Morgunblaðið - 28.06.2003, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 28.06.2003, Blaðsíða 43
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 2003 43 ÓHÆTT er að segja að veiði hafi farið vel af stað í stórám Vopna- fjarðar, Selá og Hofsá, en veiði hófst í þeim í fyrramorgun. Sjö laxar veiddust fyrir hádegi í Hofsá og fjórir í Selá, allt svokallaðir tveggja ára laxar. Á hádegi í gær vosu síðan komnir alls 19 laxar úr Hofsá og 8 úr Selá, þ.e. eftir einn og hálfan dag. Álftá var einnig opnuð og veiddist einn lax þótt áin renni varla vegna þurrka á Vesturlandi. „Þetta er frábær byrjun hjá okk- ur, fyrstu fjóra dagana í fyrra veidd- ust bara tveir laxar, en núna er lax um alla á í opnun. Það komu laxar á land af öllum svæðum. Það er gott sumarvatn í ánni, er oftast meira á þessum tíma og auðvitað gæti lækk- að ef það rignir ekki bráðum, en sem stendur er ástandið frábært, gott vatn og lax um alla á,“ sagði Edda Helgason, leigutaki Hofsár, í samtali við Morgunblaðið. Einn í Álftá Ástandið á Álftá vegna þurrk- anna er líkt og við opnun í fyrra, en sá er munurinn að núna veiddist þó lax í opnun, en ekki fyrr en eftir 10. júlí í fyrra. Laxinn eini veiddist á rauða Frances í Sjávarfossi. Einnig veiddust þrír sjóbirtingar fyrsta daginn, í Kerfossi og Hólki. Víðidalsá betri Það stefnir í að Víðidalsá verði með ögn betri júníveiði en í fyrra þótt ekki sé hægt að segja að veiðin sé mikil. Í fyrrakvöld voru komnir 17 laxar á land, en allan júní í fyrra veiddust 19 laxar, að sögn Ragnars Gunnlaugssonar á Bakka. Ragnar sagði „hræðilega lítið“ vatn í ánni, en samt væri dálítið af laxi að ganga. Þórarinn Sigþórsson tann- læknir veiddi 22 punda lax í vikunni og missti annan stærri, að sögn Ragnars, en stórfiskurinn mun vera sá stærsti sem frést hefur af í sumar. 20 pundari úr Ytri Rangá Stórir laxar eru nú að ganga í Ytri Rangá og í gormorgun veiddist þar m.a. einn 20 punda og annar tæplega 15 punda, auk minni stór- laxa. Bandarískir sjónvarpsmenn filmuðu glímuna við þann stóra á Rangárflúðum, en óvanur veiðimað- ur í hópi þeirra veiddi fiskinn á Coll- ie Dog áltúpu og naut leiðsagnar Árna Baldurssonar leigutaka árinn- ar. Hér og þar … Brennan í Borgarfirði hefur verið gjöful í sumar, í gær var 51 lax kom- inn á land á tvær stangir sem er mjög góð júníútkoma. Smálax fór að sýna sig þar fyrir nokkru. Straumarnir, sem eru vatnamót eins og Brennan, hafa einnig verið góðir að undanförnu og er kominn svipaður afli á land þar. Á báðum stöðum tekur laxinn grannt og menn missa marga. Vopnafjarðar- árnar byrja vel Bandaríkjamaðurinn Dallas ásamt Árna Baldurssyni með 20 punda, eins metra langan lax á Rangárflúðum í Ytri Rangá. Næststærsti laxinn í sumar. ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN? Lægri skólagjöld Í frétt blaðsins þann 13. júní síð- astliðinn um undirritun samnings milli menntamálaráðuneytisins og Snyrtiskóla Kópavogs var rang- fært að skólagjöld í Snyrtiskóla Kópavogs fyrir eina önn væru 625 þúsund krónur. Rétt er að þau eru 500 þúsund krónur. Þórsnesingagoði helgaði blótið Rangt var farið með nafn goð- ans sem helgaði blót Ásatrúar- félagsins í gær. Það gerði Jónína K. Berg Þórsnesingagoði og er beðist velvirðingar á rangfærsl- unni. LEIÐRÉTTING „Dýrafjarðardagar“ fjöl- skylduhátíð í Dýrafirði verður haldin dagana 3.–7. júlí nk. Fimmtudaginn 3. júlí kl. 14 verður „Vestfjarðavíkingurinn“, krafta- karlar keppa í aflraunum. Föstu- daginn 4. júlí kl. 20.45 setur Hall- dór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, „Dýrðardaga“ í Mýrakirkju og Þorvaldur Hall- dórsson syngur. Listsýning verður opnuð á miðnætti á Vallargötu 15, Þingeyri. Þar sýna verk sín Holly Hughes frá USA, Kristín Helga- dóttir og Brynjar Gunnarsson. Laugardaginn og sunnudag hefst dagskrá kl. 14, þá verður m.a. handverks- og veitingasala í sölu- tjaldi, minigolf, sjóstanga- veiðiferðir, sala á listmunum í handverkshúsi Koltru, í Vélsmiðju Guðmundar Sigurðssonar verða gamlar verkhefðir sýndar almenn- ingi, kajak- og hjólabátaferðir, skemmtisiglingar með hraðbáti björgunarsveitarinnar, hoppik- astalar o.fl. Á laugardag og sunnu- dag kl. 16–18 verður gönguferð í Haukadal um sögusvið Gísla Súrs- sonar undir leiðsögn Þóris Guð- mundssonar. Strandveisla verður á laugardagskvöld kl. 19–24 úti á Odda, (viðíþróttahúsið/sundlaug- ina). Guðrún S. Bjarnadóttir, form. undirbúningsnefndar, slítur hátíðinni kl. 18, á sunnudag, við sölutjald. Aðgangseyrir er 700 kr. fyrir börn (12 ára og yngri) og 1.500 kr. fyrir fullorðna. Innifalið í aðgangseyri eru tónleikar í Mýrakirkju, matur og skemmtiatriði í strandveislu, hoppi-kastalar, andlitsmálun, mar- hnútaveiðikeppni, ratleikur, sjó- stangaveiðiferðir og ferðir á sögu- slóðir Gísla Súrssonar í Haukadal. Ættarmót afkomenda Páls Ólafssonar og Arndísar Péturs- dóttur. Dagana 19.