Morgunblaðið - 25.07.2003, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 25.07.2003, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2003 29 heyrir síðan að kúrekinn örn Hjartarson, troði upp. ná tónleikarnir án efa á m en þá verður gospel- viði. Þar syngur kirkjukór u undir stjórn Óskars Ein- eð kórnum syngja þau dórsson og Sigríður Bein- restur verður séra Magnús ikar á Skagaströnd um nahelgina eru ætlaðir fyrir una, en selt verður inn á þá. verða dansleikir frá föstu- á mánudag. Tjaldsvæði er á fyrir þá sem á þurfa að lt inn á það. 2003 í Kirkjulækjarkoti rkjan á Íslandi heldur sitt umót í Kirkjulækjarkoti í ú um verslunarmanna- l og fjölbreytt dagskrá er ir alla fjölskylduna. Flutt tónlist undir stjórn Óskars sérstök dagskrá verður a, ræðuhöld, varðeldur og omur. Samhliða er sérstakt n 1 til 12 ára og heldur það ra afmæli. fimmtudagskvöldið 31. júlí gospelsamkomu þar sem níið leiðir mótsgesti í söng á hádegi mánudaginn 4. fengisneysla er bönnuð á er mótið opið öllum sem kristilegri tónlist og tali. aða er fyrir tjöld og hús- er ókeypis en greiða þarf ði. skóli Íslands á Sauðárkróki agið Tindastóll stendur yrnuskóla Íslands á Sauð- verslunarmannahelgina. aður 12–16 ára krökkum af Í tilkynningu frá skólanum ær aðstaða sé á staðnum til ðkunar og mjög góð tjald- lskyldur. endur frá fimmtudegi til er þátttökugjald 15 þúsund lið í því er m.a. fullt fæði, æsla allan sólarhringinn, dvaka og fleira. Í tilkynningunni segir jafnframt að Knattspyrnuskóli Íslands hafi algera sér- stöðu í afþreyingar- og ferðaflórunni um verslunarmannahelgina. Skólinn sé því ótvírætt einstakur valkostur fyrir unglinga og fjölskyldur sem geta varið verslunar- mannahelginni í fögru umhverfi Skaga- fjarðar. Landsmót línudansara í Grímsnesi Dansklúbburinn Línudansarinn stendur fyrir landsmóti línudansara á Borg í Gríms- nesi um verslunarmannahelgina. Í upplýs- ingum frá forsvarsmönnum klúbbsins kem- ur fram að á Borg sé gott tjaldsvæði og klúbburinn hafi félagsheimilið til afnota. Línudansinn og kántíið verður í fyrir- rúmi að Borg og verður boðið upp á kennslu í línudansi, línudanskeppnir og böll. Þá verður boðið upp á kántrímynd- bönd, karókí og kvikmyndir fyrir yngstu þátttakendurna. Hátíðarverð er 4.500 krónur og er tjaldsvæði innifalið en börn á aldrinum 8–18 ára greiða 1.000 krónur. Tilkynna þarf þátttöku á mótinu til Dans- klúbbsins. Mannrækt undir jökli á Snæfellsnesi Mótið Mannrækt undir jökli verður haldið í fimmtánda og síðasta skiptið á Brekku- bæ, Hellnum á Snæfellsnesi. Samkvæmt upplýsingum frá hátíðarhöldurum verður Mannrækt undir jökli í ár síðasta mótið í sinni mynd. Sú þróun sem átt hefur sér stað á Brekkubæ gefur ekki lengur færi á mótshaldi í þeirri mynd sem hefur þekkst í gegnum árin. Stefnt er að því að reka endahnútinn á fimmtán ára feril mannræktarmótanna á eftirminnilegan hátt. Frítt er inn á svæðið. Mótsgestir greiða hins vegar fyrir tjald- svæði og þá þjónustu sem þeir kaupa, en að auki er öllum heimil þátttaka í ýmsum dagskrárliðum án endurgjalds. Verð á tjaldstæði er 750 krónur á mann, frítt er fyrir 12 ára og yngri. Hægt er að panta gistingu á Brekkubæ. Dagskráin er fjölbreytt að vanda. Meðal dagskrárliða eru jóga, gönguferðir, miðils- fundir, undirstöðuatriði í draumaráðning- um, kvöldvökur og