Morgunblaðið - 25.07.2003, Síða 22
Tilkynning um útgáfu skráningarlýsingar
Stáltaks hf.
Útgefandi Stáltak hf., kt. 620269-1079,
Hjalteyrargötu 20, 600 Akureyri,
sími 460 7600, fax 460 7601.
Umsjónaraðili Íslensk verðbréf hf., Strandgötu 3,
600 Akureyri, sími 460 4700, fax 460 4717.
Félagið birtir nú skráningarlýsingu vegna
hækkunar á hlutafé um 90.574.634 krónur
að nafnverði. Eftir hækkunina er skráð
hlutafé félagsins 175.574.634 krónur að
nafnverði og er allt hlutafé félagsins skráð á
Tilboðsmarkað Kauphallar Íslands hf.
Ástæða hlutafjárhækkunar Stáltaks hf.
er uppgjör á nauðasamningi
félagsins við kröfuhafa.
Skráning Hlutabréf að nafnverði 84.547.025 krónur
voru skráð í Kauphöll Íslands hf. hinn
28. mars 2003. Þá voru hlutabréf að
nafnverði 6.027.609 krónur skráð
í Kauphöll Íslands hf. hinn 10. apríl 2003.
Upplýsingar og gögn Skráningarlýsingu, ásamt öðrum gögnum
sem vitnað er í, má nálgast hjá Stáltaki
hf., Hjalteyrargötu 20, 600 Akureyri. Þá má
einnig nálgast skráningarlýsinguna á
vefsíðu umsjónaraðila, www.iv.is
Hlutafjárhækkun
og nafnverð hlutafjár
HJÓNIN Clinton og Michelle Duke
frá Vancouver í Kanada notuðu
góða veðrið á Akureyri í gær til að
slappa af og fá sér eitthvað í gogg-
inn. Þau hjón, sem eru búsett í
London í Englandi, hafa verið að
ferðast um landið síðustu daga. Eft-
ir að hafa ekið í rigningu og þoku
um Suður- og Austurland, voru þau
þó ánægð með að fá sól og blíðu fyr-
ir norðan. Þau voru þó þrátt fyrir
misjafnt veður ánægð með dvölina
á Íslandi og hrifust mjög af landinu.
Clinton og Michelle nutu miðnætur-
sólarinnar á Húsavík, sem hann
festi á filmu í gríð og erg. Þau ætl-
uðu aftur til Húsavíkur í gær, í
hvalaskoðun, en koma svo aftur til
Akureyrar, halda til Grímseyjar í
dag en halda svo áfram suður á
bóginn. „Það fyrsta sem við gerðum
þegar við komum til landsins var að
fara í Bláa lónið, sem er alveg stór-
kostlegur staður og við erum
ákveðin í að koma þar við aftur á
leiðinni frá landinu á sunnudag.“
Langafi Clintons, Gísli Magnús-
son úr Reykjavík, fluttist til Kanada
á sínum tíma en afi hans, Marlen
Magnusson fæddist í Kanada en tal-
aði góða íslensku. „Ég á vafalaust
marga ættingja á Íslandi en hef þó
ekki hugmynd um hvar þá er að
finna.“
Morgunblaðið/Kristján
Slappað af
í blíðunni
AKUREYRI
22 FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Á FUNDI bæjarráðs Akureyrar í
vikunni voru lagðar fram tillögur
vinnuhóps sem skipaður var af bæj-
arráði til viðræðna við Leikfélag
Akureyrar vegna rekstrarvanda fé-
lagsins. Bæjarráð fellst á tillögurn-
ar í öllum meginatriðum. Vinnuhóp-
urinn leggur til að Akureyrarbær
geri þriggja ára samning við LA um
rekstur atvinnuleikhúss á Akureyri
árin 2004 til 2006.