–20. júlí nk. ætla afkomendur Páls Ólafssonar, prófasts og alþingismanns í Vatns- firði, og konu hans, Arndísar Pét- ursdóttur Eggerz, að hittast á Húnavöllum í Húnaþingi. Hefur ættin haldið ættarmót reglulega frá 1974. Á NÆSTUNNI MÁNUDAGINN 23. júní sl. var ek- ið á bifreiðina KR-951, sem er rauð Toyota Carina II, og ekið á brott. Atvikið átti sér stað á milli kl. 14:30 og 16:30 á bifreiðastæði við Rétt- arholtsveg 45–61 í Reykjavík. Þeir sem telja sig hafa vitneskju um tjónvald eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við umferðardeild lögreglunnar í Reykjavík í síma 5699014. Lýst eftir vitnum Í FRÉTT Morgunblaðsins 24. júní var fjallað um afgreiðslutíma lánsum- sókna hjá Íbúðalánasjóði. Í fyrirsögn kom fram að afgreiðslutími hjá Íbúðalánasjóði væri kominn í tvær til þrjár vikur og byggðist sú fyrirsögn á upplýsingum frá fasteignasala sem tók dæmi um umsókn sem barst sjóðnum 4. júní en var afgreidd 23. júní. Því miður er fyrirsögnin byggð á misskilningi. Afgreiðslutími lánsum- sókna hjá Íbúðalánasjóði lengdist vissulega á tímabili eins og fram kom í fréttinni, úr venjubundum 5–6 virk- um vinnudögum í 8–9 vinnudaga. Lengri hefur hann samt ekki orðið á almennum húsbréfaumsóknum. Þess má geta að í dag er verið að afgreiða umsóknir sem dagsettar eru 20. júní þannig að afgreiðslutími er nú kom- inn niður í 6–7 daga og mun vænt- anlega verða 5–6 dagar í næstu viku. Hins vegar verður að koma fram að þær umsóknir sem um var rætt og komu inn 4. júní voru endursendar hinn 5. júní þar sem vantaði staðfest veðbókarvottorð sem er nauðsynlegt fylgigagn umsóknar. Okkur bárust veðbókarvottorðin hinn 19. júní og voruumsóknirnar því afgreiddar 23. júní, tveimur vinnudögum eftir að þær urðu vinnsluhæfar. Það afsakar þó ekki að afgreiðslu- tími Íbúðalánasjóðs á húsbréfa- umsóknum varð á tímabili allt að níu vinnudagar sem þýðir allt að hálfur mánuður fyrir viðskiptavini. Þess ber að geta að vinnslutími lánsumsókna með viðbótarláni er lengri en afgreiðslutími almennra húsbréfaumsókna. Afgreiðslutími Íbúðalánasjóðs nú sjö virkir dagar GOLFKLÚBBUR Borgarness er 30 ára um þessar mundir. Í tilefni þess- ara tímamóta hefur leigusamningur við Borgarbyggð verið endurnýjaður og Sparisjóður Mýrasýslu gefur eina milljón á ári næstu fjögur árin til framkvæmda við golfvöllinn. Til stendur að stækka hann úr 9 holna velli í 18 holna völl í áföngum, en á næstu tveimur árum munu bætast við fjórar holur. Almenningi var boðið til afmælis- kaffis í Golfskálanum á Hamri og meistaragolfarar mættu til leiks á völlinn. Það voru þau Ragnhildur Sigurðardóttir og Örn Ævar Hjart- arson sem léku saman gegn Önnu Lísu Jóhannsdóttur og Haraldi Heimissyni. Búnaðarbankinn í Borg- arnesi styrkti keppina en 80% af upphæðinni runnu til skammtíma- vistunarinnar í Holti. Skrifað undir utanhúss. Frá vinstri Helga Halldórsdóttir, forseti bæjar- stjórnar, Páll S. Brynjarsson bæjarstjóri, Ásdís Helgadóttir, formaður Golfklúbbsins, og Gísli Kjartansson sparisjóðsstjóri. Golfklúbbur Borgarness Fær eina milljón á ári næstu fjögur árin Borgarnes VINSTRI grænir á Akranesi lýsa þungum áhyggjum af þróun mála varðandi Sementsverksmiðjuna á Akranesi, að því er fram kemur í yfirlýsingu frá félaginu. Í henni segir segir m.a: „Brýnt er að stjórnvöld taki myndarlega á og tryggi rekstur verksmiðjunnar og þau störf sem þar eru unnin. Vinstri hreyfingin - grænt fram- boð á Akranesi vill að bæjarstjórn Akraness þrýsti á stjórnvöld til úr- lausnar í málinu og geri allt sem í hennar valdi stendur til að stuðla að því að verksmiðjan verði áfram starfrækt. Félagið skorar á stjórn- völd að grípa þegar til aðgerða svo einokun á sementi verði ekki hlut- skipti Íslendinga.“ Áhyggjur vegna Sements- verksmiðju ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.