Morgunblaðið - 25.07.2003, Qupperneq 46
ÍÞRÓTTIR
46 FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BIRGIR Leifur Hafþórsson, GKG,
lék best í karlaflokki á fyrsta
keppnisdegi af fjórum á Íslands-
mótinu í höggleik í golfi sem fram
fer í Vestmannaeyjum. Alls voru
átta kylfingar í karlaflokki sem
léku á pari eða undir pari gær og
var Birgir Leifur þremur höggum
undir pari. Næstur í röðinni er Sig-
urpáll Geir Sveinsson úr GA sem á
titil að verja en Sigurpáll lék á 68
höggum eða tveimur undir pari.
Örn Ævar Hjartarson GS, Björg-
vin Sigurbergsson GK, Magnús
Lárusson GKj., Davíð Már Vil-
hjálmsson GKj. og Ólafur Már Sig-
urðsson GK eru allir á einu höggi
undir pari.
Birgir Leifur fékk fimm fugla í
gær, tvo skolla og ellefu pör. Sig-
urpáll Geir fékk einnig fimm fugla
en fékk að auki þrjá skolla og tíu
pör.
Viggó Viggósson úr GR átti
endasprett dagsins en hann fékk
fjóra fugla í röð, á 15., 16., 17. og
18. braut og endaði einn yfir pari.
Það eru þrír kylfingar sem eru
efstir í kvennaflokki og léku þær á
77 höggum eða 7 höggum yfir pari.
Íslandsmeistarinn frá því í fyrra
Ólöf María Jónsdóttir úr GK er þar
í baráttunni ásamt Þórdísi Geirs-
dóttur úr GK og Helenu Árnadóttur
úr GA. Ragnhildur Sigurðardóttir
GR, Nína Björk Geirsdóttir GKj. og
Katrín Dögg Hilmarsdóttir úr GKj
eru höggi á eftir þeim efstu.
Morgunblaðið/ Jón Svavarsson
Birgir Leifur Hafþórsson
Birgir Leifur byrj-
aði vel í Eyjum
ÚRSLIT
Jón Þorgrímur Stefánsson, semvar allt í öllu á Kaplakrikavelli í
gær var að vonum kampakátur í
leikslok: „Fyrri hálf-
leikur var dæmi-
gerður fyrir okkur í
ár. Við þurftum að fá
á okkur mark til að
vakna enn eina ferðina. En í síðari
hálfleik vorum við miklu betri að
mér fannst. Allir leikmenn lögðu sig
fram og sigurinn í kvöld var fyrst og
fremst sigur sterkrar liðsheildar,“
sagði Jón Þorgrímur og vildi lítið
gera úr eigin stórleik. „Ég neita því
ekki að ég er ánægður með minn leik
í kvöld en ég var nú aðeins að gera
það sem kantmaður á að gera og það
er að koma boltanum fyrir markið til
framherjanna. Nú eru það Valsmenn
í næsta leik. Við höfum sigrað þá
tvisvar það sem af er tímabili og að
sjálfsögðu ætlum við okkur ekkert
annað en sigur að Hlíðarenda.“
Leikur gærkvöldsins hófst mjög
fjörlega og eftir aðeins hálftímaleik
var staðan orðin 2:2. Gestirnir frá
Akureyri höfðu náð forystunni tvisv-
ar en Hafnfirðingarnir jöfnuðu jafn-
harðan. Eftir mörkin róaðist fyrri
hálfleikur en KA-menn voru þó með
undirtökin.
Eins og svo oft áður í sumar hófu
FH-ingar síðari hálfleik af krafti.
Strax á fyrstu mínútu hálfleiksins
átti Ásgeir Ásgeirsson skot eftir
hornspyrnu frá Jóni Þorgrími sem
Dean Martin varði á línu. Heima-
menn tóku síðan öll völd á vellinum
og á 61. mínútu skoruðu FH-ingar
mark sem dæmt var af vegna rang-
stöðu. Úr blaðamannstúkunni virtist
ekki vera um rangstöðu að ræða. En
Hafnfirðingar létu þetta ekki slá sig
út af laginu og sjö mínútum síðar
skoraði Allan Borgvardt sigurmark
leiksins.
Það sem eftir lifði leiks reyndi
Þorvaldur Örlygsson, þjálfari KA
allt sem hann gat til að blása lífi í
slakan sóknarleik gestanna en án ár-
angurs. FH-ingar voru nær því að
bæta við marki undir lok leiksins en
Jónas Grani Garðarsson fór illa að
ráði sínu í dauðafæri. Hafnfirðingar
fögnuðu sigrinum vel í leikslok enda
fyrsti sigur þeirra í deildinni frá því
að lið lagði ÍBV í Eyjum 22. júní.
