Morgunblaðið - 25.07.2003, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 25.07.2003, Qupperneq 40
40 FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Í LOK júní hittust allir forsætis- ráðherrar Norðurlandanna í Harp- sund í Svíþjóð og ræddu m.a. ýmis sameiginleg hagsmunamál Norður- landanna. Í fréttartíma finnska sjónvarpsins sá ég spjallað við tvo þeirra beint frá fundinum, hinn nýbakaða forsætis- ráðherra Finnlands, Matti Vanhan- en, og Göran Petersson, forsætis- ráðherra Svíþjóðar. Þótti mér sérkennilegt að finnsku og sænsku fréttamennirnir sýndu íslenska for- sætisráðherranum engan áhuga, þó svo að hann sæti á milli fyrrnefndra félaga í sjónvarpsviðtalinu. En lík- leg skýring er þó sú að ýmis hags- munamál Evrópusambandsins snerta Finnland og Svíþjóð, og Gör- an Petersson hefur sýnt mikinn áhuga á að Svíþjóð fylgi fordæmi Finnlands og taki upp Evrópumynt- ina (evruna). Það var kannski af for- vitni hans um hvernig til hefði tekist í Finnlandi með evruna, að hann bauð Matti Vanhanen í einkabáts- ferð á nærliggjandi vatni, en ekki Davíð. Annars eru Finnar hinir ánægð- ustu með hinn nýbakaða forsætis- ráðherra Finnlands, sem þykir hinn viðkunnanlegsti, og ekki spillir fyrir að hann ber höfuð og herðar yfir flesta aðra, enda maðurinn rúmir 200 cm á hæð. Þótt ekki hafi verið spjallað við Davíð Oddsson í fréttatíma finnska sjónvarpsins (rás 1), bætti stærsta dagblað Finnlands, Helsingin Sanomat, úr því máli, með viðtali við hann frá fundinum í Svíþjóð og al- mennri umfjöllun sem yfirtók næst- um heila síðu í blaðinu. Millifyrir- sögn greinarinnar vakti sérstaka athygli mína, þar sem Davíð af sjálf- umgleði lýsti því yfir að í 12 ára stjórnartíð hans hafi Íslendingar orðið opnari, ríkari og þá kannski um leið hamingjusamari. Já, þetta þykir mér hin mestu tíð- indi um hina íslensku þjóð, og allt Davíð að þakka. Ég tek samt meira mark á orðum ýmissa annarra manna, t.d. skrifar Albert Jensen í lesendadálk Mbl. 28.6. sl. eftirfar- andi: „Löglegt en siðlaust.“ „Eigin- girnin virðist mörgum eðlislægrai en sanngirni og réttlæti. Um þessar mundir blómstrar fjölbreytt mis- rétti og misferli í samfélagi okkar af þvílíkum krafti að undrum sætir. Á Íslandi geta menn orðið auðugir af því að arðræna fyrirtæki, stofnanir og hvern sem er á löglegan hátt“ og hann skrifaði líka: „Þegar Sam- herjamaður seldi hlut sinn í fyrir- tækinu fyrir þrjá milljarða (hlutur sem að mestu var sannarlega eign þjóðarinnar) skoraði ég á hann að gefa þriðjung í barnaspítala. Hann kaus frekar að kaupa kaupmangara- höll úr gleri.“ Já það er nú svo að gróði og aftur gróði er sú stefna ræður ríkjum á Fróni um þessar mundir og þá er ekki hlustað á mannlegar áskoranir. Í greininni í Helsingin Sanomat mátti skilja á orðum Davíðs Odds- sonar að undir hans löngu stjórn sé raunar allt í mjög góðu lagi í hinu ís- lenska þjóðfélagi. Víst trúi ég því að Davíð hafi gert ýmsa góða hluti, en orð Alberts Jensen og margra ann- arra benda þó til þess að misrétti og misferli blómstri í hinu íslenska þjóðfélagi í traustu skjóli ríkis- stjórnarinnar. Hinir ríku hafa orðið ríkari, en hinir fátæku fátækari. Davíð nefndi einnig í finnska dag- blaðinu að hann láti af forsætisráð- herraembættinu á næsta ári, og við embættinu taki Halldór Ásgríms- son. Að mínu mati eru svona hrossa- kaup mjög gagnrýnisverð. Jú, Davíð getur látið af embættinu, en að færa formanni hins litla Framsóknar- flokks (bændaflokks), embættið á silfurfati er alveg út í hött, (löglegt en siðlaust). Sérstaklega í framhaldi af hinu mikla fylgistapi ríkisstjórn- arinnar í síðusu kosningum. BJÖRGVIN BJÖRGVINSSON, myndlistarkennari, Suður-Finnlandi. Ríkir og hamingju- samir Íslendingar Frá Björgvini Björgvinssyni: Í HÁDEGINU hinn 22. júlí 2003 var ég undirritaður staddur með hópi þýskra ferðamanna á Arnar- stapa á Snæfellsnesi. Allt í einu barst gríðarlegur hávaði úr vestri og sjá mátti tvær herþotur frá bandaríska hernum koma inn með ströndinni. Allir viðstaddir gripu fyrir eyrun og óskuðu sendingu þessari för hið snarasta í hið neðra. Fuglarnir í björgunum ókyrrðust og mátti á svipstundu sjá þúsundir fugla fljúga upp með gargi miklu enda áttu þeir sér einskis von. Þessi leifturstutta röskun olli mikilli truflun bæði meðal hinna erlendu gesta ekki síður en málleysingj- anna. Mér finnst að þau stjórnmálaöfl íslensk sem vilja halda dauðahaldi í þetta tilgangslausa hernaðarbrölt ættu að sjá betur að sér. Kalda stríðið er löngu liðið – sem betur fer – og vonandi er betri tíð framundan fyrir íslenska þjóð en án hers. Ís- lensk þjóð á að halda áfram áherslu á að rækta friðsamleg samskipti meðal þjóða og vera jafnvel í fara- broddi fyrir alþjóðlegri afvopnun en ekki mylja meir undir þá banda- rísku hernaðarhyggju sem nú um þessar mundir er hvað mest að spilla heiminum. Bandarísk hernaðarhyggja á ekk- ert erindi í íslenskt samfélag. Hún hefur spillt nóg enda má víða sjá slóð hverskyns sóðaskapar sem tengist hyggju þessari. Mætti eg frábiðja erlenda hern- aðar-„vernd“ af því tagi sem birtist fjölda útlendinga sem voru að njóta friðsældar íslenskrar náttúru við Arnarstapa. GUÐJÓN JENSSON, leiðsögumaður. Friðarspillar í náttúruparadís Frá Guðjóni Jenssyni:

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.