margt fleira. Neistaflug í Neskaupstað Neistaflug er fjölskylduhátíð sem haldin hefur verið um verslunarmannahelgina í Neskaupstað frá árinu 1993. Blús-, rokk- og jazzklúbburinn á Nesi (BRJÁN) stend- ur fyrir hátíðinni. Fjölskyldan hefur ætíð verið í fyrirrúmi á Neistaflugi. Frír aðgangur á svæðið og frí tjaldstæði hafa svo gert það að verkum að hátíðin er öllum aðgengileg. Á Neistaflugi 2003 skemmta m.a. hljóm- sveitirnar Stuðmenn, Í svörtum fötum og fleiri. Þá verður brekkusöngur og Gunni og Felix flytja skemmtiatriði. Helga Braga og Þórunn Lárusdóttir eru einnig meðal þeirra sem stíga munu á svið. Fjöl- margir íþróttaviðburðir verða á dagskrá. Síldarævintýrið á Siglufirði Síldarævintýrið verður haldið með nokkuð hefðbundnu sniði á Siglufirði og koma þar m.a. fram hljómsveitirnar Hljómar og Stormar. Þá munu félagar úr Harmon- ikkusveitinni þenja nikkurnar. Dansleikir verða haldnir og skemmtidagskrá verður á torginu jafnt dag sem kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá hátíðarhöldurum verða kappreiðar haldnar á nýjum velli hesta- mannafélagsins. Þá segir að Leikfélag Siglufjarðar sjái um barnadagskrá og Sprell-leiktæki verði á staðnum. Síldar- minjasafnið verður að sjálfsögðu opið og að vanda verður messað í Hvanneyrarskál og Gústa guðsmanns minnst. Á Siglufirði eru tjaldstæði í hjarta bæj- arins og inni í dal. Sumarmót Kirkju sjöunda dags aðventista að Hlíðardalsskóla Um verslunarmannahelgina verður haldið sumarmót Kirkju sjöunda dags aðventista að Hlíðardalsskóla í Ölfusi. Þar verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla fjölskylduna, m.a. sérstaka unglinga- og barnadagskrá. Í boði verður fræðsla, úti- vera, sund, gönguferðir, varðeldur, kvöld- vaka og ýmsar óvæntar uppákomur. Mótið er áfengis- og vímuefnalaust. Pakkaverð er fyrir hátíðina og innifalið í því eru níu máltíðir, þrjár gistinætur og mótsgjald. Fullorðnir greiða 7.500 krónur, námsfólk 5.000 krónur og börn og ungling- ar greiða 3.500 krónur. Frítt er fyrir börn 5 ára og yngri. Fyrir þá sem ekki gista inni og ekki vilja vera í mat alla daga er móts- gjaldið 2.000 kr. fyrir einstakling, en þó að hámarki 5.000 kr. fyrir fjölskyldu og inni- falin er ein máltíð fyrir hvern. Sæludagar í Vatnaskógi Sæludagar í Vatnaskógi verða nú haldnir í tólfta sinn um verslunarmannahelgina, en þeir eru að þessu sinni tileinkaðir 80 ára afmæli sumarbúðanna. Í tilkynningu frá mótshöldurum segir að margt verði við að vera á Sæludögum, þ. á m. bátar, kvöld- vökur, varðeldur og margt fleira. Þá munu KK, Magnús Eiríksson og Ellen Krist- jánsdóttir koma fram á tónleikum á laug- ardagskvöldinu. Í tilkynningunni segir jafnframt að öll aðstaða sé til mikillar fyrirmyndar, bæði tjaldsvæði og hreinlætisaðstaða. Sæludag- ar í Vatnaskógi eru vímulaus fjölskylduhá- tíð og öll neysla áfengis er stranglega bönnuð á svæðinu. Verði á hátíðina er stillt í hóf. Það kostar 3.000 krónur fyrir einstakling en þó aldrei meira en 7.000 krónur fyrir fjölskyldu. Einnig er hægt að koma í dagsheimsókn og kostar það 2.000 krónur. Unglingamót UMFÍ á Ísafirði Unglingalandsmót UMFÍ fer fram á Ísa- firði um verslunarmannahelgina. Mótið er mikil íþróttahátíð, en ekki síður fjölskyldu- og útihátíð. Það er Héraðssamband Vest- firðinga sem sér um framkvæmd mótsins að þessu sinni. Á mótinu verður mikið gert úr afþrey- ingu fyrir alla aldurshópa, en tónleikar, brenna, útivistardagskrá og skemmti- svæði er meðal þess sem boðið verður upp á. Keppnisgjald fyrir þátttakendur er 4.500 krónur. Boðið verður upp á strætó- ferðir milli tjaldsvæðis og keppnissvæðis en allir keppendur gista í tjöldum í Tungu- dal. Hljómsveitin Á móti sól sér um dans- leikjahald og Sveppi verður aðalkynnir skemmtidagskrárinnar. Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum Dagskrá Þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum er hin glæsilegasta að vanda. Samkvæmt upplýsingum mótshaldara hefjast herleg- heitin með húkkaraballi á fimmtudags- kvöldinu þar sem hljómsveitin Á móti sól leikur fyrir dansi. Þjóðhátíðarlagið 2003 verður frumflutt á kvöldvökunni á föstudagskvöld og á mið- nætti verður brenna á Fjósakletti. Á laug- ardagskvöldinu verður flugeldasýning og á sunnudagskvöldinu verður hinn rómaði brekkusöngur. Hljómsveitirnar Sálin hans Jóns míns, Skítamórall og Á móti sól halda svo uppi fjörinu á dansleikjum í Herjólfs- dal. Fjöldi annarra hljómsveita mun einnig troða upp og ýmis skemmtiatriði verða í boði. Vönduð barnadagskrá verður á dag- inn, til að mynda söngvakeppni barna og sérstakt barnaball. Verð í forsölu er 7.900 krónur en í lausa- sölu kostar miðinn 8.500 krónur þegar komið er í dalinn, bæði föstudag og laugar- dag. Á sunnudeginum er verðið 3.500 krónur fyrir þá sem eingöngu ætla að ná þeim degi. um verslunarmannahelgina og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi kyldan í fyrirrúmi erslunarmanna- ótstöðum á land- rið fleiri, en á ann- a í ár. Íþróttir, ulestur er meðal u sniðnar að þörf- átíðir færst í vöxt. Morgunblaðið/Kristinn Frá fjölskylduhátíðinni í Galtalæk í fyrra. Fjölbreytt dagskrá er á flestum hátíðum.                                     !"    # !                     !    $  %  "   &  &' # $            #  ' (  $ $ )     % & *  fastmótaðar reglur svo að það séu ákveðnar lág- marksskröfur sem þarf að uppfylla til að geta haldið svona hátíðir.“ Eyrún segir umræðuna um þessi mál vera mjög mikilvæga því að þá sé fólk meðvitaðra um að það þurfi að sinna þessum málum vel og vanda undirbúning. „Góð gæsla á svæðunum skiptir miklu máli. Þetta er mikið undir lög- reglustjórum og sýslumönnum komið. Að þeir hafi samráð við aðilana sem vinna á stöðunum og taki þátt með þeim aðilum í að samræma störf þeirra og eftirlit á undirbúningsfundum með væntanlegum mótsstjórum útihátíða tímanlega. Núna er ein vika í verslunarmannahelgina og lít- ið samráð hefur verið haft við heilsugæslur og sjúkrastofnanir á þessum stöðum,“ segir Eyrún. Þrátt fyrir að í skýrlsunni sé mælst til að fulltrúar frá Neyðarmóttöku og/eða Stígamót- um séu til staðar hefur enginn mótshaldari ósk- að eftir þjónustu Neyðarmóttöku á hátíðar- svæði. Aflið á Akureyri, systursamtök Stígamóta, mun hins vegar vera með vakt alla verslunarmannahelgina í samráði við mótshald- ara en enginn mótshaldari hefur sett sig í sam- band við Stígamót. „Enda er það í sjálfu sér ekki aðalmálið heldur það að aðstandendur hátíða búi til sitt teymi á hverjum stað. Það er mik- ilvægt að stelpur og strákar viti hvert þau geta leitað. Við viljum auðvitað að strákar sameinist og beri ábyrgð á því að það verði ekki