Morgunblaðið - 25.07.2003, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 25.07.2003, Blaðsíða 28
28 FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Álfaborgarsjens á Borgarfirði eystra Hátíðin Álfaborgarsjens verður haldin á Borgarfirði eystra um verslunarmanna- helgina eins og undanfarin ár. Í tilkynn- ingu frá hátíðarhöldurum kemur fram að markmið hátíðarinnar sé að Borgfirðingar skemmti sér vel og bjóði til sín gestum sem stefni að því sama. Ferðamálahópur Borgarfjarðar skipu- leggur hátíðina en fjölmargir koma að framkvæmd dagskrárinnar. Enginn að- gangseyrir er inn á hátíðina sjálfa en greiða verður fyrir suma dagskrárliðina. Á föstudagskvöldinu verður m.a. hag- yrðingamót og dansleikur með Norður- bandalaginu og Helenu Eyjólfsdóttur. Þá geta börnin skellt sér í ævintýraferð á laugardeginum og síðar sama dag verður Álfaborgarsjens þegar álfar og menn fara fylktu liði niður að Álfaborg. Ein með öllu á Akureyri Fjölskylduhátíðin Ein með öllu verður haldin á Akureyri þriðja árið í röð undir sömu formerkjum, sem eru fjölbreytt skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Hags- munafélagið Vinir Akureyrar stendur fyr- ir hátíðinni með fulltingi Akureyrarbæjar. Ekki þarf að greiða aðgangseyri þegar komið er til Akureyrar né heldur á Ráð- hústorg eða Akureyrarvöll þar sem skemmtidagskrá hátíðarinnar fer fram. Meðal skemmtikrafta sem fram koma á hátíðinni sjálfri eru hljómsveitirnar Papar, Í svörtum fötum, Írafár, Land og synir og fleiri. Þá má nefna atriði úr barnaleikrit- unum Benedikt búálfi og Stígvélaða kett- inum. Að auki munu fleiri sveitir og skemmtikraftar koma fram á skemmti- stöðum bæjarins, þeirra á meðal Stuð- menn. Hápunktur hátíðarinnar verður á sunnudagskvöldinu þegar haldnar verða grillveislur í hverfum bæjarins og skemmtun og flugeldasýning á Akureyr- arvelli. Í tilkynningu frá mótshöldurum segir að ekkert aldurstakmark sé á hátíðina. Næg tjaldsvæði eru á Akureyri, bæði við Þórunnarstræti og að Hömrum í suður- jaðri bæjarins, rétt norðan Kjarnaskógar. Strætisvagnar Akureyrar verða með ferð- ir milli miðbæjar Akureyrar og tjaldsvæð- isins að Hömrum. Fjölskylduhátíð í Galtalækjarskógi Fjölskylduhátíð verður á vegum IOGT í Galtalækjarskógi um verslunarmanna- helgina. Í tilkynningu frá mótshöldurum segir að á síðastliðnum 36 árum hafi mynd- ast sterk hefð fyrir útihátíð í Galtalækj- arskógi. Börn 12 ára og yngri fá frítt inn á hátíðina, 13–15 ára greiða 4.800 krónur í forsölu og 16 ára og eldri greiða 5.800 krónur í forsölu. Forsala er í verslunum Hagkaupa. Almennt verð er: Börn frítt, 13–15 ára 5.800 krónur og 16 ára og eldri 6.800 krónur. Hljómsveitirnar Írafár og Í svörtum fötum leiða hátíðina ásamt fjölda þekktra skemmtikrafta á borð við Spaugstofu- menn og fleiri. Boðið verður upp á barna- dansleiki, poppmessu, harmonikkuböll, flugeldasýningar og fleira. Í tilkynningunni segir að Galtalækjar- mótin hafi verið til fyrirmyndar um rekst- ur og skipulag útihátíða um verslunar- mannahelgi. Flestir séu sammála um að farsælast sé að halda fjölskylduútihátíð um verslunarmannahelgina án vímuefna og Galtalækur verði áfram í fararbroddi í þessum efnum. Fjölskyldumótið Úlfljótsvatni Bandalag íslenskra skáta