Morgunblaðið - 25.07.2003, Qupperneq 12
JAPANSKI raftækjarisinn Sony
kynnti slakar afkomutölur á öðrum
ársfjórðungi í gær. Hagnaður fé-
lagsins var 98% minni í lok júní
2003 en á sama tíma í fyrra. Nam
hagnaður tímabilsins apríl til júní
1,1 milljarði japanskra jena, eða um
715 milljónum íslenskra króna.
Sala Sony á raftækjum dróst
saman um 6,9% innan tímabilsins
vegna dræmrar sölu á PlayStat-
ion2-tölvuleikjum og Trinitron-sjón-
vörpum, að því er fram kemur í
frétt BBC. Um 42% minna magn af
PlayStation-leikjum var flutt út á
öðrum ársfjórðungi 2003 en árið áð-
ur.
Í apríl síðastliðnum tilkynnti
Sony að félagið hygðist fara út í
víðtæka enduruppbyggingu á
rekstrinum sem taka myndi þrjú
ár. Áætlunin gengur í stuttu máli út
á að skera niður allan óarðbæran
rekstur innan samstæðunnar og
einblína á færri svið. Afkomutölur
Sony voru undir væntingum mark-
aðarins en fyrirfram hafði verið
gert ráð fyrir að hagnaður félagsins
gæti dregist saman um allt að 89%,
segir í frétt Reuters.
Hagnaður Sony
dregst saman um 98%
Sala PlayStation-tölvuleikja minnkar
HAGNAÐUR Nýherja á fyrstu sex
mánuðum ársins nam 61,4 millj-
ónum króna en nam 53,8 milljónum
króna á sama tímabili árið áður.
Rekstrartekjur félagsins á tíma-
bilinu námu 2.230 milljónum króna
og jukust um 8% frá sama tímabili
2002. Vörusala jókst um 8% á milli
tímabila og þjónustutekjur jukust
um 6%, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu frá félaginu.
Hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði, EBITDA, var 135,2
milljónir króna á tímabilinu en var
114,2 milljónir króna árið áður.
Veltufé frá rekstri nam 122 m. kr.
en 83,7 m.kr. árið áður. Gengistap
félagsins var 4,6 milljónir króna en
gengishagnaður var 23,3 milljónir
króna á fyrstu sex mánuðum síð-
asta árs. Hagnaður af rekstri dótt-
urfélaga var 5,5 milljónir en árið
áður var 800 þúsund króna hagn-
aður af rekstri þeirra.
Reikningsskil Nýherja eru verð-
leiðrétt. Hefði það ekki verið gert
hefði hagnaður verið einni milljón
hærri og eigið fé 15 milljónum
króna lægra í lok tímabilsins. Eigið
fé Nýherja í júnílok nam 1.294
milljónum króna.
Í tilkynningu frá Nýherja segir
að eftirspurn á upplýsingatækni-
markaðinum hafi verið minni en
áætlanir félagsins gerðu ráð fyrir
þó að velta hafi aukist um 8% frá
Sex mánaða uppgjör Nýherja
Velta eykst minna
en gert hafði
verið ráð fyrir
0;0;<=<57;9;
*
!
< < <>-
3;109
"
3;109
# !
$
# $
%
&'
(
"('
"""
3;670
3;670
)
&'
(
)()'
! "#$%! 3775
&'(')%!
57;9;?75
3773
50;03;?73
#
*+ 3775 3773
sama tíma fyrir ári. „Horfur í
rekstrarumhverfi upplýsingatækni-
fyrirtækja eru áfram óvissar fyrir
síðari árshelming en þó má vænta
einhverrar aukningar í eftirspurn á
síðari árshelmingi, einkum frá
meðalstórum og stærri fyrirtækj-
um sem hafa unnið að stefnumótun
í upplýsingamálum að undan-
förnu,“ segir í tilkynningu frá Ný-
herja.
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
12 FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HAGNAÐUR Össurar hf. á fyrri
helmingi ársins nam 3,3 milljónum
Bandaríkjadala, sem er 9% minni
hagnaður en á sama tímabili í fyrra.
