Morgunblaðið - 25.07.2003, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 25.07.2003, Blaðsíða 18
ERLENT 18 FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÞAU tíðindi þykja söguleg í meira lagi að andstæðingum Grays Davis, ríkisstjóra í Kaliforníu, skuli hafa tekist það ætlunarverk sitt að safna nógu mörgum undirskriftum til að fá því framgengt að haldin verði sérstök atkvæðagreiðsla um emb- ættisfærslu ríkisstjórans. Það hefur nefnilega aðeins einu sinni áður gerst í Bandaríkjunum að haldin hefur verið kosning um hvort „aft- urkalla“ skuli umboð rétt kjörins ríkisstjóra; var það í Norður-Dak- óta árið 1921. Þykir niðurlæging Davis þeim mun meiri að hann var í eina tíð nefndur sem hugsanlegt forsetaefni Demókrataflokksins. Á miðnætti í fyrrakvöld að ís- lenskum tíma rann út frestur sem andstæðingar Davis höfðu til að safna nægilega mörgum undirskrift- um en lágmarkið til að þvinga fram atkvæðagreiðslu um embættis- færslu ríkisstjórans var 897,148 gildar undirskriftir. Skýrði embætt- ismaður frá því að þetta hefði tekist og vel það en yfirvöldum bárust list- ar með u.þ.b. 1,6 milljón undirskrift- um, þar af voru um 1,3 milljón tald- ar gildar. Lög sem heimila að umboð ríkis- stjóra frá kjósendum sé afturkallað voru sett í Kaliforníu árið 1911. Þrjátíu og ein tilraun hefur verið gerð frá þeim tíma til að þvinga fram atkvæðagreiðslu en hver og ein einasta hefur mistekist. Þar til nú. Davis óvinsæll sem aldrei fyrr Athygli vekur í þessu sambandi að aðeins er liðið um hálft ár síðan annað kjörtímabil Davis í ríkis- stjórastóli hófst. Þrátt fyrir storma- saman feril í embætti náði hann að tryggja sér endurkjör í ríkisstjóra- kosningum síðasta haust og áttu því fæstir von á að tilraun til að fá hann sviptan embætti með þessum hætti myndi heppnast. Davis nýtur hins vegar aðeins um 23% fylgis um þessar mundir skv. skoðanakönnunum og hefur aldrei verið óvinsælli. Andstæðingar hans saka Davis um að hafa gjörsamlega klúðrað fjármálastjórn ríkisins og um að hafa reynt að breiða yfir af- leiðingarnar: þ.e. halla á sjóðum Kaliforníu-ríkis – sem er fimmta stærsta hagkerfi í heiminum og fjöl- mennasta ríki Bandaríkjanna – upp á um 38 milljarða Bandaríkjadala, sem er algert met. „Ef þú skapar vanda, lýgur síðan um hann og veist ekkert hvernig þú átt að leysa hann, þá er rétt að þú víkir eins fljótt og hægt er,“ segir Darrell Issa, repúblikani sem á sæti í fulltrúadeild Bandaríkjaþings. Gray Davis segir hins vegar að fjárhagsvandi Kaliforníu-ríkis sé til- kominn vegna hruns á hlutabréfa- mörkuðum og samdráttar í efna- hagslífi Bandaríkjanna. Segist hann ekki hafa vitað af umfangi fjárlaga- hallans fyrir ríkisstjórakosningarn- ar í fyrrahaust. Schwarzenegger líklegur? Darell Issa fjármagnaði undir- skriftasöfnunina gegn Davis og hef- ur hug á því að verða sá maður sem leysir ríkisstjórann núverandi af hólmi. Hætta er hins vegar á að það reynist honum enn erfiðara verkefni en að fá því framgengt, að þessar kosningar verði haldnar. Fyrir það fyrsta hafa dagblöð að undanförnu rifjað upp fortíð Issa en fyrir þrjátíu og einu ári var hann dæmdur fyrir bílþjófnað og fyrir að hafa undir höndum ólöglegt skot- vopn. Þá gæti Issa reynst erfitt að bera sigurorð af tortímandanum sjálfum, kvikmyndaleikaranum Arn- old Schwarzenegger, ákveði hann að skella sér í slaginn. Talsmenn Schwarzeneggers segja hann enn ekki hafa tekið ákvörðun um það hvort hann gefur kost á sér. Hefur hann verið að hugleiða málið ásamt eiginkonu sinni, Mariu Shri- ver, sem er systurdóttir Johns F. Kennedys, fyrrverandi Bandaríkja- forseta. Fari tortímandinn – sem er 56 ára gamall – í framboð myndi hann hins vegar feta í fótspor ann- ars kvikmyndaleikara, Ronalds Reagans, sem sneri