Vörn heimamanna var slök í upphafi
leiks en vann sig þó inn í leikinn. Á
miðjunni var Ásgeir Ásgeirsson
manna bestur en minna fór fyrir
Heimi Guðjónssyni fyrirliða. Í fram-
línunni átti Atli Viðar Björnsson
sinn besta dag í sumar. En bestur í
liði heimamanna var títtnefndur Jón
Þorgrímur sem lék oft vörn KA
manna grátt sem vissu stundum
ekki hvort þeir voru að koma eða
fara.
KA menn voru góðir í fyrri hálf-
leik og klaufar að tapa forystu í tví-
gang. En í síðari hálfleik fann liðið
aldrei taktinn og hefði getað tapað
stærra. Í jöfnu liði gestanna börðust
Dean Martin og Óli Þór Birgisson
vel auk þess sem Jóhann Helgason
var sprækur í upphafi leiks.
„Leikurinn tapaðist í
fyrri hálfleik“
Þorvaldur Örlygsson, þjálfari
gestanna var ómyrkur í máli að leik
loknum: „Leikurinn tapaðist í fyrri
hálfleik. Við áttum að vera yfir í hálf-
leik, tvö eða þrjú núll. Klaufaleg mis-
tök urðu okkur hins vegar að falli.
En í síðari hállfleik vorum við aldrei
líklegir. Ég skil ekki af hverju við
vorum svona slakir í síðari hálfleik
eftir að hafa yfirspilað andstæðinga
okkar í þeim fyrri.“
Enginn meðal Jón
FH-INGAR unnu sinn fyrsta leik í
efstu deild, Landsbankadeild-
inni í knattspyrnu, í rúman mán-
uð í gær þegar þeir lögðu KA að
velli í gærkvöldi á Kaplakrika-
velli í Hafnarfirði, 3:2. Sigur-
mark FH-inga kom á 68. mínútu
þegar Allan Borgvardt skallaði
inn í mark fyrirgjöf frá Jóni Þor-
grími Stefánssyni, sem var að
öðrum ólöstuðum besti maður
vallarins.
Hjörvar
Hafliðason
skrifar
KNATTSPYRNA
1. deild karla:
Ásvellir: Haukar – Víkingur R..................20
Dalvík: Leiftur/Dalvík – Njarðvík ............20
Kópavogur: HK – Þór ................................20
Keflavík: Keflavík – Breiðablik.................20
2. deild karla:
Sauðárkrókur: Tindastóll – Selfoss ..........20
3. deild karla A:
Skeiðisv.: Bolungarvík – Víkingur Ó. .......20
Akranes: Deiglan – Númi ..........................20
3. deild karla B:
Þorlákshöfn: Ægir – Afríka.......................20
3. deild karla C:
Grenivík: Magni – Hvöt .............................20
Hofsós: Neisti H. – Snörtur ......................20
3. deild karla D:
Vopnafj.: Einherji – Neisti D. ...................20
Seyðisfj.: Huginn – Fjarðabyggð..............20
Í KVÖLD
KNATTSPYRNA
Efsta deild karla,
Landsbankadeild:
ÍBV - Valur ................................................2:1
Gunnar Heiðar Þorvaldsson 5., Ingi
Sigurðsson 71. - Tom Betts (7.) sjálfsmark.
Þróttur R. - ÍA...........................................1:3
Søren Hermansen 48. (víti) - Gunnlaugur
Jónsson 50., Guðjón Heiðar Sveinsson 57.,
Hjörtur Hjartarson 82.
FH - KA......................................................3:2
Atli Viðar Björnsson 18., Allan Borgvardt
29., 68. - Jóhann Helgason 9., Steinar Tend-
en 23.