stendur fyrir fjölskyldumóti á Úlfljótsvatni um verslunarmannahelgina. Hátíðin er ætluð fjölskyldufólki og öllum þeim sem vilja sækja skemmtilega og vímulausa útihátíð, hvort sem þeir tengjast skátastarfi eða ekki. Að vanda verður margt hægt að gera. Stutt er í sund en á staðnum er líka að- staða fyrir skemmtilega afþreyingu, svo sem sig- og klifurturn, folf-völlur, vatna- safarí og bátaleiga. Enginn sérstakur aðgangseyrir er að fjölskyldumótinu, aðeins er greitt fyrir tjaldsvæði. Verðið fyrir gistingu er miðað við tjald/tjaldvagn/fellihýsi og er 3.000 kr. fyrir þá sem koma á föstudegi, 2.000 fyrir þá sem koma á laugardegi eða sunnudegi. Iðandi dagar á Flúðum Það verða Iðandi dagar á Flúðum um verslunarmannahelgina þar sem boðið verður upp á fjölbreytta afþreyingu og ýmsar uppákomur fyrir alla fjölskylduna. Frítt er inn á svæðið. Á Útlaganum verður boðið upp á tónlist alla helgina. Hljómsveitin Skítamórall skemmtir á fimmtudag og föstudag, DJ Júlli á laugardag og Sixties á sunnudag. Traktorstorfæran verður á sínum stað á laugardag og furðubátakeppnin á sunnu- dag. Gönguferðir, varðeldur, sölutorg og ýmislegt fleira verður í boði alla helgina. Kántrítónleikar á Skagaströnd Í stað hefðbundinnar Kántríhátíðar verð- ur í ár boðið upp á kántrítónleika með fjölda úrvalslistamanna laugardaginn 2. ágúst og gospelmessu á sunnudeginum. Samkvæmt upplýsingum frá hátíðar- höldurum vilja Skagstrendingar nú leggja enn meiri áherslu á kántrítónlistina og því hafa verið kallaðir til afbragðs tónlistar- menn, sem halda munu tónleika. Ber þar hæst hljómsveitina Brimkló. Fleiri lista- menn skemmta á tónleikunum og má þar nefna hljómsveitina BSG og tónlistar- mennina Magnús Eiríksson og KK. Að sjálfsögðu tilh sjálfur, Hallbjö Hámarki n sunnudeginum messa á útisv Hólaneskirkju arssonar. Me Björgvin Hall teinsdóttir. Pr Magnússon. Kántrítónle verslunarmann alla fjölskyldu Í Kántríbæ v degi og fram á Skagaströnd halda og er sel Kotmót 2 Hvítasunnukir 54. fjölskyldu Fljótshlíð nú helgina. Mikil skipulögð fyri verður gospelt Einarssonar, fyrir unglinga ýmsar uppáko mót fyrir börn upp á sitt 10 ár Mótið hefst kl. 21 með g Gospelkompan og því lýkur ágúst. Öll áfe svæðinu og e áhuga hafa á Frábær aðsta vagna. Mótið fyrir tjaldstæð Knattspyrnus Ungmennaféla fyrir knattspy árkróki um Skólinn er ætl öllu landinu. Í segir að frábæ knattspyrnuið stæði fyrir fjöl Skólinn ste mánudags og e krónur. Innfal húsnæði, gæ kennsla, kvöld Á annan tug skipulagðra hátíðarhalda Fjölsk Undirbúningur að hátíðarhöldum um ve helgina er kominn vel á veg á flestum mó inu. Sjaldan eða aldrei hafa hátíðirnar ver an tug skipulagðra hátíðarhalda verða línudans, álfar, tónleikar og kristallskúlu þess sem í boði er. Fjölmargar hátíðir eru um fjölskyldunnar og hafa vímulausar há EYRÚN Jónsdóttir, umsjónarhjúkrunarfræð- ingur Neyðarmóttöku vegna nauðgana, segir að það þurfi meiri samþættingar- og undirbúnings- vinnu í kringum viðbúnað vegna kynferðislegs ofbeldis á útihátíðum. Á síðasta ári kom út skýrsla starfshóps sem var skipaður til að fara yfir reglur og lagaum- gjörð varðandi útihátíðir. Í hópnum áttu sæti fulltrúar frá Neyðarmóttöku vegna nauðgana, Stígamótum, Sýslumannafélagi Íslands, land- læknisembættinu, dómsmálaráðuneytinu og frá embætti ríkislögreglustjóra. Dómsmálaráðuneytið hefur fylgt framkvæmd skýrslunnar eftir í samvinnu við fulltrúa frá Neyðarmóttöku vegna nauðgana og landlækni. 