Morgunblaðið - 25.07.2003, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 25.07.2003, Blaðsíða 33
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2003 33 ✝ Ólafur Gunnars-son fæddist á Akranesi 21. mars 1959. Hann lést hinn 15. júlí síðastliðinn. Foreldrar hans eru Gunnar Guðjónsson, f. 11. október 1934, og Ingibjörg Ágústsdótt- ir, f. 7. janúar 1934. Þau eru búsett á Akranesi. Systkini Ólafs eru: Þóra, f. 16. maí 1960, Guðjón, f. 29. apríl 1963, Jón Halldór, f. 21. janúar 1970, og Albert Ingi, f. 3. júní 1971. Hálfbróðir Ólafs er Ágúst Þór Guð- steinsson, f. 28. febrúar 1955. Ólafur kvæntist 13. febrúar 1982 Ingveldi Einarsdóttur, f. 2. nóvem- ber 1956. Foreldrar hennar voru Einar Helgason, f. 11. ágúst 1926, d. 21. nóvember 1999, og Ingiríður Hansína Kristmundsdóttir, f. 21. desember 1925. Ólafur og Ingveldur eignuðust fimm börn. Þau eru: 1) Inga Birna, f. 24. janúar 1979, sambýlismaður Sæ- mundur Þór Hauks- son, f. 1. febrúar 1979, 2) Linda Björk, f. 24. janúar 1979, 3) Sævar Birgir, f. 14. september 1983, unn- usta Hulda Þor- steinsdóttir, f. 30. apríl 1985, 4) Hafdís Bára, f. 6. maí 1987, og 5) Kristín Birta, f. 3. apríl 1998. Ólafur ólst upp í Borgarholti í Mikla- holtshreppi. Eftir grunnskóla- göngu hóf Ólafur nám í bifvéla- virkjun í Borgarnesi og hóf störf við þá iðn. Hann stundaði einnig önnur störf eins og sjómennsku og fleira. Ólafur starfaði við bílavið- gerðir í Borgarnesi þar til 1997 að hann hóf störf hjá bifreiðastöð ÞÞÞ á Akranesi við bílaviðgerðir. Útför Ólafs fer fram frá Borg- arneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku pabbi, við ætluðum varla að trúa því þegar mamma hringdi í okk- ur í Reykjavík með þær fréttir að pabbi hefði hnigið niður við vinnu sína úti í sveit. Við drifum okkur undir eins upp í Borgarnes og þar tóku við enn þungbærari fréttir. Pabbi var dáinn. Pabbi af öllum mönnum. Hann sem hafði alltaf verið svo sterkur og hraustur. Það þyrmdi gjörsamlega yfir okk- ur eins og aðra úr fjölskyldunni. Enginn hafði búist við þessu og hræðilegt til þess að vita að pabba hefði verið kippt út úr lífi okkar fjöl- skyldunnar aðeins 44 ára gömlum. Burt frá Kristínu litlu systur, litlu pabbastelpunni. Hún hefur spurt ótal spurninga um pabba sem oft er erfitt að svara. Undanfarna daga hafa rifjast upp margar góðar minningar, enda átt- um við fjölskyldan margar góðar stundir saman og vorum alltaf mjög samrýnd. Til dæmis rifjast upp margar minningar úr ferðalögum okkar fjölskyldunnar sem hafa verið æði mörg. Ferðalög um hálendið voru eitt af þínum aðaláhugamálum og þá sér- staklega á „Dadda“, sérútbúna jeppasendiferðabílnum sem þú varst svo stoltur af, enda hafðir þú eytt mörgum stundunum við að útbúa hann. Við fjölskyldan deildum þessu áhugamáli þínu sem ferðalög um Ís- land voru. Við minnumst líka allra veislnanna sem haldnar voru í ættinni. Hvort sem það voru afmælisveislur eða þorrablót varstu oftar en ekki hrók- ur alls fagnaðar, enda hafðir þú góða kímnigáfu og mikla útgeislun. Undanfarin ár tókstu mikinn þátt í leiklistarlífinu í Borgarnesi. Þú söngst og lékst af mikilli innlifun og við vorum alltaf svo stoltar af því að þú værir pabbi okkar. Þegar þú söngst á sveitaballinu með hljómsveitinni úr leikritinu sem var sett upp í Borgarnesi nú í vor er mjög eftirminnilegt. Við skemmtum okkar ákaflega vel og dönsuðum. Við vitum líka að þér þótti þetta ákaflega gaman. Það er svo sárt til þess að vita að nú sé enginn pabbi sem reddar öllu fyrir okkur með bjartsýnina að leið- arljósi enda var pabbi ávallt bjart- sýnn og jákvæður sama hvað á dundi. Það er erfiðara en orð fá lýst að kveðja þig núna hinsta sinni, elsku pabbi. En við huggum okkur þó við það að þú munt ávallt vaka yfir okkur fjölskyldunni og passa okkur. Pabbi, þú getur treyst því að við munum passa hvert annað og styrkja þótt þú sért fjarri. Við