Morgunblaðið - 25.07.2003, Side 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
All
taf
ód‡rast á netinu
Verð á mann frá 19.500 kr.
Fjóla Steinsdóttir hefur lifað ævintýralegu lífi,
en hún settist m.a. að í Síerra Leóne með fjölskyldu
sinni eftir að hafa orðið skipreika þar. Elín Pálmadóttir
ræddi við hana.
Þak yfir höfuðið
Íslenski fasteignamarkaðurinn hefur verið líflegur und-
anfarið og nú eru uppi hugmyndir um að hækka lánafyr-
irgreiðslu upp í 90%. Hjálmar Jónsson kynnti sér málin.
Brjálaðir Íslendingar
Sænski kvikmyndaframleiðandinn Bo Jonsson á hlut að
nokkrum vinsælustu myndum Norðurlanda. Pétur Blön-
dal fræddist um kynni hans af íslenskri kvikmyndagerð.
Skipreika í Síerra Leóne
á sunnudaginn
HASS Í HURÐUM
Tollgæslan í Færeyjum lagði hald
á 20 kíló af hassi sem falin voru í
hurðum bifreiðar Íslendings sem
kom með Norrænu til Þórshafnar
frá Danmörku. Talið er víst að hann
hafi ætlað að smygla hassinu til
Íslands. Fimm kíló af hassi voru í
hverri hurð bílsins. Söluverðmæti
þess nemur rúmlega 50 milljónum
króna.
Rjúpur friðaðar til 2006
Bannað verður að veiða rjúpur
næstu þrjú árin, samkvæmt ákvörð-
un Sivjar Friðleifsdóttur umhverfis-
ráðherra sem hún kynnti á blaða-
mannafundi í gær. Rjúpnaveiðar
munu hefjast aftur árið 2006, að
sögn ráðherrans, en skotveiðimenn
óttast að þær muni leggjast af með
öllu verði miðað við að stofninn nái
þeim styrk sem hann hafði í byrjun
liðinnar aldar.
Myndir af Saddamssonum
Bandaríski herinn birti í gær ljós-
myndir sem fullyrt var að væru af
andlitum látinna sona Saddams
Husseins. Voru myndbirtingarnar
liður í tilraunum bandaríska her-
námsliðsins í Írak til þess að sann-
færa Íraka um að bræðurnir væru
örugglega ekki lengur á lífi. Þrír
bandarískir hermenn til viðbótar
féllu í skotárás á herbílalest í Norð-
ur-Írak í fyrrinótt.
Nýjar plöntur í Surtsey
Líffræðingar hafa fundið þrjár
nýjar plöntutegundir í Surtsey,
friggjargras í góðum vexti, gul-
möðru og gulvíði. Um 60 háplöntur
hafa verið skráðar í eyjunni sem á
fertugsafmæli 14. nóvember í haust.
Gæslulið fer til Líberíu
Skæruliðar uppreisnarmanna og
stjórnarhermenn í Líberíu börðust
enn í kringum hafnarsvæði höfuð-
borgarinnar Monróvíu í gær þegar
leiðtogar Vestur-Afríkuríkja hétu
því að fyrstu friðargæsluliðarnir
yrðu sendir þangað á vettvang innan
viku. Þúsundir örvæntingarfullra
borgara streymdu út úr Monróvíu í
gær í leit að öryggi, mat og
drykkjarvatni, sem mikill skortur er
orðinn á í borginni.
F Ö S T U D A G U R 2 5 . J Ú L Í 2 0 0 3 B L A Ð B
SKILABOÐ SKÍNA ÚR ANDLITUM /3 BLÚSINN FYLGIR HJART-
SLÆTTINUM /2 SJÓÐHEITUR DAGUR Í SVEITINNI /4 STOKKIÐ INN
Í ÆVINTÝRI /6 Á HVAÐ ERTU AÐ HLUSTA? /7 AUÐLESIÐ /8
GÖTULEIKHÚS Hins hússinshefur verið á fleygiferð í sum-ar eins og svo oft áður. Hóp-
inn skipa fjórtán framhaldsskóla- og
háskólanemar sem hafa að markmiði
að skapa, skemmta og fá fólk til þess
að staldra við í amstri hversdagsins. Í
sumar hefur Götuleikhúsið tekið þátt
í föstudagsbræðingi Hins hússins, en
þar hafa hópar á vegum hússins gert
miðborgina að vettvangi ljóðlistar,
tónlistar, leiklistar og myndlistar.
Götuleikhúsið hefur vakið athygli
fyrir líflega búninga. Á bak við þá
stendur ungur maður, Oddvar Hjart-
arson, 26 ára gamall meðlimur leik-
hússins til fjögurra ára. „Ég byrjaði
sem götuleikari, fór svo að starfa
meðfram því í Listsmiðjunni sem er
tæknileg bækistöð Götuleikhússins,
með búningaherbergi, sminki og
smíðaverkstæði. En í sumar hef ég
eingöngu séð um búningana,“ segir
Oddvar og er hæstánægður með
dugnað hópsins í sumar. Í Listsmiðj-
unni er saumavél sem hann kennir
leikurunum á og svo er reynt að út-
færa snjalla búninga fyrir sem
minnstan pening. „Við hringjum út
um hvippinn og hvappinn og spyrjum
fyrirtæki hvort þau
þurfa að láta eitthvað
frá sér, rýma lagerinn.