Össur gerir upp í dölum, en í íslensk-
um krónum var hagnaðurinn 254
milljónir. Þetta er undir væntingum
greiningadeilda bankanna, sem voru
nokkuð samhljóða í spám sínum og
spáðu að meðaltali 283 m.kr. hagnaði.
„Gengið hefur farið mjög verulega
á móti okkur og við höfum náð að
spara á móti því nánast alls staðar,
nema við höfum ekki viljað skera nið-
ur þróunarvinnuna. Það hefur orðið
til þess að þróunarkostnaður er mjög
hár, en hann fellur að miklu leyti til á
Íslandi,“ segir Jón Sigurðsson for-
stjóri Össurar.
Sala á fyrstu sex mánuðum ársins
nam 44,4 milljónum dala, sem er 12%
aukning frá fyrra ári. Í krónum nem-
ur salan 3,4 milljörðum, en þar sem
meðalgengi dalsins hefur lækkað um
21% gagnvart krónunni á milli tíma-
bila hefur salan lækkað um 12% í
krónum talið sé reiknað með meðal-
gengi hvors tímabils. Kostnaðarverð
seldra vara eykst heldur meira en sal-
an og framlegðarhlutfallið lækkar lít-
illega milli ára, eða úr 59,6% í 59,1%.
Hagnaður fyrir afskriftir lækkar
heldur meira, eða úr 14,4% í 13,2%.
Mesta sala frá upphafi
Í tilkynningu frá Össuri segir að
sala á öðrum fjórðungi þessa árs hafi
verið sú mesta í einum fjórðungi frá
upphafi. Þá segir að N-Ameríku-
markaður haldi áfram að vera þungur
og sala á öðrum fjórðungi ársins hafi
minnkað um 3% miðað við sama fjórð-
ung í fyrra. Vöxtur á Evrópumarkaði
er á hinn bóginn töluverður, 42% á
öðrum fjórðungi, og yfir heildina var
vöxturinn á fjórðungnum 7%.
Sölu- og markaðskostnaður lækk-
aði lítillega sem hlutfall af sölu á
fyrstu sex mánuðum ársins miðað við
sama tímabil í fyrra og nam 22%.
Rannsóknar- og þróunarkostnaður
jókst, fór úr 9% í 11%, en markmið fé-
lagsins er að þessi kostnaður sé
6%-8% af sölutekjum. Í tilkynning-
unni segir að ástæðan fyrir því að
þessi kostnaður hafi aukist tímabund-
ið sé meðal annars sú að unnið sé af
fullum krafti að því að koma út fyrstu
vörulínu fyrirtækisins á sviði stuðn-
ingstækja og gert sé ráð fyrir að línan
fari á markað fyrir árslok. Össur leiti
markvisst að fyrirtækjum til kaups á
þessu starfssviði, en ekki hafi enn orð-
ið af kaupum og þess vegna hafi auk-
inn kraftur verið settur í innra þróun-
arstarf á þessu sviði.
Þróunarkostnaður skýrir minni
hagnað fyrir afskriftir
Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður
var 16% af sölu miðað við 17% á fyrri
hluta síðasta árs. Í tilkynningu Öss-
urar segir að talsverðum fjármunum
hafi verið varið til málssókna vegna
brota á einkaleyfarétti Össurar.
Atli Guðmundsson hjá Greiningu
Íslandsbanka segir að á öðrum árs-
fjórðungi hafi dregið úr vexti og fram-
legð Össurar og uppgjörið sé nokkru
lakara en Greining Íslandsbanka
vænti. „Á tímabilinu minnkaði sala í
Bandaríkjunum en á þeim markaði
hefur félagið fundið fyrir harðari
samkeppni upp á síðkastið. Jafnframt
bitnar efnahagsástandið þar á umsvif-
um Össurar. Aftur á móti var góður
vöxtur í Vestur-Evrópu og á Norð-
urlöndum. Hagnaður fyrir afskriftir
dróst saman á tímabilinu miðað við
fyrra ár og nam 14% af sölu. Helsta
ástæða þess er mikill þróunarkostn-
aður en 11% af rekstrartekjum var
varið til vöruþróunar á tímabilinu.
