Morgunblaðið - 28.06.2003, Síða 46
ÍÞRÓTTIR
46 LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÍSLENSKA landsliðið í handknattleik, skipað leik-
mönnum 20 ára og yngri, heldur um helgina til Svíþjóðar
þar sem það tekur þátt í æfingamóti í Gautaborg, en það
er í tengslum við hið vinsæla handknattleiksmót ung-
menna, Partille Cup. Andstæðingar íslenska liðsins verða
jafnaldrar þeirra í landsliðum Egyptalands, Svíþjóðar,
Danmerkur, Brasilíu og Alsírs.
Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari liðsins, hefur valið 13
manna hóp til fararinnar og hann skipa eftirtaldir leik-
menn:
Björgvin Gústavsson, HK, Einar Logi Friðjónsson, KA,
Einar Hólmgeirsson, ÍR, Elías Már Halldórsson, HK, Guð-
laugur Hauksson, ÍR, Gunnar Ingi Jóhannsson, Stjörn-
unni, Halldór Harri Kristjánsson, Haslum H.K., Noregi,
Hörður Fannar Sigþórsson, Þór, Jón Þorbjörn Jóhanns-
son, Sonderborg, Danmörku, Jón Björgvin Pétursson,
Fram, Ólafur Víðir Ólafsson, HK, Stefán Guðnason, KA,
Þorleifur Björnsson, ÍR, og Þórður Þórðarson, Haukum.
Óskar velur
Svíþjóðarfara
GÓÐ byrjun nýliða Þróttar í efstu deild karla í knattspyrnu hefur
komið ýmsum knattspyrnuáhugamönnum á óvart. Ekki síst þegar
rifjað er upp að á þessum sama degi fyrir ári síðan var ekki bjart yf-
ir stuðningsmönnum Þróttara. Lið þeirra var þá í næstneðsta sæti
1. deildar og Köttarar, stuðningsmannafélag Þróttar, voru farnir
að ræða um hugsanlegan nágrannaslag gegn Létti að ári liðnu.
En í dag situr liðið í næstefsta sæti efstu deildar. Góð byrjun í
efstu deild er kunnugleg staða fyrir Þróttara. Þar síðast þegar fé-
lagið var í efstu deild, árið 1985 var liðið einnig í 2. sæti að loknum
sjö umferðum en féll að lokum. Það ár lék liðið úrslitaleik um hvort
liðið félli við Víði úr Garðinum, suður með sjó. Víðismenn sigruðu
en þó með naumindum því Ólafur Róbertsson, varnarmaður Víð-
ismanna, bjargaði á ævintýralegan hátt á marklínu á lokamínútu
leiks. Þá var staðan 3:2 Víðismönnum í vil en Þrótturum hefði nægt
jafntefli. Árið 1998 var Þróttur kominn í efstu deild á nýjan leik.
Þegar mótið var hálfnað voru Þróttarar í huggulegum málum í
fjórða sæti deildarinnar. En skelfileg seinni umferð þar sem liðið
hlaut aðeins 5 stig varð liðinu að falli.
Mikil breyting
á stöðu Þróttar
Ásgeir Elíasson, þjálfari Þróttar.
GEIR Sveinsson er hættur þjálfun
karlaliðs Vals í handknattleik. Hann
hefur verið þjálfari liðsins undanfar-
in fjögur ár. Undir stjórn Geirs lék
Valur m.a. til úrslita um Íslands-
meistaratitilinn við KA fyrir rúmu
ári. Óskar Bjarni Óskarsson tekur
við starfi Geirs en Óskar hefur lengi
þjálfað yngri flokka félagsins og
einnig stýrt ungmennalandsliðum
Íslands.
MARTIN Jørgensen, landsliðs-
maður Dana í knattspyrnu, leikur
með Lazio á næstu leiktíð en hann er
einn þriggja leikmanna sem ganga
til liðs við félagið frá Udinese. Hinir
tveir eru David Pizzaro og Alberto.
Í staðinn fær Udinese þá Lucas
Castroman og Fabio Liverani frá
Lazio.
BÆÐI mörk Valsmanna gegn KA
á Akureyrarvelli á þriðjudag höfðu
viðkomu í Jóni Örvari Eiríkssyni,
miðvallarleikmanni KA. Jón Örvar
er fyrrverandi leikmaður Dalvíkur
en mörk Vals í leiknum gerðu bræð-
ur frá Dalvík, þeir Jóhann Hilmar
og Sigurbjörn Örn Hreiðarssynir.
BRÆÐURNIR hafa verið í miklum
ham í upphafi leiktíðar og gert átta
af tíu mörkum Vals á leiktíðinni. Jó-
hann Hilmar hefur gert fimm mörk í
fimm leikjum en Sigurbjörn Örn
fyrirliði þrjú í sjö leikjum. Athygli
vekur að enn hefur sóknarmanni
Vals ekki tekist að komast á blað og
að liðið hefur fengið á sig 13 mörk
sem er meira en liðið fékk á sig allt
leiktímabilið í fyrra.
FRANSKA knattspyrnuliðið Paris
Saint-Germain hefur keypt Ghana-
búann Mickaal Essien frá Bastia.
