Morgunblaðið - 25.07.2003, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 25.07.2003, Blaðsíða 25
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2003 25 BRYGGJUHÁTÍÐIN á Drangsnesi hefur aldrei verið eins fjölmenn og nú þegar hún var haldin fyrir skömmu í áttunda sinn en talið er að íbúatalan hafi að minnsta kosti verið 13 til 14 földuð. Bryggjuhátíðin dregur sífellt til sín fleira fólk og stemmingin er einstök. Veðrið spillti heldur ekki fyrir þó aðeins kulaði og kólnaði með kvöldinu. Lundi, selur og sigin grásleppa á grillinu Við dorgveiðina í Kokkálsvík var mikið fjör og voru 94 börn skráð til keppni. Hverju barni fylgja svo einn eða fleiri aðstandendur þannig að höfnin í Kokkálsvík var full af fólki og mikið fjör og ágæt veiði. Alltaf er sjávarréttasmakkið eins vinsælt þó misjafnt sé hvað fólki finnst um það sem þar er boðið upp á. Þarna var fólki boðið að smakka grafinn steinbít, karfa og grásleppu. Á grillinu var lundi, selur og sigin grásleppa. Selabollur í súrsætri sósu og margt fleira bar fyrir munn og augu. Það er óhætt að segja að sjávarréttasmakkið sé einstakt fyrir Bryggjuhátíð en þar fær fólk að smakka ýmislegt sem annars er ekki boðið upp á dagsdaglega. Allur mat- ur sem þar er kemur úr Húnaflóan- um. Margir lögðu leið sína í Grímsey Margir lögðu leið sína út í Gríms- ey með bátum sem voru í stöðugum förum á milli lands og eyjar. Sýn- ingar hátíðarinnar voru mjög vel sóttar og þá ekki síður kvöld- skemmtunin í Samkomuhúsinu Baldri. Þar er húsið bara alltof lítið. Þrátt fyrir að farið væri að kula að- eins og kólna þegar kom að því að syngja saman við varðeldinn þá var þar fjölmenni og tók fólk vel undir með Ragga Torfa sem spilaði undir og stjórnaði fjöldasöngnum. Hátíðinni lauk svo með balli í Baldri og það voru Baldur Geir- munds og Magga frá Ísafirði sem skemmtu. Óhætt er að segja að hátíðin hafi farið einstaklega vel fram og bar þar engan skugga á. Gestir Bryggju- hátíðar voru á öllum aldri og kyn- slóðabilið fræga var víðsfjarri. Umgengni um svæðið var til ein- stakrar fyrirmyndar. Eftir að gestir fóru af svæðinu og komið var að hreinsun mátti bara senda hreins- unarfólkið heim aftur, það var ekki neitt rusl til að hreinsa eftir helgina og það er örugglega sérstakt þar sem svona fjölmenni hefur verið heila helgi. Þetta voru gestir sem eru svo sannarlega velkomnir á Bryggjuhátíð á sama tíma að ári. Morgunblaðið/Jenný Jensdóttir Hann Aron Viðar er bara tveggja ára og að vonum ánægður með fisk- inn sinn. Fjöl- menni á Bryggju- hátíð Drangsnes MJÖG góð úthafsrækjuveiði hef- ur verið að undanförnu á mið- unum úti fyrir Norður- og Aust- urlandi. Á dögunum kom frystitogarinn Geiri Péturs ÞH 344 til hafnar á Húsavíkmeð fullfermi, 105–110 tonn af rækju, eftir tíu daga veiðiferð. Hermann Sigurðsson, 1. stýri- maður og afleysingaskipstjóri á Geira Péturs, var skipstjóri í þessari veiðiferð, hann sagði að veiðisvæðið hafi verið í Héraðs- flóa og var aflinn, sem að mestu var iðnaðarrækja, jafn og góður alla veiðiferðina. Heldur var þó farið að draga úr veiðinni í lok veiðiferðarinnar og sagði Hermann að einungis þeir og annar bátur til hafi þá verið eftir á veiðisvæðinu í Hér- aðsflóa, en voru sex þegar þeir voru flestir. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Landað úr Geira Péturs ÞH 344 í Húsavíkurhöfn á dögunum. Fullfermi eftir tíu daga veiðiferð Húsavík Afgreiðslutími allra verslana Hörpu Sjafnar! Alla virka daga kl. 8–18 og laugardaga kl. 11–15. Helgarvakt í Skeifunni 4. Opið laugardaga kl. 11–18 og sunnudaga kl. 13–18. Skeifan 4 Reykjavík Sími 568 7878 Snorrabraut 56 Reykjavík Sími 561 6132 Stórhöfði 44 Reykjavík Sími 567 4400 Austursíða 2 Akureyri Sími 461 3100 Hafnargata 90 Keflavík Sími 421 4790 Dalshraun 13 Hafnarfirði Sími 544 4414 Austurvegur 69 Selfossi Sími 482 3767 Bæjarlind 6 Kópavogi Sími 544 4411 599kr.lítrinnm.v.10 lítra dós 672kr . lítrinn 789 kr.lítrinn 399kr.lítrinn Stórafsláttur af útimálningu og viðarvörn SUMARTILBOÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.