Langtímamarkmið félagsins er hins
vegar 8%. Ástæða þessa er að unnið
er að nýrri vörulínu á sviði stuðnings-
tækja sem áætlað er að setja á mark-
að fyrir árslok,“ segir Atli.
Hann segir að styrking krónunnar
að undanförnu hafi einnig bitnað á
framlegð Össurar líkt og annarra út-
flutningsfyrirtækja. Að öðru leyti hafi
rekstrarkostnaður félagsins verið í
samræmi við þá langtímaforsendu
Greiningar Íslandsbanka að framlegð
verði um 17% af sölu. Sú forsenda
byggi meðal annars á öflugri vöruþró-
un félagsins. Í ljósi uppgjörsins séu
þó líkur á að spá Greiningar Íslands-
banka um hagnað fyrir afskriftir fyrir
árið í heild sé of há en spáin hljóðar
upp á 1.182 milljónir króna eða 16,7%
af sölu. Á næstu árum geri Greining
ÍSB ráð fyrir að dragi úr vexti félags-
ins. Á árunum 2004 til 2006 sé gert
ráð fyrir að árlegur vöxtur verði að
jafnaði um 11%, sem sé þó nokkuð yf-
ir áætluðum vexti markaðarins.
JÓN Sigurðsson forstjóri Össurar
segist bjartsýnn á framtíðar-
horfur fyrirtækisins, þó að á
næstunni muni verða erfitt í
Bandaríkjunum. Hann segist gera
ráð fyrir sterkri krónu áfram og
að fyrirtækið yrði að vinna á móti
því með því að flytja kostnað frá
Íslandi að einhverju leyti. „Við er-
um ekki að tala um að flytja fram-
leiðslu úr landi,“ segir Jón, „held-
ur að kostnaðaraukningin verði
erlendis á næstunni en ekki hér á
Íslandi.“ Það sé hins vegar ekki hægt að bregðast við þróun krón-
unnar til skamms tíma nema að litlu leyti án þess að skera niður
kostnað, og það hafi fyrirtækið verið að gera.
Jón Sigurðsson
Flytja kostnað frá Íslandi
Hagnaður Össurar
undir væntingum
Söluaukning í Evrópu en samdráttur í N-Ameríku
0;0;<=<57;9;
,
#-
*+ ,
,
)
) )
!
!"#
"
)
*
<
!
< < <>-
41;431
&
41;431
# !
$
& &
&(&'
&
" )
"
!$
!$
&
!!
"&
80;631
" )
&
80;631
& &
&&()'
""
! "#$%! 3775
%& &'(')%!
%& 57;9;?75
3773
50;03;?73
#
*+ 3775 3773
HAGNAÐUR Fjárfestingarfélags-
ins Straums eftir skatta nam 867
milljónum króna á fyrri hluta árs-
ins, en 750 milljóna króna hagnaður
varð á sama tímabili 2002. Þórður
Már Jóhannesson framkvæmda-
stjóri segist vera ánægður með af-
komuna. „Annar ársfjórðungur var
mjög góður í rekstri félagsins og í
takti við þann fyrsta,“ segir hann.
„Það er ánægjulegt að sjá í þessu
uppgjöri hversu fjárhagslegur
styrkur félagsins eykst. Eiginfjár-
hlutfallið er 77%, þannig að félagið
á mjög mikið inni til vaxtar og
stækkunar,“ segir Þórður.
Viðburðaríkur rekstur
Þórður segir að mikið hafi verið
um að vera í rekstrinum á öðrum
fjórðungi; kaup á Brú fjárfestingu
hf. (áður Íslenska hugbúnaðar-
sjóðnum) og meirihluta í Framtaki
fjárfestingarbanka. Eignarhlutur í
Framtaki hefur þó ekki verið færð-
ur í bókhaldi félagsins, enda eru
viðskiptin háð samþykki Fjármála-
eftirlitsins og Samkeppnisstofnun-
ar.
