Morgunblaðið - 28.06.2003, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 28.06.2003, Qupperneq 45
Hvítur á leik. 1. Rf3 Rc6 2. d4 d5 3. g3 f6 4. Bf4 Bf5 5. Bg2 Dd7 6. c4 0-0-0 7. cxd5 Dxd5 8. 0-0 Dd7 9. Da4 e6 10. Rc3 Bb4 11. e4 Bxc3 12. exf5 Bxb2 13. Hab1 Bxd4 14. Rxd4 Dxd4 Staðan kom upp á Skákþingi Hafn- arfjarðar sem lauk fyrir skömmu. Stef- án Bergsson (1.990) hafði hvítt gegn Sverri Þorgeirssyni (1.415). 15. Hxb7! Dxa4 svartur hefði einnig orðið mát eftir 15. ... Kxb7 16. Bxc6+. 16. Hxc7+ Kb8 17. Hxc6+ e5 17. ... Dxf4 18. Hb1+ og hvítur mátar. 18. Hb1+ Ka8 19. Hc8#. SKÁK Helgi Áss Grétarsson MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 2003 45 DAGBÓK HUGARFARSÞJÁLFUN TIL BETRA LÍFS EINKATÍMAR - NÁMSKEIÐ Þú lærir að koma skilaboðum og jákvæðum huglægum hugmyndum og viðhorfum inn í undirmeðvitundina. Þú lærir að upplifa tilfinningar þínar á jákvæðan og uppbyggilegan hátt og að hafa betri stjórn á streitu og kvíða, auka einbeitinguna og taka betri ákvarðanir. Þú byggir upp sjálfsöryggi og sterka sjálfsmynd. Leiðbeinandi er Viðar Aðalsteinsson dáleiðslufræðingur. Upplýsingar í síma 694 5494 STJÖRNUSPÁ Frances Drake KRABBI Afmælisbörn dagsins: Nærvera þín fellur öllum í geð. Þú hefur gott skopskyn og heillandi fas. Þú sækist mjög eftir viðurkenningu annarra því hún er þér mikilvæg. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Nú er undursamlegt að njóta samræðna við vini og ættingja. Þú munt einnig njóta þess að versla eða fara í stutt ferðalag. Naut (20. apríl - 20. maí)  Kaup þín í dag munu verða ánægjuleg. Það er ekki ein- göngu gaman að eyða pen- ingum – það er einnig gam- an að vinna fyrir þeim. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú finnur fyrir hlýju og um- hyggju í garð annarra. Að hluta til er þetta vegna þess að öðrum finnst þú hafa góða kímnigáfu. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú finnur til samkenndar með þeim sem minna mega sín. Þetta setur vandamál þín í rétt samhengi. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Samskipti þín við vini eru gefandi í dag. Þú nýtur fé- lagsskapar annarra og aðrir njóta þess að vera sam- vistum við þig. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú átt auðvelt með að heilla mikilvægt fólk í dag. Rök- hugsun þín og vilji til þess að hjálpa verða þess valdandi að aðrir virða þig. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú heldur vart vatni vegna nýrra kenninga. Þú leitast við að finna nýjar hliðar á lífinu og opinberanir af ýmsu tagi heilla þig. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Að öllum líkindum færðu einhvers konar gjöf í dag. Þú öðlast forskot fyrir til- stuðlan annarra. Vertu viss um að þakka fyrir þig. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Í dag má auðveldlega leysa deilumál sem upp hafa kom- ið milli vina. Best er að láta neikvæðar hugsanir hverfa úr huga sér. Tíminn læknar öll sár. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Nýstárlegar hugmyndir um bætta heilsu freista þín. Hlustaðu á hjartað. Það er mikilvægt að hugsa vel um líkama sinn. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Ást og rómantík munu gleðja þig í dag. Þú kýst að láta þér líða vel. Gerðu það sem þig langar til því þú átt það skilið. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Nú væri gott að fá líkamlega útrás. Það gæti hvarflað að þér að ganga í félagsskap sem tengist líkamsrækt. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. 60 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 28. júní, er sextug Helga G. Vil- hjálmsdóttir fram- reiðslumaður, búsett í Ástr- alíu, dvelst í Fannafelli 12 í Reykjavík. Hún heldur upp á afmæli sitt ásamt tveimur systrum sínum 12. júlí nk. í Slysavarnarsalnum, Sóltúni 20, kl. 17. 60 ÁRA afmæli. 30. júnínk. verður sextugur Jón Þórarinsson, lögreglu- varðstjóri, Lagarfelli 22, Fellabæ. Jón og fjölskylda hans bjóða vinum og vanda- mönnum á öllum aldri að samgleðjast í tilefni afmæl- isins og verða með opið hús frá kl. 17 laugard. 28. júní í Golfskálanum að Ekkjufelli. 50 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 28. júní, er fimmtug Rannveig Sigurðardóttir, tjóna- fulltrúi, Drekavogi 8, Reykjavík. Haldið verður upp á afmælið í Gryfjunni í Grímsnesi milli kl. 16.30 og 20.30. TILEINKUN Til þín, sem býrð á bak við hugsun mína, blóðlaus og föl, og speglar ásýnd þína í mínum kalda og annarlega óði. Frá mér, sem horfði úr húmi langrar nætur á heimsins blökku dýrð, og reis á fætur með jódyn allra jarða mér í blóði. Og ég var aðeins til í mínu ljóði. Steinn Steinarr LJÓÐABROT Í SPILI gærdagsins sýndi Sabine Auken hvern- ig hægt er að staðsetja drottningu með punkta- talningu. Nú er það grein- ing á skiptingu sem leiðir lykildrottninguna í ljós. Norður gefur; enginn á hættu. Norður ♠ ÁG1097 ♥ 87 ♦ K98 ♣972 Vestur Austur ♠ K852 ♠ D3 ♥ D2 ♥ 10643 ♦ G7652 ♦ D10 ♣65 ♣KDG108 Suður ♠ 64 ♥ ÁKG95 ♦ Á43 ♣Á43 Vestur Norður Austur Suður Sanders von Arnim Berkowitz Sabine – Pass Pass 1 lauf * Pass 1 spaði Pass 2 hjörtu Pass 2 spaðar Pass 2 grönd Pass 3 grönd Allir pass Árið er 1999 og tilefnið sýningarleikur úrvalsliða Evrópu og Bandaríkjanna í kvennaflokki sem fram fór í Sviss. Vestur kom út með lít- inn tígul. Sabine tók drottningu austurs með ás og spilaði spaða á gosa og drottningu austurs. Tíg- ultían var dúkkuð og aust- ur skipti þá yfir í laufkóng, sem Sabine gaf einnig. En næsta lauf tók hún með ás, svínaði spaða, tók ásinn og gaf vestri slag á kónginn. Það var fjórði slagur varn- arinnar og vestur átti ekki meira lauf til og spilaði tígli á kóng blinds. Spilið var nú sem opin bók: Norður ♠ 7 ♥ 87 ♦ – ♣9 Vestur Austur ♠ – ♠ – ♥ D2 ♥ 1064 ♦ G7 ♦ – ♣– ♣G Suður ♠ – ♥ ÁKG ♦ – ♣3 Austur varð að halda í hæsta laufið og henti því hjarta í síðasta spaðann. Þar með var ljóst að hjörtu varnarinnar myndu öll koma í ÁK svo hjartagos- inn varð níundi slagurinn. Svokölluð upplýs- ingaþvingun. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson ÁRNAÐ HEILLA Vegna mistaka við vinnslu blaðsins í gær birtist vikugömul vinningaskrá frá happdrættinu í blaðinu. Morgunblaðið biðst velvirðingar á þessu flaustri en hér að neðan er skráin sem dregin var út í fyrradag. HLUTAVELTA Þessir krakkar færðu Einstökum börnum 3.500 kr. að gjöf. Þau eru Alexander Óðinsson, Rakel Þórarinsdóttir, Aron Marvin Þórarinsson og Bryndís Huld Þórarinsdóttir. Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu og söfnuðu 9.283 kr. til styrktar Rauða krossi Íslands. Þær heita Kristjana B. Barðdal, Ólöf H. Jónsdóttir, Anita Þ. Þráinsdóttir, Katrín Á. Karlsdóttir og Rakel Brynjólfsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.