mun- um alltaf elska þig. Guð geymi þig. Þínar dætur, Inga og Linda. Það var þriðjudagskvöldið 15. júlí er ég var staddur í Reykjavík sem ég fékk hrikalegasta símtal lífs míns, eitthvað hafði komið fyrir pabba. Ég snaraðist lamaður af skelfingu inn í bíl og ók í loftköstunum í Borgarnes, þar sem við tóku enn hræðilegri fréttir, pabbi var dáinn! Þessi hrausti og sterki maður sem aldrei hafði kennt sér neins meins hafði allt í einu hnigið niður við verk sem hann hafði margsinnis unnið streitulaust áður, og án nokkurrar sýnilegrar ástæðu var hann horfinn úr lífi okk- ar. Á einu augabragði. Ég lít á sem ég hafi misst meira en föður þetta kvöld, þú varst mér jafn- framt góður vinur, leiðbeinandi og félagi. Ég bar alltaf virðingu fyrir þér og man ekki til þess að hafa tekið stóra ákvörðun án þess að spyrja þig ráða fyrst, og voru þau ráð yfirleitt í hávegum höfð. Þó svo að stundum lítt skynsamur barnshugur minn hafi innt þig svars á ýmsum áleitnum spurningum, varstu ávallt með svar á reiðum höndum. Ég var alltaf stolt- ur af að eiga þig sem pabba og mun ávallt verða það, þú varst til dæmis pabbinn sem var alltaf svo hress og skemmtilegur og minntust vinir mín- ir gjarnan á það, sérstaklega seinni ár, þegar kímnigáfa okkar hafði þroskast eilítið. Svo þegar þú byrj- aðir að leika og syngja, gerðir þú það af svo mikilli list og innlifun að eins og um atvinnumann væri að ræða. Þú varst líka snillingur í höndun- um, það lá við að þú gætir smíðað eða gert við hvað sem var, átti þar óbil- andi bjartsýni og þolinmæði stóran þátt. Til að mynda voru ófá bílavand- ræðin sem þú reddaðir mér úr, má þar helst nefna gamla Bimmann, sem þrátt fyrir að vera kominn vel yfir síðasta söludag, tókst þér iðu- lega að láta hann hökta áfram þar til hann gafst upp endanlega í vor. Svo er háfjallahúsbíllinn ykkar mömmu sem þú smíðaðir alger lista- smíð og veit ég hvað þú varst alltaf stoltur af honum, við systkinin líka. Þú varst líka stoltur af litla trjá- reitnum okkar í sveitinni, þar sem þið mamma eydduð mestum ykkar frítíma í að útbúa fallegt afdrep fyrir okkur í framtíðinni. Við fjölskyldan heitum því að vinna áfram í rækt- uninni og sjá til þess að þar rísi mikill skógur. Við heitum því einnig að styðja hvert annað í þessari miklu sorg sem missir þinn er, og munum við ávallt halda minningu þinni á lofti og sjá til þess að arfleifð þín lifi. Vertu sæll og þakka þér innilega fyrir þessi 20 ár sem ég fékk að eiga í nærveru þinni og leiðsögn, mun ég reyna að haga lífi mínu eftir þínu for- dæmi svo lengi sem heilagur Guð leyfir. Þinn sonur, Sævar. Maður hélt alltaf að svona hlutur myndi aldrei koma upp í okkar fjöl- skyldu, allavega ekki næstu 40 árin eða svo. Af hverju þessi maður af öll- um? Þú varst eitt mesta stolt fjöl- skyldunnar, mikill söngvari og leik- ari. Við fjölskyldan vorum svo ánægð með þig þegar þú lékst stórt söng- hlutverk í leikritinu Þrek og tár með Leikfélagi Borgarfjarðar. Þú söngst þetta svo vel að maður var stanslaust að hugsa „Þetta er sko pabbi minn“. Besti pabbinn í heiminum. Hvað verður um ferðalögin? Oh ... allar minningarnar um ferðalögin. Þú og mamma voruð búin að fara með okk- ur systkinin á hvern einasta stað á Íslandi. Alltaf að kenna okkur meira og meira um hvern stað. Við ferðuðumst alltaf á gamla hús- bílnum okkar sem þú varst svo stolt- ur af því þú gerðir hann alveg upp frá grunni og lagðir þig allan í að gera bílinn betri og betri, lést meira að segja jeppavél í hann til að geta ferðast meira um hálendið. Þér leið alltaf best á kyrrlátum stað lengst útí buskanum með fjöl- skyldunni og bjór í hendi, það var svo gaman. En svo þegar maður hugsar út í litlu systur okkar, Kristínu Birtu. Hún mun víst aldrei fá að upplifa þessi ár með þér eins og við systkinin fengum. Enginn pabbi til staðar þegar hún missir fyrstu tönnina eða byrjar fyrsta