Morgunblaðið - 25.07.2003, Page 23
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2003 23
„AÐSTAÐAN hentar mér ágætlega,
ég er ekki háður snjóhvítum sýning-
arsal. Þetta er falleg bygging og
gaman að koma hingað inn,“ sagði
Daði Guðbjörnsson listmálari sem í
gær var að setja upp sýningu í Salt-
fisksetri Íslands í Grindavík.
Málverkasýningin er í listsýning-
arsal á 2. hæð Saltfisksetursins. Hún
verður opnuð á morgun og stendur
til 31. ágúst. Salurinn er opinn alla
daga vikunnar frá klukkan 11 til 18.
Daði segir að upplagt hafi verið
að þiggja boð Saltfisksetursins um
að sýna þar. „Ég hef verið að vinna
mikið með báta, fiska og hafið, þótt
ekki sé það beint tengt fiskveiðum
heldur meira tákn fyrir ferðalag
okkar í gegnum lífið. Hafið er lif-
andi form, síkvikt. Maður veit aldrei
hvað gerist á sjónum. Það er fallegt
en líka hættulegt,“ segir Daði.
Á sýningunni eru ellefu olíu-
málverk sem listamaðurinn hefur
málað á síðustu tíu árum. Að-
spurður segir Daði að einu tengsl
hann við Grindavík séu kynni hans
af Guðbergi Bergssyni og segist
þekkja staðinn í gegn um sögur
hans.
Daði sýnir í Saltfisksetri Íslands
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Venus í Feneyjum heitir myndin sem Daði Guðbjörnsson er að hengja upp.
Ferðalag okkar
í gegn um lífið
Grindavík
LIFANDI laugardagur verður á
Hafnargötunni í Keflavík og víðar í
miðbæ Reykjanesbæjar á morgun.
Undirbúningsnefnd að stofnun mið-
bæjarsamtaka í Reykjanesbæ og
líkamsræktarstöðin Lífsstíll standa
fyrir ýmsum uppákomum.
Lífsstíll heldur árlega sumarhátíð
og að þessu sinni taka verslanir og
þjónustufyrirtæki þátt. Margar
verslanir verða opnar til klukkan
15, þær verða með útimarkað á
Hafnargötunni og handverks- og
listafólk sýnir framleiðslu sína.
Ýmsar uppákomur verða við hús-
næði Lífsstíls og víðar, meðal ann-
ars bílasýningar og listflug. Nýja
hringtorgið á mótum Aðalgötu og
Hafnargötu í Keflavík verður tekið
í notkun í dag og þar með fyrsti
hluti Hafnargötu eftir endurbætur.
Í gær unnu starfsmenn Nesprýðis
við lokafrágang og tengingu torgs-
ins við Aðalgötuna.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Starfsmenn Nesprýðis voru í gær að leggja síðustu hönd á hringtorgið á
gatnamótum Hafnargötu og Aðalgötu og tengingu þess við Aðalgötuna.
Lifandi
laugardagur
á Hafnar-
götunni
Keflavík
HÁSKÓLI Íslands hefur í sam-
vinnu við Sandgerðisbæ ákveðið að
stofna fræðasetur Háskóla Íslands í
Sandgerði, svokallað Háskólasetur
Suðurnesja. Bæjarstjórn Sandgerð-
is hefur samþykkt málið fyrir sitt
leyti.
Sigurður Valur Ásbjarnarson,
bæjarstjóri í Sandgerði, segir að
Háskóli Íslands hafi ákveðið að
koma upp formlegum háskólasetr-
um á nokkrum stöðum á landinu.
Sandgerði hafi verið inni í þeirri
mynd. Háskólinn er ásamt fleiri
stofnunum aðili að Rannsóknastöð-
inni í Sandgerði og þar hefur verið
unnið að ýmsum rannsóknum á veg-
um Líffræðistofnunar skólans. Seg-
ir Sigurður Valur að stofnun form-
legs háskólaseturs hafi verið næsta
skrefið.
Rannsóknastöðin starfar áfram
sjálfstætt að sínum verkefnum og er
háskólasetrið því viðbót, að sögn
Sigurðar. Að Rannsóknastöðinni
standa Hafrannsóknastofnun, Nátt-
úrufræðistofnun Íslands og Sand-
gerðisbær, auk Háskóla Íslands, og
er unnið að endurskoðun samstarfs-
samnings um starfsemi stöðvarinn-
ar. Hefur nýr samningur verið sam-
þykktur í bæjarstjórn Sandgerðis.
Háskólasetrið verður í húsnæði
Fræðasetursins í Sandgerði eins og
Rannsóknastöðin og Náttúrustofa
Suðurnesja. Er að sögn Sigurðar
horft til enn frekari samvinnu.
Meginhlutverk Háskólaseturs
Suðurnesja verður að efla rann-
sókna- og fræðastarf Háskóla Ís-
lands á Suðurnesjum. Í drögum að
reglum þess kemur fram, að það á
að gera meðal annars með því að
stuðla að margvíslegri háskóla-
kennslu á Suðurnesjum og stuðla að
því að halda norræn og/eða alþjóð-
leg námskeið. Einnig er talað um að
efla tengsl skora, deilda og stofnana
Háskóla Íslands og tengsl annarra
íslenskra rannsóknastofnana við at-
vinnu og þjóðlíf á Suðurnesjum og
að efla rannsóknir á náttúrunni.
Stofnsetja Háskólasetur
Sandgerði