Morgunblaðið - 25.07.2003, Page 34

Morgunblaðið - 25.07.2003, Page 34
MINNINGAR 34 FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Tinna HrönnTryggvadóttir fæddist í Reykjavík 22. apríl 1981. Hún lést á heimili sínu í Keflavík laugardag- inn 19. júlí síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar eru Hrafnhildur Bjarnadóttir starfs- maður í leikskóla, f. 22. nóvember 1964, og Tryggvi Þórir Egilsson læknir, f. 19. apríl 1963. Stjúpi hennar er Ólafur Ragnar Elísson bif- reiðastjóri, f. 15. október 1961, og eiginkona föður hennar er Ásta Sigríður Guðmundsdóttir sjúkraþjálfari, f. 3. apríl 1964. Systkini Tinnu, sammæðra, eru Bjarni Þór, f. 4. nóvember 1982, Signý Ósk, f. 7. apríl 1985, Ólafur Hrafn, f. 21. júní 1990 og Tómas Orri, f. 1. október 1998, og syst- kini hennar samfeðra eru Egill, f. 18. ágúst 1992, Ásgeir f. 20. júní 1994, og Stefanía Ásta, f. 28. mars 1999. Tinna bjó með unnusta sínum Hauki Aðalsteinssyni bifreiða- stjóra, f. 23. júní 1981. Foreldrar hans eru Aðalsteinn Guðbergsson bif- vélavirki, f. 9. jan- úar 1948, og Guðríð- ur Hauksdóttir verslunarmaður, f. 9. nóvember 1949. Tinna ólst upp á Reykjavíkursvæðinu til þriggja ára ald- urs. Þá fluttist hún til Grindavíkur með móður sinni og stjúpa og ólst þar upp síðan auk þess sem hún átti heimili hjá föðurfjölskyldu sinni í Reykjavík. Hún fluttist heim til unnusta síns sautján ára gömul, fyrst inn á heimili for- eldra hans í Njarðvík en síðar, fyrir tæpum þremur árum, flutt- ust þau í eigin íbúð í Keflavík. Hún var við nám í Fjölbrauta- skóla Suðurnesja samhliða vinnu á veitingastað í Keflavík. Þá hafði hún stundað nám í píanó- leik sem var henni mjög hugleik- inn. Tinna stundaði auk þess hestamennsku af miklum krafti. Útför hennar fer fram frá Grindavíkurkirkju föstudaginn 25. júlí klukkan 15. Tinna frænka er dáin. Síðastliðinn laugardag kom fregnin eins og reið- arslag og við erum varla búin að átta okkur enn. Hvernig má það vera að kornung kona sem geislaði af lífs- gleði og æskufegurð sé horfin okkur? Hún stóð á þröskuldi fullorðinsár- anna og við héldum að hún ætti lífið fram undan. Tinna var fyrsta barnabarnið í fjölskyldunni en foreldrar hennar voru enn á unglingsaldri þegar hún fæddist. Hún var gullfallegt barn, dökk á brún og brá og mikill gleði- gjafi allt frá þeirri stundu er hún kom í heiminn. Ömmur hennar og af- ar tóku mikinn þátt í uppeldi hennar fyrstu árin og fengum við að fylgjast með henni þegar hún dvaldist hjá föðurfólkinu, afa Agli og ömmu Brynju í Teigagerði. Hún var kraft- mikil og glöð lítil stúlka sem geislaði af heilbrigði. Það var því mikið áfall þegar hún greindist með sykursýki rúmlega tveggja ára gömul. Við tók lega á barnadeild þar sem foreldrar Tinnu, afar og ömmur lærðu að með- höndla sjúkdóminn. Þetta var erfið- ur tími en þarna kom þrautseigja Tinnu litlu og dugnaður vel í ljós. Aldrei var kvartað og þó að hún væri haldin alvarlegum sjúkdómi var Tinna í raun aldrei „sjúklingur“. Hún lærði fljótt að þekkja einkenni sykursýkinnar og þegar hún stálp- aðist fór hún smám saman að geta meðhöndlað sig sjálf. Tinna var stóra, skemmtilega frænka dætra okkar, Þorbjargar og Brynju, sem voru þremur og sex ár- um yngri en hún. Þær voru allar fæddar í apríl: þetta voru vorbörn fjölskyldunnar. Tinna var alltaf svo undurgóð frænkum sínum og lék við þær eins og jafningja þótt yngri væru. Enda var hátíð í bæ þegar Tinna kom í heimsókn til afa og ömmu í Teigagerði. Þá voru haldnar reglulegar leiksýningar, þar sem listagyðjurnar þrjár fóru á kostum. Þær voru allt í öllu og sáu jafnt um búningahönnun, leikritun og leik- skrárgerð, að ógleymdum listrænum tilþrifum á leiksviðinu og hreinum spuna þegar svo bar undir. Hug- myndaauðgi og listfengi Tinnu var þá við brugðið, og hún geislaði af leikgleði. Lengi verða í minnum hafðar sýningar eins og „Ljónið og músin“, „Prinsessan og hesturinn“ og „Karlrembur!