daginn í stóra skólanum. Þessi ár eru tími sem ég mun aldrei gleyma svo lengi sem ég lifi. Við fjöl- skyldan munum ætíð hugsa til þín, og við systkinin munum gæta mömmu fyrir þig. Þakka þér fyrir öll þau 16 ár sem ég hef fengið að vera í þínum félagsskap. Elsku pabbi, megir þú hvíla í friði. Þín dóttir, Hafdís Bára Ólafsdóttir. Það var eins og ég væri í einhverj- um vondum draumi sem ég var að bíða eftir að vakna upp úr þegar ég heyrði slæmu fréttirnar um þig, Óli, tengdapabbi minn. Ég man þann dag þegar ég fór með henni Ingu til að hitta tengdaforeldra mína, Ingveldi og Óla, í fyrsta skiptið. Ég skalf ég var svo stressaður, en Óli tók á móti mér með brosi og hlýjum hug og fékk mig til að gleyma því að ég væri að kynnast nýju fólki. Þannig mann hafði hann að geyma að hann tók svona vel á móti öllum. Sama hverjir þeir voru. Við áttum margar góðar stundir saman og mörg sameiginleg áhugamál. Þér þótti stundum gott að fá þér whisky-glas á góðum stundum en kvartaðir oft undan því að raka- stigið í húsinu olli því að tæmdist oft fyrr úr flöskunni. Óli, þín verður sárt saknað og verður illmögulegt að fylla upp í tómleikann sem hefur myndast í hjarta mínu eftir ótímabært fráfall þitt. Ég skal lofa þér því að ég mun gera mitt besta til að gera Ingu þína sem allra hamingjusamasta og hug- hreysta hana, Ingveldi, Lindu, Sæv- ar, Hafdísi, Kristínu og alla aðra að- standendur í þessari miklu sorg. Guð geymi ykkur öll. Sæmundur Þór Hauksson. Ég man vel þegar ég kom með Sævari á heimili Ólafs og Ingveldar í fyrsta sinn. Kvíðin var ég og örlaði á hnút í maga. Þegar inn var komið var viðmótið þannig að allur kvíði hvarf eins og dögg fyrir sólu. Ólafur var alltaf í góðu skapi, aldr- ei veikur, og stöðugt tilbúinn að grín- ast með okkur. „Borðaðu nú meira svo þú stækkir eitthvað“ var algeng setning við mat- arborðið, með góðlátlegu brosi. Óli vann mikið. Mér er það minnis- stætt þegar hann slasaðist á fingri og var settur í gifs, eftir 3 daga tók hann af sér gifsið og fór að vinna, þó fingurinn væri enn ógróinn. Kveðjustundin er sár en það er gott að eiga góðar minningar. Elsku Ólafur, takk fyrir að hafa fengið að kynnast þér. Ég bið góðan guð að styrkja Ingv- eldi og alla fjölskylduna í sorg og sárum missi. Blessuð sé minningin um góðan mann. Þín tengdadóttir, Hulda Þorsteinsdóttir. Óli frændi hefur kvatt þennan heim alltof snemma og allt of snöggt. Minningarnar streyma um huga okkar sem aldrei fyrr. Óla fannst gaman að leika og hafði hann mikla hæfileika á því sviði. Hann var oft spurður að því hvort hann væri ekki í Spaugstofunni því að hann svipaði til hins gamankunna leikara Pálma Gestssonar. Hann söng mikið og síðustu mánuðina var hann í hljómsveit sem kallaði sig Leikhúsbandið. Hann vann sem bif- vélavirki hjá bifreiðastöðinni ÞÞÞ á Akranesi. Okkur eru mjög minnis- stæð öll ferðalögin og samveru- stundirnar með Óla og fjölskyldunni. Eitt sinn þegar við fórum saman í ferðalag þá vorum við öll í lítilli lödu samara og við vorum sex í bílnum og Óli bjargaði því með því að leyfa tveimur okkar að koma yfir til sín. Í einu af okkar mörgu ferðalögum tjölduðum við rétt hjá kirkjugarði og eina nóttina vorum við krakkarnir að fara að sofa og þá ákváðu Óli og pabbi okkar að stríða okkur með því að þykjast vera draugar og byrjuðu þeir að hrista tjaldið, og vorum við náttúrlega rosalega hrædd en svo sáum við skóna þeirra og vissum að þetta voru þeir. Það var alltaf líf og fjör þegar Óli var annars vegar og mun hans vera sárt saknað. Hans verður ávallt minnst og á hann alltaf stað í hjarta okkar allra. Ingveldur og börn, guð geymi ykkur og veiti ykkur styrk til að tak- ast á við sorgina og þennan mikla missi. Gunnar Árni, Ingibjörg, Ársæll og Kristín Erlingsbörn. Það rann upp bjartur og fagur dagur þann 16. júlí sl. og lífið virtist ætla að leika við okkur. En annað virtist