Essien er miðjumaður og þykir mjög
efnilegur. Þetta eru fyrstu kaup Va-
hid Halilhodzic sem er nýr þjálfari
Paris Saint-Germain.
ED DE Goey, fyrrverandi mark-
vörður Chelsea, er þessa dagana
undir smásjánni hjá Birmingham og
Wolves.
LEIKMENN Manchester City
leika ekki í treyju númer 23 í fram-
tíðinni. Verður það gert til þess að
minnast Marc Viviens Foes, leik-
manns liðsins, sem lést á miðviku-
dag, en hann klæddist treyju númer
23 í leikjum liðsins á síðustu leiktíð.
KRÓATINN Ivo Karlovic, sem sló
Wimbledon meistarann í tennis,
Lleyton Hewitt, úr keppni, er úr leik
eftir að hafa tapað fyrir Hvít-Rúss-
anum Max Mirnyi í gær. Miryni sigr-
aði í fjórum lotum, 7:6, 3:6, 6:3 og 7:6.
ENSKA 1. deildarliðið Wimbledon
mun ekki flytja heimavöll sinn til
Milton Keynes sem er um 80 km frá
London en stuðningsmenn liðsins
hafa mótmælt áformum eigenda liðs-
ins með þeim hætti að mæta ekki á
heimaleiki liðsins á Shelhurst Park,
heimavöll Crystal Palace.
FÓLK
Einu flugmiðarnir sem ég getfengið kosta alltof mikið, annar
er á 120.000 krónur og hinn á 90.000
krónur. Það er einfaldlega alltof mik-
ið, ég hef ekki efni á því að fara og
verð því heima næstu daga en stefni
að því að keppa í Grikklandi um aðra
helgi, þá kemst ég út á ódýrari miða,“
sagði Þórey og þótti afar miður að
geta ekki tekið þátt. Eftir mótið í
Grikklandi um aðra helgi hyggst Þór-
ey vera með bækistöðvar til æfinga
og keppni í Leverkusen, en þaðan er
ódýrara að fara á mót víða um Evr-
ópu en frá Íslandi. Síðan fer hún til
vetrardvalar í Þýskalandi í haust eins
greint var frá í Morgunblaðinu í gær.
Þrátt fyrir að mótshaldarar bjóði
keppendum að taka þátt í mótum þá
greiða þeir ekki allan kostnað þeirra
við að koma sér á mótsstað. Í tilfelli
Þóreyjar ætluðu mótshaldarar að
greiða 300 evrur, um 25.000 krónur,
fyrir ferðir, það sem eftir stóð þurfti
Þórey greiða úr eigin vasa. Þórey
hefur verið afar eftirsótt á mót í vor
og sumar og hafa boðin verið svo
mörg að hún hefur ekki getað þegið
þau öll.
Engin einhlít skýring er á þessum
fjölda boða að sögn Þóreyjar. „Senni-
legast er að mér gekk að mörgu leyti
vel í vetur og ég stökk meðal annars
4,50 metra í Grikklandi. Þegar móts-
haldarar fara að huga að keppendum
á mót sín á vorin er mjög horft til ár-
angurs á innanhússtímabilinu. Ekki
má heldur gleyma því að mér hefur
vegnað vel það sem af er sumars,“
sagði Þórey.
Þórey hefur hæst stokkið 4,42 m á
alþjóðlegu móti í sumar en 4,48 á sýn-
ingu í Þýskalandi. Þá hefur hún gert
atlögu að Norðurlandametinu utan-
húss, 4,51, en ekki haft erindi sem
erfiði enn sem komið er. Hún vonast
þó til þess að stutt sé í að það falli í
hendur Íslendings á nýjan leik, en
Svíinn Kirsten Belin bætti Norður-
landamet Völu Flosadóttur um einn
sentimetra í fyrrahaust. Þórey á
Norðurlandametið í stangarstökki
innanhúss, sem er einnig 4,51.
„Ég er sátt við árangurinn til
þessa en ég vil komast miklu hærra
áður en keppnistímabilið er úti. Ég
veit vel að það býr meira í mér ég hef
sýnt til þessa,“ segir Þórey Edda El-
ísdóttir, stangarstökkvari úr FH og
annar tveggja íslenskra frjálsíþrótta-
manna sem hafa tryggt sér farseð-
ilinn á heimsmeistaramótið í frjáls-
íþróttum sem fram fer í París í lok
ágúst.
Þórey Edda Elísdóttir afþakkar boð á tvö alþjóðleg mót vegna ferðakostnaðar
Morgunblaðið/RAX
Þórey Edda Elísdóttir hefur keppt víða í sumar og mörg mót eru framundan hjá henni, meðal annars HM í París í lok ágúst.
Þórey stefnir hærra
fyrir lok sumars
„ÉG keppi hvorki í Poznan né Prag á sunnudaginn vegna þess að
það er einfaldlega alltof dýrt,“ sagði Þórey Edda Elísdóttir, stang-
arstökkvari úr FH, þegar hún var spurð hvort hún hygðist taka þátt í
móti í Poznan í Póllandi eða Prag í Tékklandi á sunnudaginn, en
henni stóð til boða að taka þátt í mótunum, hún þurfti aðeins að
velja á milli þar sem þau eiga að fara fram á svipuðum tíma á
sunnudaginn.