“, þar sem ekki var allt sem sýndist og endalokin iðulega óvænt. Ein af mörgum ánægjulegum minningum frá þessum árum er Ítal- íuferð sem stórfjölskyldan fór í árið 1988, en þá fengu frænkurnar öllu stærri sandkassa til að leika sér í en þær voru vanar, sem var strand- lengja Adríahafsins. Þá var nú mok- að og byggt. Eftir að Tryggvi og Ásta hófu búskap í nágrenni við okk- ur í Vesturbænum dvaldi Tinna oft hjá þeim og notuðu frænkurnar þá hvert tækifæri til að hittast. Þor- björg fékk líka stundum að fara í sumarbústað með Tinnu, Ástu og Tryggva og var þá tekið upp á mörgu kostulegu. Morgun einn rifu þær frænkur sig upp fyrir allar aldir til að þvo sokka í læknum eins og gert var í gamla daga! Tinnu var margt til lista lagt. Hún teiknaði og málaði listavel og vann til verðlauna á því sviði í skóla. Tinna lærði líka á píanó hjá ömmu Brynju og hélt því áfram í tónlistarskólanum í Grindavík, þar sem hún bjó hjá móður sinni Hrafnhildi og stjúpa sín- um Ólafi. Tónlistin vék þó um stund fyrir öðru áhugamáli, hesta- mennsku. Foreldrar Tinnu gáfu henni hest í fermingargjöf og hafði hún þá á orði að það væri stærsti dagur sem hún hefði lifað. Við sáum Tinnu verða að sætri unglingsstelpu og síðan að geislandi fallegri ungri konu.Við hittumst sjaldnar hin síðari ár en alltaf urðu miklir fagnaðarfundir. Frænkurnar þrjár náðu strax saman eins og þeg- ar þær voru litlar, og Hólmfríður yngsta dóttir okkar fékk að kynnast stóru frænku sem henni þótti mikið til um. Tinna var einstaklega frænd- rækin og gjafmild. Á hverjum jólum fengu allir í fjölskyldunni eitthvað fallegt sem hún hafði búið til. Tinna var mjög barngóð og stolt af syst- kinunum sínum öllum, en þau eru sjö alls. Sammæðra henni eru Bjarni Þór, Signý Ósk, Ólafur Hrafn og Tómas Orri, en samfeðra eru Egill, Ásgeir og Stefanía Ásta. Þau hin síð- arnefndu nutu góðs af heimsóknum Tinnu til Bandaríkjanna, þar sem Tryggvi og Ásta voru í námi á síðari hluta tíunda áratugarins. Alltaf var glatt og kátt í kringum Tinnu. Við fylgdumst með afrekum Tinnu í námi og starfi. Hún keppti á hesta- mótum og vann til verðlauna. Hún kynntist ung ástinni sinni, honum Hauki, og unga parið lifði og hrærð- ist í hestamennskunni. Þau hófu bú- skap, fyrst hjá foreldrum hans í Njarðvík og síðan í eigin íbúð í Kefla- vík. Hún stundaði nám í Fjölbrauta- skóla Suðurnesja en gerði hlé á nám- inu meðan þau voru að koma undir sig fótunum. Hún var eftirsótt í vinnu enda harðdugleg og ósérhlífin. Í byrjun þessa árs hóf Tinna svo aft- ur nám í fjölbrautaskólanum og lauk vorprófum með glæsibrag. Næsta vetur ætlaði hún svo að taka aftur til við píanóið ásamt skólanum. Við hittum Tinnu síðast í Teiga- gerðinu í lok maí en hún var þá í kaupstaðarferð ásamt systur sinni Signýju. Hún var að velja sér plöntur úr garði ömmu og afa til að gróður- setja í garðinum þeirra Hauks. Sólin ljómaði og Tinna líka. Þannig verður hún ávallt í huga