27. júní síðastliðinn sendi ráðherra út bréf til ríkislögreglustjóra og allra lögreglustjóra þar sem minnt var á skýrsluna og þær viðmið- unarreglur sem þarf að hafa í huga við útgáfu skemmtanaleyfa. Í bréfinu kemur m.a. fram að það sé í verka- hring lögreglustjóra að meta löggæsluþörf vegna útihátíðar með tilliti til gestafjölda, sam- setningar gesta, staðsetningar hátíðar, hvort meðferð og neysla áfengis er bönnuð á móts- svæði og svo framvegis. Einnig er sérstaklega tekið fram að hátíðarsvæðið þurfi að vera vel skipulagt. Girða eigi af ákveðin svæði fyrir bif- reiðar og tryggja að götur og göngustígar séu á milli tjaldraða til að unnt sé að sinna nauðsyn- legustu öryggis- og heilbrigðisþjónustu í neyð- artilvikum. Þá er bent á að halda skuli daglega samráðs- fundi meðan á hátíð stendur með yfirmönnum lögreglu, fulltrúum frá heilsugæslu, gæsluliðum og samkomuhaldara þar sem fara skal yfir stöðu mála og koma með tillögur til úrbóta hafi eitt- hvað misfarist. Í skýrslunni er jafnframt lögð áhersla á að haldnir séu undirbúningsfundir þar sem farið er yfir þá þætti sem þarf að standa vel að. Í skýrslunni eru sérstök ákvæði um viðbúnað við kynferðisofbeldi á útihátíðum og sálræna gæslu samkomugesta. Þar kemur fram að á fjöl- mennum útihátíðum þurfi að gera ráð fyrir að- stöðu fyir móttöku og aðhlynningu þolenda kyn- ferðisbrota og að tryggð sé aðstoð og aðbúnaður fyrir þá á næsta sjúkrahúsi eða heilsugæslu. Að- staðan skuli vera skilin frá annarri sjúkra- aðstöðu vegna öryggisþátta. Að sögn Jóns Þórs Ólasonar, lögfræðings í Dómsmálaráðuneytinu, er mikil áhersla lögð á að gott samráð sé á milli lögreglunnar, heil- brigðisstofnana, björgunarsveita og mótshald- ara. Varðandi kynferðislegt ofbeldi segir hann að lögreglustjórum beri að fylgja eftir leiðbein- Gott samráð mikilvægt i f r s a á RJÚPNAVEIÐI BÖNNUÐ Siv Friðleifsdóttir, umhverfis-ráðherra, hefur bannað veiðar á rjúpu í þrjú ár. Náttúrufræði- stofnun hafði lagt til fimm ára bann. Í viðtali við Morgunblaðið á Netinu í gær sagði ráðherrann m.a.: „Þessi ákvörðun er tekin á þeim grundvelli að veiðar hefjist aftur árið 2006. Auðvitað veit mað- ur ekki hvernig staðan verður þá en það er mjög líklegt að stofninn fari í uppsveiflu núna næstu ár.“ Þessi ákvörðun umhverfisráð- herra er skynsamleg og rétt í ljósi stöðu rjúpnastofnsins. Skotveiði- menn, sem kunna þessari ákvörð- un misjafnlega, verða að kyngja því að mat sérfróðra manna á stöðu rjúpnastofnsins fái að ráða ferðinni. Viðhorf til veiða eru að breytast í takt við þær breytingar, sem orð- ið hafa á viðhorfi til náttúrunnar almennt. Það er t.d. athyglisvert hvers konar bylting hefur orðið í viðhorfi fólks til laxveiða. Sú var tíðin, að þeir sem veiddu flesta laxa á sumrin þóttu miklir afreks- menn. Magnveiði á laxi er ekki lengur fagnað og raunar þykir mörgum, sem hún eigi ekki við. Þeim Íslendingum fer fjölgandi, sem veiða lax og sleppa. Þeim fer líka fækkandi, sem nota maðk til laxveiða. Rjúpan er partur af íslenzkri náttúru alveg eins og