nauðg- anir. Þeir hafa það í sínum höndum,“ segir Díana Sigurðardóttir, starfskona Stígamóta. Þjóðhátíð í Eyjum Ein með öllu á Akureyri Síldarævintýri á Sigló Bindindismótið í Galtalæk Áætlaður gestafjöldi 8-10.000 manns Erfitt að áætla þar sem ekki er selt inn. Von- ast eftir 7-8000 gestum 2500-3000 manns Í kringum 6000 manns Markhópur Fjölskylduhátíð Fjölskylduhátíð Fjölskyldu- og menningarhátíð Fjölskylduhátíð. Áhersla á stórfjölskyld- una Miðaverð 7900 í forsölu fyrir 13-67 ára. 8500 við hliðið. Ókeypis á hátíðarhöldin. Tjaldstæði: 600 krónur fyrir 14 ára og eldri. Ókeypis á hátíðarhöldin. Tjaldstæði: 1500 krónur á tjald, öll helgin. 5800 í forsölu, 6800 á staðnum. 1000 krónum ódýrara fyrir 13-15 ára, frítt fyrir 12 ára og yngri. Kostnaður vegna löggæslu 4 milljónir, 8 milljónir með allri gæslu og viðbúnaði. Erfitt að áætla þar sem hátíðin fer fram í miðbænum. U.þ.b. 300.000, 200.000 fyrir aðra gæslu Í kringum 1 milljón. Hafa verið haldnir samráðsfundir? Nokkrir litlir en svo verður haldinn einn stór á miðvikudag Já. Litlir fundir verið haldnir en stór fundur verður haldinn á mánudag Já, það hafa verið haldnir þrír fundir Fundur verður haldinn á morgun, laugardag Verða haldnir daglegir samráðs- fundir meðan á hátíðinni stendur? Já, daglega. Já, daglega, alltaf verið gert þau þrjú ár sem hátíðin hefur verið haldin. Já, daglega Já,daglega. Auk þess fundar stjórnin dag- lega. Skipulag tjaldsvæða Tjaldstæði heimamanna skipulögð í götum. Bílastæði á sérstökum stað. Tjaldstæðin rekin af skátunum. Börn yngri en 18 ára fá ekki að tjalda nema í fylgd með fullorðnum. Bílar mega vera við tjöldin. Gæslumenn halda utan um skipulag. Stórt og mikið tjaldsvæði. Fólki velkomið að hafa bílana við tjöldin. Viðbúnaður við nauðgunum Nauðgunarteymi: Björgunarfólk, læknar, sálgæsla og barnavernd- arnefnd. Allt á svipuðum stað við Björgunarfélagið. Aflið, systursamtök Stígamóta verða á vakt alla helgina, með aðstöðu í Komp- aníinu. Neyðarmóttaka vegna nauðgana er á Fjórðungssjúkrahúsinu. Stórt og fullkomið sjúkrahús á staðn- um. Jafnframt flugvöllur á staðnum svo hægt sé að koma þeim sem verða fyrir slíku ofbeldi í réttar hendur. 2 prestar, kvensjúkdómalæknir og hjúkr- unarfræðingar á staðnum. Hægt að leita til gæslumanna og í sjúkratjald. Skipulegt plan sett saman af sýslumanni. ingum sem komu frá embætti ríkissaksóknara í fyrra. „Lögreglumenn hafa fengið góða þjálfun í rannsókn kynferðisafbrota. Það eru ýmis atriði sem komu fram í þessari skýrslu sem miða að því að minnka hættuna, t.d. með betri lýsingu á ákveðnum svæðum og með skipulagi á tjald- svæðum þannig að auðveldara verði fyrir tjald- gesti að finna tjöld sín og auðveldara fyrir lög- reglu að sinna eftirliti,“ segir Jón Þór. Að sögn Eyrúnar Jónsdóttur er Neyðar- móttakan oft í sambandi við lækna og hjúkr- unarfræðinga á heilsugæslum og sjúkrahúsum á svæðum þar sem haldnar eru útihátíðir. „Við er- um sérstaklega að fylgja því eftir hvort fólk sé meðvitað um hvar það getur leitað sér aðstoðar eftir ýmis áföll eða slys og hvort starfsfólki sé t.d. kunnugt um hvar er hægt að leita frekari að- stoðar vegna kynferðisbrota. Það þarf hins veg- ar að fara meiri undirbúnings- og samþætting- arvinna í þessi mál og það þarf að skapa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.