okkar. Stúlkan með hlýja brosið sem náði alla leið upp í tindrandi brúnu augun hennar. Hetjan okkar. Elsku Haukur, Hrafnhildur, Tryggvi og aðrir aðstandendur, hug- ur okkar er hjá ykkur. Við biðjum þess að ykkur megi veitast styrkur til að takast á við erfiðleikana fram undan. Það er mikil huggun fólgin í minningunni um yndislega stúlku sem var okkur öllum svo mikils virði. Hún Tinna verður áfram hjá okkur í anda. Blessuð sé minning Tinnu Hrann- ar Tryggvadóttur. Sveinn, Inga og dætur. Smávinir fagrir, foldarskart, fífill í haga, rauð og blá brekkusóley, vér mættum margt muna hvort öðru að segja frá Prýðið þér lengi landið það, sem lifandi guð hefur fundið stað ástarsælan, því ástin hans alls staðar fyllir þarfir manns. – – – Faðir og vinur alls sem er, annastu þennan græna reit. Blessaðu, faðir, blómin hér, blessaðu þau í hverri sveit. Vesalings sóley, sérðu mig? Sofðu nú vært og byrgðu þig; – hægur er dúr á daggarnótt – dreymi þig ljósið, sofðu rótt. (Jónas Hallgr.) Elsku Tinna, hjartanlegar þakkir fyrir allar samverustundirnar. Afi og amma. Koma Tinnu frænku í bæinn var alltaf tilhlökkunarefni og ekki að ástæðulausu. Við reyndum alltaf að nýta tíma okkar saman sem best og hófum því undireins undirbúning að næsta leikriti eða tískusýningu með Tinnu í forystu leikhópsins „Tríó“. Þegar leikhópurinn hafði fundið sér umfjöllunarefni var farið beinustu leið í fataskápinn hennar ömmu, búningar gerðir og síðan skreyttum við okkur með perlufestunum henn- ar og slæðunum. Enduðum svo í einni þvögu fyrir framan baðher- bergisspegilinn þar sem við mökuð- um á okkur snyrtivörum heimilisins. Í leikritunum fékk hver og ein að láta ljós sitt skína, sumar vildu alltaf leika prinsessuna en Tinna taldi það ekki eftir sér að leika minna eftirsótt hlutverk svo sem föðurinn og gerði það alltaf af mikilli innlifun. Þótt við hittum Tinnu sjaldnar með árunum fundum við til sömu eft- irvæntingar að fá að hitta hana og Tinna var alltaf jafn hress og skemmtileg, kleip í kinnarnar okkar og knúsaði okkur. Við hittum Tinnu seinast í afmælisveislu ömmu og skemmtum okkur hið besta en datt aldrei annað í hug en að við myndum hitta hana aftur ótal sinnum. Elsku Tinna, stóra frænkan okk- ar, þú sem varst alltaf svo skemmti- leg, klár og hugmyndarík, við gerð- um okkur aldrei grein fyrir alvarleika sjúkdómsins sem þú varst haldin. Við áttum eftir að upplifa svo margt saman. Það eina sem getur dregið úr sársaukanum á þessari stundu eru yndislegar minningar um þig sem við munum aldrei gleyma. Þorbjörg og Brynja Sveinsdætur. Ég á bágt með að trúa því að þú sért farin frá mér. Besta vinkona mín, áttir allt lífið framundan og komin með svo mörg plön um fram- tíðina, alltaf hlæjandi og rjóð í kinn- um. Þegar ég frétti að þú værir farin var eins og andardrátturinn væri tekinn frá mér, þú varst farin frá mér og ég vildi ekki trúa því. Það er svo erfitt að hugsa til þess að geta ekki tekið upp símtólið og hringt í þig til að spjalla um hitt og þetta eins og við gerðum alltaf. En ég veit að þú ert hérna hjá mér og ég á eftir að hitta þig aftur hinum megin og það er mér mikil huggun. Ég er mjög þakklát fyrir allar þessar góðu stundir sem við áttum saman. Við vorum svo miklar samlokur þegar við vorum yngri að það var ekki hægt að stía okkur sundur. Það var alltaf svo gaman að koma heim til þín þeg- ar við vorum litlar, þú áttir svo mikið Barbie- og Ponydót og við gátum al- veg gleymt okkur í þessu þegar við vorum að leika okkur saman. Hraun- ið var einn af okkar leikvöllum og þar áttum við lítið bú í mosanum og reyndum að byggja okkur þar lítinn kofa sem tókst ekki svo vel. Svo ux- um við upp úr þessu öllu saman og vorum allt í einu farnar að spá í stráka og málningardót.