Forsenda fyrir gerð þessa samn-
ings er að samkomulag náist milli
Akureyrarbæjar og menntamála-
ráðuneytisins um fjárframlög ríkis-
ins til menningarmála á Akureyri á
sömu nótum og verið hefur und-
anfarin ár og ráðast fjárhæðir
samnings Akureyrarbæjar og LA
af upphæðum þess samnings. Jafn-
framt leggur vinnuhópurinn til, að
Akureyrarbær veiti LA fjárhags-
lega fyrirgreiðslu að upphæð 25
milljónir króna í formi fyrirfram-
greiðslu á tímabilinu ágúst til des-
ember 2003. Fjárhæð þessi verði
endurgreidd af framlögum til fé-
lagsins samkvæmt nánara sam-
komulagi á árunum 2004 til 2006.
Bæjarráð fól bæjarstjóra að ann-
ast samningsgerðina og útfærslu
nánari skilyrða við leikfélagið svo
sem hvernig eftirliti með fjárreið-
um þess og stjórnun verði háttað.
Samningurinn verði síðan lagður
fyrir bæjarráð til staðfestingar.
Jakob Björnsson, formaður bæj-
arráðs, sagði við Morgunblaðið að
viðræður væru í gangi á milli Ak-
ureyrarbæjar og menntamálaráðu-
neytisins.
„Stefnt er á að þessum viðræðum
verði lokið í haust og að það náist
samningur á svipuðum nótum og
verið hefur. Framlög til leikfélags-
ins miðast við forsendur þess samn-
ings, en hingað til hefur félagið ver-
ið að fá 80 milljónir á ári. Það er
samt þó nokkuð í það að hægt verði
að ganga frá samningi á milli bæj-
arins og leikfélagsins. Við verðum
að tryggja að sagan endurtaki sig
ekki og að ekki verði farið fram úr
fjárhagsáætlun. Þessi fyrirgreiðsla
sem félagið er að fá núna er ein-
ungis framlag sem endurgreiðist,
en er ekki ætlast til að dekkað verði
það tap sem verið hefur. Þrátt fyrir
eindreginn vilja bæjarráðs þá ligg-
ur samningurinn ekki tilbúinn á
borðinu, en ég geri ekki ráð fyrir
öðru en að þeir aðilar sem stjórna
leikfélaginu hafi lagt það þannig
niður fyrir sér að málið verði að-
gengilegt fyrir Akureyrarbæ,“
sagði Jakob.
Í vinnuhópnum áttu sæti bæjar-
fulltrúarnir Þórarinn B. Jónsson og
Oddur Helgi Halldórsson ásamt
Dan Brynjarssyni, fjármálastjóra.
Ekki náðist í Sigmund Erni Rún-
arsson, formann leikhúsráðs.
Tillögur vinnuhóps vegna rekstrarvanda LA
Gerður verði þriggja ára
samningur við félagið
FJÖLMÖRG skemmtiferðaskip
hafa komið til Akureyrar í sumar
og í gær lágu tvö slík við bryggjur í
bænum. Finnska skemmti-
ferðaskipið Kristina Regina, sem er
um 4.300 tonn að stærð og 100
metra langt, lá við festar í Fiski-
höfninni en með skipinu voru um
150 farþegar frá Finnlandi. Þetta
er í fyrsta sinn sem skemmti-
ferðaskip leggst þar að bryggju og
skipið er jafnframt það stærsta sem
komið hefur í Fiskihöfnina. Við
Oddeyrarbryggju lá skipið Ocean
Monarch. Skipið er 16.000 tonn að
stærð og 165 metra langt.
Næstkomandi fimmtudag kemur
skemmtiferðaskipið Adonia til Ak-
ureyrar og er það jafnframt
stærsta skip sem komið hefur til
bæjarins. Adonia er 77.000 tonn að
stærð og 260 metra langt en með
skipinu koma vel á annað þúsund
farþegar. Gert er ráð fyrir að skip-
ið leggist að Oddeyrarbryggju. Alls
hafa komur skemmtiferðaskipa
verið 27 til þessa í sumar og er von
á 18 skipum til viðbótar.
Morgunblaðið/Kristján
Finnska skemmtiferðaskipið Kristina Regina í Fiskihöfninni.
Stærsta skip sem lagst
hefur þar að bryggju
Skemmtiferðaskip í Fiskihöfninni Stjórnsýslu-
kæra lögð
fram
STJÓRNSÝSLUKÆRA á hendur
sýslumanninum á Akureyri var í gær
lögð fram í dómsmálaráðuneytinu.
