Heydal ásamt afa, ömmu og Ingu
systur sinni. Seinna keyptu þeir jörð-
ina og hýstu hana myndarlega. Eftir
að Gunnar giftist bjuggu þeir bræður
áfram félagsbúi og er óhætt að full-
yrða að börn þeirra hjóna áttu gott
skjól hjá Hróa frænda.
Síðustu árin, eftir að Heydalur var
seldur og Gunnar fluttur til Ísafjarð-
ar, komu þau systkinin Inga og Hrói
sér fyrir á Eyri. Þar bjuggu þau í tæp
fjórtán ár, lengst af með nokkrar
kindur. Heilsu Hróa hrakaði eftir því
sem elli kerling mæddi hann meir og
loks lét sveitamaðurinn og náttúru-
barnið undan og flutti til Ísafjarðar.
Það tók hann sárt að sjá sveitina sína
kæru verða æ strjálbýlli eftir því sem
tímar liðu og hann saknaði þess sárt
að sjá ekki fé í högum.
Það var svo nú á útmánuðum, sem
hann tók að kenna máttleysis í fæti,
sem alltaf ágerðist heldur. Hann
lagðist inn á Sjúkrahús Ísafjarðar 9.
júní sl. og lá þar uns yfir lauk.
Við frænkur hans þökkum fyrir all-
ar góðu stundirnar sem við áttum
með honum og þann fróðleik sem
hann miðlaði okkur með sinni sönnu
hógværð.
Jónína, Björg, Ásdís og
Þóra Hansdætur.
Í örfáum orðum langar mig að
minnast Hrólfs Valdimarssonar sem
andaðist á sjúkrahúsi Ísafjarðar eftir
stutta sjúkrahúslegu, 86 ára að aldri.
Hrólfur var elstur fjögurra systkina.
Þau fæddust og ólust upp í Vatns-
fjarðarseli í Reykjafjarðarhreppi.
Það voru erfið uppvaxtarár þeirra
systkina sem efalaust hefur mótað
þau. Hin systkinin eru Hans, Gunnar
og Ingibjörg.
Með Ingibjörgu systur sinni hefur
Hrólfur haldið heimili seinni árin, 2
síðustu á Ísafirði. Hann var hæglátur
maður, glettinn og stundum stríðinn.
Ófáar ferðirnar höfum við, ég og
fjölskylda mín, farið á heimili Hrólfs
þó sérstaklega hér á Ísafirði og þegið
kaffi og kökur. Nú eða ís og ávexti
eða bara spjall um Djúpið og gömlu
dagana. Það var oft gaman að heyra
frásagnir frá liðinni tíð og fræðast um
gamla búskaparhætti. Með þessum
orðum kveð ég Hrólf, hafi hann þökk
fyrir allt.
Blessuð sé minning hans.
Þorgerður Kristjánsdóttir.
HRÓLFUR
VALDIMARSSON
MINNINGAR
ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Kór Ás-
kirkju syngur. Organisti Kári Þormar. Árni
Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Fermdur verður Sigurður Jón Júlíusson,
Sogavegi 194. Organisti Gunnar Gunn-
arsson. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Sr. Hjálmar
Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari.
Dómkórinn syngur. Organisti Marteinn H.
Friðriksson. Prests- og djáknavígsla kl.
14. Biskup Íslands vígir Ragnheiði Karitas
Pétursdóttur, sem skipuð hefur verið
sóknarprestur í Ingjaldshólsprestakalli,
Snæfellsness- og Dalaprófastsdæmi og
Örnu Grétarsdóttur, sem skipuð hefur ver-
ið prestur í Seltjarnarnesprestakalli í
Reykjavíkurprófastsdæmi vestra, og
djáknann Magneu Sverrisdóttur, til
fræðslustarfs í Hallgrímsprestakalli í
Reykjavíkurprófastsdæmi vestra. Séra
Jón Dalbú Hróbjartsson prófastur lýsir
vígslu. Vígsluvottar: Séra Ingiberg J. Hann-
esson prófastur, séra Jóhanna Sigmars-
dóttir, séra Sigurður Grétar Helgason,
séra Sigurður Pálsson og Þórdís Ásgeirs-
dóttir djákni. Séra Hjálmar Jónsson þjónar
fyrir altari. Organisti er Marteinn H. Frið-
riksson dómorganisti.
GRENSÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Kirkjukór Grensáskirkju syngur. Organisti
Árni Arinbjarnarson. Ólafur Jóhannsson.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili:
Guðsþjónusta kl. 10.15. Prestur sr. Birgir
Ásgeirsson. Organisti Kjartan Ólafsson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr.
Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar. Hópur úr
Mótettukór syngur. Organisti Hörður Ás-
kelsson. Ensk messa kl. 14. Prestur sr.
Bjarni Þór Bjarnason. Organisti Hörður Ás-
kelsson. Guðrún Finnbjarnardóttir leiðir
safnaðarsöng. Messukaffi.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11. Organisti
Douglas A. Brotchie. Sr. Tómas Sveins-
son.
LANDSPÍTALI – háskólasjúkrahús: Hring-
braut: Guðsþjónusta kl. 10.30. Séra
Bragi Skúlason.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands
biskups. Messa kl. 11. Prestur sr. Jón
Helgi Þórarinsson. Organisti Jón Stef-
ánsson. Einsöngur Ólöf Kolbrún Harð-
ardóttir. Félagar úr Kór Langholtskirkju
leiða söng. Kaffisopi eftir messu.
LAUGARNESKIRKJA: Vegna sumarleyfa
starfsfólks er bent á guðsþjónustur í ná-
grannakirkjunum.
NESKIRKJA: Messa kl. 11. Kór Neskirkju
syngur. Organisti Steingrímur Þórhalls-
son. Séra Örn Bárður Jónsson þjónar fyrir
altari og heldur áfram með fræðsluprédik-
un um Postulasöguna.
SELTJARNARNESKIRKJA: Bæna- og
kyrrðarstund kl. 11. Ritningarlestur og
bæn. Umsjón Kristján Einarsson.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Frá og með 29.
júní til loka júlímánaðar verða ekki al-
mennar guðsþjónustur á sunnudögum.
Kirkjan verður samt opin fyrir allar aðrar
athafnir í allt sumar. Nánari upplýsingar er
hægt að nálgast í símum 552 7270 og
899 4131. Einnig er hægt að senda fyr-
irspurnir á netfangið hjorturm@frikirkj-
an.is.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Sigrún Óskarsdóttir þjónar fyrir altari.
Barn borið til skírnar. Félagar úr kirkju-
kórnum leiða söng undir stjórn Krisztínu
Kalló Szklenár organista. Molasopi að
guðsþjónustu lokinni.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Lilja Kristín Þorsteinsdóttir prédik-
ar og þjónar fyrir altari. Organisti: Sigrún
Þórsteinsdóttir.
DIGRANESKIRKJA: Sameiginleg kvöld-
messa Digraness- og Lindasóknar kl.
20.30. Prestar sr. Guðmundur Karl Brynj-
arsson og Gunnar Sigurjónsson. Organisti
Hannes Baldursson. Kór Lindakirkju (sjá
nánar: www.digraneskirkja.is).
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Prestur: Sr. Guðmundur Karl
Ágústsson. Organisti: Gróa Hreinsdóttir.
Félagar úr kór kirkjunnar leiða almennan
kirkjusöng.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Bjarni Þór Bjarnason prédikar og
þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogskirkju
syngur. Organisti: Hörður Bragason.
HJALLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Íris Kristjánsdóttir þjónar. Félagar úr kór
kirkjunnar syngja og leiða safnaðarsöng.
Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Við minn-
um á bæna- og kyrrðarstund á þriðjudag
kl. 18 (Sjá einnig á heimasíðu Hjallakirkju:
www.hjallakirkja.is). Prestarnir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Fyrsta guðsþjónusta
að loknu sumarleyfi sóknarprests verður
um verslunarmannahelgina hinn 3. ágúst
kl. 11. Kirkjan er opin á hefðbundnum tím-
um og kirkjuvörður aðstoðar fólk og veitir
upplýsingar. Séra Ægir Fr. Sigurgeirsson.
