Morgunblaðið - 28.06.2003, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 2003 51
MÖGULEIKAR netsins til dreifing-
ar á tónlist og að vekja á sér athygli
eru miklir eins og Gunnar Waage
trommuleikari hefur kynnst. Plata
hans, Azteka,
situr í efsta sæti
á lista hjá
MP3.com.au, lag
hans „Funky-
town“ er í öðru
sæti á djass og
bræðings-vin-
sældalista (Jazz-
Fusion) á sama
vef og Gunnar
sjálfur er í efsta sæti yfir listamenn.
Til viðbótar sitja lög eftir Gunnar í
fjórða sætinu og því sextánda en
platan hefur verið í toppsætum síðan
í nóvember á síðasta ári.
En hvernig skyldi ævintýrið hafa
byrjað? „Í rauninni er þetta efni sem
ég er búinn að vera að fást við síðan
1996,“ segir Gunnar, en nýjasta lagið
á vefnum er ársgamalt. Gunnar bjó í
Mexíkó á árunum 1994 til 1998 og
útbjó kynningarefni til að nota í at-
vinnuleit en hann hélt suður á bóginn
eftir nám í Minneapolis í Bandaríkj-
unum. Alls hefur Gunnar sett sjö lög
inn á vefinn en þar getur fólk hlaðið
niður lögunum og hlustað á þau.
Spunar frekar en lagasmíðar
„Maður fór að fara í stúdíó og taka
upp prómó-efni sem sýndi tromm-
urnar vel og ég henti kassettum með
númerinu mínu í fólk,“ segir Gunnar
en tilgangurinn „var að komast í
betri gigg“ eins og hann orðar það.
„Svo varð þetta að vana þannig að ég
hef verið að fara öðru hvoru í stúdíó
að taka upp,“ segir Gunnar, sem hef-
ur nú hljóðver heima hjá sér.
„Mikið af þessu eru spunar, ekki
beint lagasmíðar. Fyndnast er að það
sem hefur verið mest hlustað á þarna
á vefnum var bara spilað einu sinni
og var aldrei æft,“ segir hann, en sem
dæmi er lagið „Funkytown“ í raun
trommusóló. Þetta er eini vefurinn
sem Gunnar hefur sett lög inn á en
hann frétti af honum eftir ábendingu
vinar. „Ég prófaði að henda ein-
hverju einu eða tvennu sem ég fann
ofan í skúffu, bara í gamni,“ segir
hann um upphafið. „Svo er þetta
komið út í það núna að ég er farinn að
leggja drög að því að taka upp bein-
línis til að gefa út á þennan hátt,“
segir hann.
Óraði ekki fyrir þessu
„Þetta er að stórum hluta í
ákveðnum tilraunastíl. Þannig hugsa
ég þetta. Þú getur nýtt vefinn til að
setja fram efni og sjá hvernig því er
tekið. Mig óraði aldrei fyrir því að
neinn myndi hlusta á þetta,“ segir
Gunnar um lögin og viðtökurnar.
„Netið losar þig við þennan milli-
lið, allavega til að byrja með. Þetta er
ein vídd í viðbót,“ segir hann um að
gefa út á þennan hátt. Velgengni á
netinu getur líka spurst út. „Það hef-
ur einn útgefandi í London talað við
mig. Núna ætlar líka trommuleikara-
vefur í Los Angeles að taka mig fyrir
sem trommuleikara mánaðarins,“
segir Gunnar og hefur gaman af.
Hann býst ekki við að gefa út þetta
efni sem er á vefnum í annarri mynd
heldur frekar vinna að nýju efni.
Gunnar hefur fengist töluvert við
kennslu, bæði hérlendis og í Mexíkó.
„Það sem mér hefur alltaf fundist er
að það er of mikið gírað inn á við
nemendur að endastöðin sé sú að
verða ríkur og frægur,“ segir hann
„Það eru fleiri leiðir til að tjá sig.