við blaðinu og varð ríkisstjóri Kaliforníu. Reagan varð seinna forseti Bandaríkjanna en svo langt nær metnaður Schwarzeneggers ekki; hann er ekki kjörgengur í embætti forseta þar sem hann fæddist og ólst upp í Austurríki. Almennt er talið að Schwarzenegger ætti ágæta mögu- leika á sigri, ef ekki nema fyrir þá sök hversu þekktur hann er. Kosn- ingarnar verða nefnilega haldnar eftir áttatíu daga í síðasta lagi og frambjóðendum gefst því ekki lang- ur tími til að kynna sig og málefni sín. Berst „eins og Bengal-tígur“ Eitthvað er þó óljóst hvernig kosningunum verður háttað. Flestir höfðu gefið sér að annars vegar yrði fólk beðið um að segja já eða nei við þeirri spurningu hvort það vilji að Gray Davis víki úr embætti eður ei. Síðan myndi það merkja við þann aðila sem það vill helst að leysi hann af hólmi. Cruz Bustamante aðstoð- arríkisstjóri gaf hins vegar til kynna að hugsanlega yrði aðeins kosið um það hvort afturkalla ætti umboð Davis. Repúblikanar hafa þegar lýst hneykslun sinni á þessum hug- myndum Bustamantes. „Hann ætlar auðsýnilega að tryggja sjálfum sér embættið,“ sagði George Gorton, ráðgjafi Schwarzeneggers. „Það er ekki bara tilviljun að sá sem græðir mest á þessum hugmyndum hans er hann sjálfur.“ Bustamante segir hins vegar að hann bíði þess að heyra lögfræðilegt mat dómsmálaráðherra ríkisins, Bill Lockyer, um hvernig beri að túlka lög um afturköllun umboðs ríkis- stjórans. Hvort það sé lagaleg skylda að velja um nýjan ríkis- stjóra, verði Davis sviptur embætti, eða hvort slíkt sé hugsanlega óþarfi. Gray Davis sagði hins vegar í fyrrakvöld að menn skyldu ekki halda að hann ætlaði að gefa emb- ætti sitt eftir án baráttu. „Ég mun berjast eins og Bengal-tígur en helsti styrkleiki minn hefur einmitt verið sá að fólk hefur alla tíð átt það til að vanmeta mig,“ sagði hann. AP Gray Davis (t.h.) ásamt Willie Brown, borgarstjóra San Francisco, á bar- áttufundi sem haldinn var sl. laugardag. Kosið verður um það 7. október nk. hvort „afturkalla“ skuli lýðræðislegt umboð ríkisstjóra Kaliforníu-ríkis Davis segist ekki hætta mótspyrnulaust Los Angeles, Sacramento. AFP, Los Angeles Times. MEIRIHLUTI sænskra kjós- enda er enn andvígur því að leggja niður krónuna og taka upp evruna samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Ætla 52% þeirra að segja nei í þjóð- aratkvæðagreiðslunni 14. september næstkomandi en 43% já. Í apríl voru andstæð- ingar evrunnar 56%, 54% í maí og 50% í júní. Í könn- uninni, sem Den Danske Bank gekkst fyrir, kemur fram, að andstaðan er mest meðal aldraðs fólks, láglauna- fólks og þeirra, sem ekki hafa notið mikillar menntunar. Stuðningur við evruna er aft- ur á móti mestur meðal ungs fólks, hátekjufólks og menntafólks. Danir, sem hafa tvisvar hafnað evrunni, eru nú hlynntir henni eða 64% kjósenda. Andvígir eru 34%. Engin ákvörðun hefur verið tekin um nýja þjóðaratkvæða- greiðslu í Danmörku. Aukin sjálfsvíg FJÖLDI sjálfsvíga í Japan hefur aukist eftir því sem erf- iðleikarnir í efnahagslífinu hafa dregist á langinn. Á síð- asta ári styttu 32.143 Japanir sér aldur og hafa þá sjálfs- vígin verið nokkru fleiri en 30.000 á ári í fimm ár. Sjálfs- víg, sem rakin eru til fjár- hagsáhyggna voru tæplega 8.000 í fyrra og hefur fjölgað mest í þeim hópi. Langflest, tæplega 15.000, eru eftir sem áður rakin til heilsufars- ástæðna. Meira en tveir þriðju þeirra sem styttu sér aldur voru karlmenn og flest- ir komnir yfir fimmtugt. Fyllerísröfl á þingi NOKKRAR konur á austur- ríska þinginu segjast vera búnar að fá sig fullsaddar á að hlusta á fyllerísröflið í þinginu og hafa hvatt til, að áfengissala í þinghúsinu verði bönnuð. Brigid Weinzinger, einn þingmanna Græningja, segir í viðtali við kvennatíma- ritið Wienerin, að það