Það voru ekki fáar stundirnar heima hjá þér sem við eyddum fyrir framan speg- ilinn að æfa okkur að mála okkur með myndir upp úr tímaritum og ætluðum við sko að verða förðunar- fræðingar þegar við yrðum stórar. Stuttu seinna birtist draumaprinsinn þinn á balli í Stapanum. Þú varst al- veg yfir þig ástfangin af honum og ekki löngu eftir það fluttirðu frá Grindavík til hans í Njarðvík. Fyrir mig var það mjög erfitt að missa hinn helminginn minn úr fiskiþorpinu, en við misstum samt aldrei sambandið og áttum margar góðar stundir eftir það. Þú hlóst alltaf svo hátt og mikið og ég lá alltaf í krampa með þér því þú varst með svo smitandi hlátur. Þú varst svo lífsglöð að ég þurfti ekki einu sinni að segja þér brandara til þess að fá þig til að hlæja, það var nóg að segja bara „lopapeysa“. Elsku Haukur og fjölskylda, Hrafnhildur og fjölskylda, megi guð vera hjá ykkur og styrkja ykkur á þessum erfiðu tímum. Þín vinkona Anna Guðrún. Ég get ekki lýst hvernig mér leið þegar ég frétti að þú værir dáin. Ég var svo reið að þú værir tekin frá okkur svona ung. Þú varst svo lífs- glöð, alltaf hlæjandi og svo falleg. Það var svo gaman að vera nálægt þér því ég gat ekki annað en verið brosandi. Það var svo gaman að fara með þér í bíó því þú varst með svo smitandi hlátur. Þegar við vorum litlar var svo gaman að koma í heim- sókn, mamma þín kenndi okkur að hekla og sagði okkur draugasögur. Við vorum svo hræddar en vildum samt alltaf heyra meira. Ég man svo vel eftir því þegar þú hittir Hauk fyrst, við vorum á balli í Stapanum og þú hvarfst, ég og Anna leituðum að þér úti um allt því þú þurftir að taka lyfin þín, þá varst þú orðin ást- fangin á miðju dansgólfi. Alltaf þeg- ar við hittumst þá var mikið spjallað og hlegið. Manstu þegar við vorum á rúntinum uppi á „Hollywood“-hæð- inni á bílnum hans Hauks og þú fest- ir bílinn uppi á risasteini? Við urðum allar rosalega hræddar en hlógum samt eins og vitleysingar eins og allt- af. Það var alltaf svo gaman hjá okk- ur. Elsku Tinna, þín verður sárt sakn- að en minningarnar eru svo margar og góðar sem ég mun varðveita. Elsku Haukur, Hrafnhildur, Óli, Signý, Óli Hrafn og Tómas, megi guð styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Þín vinkona, Eyrún. Menn setur hljóða þegar ungt fólk í blóma lífsins er hrifið burt fyrir- varalaust. Tinna okkar var lífsglöð og elskuleg stúlka sem vann hug og hjörtu okkar allra á Háteigi 21. Það er ekki hægt að skrifa um Tinnu án þess að Haukur fylgi með. Í augum okkar, hinna eldri, voru þau börnin í húsinu. Það var gaman að fylgjast með þeim og ræða við þau um allt milli himins og jarðar. Þau voru um margt óvenjuþroskuð miðað við ald- ur. Náttúran og dýrin áttu hug Tinnu. Hún var mikil hestakona og það var eftirtektarvert að sjá hve hundarnir þeirra voru vel siðaðir. Skömmu fyrir andlát sitt keypti Tinna píanó og fór að spila eftir nokkurt hlé, en hún hafði sem barn lært á píanó. Við fengum að njóta þess að heyra tónana flæða um húsið. Með þessum fátæklegu kveðjuorð- um sendum við Hauki og fjölskyld- um þeirra beggja okkar innilegustu samúðarkveðjur. Fyrir