Það er það skemmtilegasta við þetta,
það er tjáningin, að átta sig á að
stöffið sem lá ofan í skúffu í gær, að
nokkur hundruð eða þúsund manns
séu að hlusta á það daginn eftir. Mér
finnst þetta mjög jákvæð þróun,“
segir hann.
Vinsæll á vefnum MP3.com.au
Platan í fyrsta sæti
TENGLAR
.....................................................
www.mp3.com.au
ingarun@mbl.is
Gunnar Waage
SÖNGLEIKURINN Grease var
frumsýndur í Borgarleikhúsinu á
fimmtudag. Með aðalhlutverkin
fara Jón Jósep Snæbjörnsson
(sem Daníel Zoëga) og Birgitta
Haukdal (sem Sandí) en leikstjóri
er Gunnar Helgason. Í stuttu sím-
tali sagði Gunnar mjög vel hafa
tekist á frumsýningunni. „Það
tókst mjög vel og allir voru him-
inlifandi. Fólk lætur vel af sýn-
ingunni og skemmtilegt hvað
menn notuðu stór lýsingarorð í
hita leiksins að lokinni sýning-
unni á fimmtudag,“ glensar
Gunnar glaður í bragð.
Sérstakar sýningar fyrir
yngstu áhorfendurna
Gunnar vill taka fram að þó
sýningin sé þannig gerð að hún
höfði til breiðs aldurshóps þá
kunni það ekki að henta yngstu
börnunum að fara á venjulegar
sýningar þar sem þau geta átt
erfitt með að fylgja söguþræð-
inum og krafturinn ef til vill
meiri en þau eiga að venjast í
sumum lögunum. Því eru haldnar
sérstakar sýningar um helgar þar
sem dregið er úr hljóðstyrk og
orðbragð mildað örlítið.
Samkvæmt upplýsingum sem
fengust hjá miðasölu Borgarleik-
hússins verða þær sýningar á
laugardögum kl. 15 og sunnudög-
um.
Uppselt er á sýningar næstu
tvær vikur en næst eru örfá sæti
laus á sýningu laugardaginn 12.
júlí kl. 15 og 20 og fimmtudaginn
17. júlí kl. 20.
Gunnar Helgason leikstjóri í félagsskap þeirra Guð-
finnu og Birnu Björnsdætra, danshöfunda verksins.
Morgunblaðið/Jim Smart
Þórólfur Árnason og Birgitta Haukdal ræddust glað-
beitt við í lok sýningar.
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og Laddi sem
leikur útvarpsmanninn Jón Alsæl og verndarengil.
Laddi, Gísli Rúnar Jónsson og Þorvaldur Bjarnason
skröfuðu og skrípuðu eins og þeirra er von og vísa.
Sumarástin lifnar á ný
POWE
R
SÝNIN
G
KL. 10
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
www.regnboginn.is
Kvikmyndir.com
X-ið 977HJ MBLHK DV
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i.16
Martröðin er
raunveruleg!
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Fyndnasta myndin
sem þú sérð á árinu!
Losaðu þig við reiðina
og hlæðu þig máttlausan!
Sýnd kl. 4, 6, 8 og Powersýning kl. 10.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 16
sv MBL
T H E Y
Ef þú skellir á
ertu dauður!
Spennutryllir
af bestu gerð.
Fór beint á
toppinn
í USA.
Frábær mynd
sem heldur
áhorfendum
í heljar greipum!
Frumsýning
.
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 2, 4 og 6. Sýnd kl. 8 og 10.
Ef þú hélst að þú værir heimskur,
þá hefurðu ekki hitt Harry og Lloyd.
Þeir eru komnir aftur, heimskari en
nokkru sinni fyrr í geggjaðri grínmynd!
Frábær spennumynd með stórleikurunum
Al Pacino og Kim Basinger.
Hann taldi sig hafa séð allt,
þar til hann sá of mikið!
KIM
BASINGER
A L P A C I N O
TÉA LEONI
FRUMSÝNING