laxinn og þess vegna hvalurinn við strendur landsins. Skotveiðimenn eiga ekki að gagnrýna Siv Friðleifsdóttur fyrir að gera ráðstafanir til að vernda rjúpnastofnun. Þeir eiga þvert á móti að fagna ákvörðun hennar. Enginn hefur lagt til að rjúpnaveiðar verði bannaðar að fullu og öllu en það væri okkur til skammar ef við höguðum okkur á þann veg að rjúpan nánast hyrfi. Landsmenn geta vel komizt af um nokkur jól án rjúpu á matar- borðinu. Rjúpan setur svip á umhverfi sitt og Ísland yrði fátækara land ef hún hyrfi að mestu. Við eigum með umgengni okkar að stuðla að því að Ísland verði í náttúrulegum skilning ríkt land, sem bætir afkomu þjóðarinnar ekki með því að náttúrufegurð verði eytt og svo nærri gengið hvölum, laxi og rjúpu, svo dæmi séu nefnd, að lítið verði eftir af þeim heldur þvert á móti að stuðl- að verði að eflingu þessara stofna og að fólk fái að njóta þeirra með jákvæðum hætti. Ísland væri fátækara land ef ekki hefði tekizt á mörgum ára- tugum að vernda arnarstofninn á þann veg, sem við blasir. Umhverfisráðherra á heiður skilið fyrir þetta framtak. SAMKEPPNI Á BENSÍNMARKAÐI Það er greinilegt að sam-keppni um sölu á olíu ogbensíni mun harðna á næstunni. Tvö fyrirtæki, Atlants- olía og Baugur, hafa lýst yfir að þau stefni að því að opna nýjar bensínstöðvar. Forsvarsmenn beggja þessara fyrirtækja hafa reynslu af því að berjast á mörk- uðum þar sem hörð samkeppni er fyrir og hafa lagt áherslu á að bjóða vöru sína og þjónustu á sem lægstu verði. Tilkoma verslana Bónuss, sem voru grunnurinn að því viðskipta- veldi sem Baugur er í dag, ollu straumhvörfum á íslenskum smá- sölumarkaði. Atlantsskip hafa sýnt og sannað á undanförnum árum að hægt er að lækka gjald- skrá í vöruflutningum til og frá Íslandi. Atlantsolía stefnir að því að hefja sölu á olíu til stórnotenda strax í næstu viku en einnig hefur félagið uppi áform um að opna tíu sjálfsafgreiðslustöðvar á höfuð- borgarsvæðinu innan árs. Það er ljóst að umræða um viðskipta- hætti olíufélaganna hefur orðið til að flýta áformum Atlantsolíu um opnun bensínstöðva. „Uppruna- lega ætluðum við okkur að fara mun hægar í sakirnar en í ljósi at- burðarásarinnar núna ákváðum við um liðna helgi að fara á fullt í það að byggja upp tíu sjálfsaf- greiðslustöðvar á höfuðborgar- svæðinu. Við fundum einfaldlega fyrir miklum þrýstingi og það er greinilegt að fólk vill fá þessar stöðvar núna. Við erum að bregð- ast við því kalli og ætlum því að drífa þetta í gang. Fólk vill ódýrt eldsneyti og virka samkeppni,“ er haft eftir Stefáni Kjærnested, einum eigenda Atlantsolíu, í Morgunblaðinu í gær. Stefán færir einnig rök fyrir því að Atlantsolía muni geta boðið upp á olíu og bensín á lægra verði og haft af því hagnað. Hann bend- ir á að hjá Atlantsskipum, sem er með um 10% af flutningum til og frá landinu, starfi einungis tólf manns á skrifstofu og í vöruhúsi. Sama stefna verði viðhöfð hjá Atl- antsolíu. Þessari væntanlegu samkeppni ber að fagna. Íslenski markaður- inn hefur á allt of mörgum sviðum borið keim af fákeppni. Innkoma fyrirtækja á borð við Atlantsolíu getur vonandi tryggt harðari samkeppni og þar með betri kjör fyrir neytendur, stóra sem smáa.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.