Morgunblaðið - 25.07.2003, Blaðsíða 19
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2003 19
MEIRIHLUTI foreldra leikskóla-
barna í Reykjavík telur æskilegt að
leikskólarnir séu opnir allt árið um
kring. Þetta er meðal þess sem kem-
ur fram í viðhorfskönnun foreldra
sem leikskóladeild Leikskóla
Reykjavíkur hefur unnið og gerð var
á öllum leikskólum í Reykjavík á
tveggja ára tímabili.
Samkvæmt könnuninni telja rúm-
lega 65% foreldra að leikskólarnir
eigi að vera opnir allt árið um kring,
um 18% telja að skólunum eigi að
loka yfir ákveðið tímabil á sumrin og
16% finnst ekki skipta máli hvernig
fyrirkomulagið er. Könnunin var
gerð á 39 leikskólum í fyrra og 37
leikskólum í ár. Það skal tekið fram
að kannanirnar fóru fram áður en
kom til sumarlokana. Niðurstöðurn-
ar eru áþekkar ef árið í ár og árið í
fyrra eru borin saman. Niðurstöð-
urnar frá árinu í ár sýna að 66% for-
eldra telja æskilegt að leikskólinn sé
opinn allt árið, 21% telja að hann
skuli loka yfir ákveðið tímabil og 13%
finnst ekki skipta máli hvernig fyr-
irkomulagið er. Í fyrra var útkoman
þannig að 65% töldu að leikskólinn
ætti að vera opinn, 16% að hann ætti
að loka á ákveðnu tímabili og 19%
fannst það ekki skipta máli. Í fyrra
var svarhlutfall 70% en 61% í ár.
Bókun vegna sumarlokana
Á borgarráðsfundi á þriðjudag
létu fulltrúar Sjálfstæðisflokks bóka
að mikil óánægja ríkti meðal foreldra
í borginni vegna sumarlokana Leik-
skóla Reykjavíkur. Lokanirnar komi
sér illa fyrir fjölmargar barnafjöl-
skyldur í borginni, aðstæður for-
eldra séu mismunandi og skerðing á
þjónustu geri foreldrum erfiðara fyr-
ir með að eyða tíma með börnum sín-
um. Fjárhagslegur ávinningur fyrir
Leikskóla Reykjavíkur sé afar lítill
og þær faglegu ástæður sem nefndar
hafi verið mjög umdeilanlegar. Þá sé
eðlilegt að kannað verði hvaða áhrif
sumarlokanir hafi, meðal annars
hvað varðar foreldra og atvinnulíf.
Ólafur F. Magnússon, Frjálslynda
flokknum, lét þá bóka að hann tæki
undir með sjálfstæðismönnum.
Þorlákur Björnsson, formaður
leikskólaráðs, segir að Sjálfstæðis-
menn virðist kjósa að líta fram hjá
því lokanirnar í sumar séu aðeins til
reynslu. „Eftir sumarið verða gerðar
mjög ítarlegar kannanir á þessu máli
í samstarfi við stjórn foreldrafélags
leikskólanna og þá verður tekin
ákvörðun um framhaldið. Ef reynsl-
an er ekki góð verður þetta endur-
skoðað, “ segir Þorlákur.
Ábendingar frá fagfólki
Aðspurður segir Þorlákur að lítill
sparnaður hljótist af lokununum en
það hafi heldur ekki verið tilgang-
urinn með þeim. „Við höfðum fengið
mjög sterkar ábendingar frá okkar
fagfólki um að með þessu móti gerð-
um við faglega starfið betra og okkur
þótti tímabært að reyna það. Ef það
sparast einhver peningur er það
gleðilegur auka ávinningur. “
Leikskólar Reykjavíkur hafa kannað viðhorf foreldra leikskólabarna til sumarlokana
Flestir vilja hafa opiðReykjavík
LAGFÆRINGUM á borholuhúsi
Hitaveitu Seltjarnarness lauk form-
lega á dögunum með uppsetningu og
vígslu upplýsingaskiltis en lagfær-
ingarnar hafa staðið yfir um skeið.
Seltirningar reka sína eigin hitaveitu
sem nýtir eingöngu borholur á Sel-
tjarnarnesi og er verðskrá hennar
ein sú lægsta í þéttbýli á landinu að
því er fram kemur í tilkynningu frá
Seltjarnarnessbæ.
Þar kemur einnig fram að jarð-
hitavatnið á Seltjarnarnesi sé salt og
sé því að efnasamsetningu mjög líkt
vatni í mörgum helstu heilsubaðstöð-
um Evrópu, svo sem Baden-Baden í
Þýskalandi. Vinsældir sundlaugar
Seltjarnarness megi þá líklega rekja
til hins heilnæma vatns.
Borholuhús
lagfært
Seltjarnarnes
Á LAUGARDAGINN verður í
fyrsta sinn hægt að kaupa dagpassa
í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
en með tilkomu nýrra leiktækja
hefur þörfin fyrir slíka passa aukist
að því er fram kemur í tilkynningu.
Handhafi passans getur farið eins
oft og hann vill í leiktækin yfir dag-
inn en passinn kostar 1.500 krónur.
Dagpassar í
Laugardalnum
Laugardalur
♦ ♦ ♦
S M Á R A L I N D
komdu og ger›u ótrúleg kaup
- á›ur en allt klárast
Afsláttur af öllum útsöluvörum
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
2
17
94
07
/2
00
3
bláa bomban
í Debenhams
ver›ur sprengd kl. 11:00 í dag!
50-70%
Opi› virka daga frá 11-19 • laugardögum 11-18 • sunnudögum 13 - 18
BERGSTAÐASTRÆTI 37 • SÍMI: 552 5700
Tvíréttað í hádeginu
á aðeins 1.900 krónur
einnig þrírétta
matseðill