Þetta eru t.d. búðir eins
og Vero Moda og Hjá
Guðsteini.“
Til þess að móta yf-
irbragðið hittast götu-
leikararnir og kasta á
milli tillögum. „Svo tek
ég í endana og hnýti
saman. Oft fáum við
lánuð viðeigandi föt,
eins og jakkaföt fyrir
gömlu dansana á fyrsta
bræðingnum, en kjól-
arnir voru flestir til
hérna og ég þurfti bara
að gera aðeins við þá.“
Oddvar er nýútskrif-
aður úr fjöltæknideild
LHÍ og er á leið til Dan-
merkur í ljósmynda-
nám. Þá hefur hann
lært hárgreiðslu og not-
ar alla þessa kunnáttu í
búningavinnuna. „Síð-
asta föstudag sá ég um
að hanna balletbúninga
sem voru tú-tú-pils og
tátiljur, hanskar og hár-
ið sleikt í balletsnúða.
Svo settum við vatt ofan
á snúðana sem urðu
eins og afródúskar,“
segir Oddvar og rifjar
einnig upp ísdrottningar sem gengu í
sérlegum hægagangi frá Ráðhúsinu í
öfugsnúnum sloppum frá Bláa lóninu
og dragsíðum pilsum með kínverskan
varalit. „Þetta er voðalega feminískt
leikhús. Það eru margar stelpur í
hópnum og svo er leikstjórinn, Stein-
unn Knútsdóttir, dálítill femínisti. En
það er bara frábært,“ segir Oddvar
og brosir breitt.
Í dag fer fram síðasti föstudags-
bræðingur sumarsins og um leið
uppskeruhátíð Hins hússins. Allir
þrettán skapandi sumarhópar húss-
ins taka þátt í fjölbreyttri dagskrá
sem hefst með tónleikum Trio Cant-
abile í Ráðhúsinu kl. 12:15. Myndlist á
ruslatunnum skreytir Lækjargötu,
klukkan 16 verða tónleikar á Ingólfs-
torgi og í kvöld frumsýnir Reykvíska
listaleikhúsið Líknarann í Fríkirkj-
unni. Þema dagsins hjá Götuleikhús-
inu er „laugar-dagur“ á föstudegi,
sem er óður til gamla Laugavegarins.
„Við verðum klædd að hætti Emils í
Kattholti og förum um með bala og
þvottasnúrur, skrúbbum Laugaveg-
inn og okkur sjálf – þetta verður mjög
fallegt,“ segir búningastjórinn Oddv-
ar að endingu.
Föstudagsbræðingur Hins hússins nær hámarki
Á föstudagsbræðingi í júní. Fötin fékk Götuleikhúsið að láni í Spútnik og víðar.
Morgunblaðið/Jim Smart
Strákar og stelpur í balletbúningunum góðu.
gleðinnar
Nýju fötin
Yf ir l i t
Í dag
Viðskipti 12 Þjónustan 31
Erlent 14/18 Minningar 33/38
Höfuðborgin 19/22 Skák 38
Akureyri 22 Bréf 40
Suðurnes 23 Dagbók 42/43
Austurland 24 Íþróttir 44/47
Landið 25 Leikhús 48
Listir 26/27 Fólk 48/53
Forystugrein 28 Bíó 50/53
Viðhorf 32 Ljósvakamiðlar 54
Umræðan 32 Veður 55
* * *
HJÓNIN sem létu lífið í umferð-
arslysi í Almannaskarði í fyrradag
hétu Haraldur J. Haraldsson og
Ingibjörg Jónsdóttir, til heimilis á
Skerjabraut 9, Seltjarnarnesi.
Haraldur, sem ók bifreiðinni,
var 72 ára, fæddur 5. mars árið
1931. Ingibjörg var 73 ára, fædd 6.
júlí árið 1930. Haraldur og Ingi-
björg láta eftir sig þrjá uppkomna
syni.
Ingibjörg
Jónsdóttir
Haraldur J.
Haraldsson
Létust í Al-
mannaskarði
SALTSÝRA lak úr 20 þúsund lítra saltsýrutanki á at-
hafnasvæði Eimskips við Sundahöfn í gær og var hluta
svæðisins lokað um tíma meðan eiturefnakafarar frá
Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins stöðvuðu lekann.
Starfsmenn Eimskips urðu lekans varir í gærmorgun við
eftirlit og gerðu strax ráðstafanir með því að kalla á sér-
hæfða aðstoð. Saltsýra er ætandi og mjög hættuleg við
innöndun og myndaðist eiturský á svæðinu, en engum
varð meint af. Gróflega áætlað er talið er að á milli 20 og
60 lítrar hafi lekið úr tanknum að sögn Jóns Viðars
Matthíassonar, varaslökkviliðsstjóra SHS.