sé öm- urlegt að hlusta á drukkna þingmenn ræða um þjóðarhag og eftir öðrum þingkonum er haft, að drukknir þingmenn séu með eilíf frammíköll og flytji síðan ræður sínar „draf- andi röddu“. Segja þær að líklega yrði eitthvað sagt ef konur hegðuðu sér þannig. Óskiljanleg morð MAÐUR nokkur, Ron G. Thomas að nafni, gekk í fyrradag inn á fasteignasölu í San Antonio í Texas þar sem hann vann og skaut tvær kon- ur, samstarfsmenn sína, til bana og særði þá þriðju al- varlega. Að því búnu flýði hann af vettvangi og stytti sér aldur áður en lögreglan náði honum. Veit enginn hvað Thomas gekk til því að hann var í miklum metum á stof- unni og sagður hvers manns hugljúfi. Atburðir af þessu tagi eru hins vegar algengir í Bandaríkjunum. STUTT Svíar andvígir evrunni SAUTJÁNDA leiðin í frönsku hjólreiðakeppn- inni, Tour de France, var hjóluð í Suðvestur- Frakklandi gær. Það var Hollendingurinn Servais Knaven sem sigraði í gær, en Banda- ríkjamaðurinn Lance Armstrong, sem er hér fyrir miðri mynd í gulri treyju, hefur forystu í heildarkeppninni, en hann hefur sigrað í þessari þekktustu hjólreiðakeppni heims síðastliðin fjög- ur ár. Keppninni lýkur í París á sunnudaginn. AP Á sautjándu leið Fresta birtingu framburðar London. AP. UTANRÍKISMÁLANEFND neðri deildar breska þingsins tilkynnti í gær að frestað yrði birtingu á fram- burði fréttamannsins Andrews Gill- igans fyrir nefnd- inni, en Gilligan var höfundur um- deildrar fréttar breska ríkisút- varpsins, BBC, um meðhöndlun stjórnvalda á leyniþjónustu- upplýsingum í að- draganda Íraksstríðsins. Gilligan bar vitni fyrir nefndinni fyrir lokuðum dyrum í síðustu viku og greindi þar frá fundi sínum með David Kelly, vopnasérfræðiráðgjafa bresku stjórnarinnar, en BBC hefur lýst því yfir að Kelly, sem síðar fyrir- fór sér, hafi verið aðalheimildarmað- urinn fyrir fréttinni. Í henni var full- yrt að stjórnvöld hefðu ýkt ógnina er stafaði af meintri gereyðingarvopna- eign Íraka í því skyni að réttlæta herförina gegn þeim. Formaður utanríkismálanefndar- innar, sem rannsakað hefur meintar ýkjur stjórnvalda, sagði í gær að Gilligan hefði veitt heimild fyrir því að framburður hans yrði gerður op- inber, en síðan farið fram á að það yrði ekki gert. Því hefði nefndin fall- ist á, með semingi þó, að birta ekki framburðinn. Formaðurinn, Donald Anderson, bætti því við að framburður Gilligans yrði látinn í té dómaranum Hutton lávarði, sem stjórnvöld hafa skipað til að rannsaka dauða Kellys, sem fannst látinn skammt frá heimili sínu fyrir viku. Anderson sagði eftir að Gilligan bar vitni á fimmtudaginn í síðustu viku að framburður frétta- mannsins hefði verið „ófullnægj- andi“ og hefði hann skipt um skoðun í miðjum vitnisburði. Náin tengsl við MI6? Breska blaðið The Independent sagðist í gær hafa upplýsingar um að Kelly hefði haft náin tengsl við leyni- þjónustuna og verið í góðri aðstöðu til að dæma um hvort stjórnvöld hefðu ýkt ógnina er stafaði af vopna- eign Íraka. Upplýsingarnar er blaðið hafi „veki spurningar um fullyrðing- ar stjórnarinnar, áður en [Kelly] lést, þess efnis að hann hafi einungis verið lágt settur tæknimaður“, að því er segir á fréttavef blaðsins. Kelly hafi verið ráðgjafi greining- ardeildar varnarmálaráðuneytisins, sem hafi aðgang að leynilegum upp- lýsingum frá leyniþjónustunni (MI6) og fleiri stofnunum, auk upplýsinga er berist frá leyniþjónustum banda- lagsríkja Breta. Því hafi Kelly gegnt mikilvægu hlutverki við að veita upp- lýsingar, sem settar voru í skýrslu stjórnvalda, um ógnina af vopnum Íraka. Þá hafi MI6 fengið Kelly til að yfirheyra íraska liðhlaupa sem sagst hafi búa yfir upplýsingum um ger- eyðingarvopn Saddams Husseins. Andrew Gilligan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.