koma á daginn, skyndilega dimmdi yfir og fréttirnar bárust okkur eins og þruma úr heiðskíru lofti, hann Óli „okkar“ eins og okkur varð að orði, var dáinn. En hann var svo ungur voru fyrstu viðbrögð, af hverju var hann tekinn frá okkur, fjölskyldu sinni, konu og fimm börn- um, spyrjum við, en verður fátt um svör. Það er skrýtið og erfitt að sitja hér og skrifa minningarorð um hann Óla vin okkar sem virtist eiga allt lífið fram undan og við sem áttum eftir að brasa fullt saman í leik og starfi. Við kynntumst Óla fyrir fjórum árum þegar við fluttum í Borgarnes og fór- um að starfa með leikdeild umf. Skallagríms. Við höfum fylgst að síð- an í gegnum leiklistarstarfið og núna síðustu tvö ár setið saman í stjórn leikdeildarinnar. Óli var þó búinn að vera í leiklistinni áður en við komum til sögunnar. Óli var góður leikari og frábær söngmaður, hann söng eins og engill og við vorum alltaf heilluð af því að hlusta á hann syngja. Óli var einkar jákvæður maður og af- skaplega þægilegur í umgengni, mikill ljúflingur í alla staði. Hlutirnir vöfðust aldrei fyrir honum, þeir voru bara leystir og ekkert vandamál. Hann var einkar handlaginn og alltaf að hvort sem það var heima fyrir eða með okkur, enda ekki ófá smiðs- höggin sem hann átti í uppsetningu á leikmynd eða því sem gera þurfti. Það er mikil vinna sem liggur að baki því að setja upp leiksýningu og Óli lagði svo sannarlega sitt af mörkum, var með okkur að smíða og gera það sem þurfti ásamt því að leika aðal- hlutverkið í verkinu. Í sex vikur var mætt á hverju kvöldi á æfingar eftir langan vinnudag og um helgar til að smíða. Dýrmætur tími frá fjölskyld- unni sem þó var mjög skilningsrík. Eftir hverja törn heyrðist alltaf í Óla, nei, nú verð ég ekki með næst, þetta er komið nóg. En þetta var bara svo gaman að þegar farið var næst af stað þá stóðst hann ekki mát- ið að vera með. Nú síðast í vetur fengum við að njóta krafta hans er leikdeildin setti upp verkið Þrek og tár eftir Ólaf Hauk Símonarson þar sem Óli lék og söng hlutverk hljóm- sveitarstjórans Áka Hansen og gerði með glans, og að hann Óli væri stressaður maður, það virtist ekki vera til í honum, átti stundum (eða yfirleitt) erfitt með að læra texta (núna brosa eflaust margir) og þótt textinn væri ekki kominn og aðeins vika í frumsýningu sagði Óli alltaf, þetta kemur, hafið engar áhyggjur, þetta reddast, og sú varð auðvitað raunin. Við minnumst Óla með miklum söknuði sem vinar og félaga, þetta er stórt skarð í okkar félagsstarfi og vináttu, það er erfitt að geta ekki notið hans og hæfileika hans áfram, en við stöndum í þeirri trú að þeir eigi eftir að verða nýttir áfram og einhverjir aðrir fái að njóta þeirra annars staðar og það ætlum við svo sannarlega að vona, hvort sem það er að leika, syngja, smíða eða gera við bíla. Við kveðjum þig, elsku Óli, takk fyrir allar samverustundirnar. Guð geymi þig. Elsku Ingveldur, Inga, Linda, Sævar, Hafdís og Kristín Birta, ykk- ar missir er mikill, við hugsum til ykkar og megi guð styrkja ykkur í sorg ykkar og ávallt vera með ykkur. Innilegar samúðar- og saknaðar- kveðjur frá öllum í leikdeild umf. Skallagríms. Axel Vatnsdal og Áslaug Júlíusdóttir. ÓLAFUR GUNNARSSON AFMÆLIS- og minningar- greinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfvirkt um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disk- lingi þarf útprentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusíma og heimasíma). Ekki er tekið við handskrifuðum greinum. Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýsing- um um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og klukkan hvað. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í grein- unum sjálfum. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins til- tekna frests. Frágangur afmælis- og minning- argreina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.