Rúnar Helgason, aðstoðarvarðstjóri slökkviliðsins á
vettvangi, sagði slökkviliðsmenn hafa reynt að tryggja
svæðið sem best með því að einangra það og loka nið-
urföllum. „Við tókum síðan gáminn niður, lokuðum gat-
inu og erum að hefja hreinsun,“ sagði hann. Ekki er ljóst
hversu mikið af saltsýru slapp úr tanknum, en gatið sjálft
var örlítið, á stærð við gat eftir 3 tomma nagla. Það voru
starfsmenn Eimskips sem sáu rjúka úr tanknum og voru
slökkviliðsmenn af stöðvum við Tunguháls og Skógarhlíð
kallaðir út eftir tilkynningu frá þeim. Fékk slökkviliðið
lánaðan sérhæfðan verðmæta- og eiturefnagám frá
útibúi SHS í Hafnarfirði. Tveir eiturefnakafarar auk
reykkafara hjálpuðust að við að reka fleyg í gatið á
tanknum, sem átti síðan að tæma með sérhæfðum
búnaði.
Fluttur upp í Gufunes
Tankurinn var fluttur upp á svæði Áburðarverksmiðj-
unnar í Gufunesi þar sem átti að setja saltsýruna yfir á
nýjan tank. Svæðið í Gufunesi þykir hentugt hvað snertir
öryggi slökkviliðsmanna auk þess sem þar á staðnum er
fyrir hendi þekking og reynsla starfsmanna áburðar-
verksmiðjunnar í meðhöndlun saltsýru.
Tankurinn var fullur af efninu og kom með Goðafossi
til landsins í fyrradag. Efnið var flutt inn af Olís fyrir
Þormóð ramma á Siglufirði að sögn Eyþórs H. Ólafs-
sonar hjá skiparekstrardeild Eimskips. Unnið var eftir
skilgreindum aðferðum Eimskips um meðferð hættu-
legra efna þegar atvikið kom upp.
Saltsýra lak úr 20 þúsund
lítra tanki í Sundahöfn
Morgunblaðið/Júlíus
Eiturefnakafarar slökkviliðsins þétta gatið á saltsýru-
tanknum. Gróflega áætlað láku út 20 til 60 lítrar.
Eiturský myndaðist á svæð-
inu en engum varð meint af
Fljúga áætlunarflug
til Síerra Leóne
LOFTLEIÐIR Icelandic, dóttur-
félag Flugleiða, hefur náð samkomu-
lagi við vesturafríska flugfélagið
SNA, Sierra National Airlines, um
flug milli Gatwick-flugvallar í Lond-
on, Freetown í Síerra Leóne og
Banjul í Gambíu og var fyrsta flugið
farið 18 júlí sl. SNA leigir Boeing
757-200 þotu, ásamt áhöfn, viðhaldi
og tryggingum. Loftleiðir Icelandic
annast öflun leiguverkefna og á veg-
um Loftleiða Icelandic annast
Icelandair nú verkefni fyrir aðila í
Norður- og Mið-Ameríku, Evrópu
og Afríku með fjórum Boeing 757
flugvélum og einni Boeing 767 breið-
þotu sem reknar eru á flugrekstr-
arskírteini Icelandair.
Að sögn Guðna Hreinssonar,
markaðsstjóra Loftleiða, er samn-
ingurinn til átta mánaða og lág-
marksverðmæti hans um fimm millj-
ónir dala en félagið flýgur tvisvar
sinnum í viku til Síerra Leóne. „Við
erum með eina áhöfn í Freetown og
aðra í Gatwick sem skiptast á. Raun-
ar gistir áhöfnin okkar í Síerra
Leóne á sama hóteli og þyrlusveit
varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli
þannig að aðbúnaður og félagsskap-
urinn er góður.“ Guðni segir að kom-
ist hafi á góður friður í Síerra Leóne
fyrir um það bil þremur árum. „Það
hefur verið gott stjórnmálaástand
síðan og þeir hafa unnið mjög mark-
visst og mikið í því að endurreisa
bæði efnahagslífið og pólitískan
stöðugleika. Þá hafa þeir unnið að
því að endurbæta stjórnkerfið og
uppræta spillingu,“ segir hann.
EINKAFLUGVÉLAR, fjarstýrð
flugvélalíkön, fallhlífar, svifflugur
og fleira verður
til sýnis í Smára-
lindinni á svo-
kölluðu „Flug-
dúndri“ á vegum
Flugmálafélags
Íslands sem
hefst í dag og
stendur til 27.
júlí. Um er að
ræða kynningu á
áhugaflugi í allri
sinni dýrð, að sögn talsmanna Flug-
málafélagsins. Á sýningarsvæðinu
verður einnig sett upp sérstakt
barnasvæði, flugvélasmíðaverk-
stæði, flugsögulegir gripir sýndir,
kvikmyndasýningar, happdrætti,
keppnir, getraunir, skemmtiatriði
og ýmsar óvæntar uppákomur.
„Flugdúndur“
í Smáralind