LINDAKIRKJA Í KÓPAVOGI: Sameiginleg
kvöldmessa Digranes- og Lindasóknar í
Digraneskirkju kl. 20.30. Prestar sr. Guð-
mundur Karl Brynjarsson og Gunnar Sig-
urjónsson. Organisti Hannes Baldursson.
Kór Lindakirkju. Fjölmennum!
SELJAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 16 í
Skógarbæ. Sr. Valgeir Ástráðsson prédik-
ar. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Kór
Seljakirkju leiðir söng. Guðsþjónusta kl.
20. Sr. Valgeir Ástráðsson prédikar. Org-
anisti Steingrímur Þórhallsson. Kór Selja-
kirkju leiðir söng. Altarisganga.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Samkoma
kl. 20. Mikil lofgjörð og fyrirbænir. Unnar
Erlingsson prédikar. Þáttur kirkjunnar „Um
trúna og tilveruna“ er sýndur á sjónvarps-
stöðinni Ómega kl. 13.30. Heimasíða
kirkjunnar er: www.kristur.is.
BOÐUNARKIRKJAN, Hlíðasmári 9, Kóp.:
Samkomur alla laugardaga kl. 11. Bæna-
stund alla þriðjudaga kl. 20. Biblíufræðsla
allan sólarhringinn á Útvarp Boðun FM
105,5. Allir alltaf velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudagur: Kl.
20 hjálpræðissamkoma. Umsjón Fanney
Sigurðardóttir og Guðmundur Guð-
jónsson. Einar Gíslason talar.
FRÍKIRKJAN KEFAS, Vatnsendabletti
601: Sunnudaginn 29. júní er vitnisburða-
samkoma kl. 20. Lofgjörð og fyrirbænir.
Barnagæsla fyrir 1–7 ára börn á sam-
komutíma. Kaffi og samfélag eftir sam-
komu. Allir eru hjartanlega velkomnir.
KFUM og KFUK v/Holtaveg: Húsið er
opnað kl. 20. Seldar verða kaffiveitingar á
góðu verði. Samkoman hefst kl. 20.30.
„Að þora að glata fótfestunni eitt augna-
blik, að þora ekki er að glata sjálfum sér“
(Søren Kirkegaard). Elísabet Haraldsdóttir
hjúkrunarfræðingur. Verið öll hjartanlega
velkomin.
FÍLADELFÍA: Laugardagur 28. júní: Bæna-
stund kl. 20. Kristnir í bata kl. 21. Sunnu-
dagur 29. júní. Almenn samkoma kl. 20.
Ræðumaður Jóhannes Hinriksson. Söng-
hópur unglingastarfs Fíladelfíu sér um lof-
gjörðartónlistina. Allir hjartanlega vel-
komnir.
VEGURINN: Athugið að aðalsamkomur
kirkjunnar eru á fimmtudögum kl. 20
næstu tvo mánuði.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Reykjavík – Kristskirkja í Landakoti,
dómkirkja og basilíka: Sunnudaga: Messa
kl. 10.30. Messa á ensku kl. 18. Alla
virka daga: Messa kl. 18. Alla miðviku-
daga er rósakransbænin að kvöldmessu
lokinni. Sunnudaginn 29. júní: Péturs-
messa og Páls, stórhátíð. Þennan dag er
Péturspeningum safnað.
Reykjavík – Maríukirkja við Raufarsel:
Sunnudaga: Messa kl. 11. Laugardaga:
Messa á ensku kl. 18.30. Virka daga:
Messa kl. 18.30.
Riftún í Ölfusi: Sunnudaga: Messa kl. 16.
Miðvikudaga kl. 20.
Hafnarfjörður – Jósefskirkja: Sunnudaga:
Messa kl. 10.30.
Karmelklaustur: Sunnudaga: Messa kl.
8.30. Virka daga: Messa kl. 8.
Keflavík – Barbörukapella: Skólavegi 38:
Sunnudaga: Messa kl. 14.
Stykkishólmur, Austurgötu 7: Alla virka
daga: Messa kl. 18.30. Sunnudaga:
Messa kl. 10.
Ísafjörður: Sunnudaga: Messa kl. 11.
Flateyri: Laugardaga: Messa kl. 18.
Bolungarvík: Sunnudaga kl. 16.