Ingólfur Hlynsson, einn af þeim sem
lögðu fram kæruna segir að þeir vildu
athuga hver réttur þeirra væri, en
sýslumaður neitaði þeim um að halda
útihátíð á Melgerðismelum um versl-
unarmannahelgina. Jón Þór Ólason,
lögfræðingur og starfsmaður ráðu-
neytisins sagði þrír aðilar hefðu í
sameiningu lagt fram kæruna. „Málið
verður sent til sýslumannsins á Akur-
eyri, þar sem óskað verður umsagnar
hans og gagna málsins. Þar sem
stuttur fyrirvari er á þessu, verður
þess farið á leit við hann að veita mjög
skjóta umsögn sem verður svo send
kærendum til umsagnar.“
Í Minjasafnskirkjunni á Akureyri
verður söngvaka kl. 20:30 í kvöld.
Söngvökur eru hefðbundinn þáttur í
starfi Minjasafnsins og hafa notið
mikilla vinsælda. Nú fara þau Þur-
íður Vilhjálmsdóttir og Þórarinn
Hjartarson með áheyrendur í söng-
ferðalag og leiða þau um íslenska
tónlistarsögu í tali og tónum. Verk-
efnaskráin er afar fjölbreytt og
spannar allt frá dróttkvæðum og
trúarlegum söng til söngva frá
nítjándu og tuttugustu öld. Að-
gangseyrir er kr. 1000.
Í DAG
HÖFUÐBORGIN
Útsala
Útsala
Útsala
Útsala
Krónunni, 2. hæð, sími 462 3505,
Hafnarstræti 97, 600 Akureyri.
Verið velkomin
www.islandia.is/~heilsuhorn
SENDUM Í PÓSTKRÖFU
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889
Fæst m.a. í Lífsins lind í Hagkaupum,
Árnesapóteki, Selfossi og
Yggdrasil, Kárastíg 1.
Rauðsmára-
Phytoestrogen
Fyrir konur á
breytingarskeiðinu
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að
ráða Ágúst Hrafnkelsson viðskipta-
fræðing í starf forstöðumanns nýrrar
innri endurskoð-
unardeildar
Reykjavíkurborg-
ar. Alls bárust 22
umsóknir um
starfið. Markmið
deildarinnar er að
tryggja virkni
innra eftirlits, að
meðferð fjármuna
borgarinnar sé í
samræmi við
áætlanir borgaryfirvalda og að starf-
semi borgarinnar sé í samræmi við
lög og reglur.
Ágúst lauk viðskiptafræðiprófi af
reikningshalds- og fjármálasviði 1989
frá Háskóla Íslands, hann lauk prófi í
verðbréfaviðskiptum frá Bank Ad-
ministration Institute í Bandaríkjun-
um árið 2001 og lauk þaðan prófi í
fyrra sem Certified Bank Auditor.
Ágúst hefur gegnt starfi forstöðu-
manns endurskoðunar hjá Lands-
banka Íslands frá ársbyrjun 2002. Á
sama tíma hefur hann starfað við
innri endurskoðun hjá Heritable
Bank Limited í London. Áður hefur
hann meðal annars gegnt starfi for-
stöðumanns eignadeildar hjá Lands-
banka Íslands, auk starfs forstöðu-
manns árangursstýringar og for-
stöðumanns upplýsingavinnslu.
Forstöðu-
maður innri
endurskoð-
unardeildar
Reykjavík
Ágúst
Hrafnkelsson
SKIPULAGS- og mannvirkjanefnd
Seltjarnarnesbæjar hefur samþykkt
að skipa sérstakan starfshóp sem
mun leiða vinnu við deiliskipulag
Hrólfsskálamels og Suðurstrandar.
Verkefni hópsins felst í þróun
rammaskipulags sem síðan leiðir til
deiliskipulags. Hópurinn verður
skipaður tveim fulltrúum meirihluta
bæjarstjórnar og einum fulltrúa
minnihlutans, auk þess mun bæjar-
stjóri sitja fundi hópsins en bygging-
arfulltrúi verður starfsmaður hóps-
ins.
Starfshópur
skipaður
Seltjarnarnes
♦ ♦ ♦