hönd vina þinna á Háteigi 21, Elísabet Jensdóttir. Elsku besta vinkona mín, mér þykir svo vænt um þig. Ég trúi ekki að skulir vera farin, þú áttir svo mik- ið eftir. Eins jákvæð og glöð sem þú alltaf varst. Alla daga geislaði af þér. Þú hafðir svo fallegt bros og fallega persónu að geyma. Það er svo óskilj- anlegt að þú skulir hafa verið tekin frá okkur, ég skil ekki afhverju Guð gerir okkur slíkt. Ég man þegar þú byrjaðir að vinna hjá okkur, við náð- um srax svo vel saman. Skildum allt- af hvor aðra, traust og vinátta var það sem við áttum. Þú varst svo dug- leg, ég hef aldrei unnið og verið með neinum eins og þér. Elsku Tinna mín ég sakna þín svo sárt. En þegar fram líða stundir munu fallegar minningar koma í stað sársaukans. Elsku Tinna, við vorum orðnar bestu vin- konur og mun ég alltaf geyma minn- ingu þína í hjarta mínu. Ég þakka fyrir ástúð alla indæl minning lifir kær. Nú mátt þú vina höfði halla, við herrans brjóst er hvíldin vær. Í sölum himins sólin skín, ég sendi kveðju upp til þín. Elsku Haukur og fjölskylda. Guð styrki ykkur í sorginni Innilegar samúðarkveðjur. Hildur Ingólfsdóttir. Síðasta laugardag barst okkur sú harmafregn að Tinna Hrönn, sam- starfsmanneskja okkar og vinur, hefði dáið um nóttina. Það eru sorg- ardagar hjá okkur í vinnunni. Og enn sárar þegar ung stúlka í blóma lífsins er tekin svona fljótt frá okkur. Við sem erum búin að vinna með Tinnu í þau þrjú ár sem hún hefur starfað hér, mættum alltaf brosi og hlýju frá henni, ósérhlífin og dugleg er svo sannarlega hægt að segja um hana. Síðasta vetur var hún í Fjöl- brautaskóla Suðurnesja og nutum við styrks hennar hér þegar hún gat. Áhugamál Tinnu var hesta- mennska og oft var skemmtileg um- ræða í vinnunni um hestana hennar, hestaferðir sem hún hafði mjög gam- an af og ekki síst nærveran í kring- um hestana. Elsku Haukur og fjölskylda, megi Guð styrkja ykkur í sorg ykkar. Starfsfólk Olsen Olsen. Síðastliðinn laugardag bárust okk- ur þær hræðilegu fréttir að skóla- systir okkar hún Tinna væri farin frá okkur, aðeins 22 ára. Þegar við minn- umst Tinnu kemur fyrst í hugann hlátur, en Tinna var alltaf hlæjandi og lífsgleðin geislaði af henni. Hún var bara rétt að byrja lífið og fram- tíðin blasti við, en eins og segir ein- hvers staðar þá veit enginn sína ævi fyrr en öll er. Það er erfitt að sætta sig við svo ótímabært fráfall ungrar stúlku og á stundu sem þessari hugs- um við til þeirra sem næst henni stóðu: Elsku Haukur, foreldrar, systkini og aðrir aðstandendur, Guð veri með ykkur og styrki. Farðu í friði, vinur minn kær, faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær, aldrei ég skal þér gleyma. (Bubbi Morthens) Elsku Tinna, takk fyrir allt sem þú varst okkur. Skólafélagar úr Grunnskóla Grindavíkur. Tveggja áratuga baráttu Tinnu við alvarlega sykursýki er skyndilega lokið. Eftir standa minningar sem óþarfi er að fegra og innilegt þakk- læti fyrir gleðina sem hún færði okk- ur. Hugur okkar og samúð er með for- eldrum hennar, Hrafnhildi og Ólafi, börnum þeirra og Hauki unnusta hennar, eins og öllum sem voru svo lánsamir að þekkja Tinnu litlu. Hér áttu blómsveig bundinn af elsku, blíðri þökk og blikandi tárum. Hann fölnar ei en fagur geymist í hjörtum allra ástvina þinna. (Halla Lovísa Loftsdóttir.) Guð geymi þig elsku Tinna. Kolbrún, Phillip og Jessica. TINNA HRÖNN TRYGGVADÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.