Suðureyri: Sunnudaga: Messa kl. 19.
Akureyri, Kaþólska kirkjan: Péturskirkja,
Hrafnagilsstræti 2: Laugardaga: Messa
kl. 18. Sunnudaga: Messa kl. 11.
LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Kl. 11
messa með altarisgöngu. Léttir og sum-
arlegir sálmar. Árgangshópar eru sér-
staklega hvattir til að sækja kirkju á
fermingarárgangsmótum sínum í sumar.
Kaffisopi á eftir í safnaðarheimilinu. Sr.
Kristján Björnsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA.: Morg-
unsöngur kl.10.30. Prestur sr.Carlos
A.Ferrer. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: Guðs-
þjónusta sunnudag kl. 20. Prestur sr.
Kristín Þórunn Tómasdóttir. Kirkjukór Víði-
staðakirkju syngur undir stjórn Úlriks Ólaf-
sonar.
VÍDALÍNSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir þjónar.
Kirkjukórinn leiðir safnaðarsöng undir
stjórn organistans, Jóhanns Baldvins-
sonar. Án sunnudaga væru aðeins vinnu-
dagar! Allir velkomnir. Prestarnir.
STRANDARKIRKJA: Kvennakirkjan heldur
messu í Strandarkirkju í Selvogi sunnu-
daginn 29. júní kl. 20.30. Séra Auður Eir
Vilhjálmsdóttir prédikar. Aðalheiður Þor-
steinsdóttir leikur á orgel og kynnir nýja
söngva Kvennakirkjunnar ásamt konum úr
kór Kvennakirkjunnar. Allt fólk velkomið.
NJARÐVÍKURKIRKJA: (Innri-Njarðvík).
Guðsþjónusta sunnudag kl. 20. Kór Njarð-
víkurkirkju syngur undir stjórn Arngerðar
Maríu Árnadóttur organista. Baldur Rafn
Sigurðsson.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11 árd. Prestur: sr. Ólafur Oddur Jónsson.
Ræðan fer fram á ensku fyrir útlendinga
sem sækja kirkju. The sermon will be in
English for foreigners who attend the ser-
vice. The sermon topic: Morning Stroll of
Reconciliation. Kór Keflavíkurkirkju leiðir
söng. Organisti: Hákon Leifsson. Með-
hjálpari: Hrafnhildur Atladóttir.
AKUREYRARKIRKJA: Kvöldmessa kl.
20.30. Sr. Svavar A. Jónsson. Félagar úr
Kór Akureyrarkirkju syngja. Organisti Ey-
þór Ingi Jónsson.
GLERÁRPRESTAKALL: Kvöldmessa veðr-
ur í Lögmannshlíðarkirkju kl. 20.30.
LAUFÁSPRESTAKALL: Grenilundur: Guðs-
þjónusta sunnudagskvöld kl. 20. Sókn-
arprestur.
EGILSSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta í Sel-
skógi (útileikhús) kl. 11. Organisti Muff
Worden. Mánud: Kyrrðarstund kl. 18.
Sóknarprestur.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa sunnu-
dag kl. 17. Í messunni verða fluttir þættir
úr sumartónleikum helgarinnar. Sókn-
arprestur.
ÞINGVALLAKIRKJA: Ferming nk. sunnu-
dag kl. 14. Fermdur verður Birkir Svavar
Árnason, Lyngheiði 21, Hveragerði. Krist-
inn Ág. Friðfinnsson.
SELFOSSKIRKJA: Messa kl. 11. Léttur
hádegisverður að messu lokinni. Morg-
untíð sungin kl. 10 þriðjudag til föstu-
dags. Foreldrasamvera miðvikudaga kl.
11. Sóknarprestur.
EYRARBAKKAKIRKJA: Messa sunnudag
kl. 11. Sóknarprestur.
GAULVERJABÆJARKIRKJA: Messa
sunnudag kl. 14. Ferming. Fermdur verður
Vernharður Tage Eiríksson, Mávahlíð 14,
Reykjavík. Sóknarprestur.
Morgunblaðið/ÓmarMiklabæjarkirkja í Skagafirði.
Guðspjall dagsins:
Hin mikla kvöldmáltíð.
(Lúk. 14.)