Vaxtatekjur félagsins námu 76
milljónum króna, en voru 97 millj-
ónir 2002. Innleystur hagnaður af
verðbréfaeign var 667 milljónir, en
930 milljónir á fyrra ári. Fjár-
magnsgjöld námu 212 milljónum,
en í fyrra voru fjármunatekjur 45
milljónir. Hreinar rekstrartekjur
voru því 531 milljón króna, en voru
1.072 milljónir 2002.
Rekstrargjöld
103 milljónir króna
Laun og tengd gjöld námu 53
milljónum króna, en voru 19 millj-
ónir 2002 og annar rekstrarkostn-
aður var 50 milljónir, en 38 millj-
ónir 2002. Alls námu því
rekstrargjöld 103 milljónum fyrri
helming ársins, en voru 57 milljónir
2002.
Hagnaður fyrir tekjuskatt
(hreinar rekstrartekjur að frá-
dregnum rekstrargjöldum) var 428
milljónir króna, en var 1.014 millj-
ónir 2002. Tekjuskattur var þrjár
milljónir, en 163 milljónir króna
2002. Innleystur hagnaður fyrri
helmings ársins nam því 425 millj-
ónum króna, en var 852 milljónir
2002.
Við innleystan hagnað bætist
óinnleystur hagnaður af verðbréfa-
eign, upp á 223 milljónir, og tekju-
skattsinneign upp á 219 milljónir.
Samtals nam því hagnaður 867
milljónum króna á fyrri helmingi
ársins, en var 750 milljónir á fyrri
hluta ársins 2002.
Eignir félagsins nema 13 millj-
örðum króna, þar af eru hlutabréf
upp á tólf milljarða; skráð bréf fyr-
ir rúma tíu milljarða og óskráð fyr-
ir tæpa tvo. Eigið fé Straums var
rúmir tíu milljarðar króna 30. júní
2003 og skuldir tæpir þrír millj-
arðar. Þar af eru lántökur á árinu
upp á 2,7 milljarða. Í byrjun árs
voru eignir átta milljarðar, þar af
hlutabréf 7,6 milljarðar. 31. desem-
ber 2002 var eigið fé 7,8 milljarðar
og skuldir 226 milljónir.
Straumur hagnast um 867
milljónir á fyrri hluta árs
Innleystur
hagnaður 425
milljónir króna
0;0;<=<57;9;
&
./ #
-
. ( )*
/0 1
23
/
$
142
.
&
!
"#
!
< < <>-
)
"&"
05;798
% $, ,
%
$
(
('
'
"+"
!
8;249
()
"()'
"'
! "#$%! 3775
&'(')%!
57;9;?75
3773
50;03;?73
"
3775 3773
FSA kannar
eignarhald
á Chelsea
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ í Bret-
landi, FSA, er að kanna eignarhald
á fótboltafélaginu Chelsea, sem
rússneski auðmaðurinn Roman
Abramovits keypti meirihluta í á
dögunum.
Í frétt frá Reuters segir að Fjár-
málaeftirlitið segist hafa fengið
ábendingar um að opinberar upp-
lýsingar um eignarhluti tiltekinna
aðila kunni að hafa verið ónákvæm-
ar og þess vegna kunni markaður-
inn að hafa verið afvegaleiddur um
raunverulegt eignarhald fyrirtæk-
isins.
AFP-fréttastofan segir að Yfir-
tökuráðið í Bretlandi telji að rann-
sókn Fjármálaeftirlitsins tengist
ekki fyrirtækinu sem Abramovits
stofnaði um hlutafé í fótbolta-
félaginu. Yfirtökuráðið segir að
slík mál séu ekki óalgeng í
tengslum við yfirtökur og að ef
eitthvað komi í ljós muni ráðið gera
eigin rannsókn, að því er fram kem-
ur í frétt AFP.