Grindavík - Fylkir ....................................1:1
Eyþór Atli Einarsson 43. - Sverrir Sverr-
isson 31. (víti)
Staðan:
Fylkir 11 6 2 3 16:9 20
Grindavík 11 6 1 4 17:17 19
Þróttur R. 11 6 0 5 19:16 18
KR 10 5 2 3 12:12 17
ÍBV 11 5 1 5 18:16 16
FH 11 4 3 4 17:17 15
KA 11 4 2 5 18:17 14
ÍA 11 3 5 3 14:13 14
Valur 11 4 0 7 14:19 12
Fram 10 2 2 6 13:22 8
Markahæstu menn:
Björgólfur Takefusa, Þróttur R................. 9
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, ÍBV ............. 9
Steinar Tenden, KA .................................... 7
Sören Hermansen, Þróttur R. ................... 6
Hreinn Hringsson, KA ............................... 5
Jóhann H. Hreiðarsson, Valur ................... 5
Guðjón H. Sveinsson, ÍA............................. 4
Haukur Ingi Guðnason, Fylkir .................. 4
Jónas Grani Garðarsson, FH ..................... 4
Kristján Brooks, Fram ............................... 4
Sinisa Kekic, Grindavík .............................. 4
Björn Viðar Ásbjörnsson, Fylkir............... 3
Óli Stefán Flóventsson, Grindavík ............ 3
Sigurbjörn Hreiðarsson, Valur.................. 3
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, KR .............. 3
Tommy Nielsen, FH ................................... 3
Veigar Páll Gunnarsson, KR...................... 3
Allan Borgvardt, FH................................... 2
Atli Jóhannsson, ÍBV.................................. 2
Atli Viðar Björnsson, FH ........................... 2
Ágúst Gylfason, Fram................................. 2
Ármann Smári Björnsson, Valur ............... 2
Finnur Kolbeinsson, Fylkir........................ 2
Grétar Rafn Steinsson, ÍA.......................... 2
Guðmundur A. Bjarnason, Grindavík ....... 2
Gunnar Þór Pétursson, Fylkir ................... 2
Gunnlaugur Jónsson, ÍA............................. 2
Hálfdán Gíslason, Valur.............................. 2
Hjálmar Þórarinsson, Þróttur R. .............. 2
Ian Jeffs, ÍBV .............................................. 2
Ingvar Ólason, Fram .................................. 2
Ólafur Örn Bjarnason, Grindavík .............. 2
Paul McShane, Grindavík........................... 2
Pálmi Rafn Pálmason, KA.......................... 2
Ray Anthony Jónsson, Grindavík.............. 2
Stefán Þór Þórðarson, ÍA........................... 2
Sverrir Sverrisson, Fylkir.......................... 2
1. deild karla:
Afturelding - Stjarnan .............................2:3
Sveinn Magnússon (sjálfsmark) 19., Þor-
valdur Már Guðmundsson 50. - Vilhjálmur
Vilhjálmsson 16., 29. (víti), Valdimar Krist-
ófersson 76.
Staðan:
Keflavík 10 7 2 1 26:11 23
Víkingur R. 10 5 4 1 14:7 19
Þór 10 5 3 2 23:17 18
Haukar 10 4 2 4 15:15 14
HK 10 4 2 4 13:13 14
Stjarnan 11 3 5 3 15:16 14
Njarðvík 10 3 2 5 16:18 11
Afturelding 11 3 2 6 13:22 11
Breiðablik 10 3 1 6 9:13 10
Leiftur/Dalvík 10 2 1 7 10:22 7
2. deild karla:
Víðir - ÍR ....................................................1:0
Kristinn Jóhannsson.
Staðan:
Völsungur 11 8 1 2 36:18 25
Fjölnir 11 7 2 2 32:16 23
Selfoss 11 7 1 3 27:14 22
KS 11 5 3 3 20:17 18
Víðir 12 5 2 5 15:16 17
ÍR 12 5 1 6 22:22 16
Tindastóll 11 5 1 5 20:21 16
KFS 11 4 1 6 25:31 13
Léttir 11 2 1 8 9:39 7
Sindri 11 0 3 8 15:27 3
3. deild karla B:
ÍH - Reynir S. ............................................0:3
Leiknir R. - Hamar .................................12:1
Staðan:
Leiknir R. 10 8 1 1 38:7 25
Reynir S. 10 7 2 1 37:17 23
ÍH 10 6 1 3 33:17 19
Árborg 10 5 2 3 36:19 17
Freyr 10 5 0 5 18:29 15
Hamar 10 3 1 6 13:28 10
Afríka 9 1 0 8 5:30 3
Ægir 9 0 1 8 7:40 1
3. deild karla C:
Vaskur - Reynir Á. ....................................0:2
Staðan:
Vaskur 11 8 1 2 32:14 25
Reynir Á 11 6 2 3 20:16 20
Magni 10 5 2 3 25:15 17
Hvöt 10 4 3 3 21:9 15
Neisti H. 10 2 2 6 18:27 8
Snörtur 10 0 2 8 9:44 2
3. deild karla D:
Leiknir F. - Höttur....................................2:3
Staðan:
Fjarðabyggð 10 7 0 3 25:12 21
Höttur 11 6 2 3 20:13 20
Huginn 10 5 0 5 21:22 15
Neisti D. 10 4 1 5 15:23 13
Leiknir F. 11 4 0 7 22:26 12
Einherji 10 3 1 6 14:21 10
Svíþjóð
Halmstad - IFK Gautaborg .....................1:0
Æfingamót
í Malasíu
Newcastle - Birmingham.........................2:1
Shearer (37. vítas.), Ameobi (75.) – Devlin
(73. vítas.). Cunningham, Birmingham, var
rekinn af leikvelli á 36 mín.
Newcastle mætir Chelsea eða landsliði
Malasíu í úrslitum á sunnudag.
GOLF
Íslandsmótið í höggleik – í Vestmannaeyj-
um. Listinn yfir þá kylfinga sem náðu best-
um árangri á fyrsta keppnisdegi:
KARLAR
Birgir Leifur Hafþórsson, GKG.........67 (-3)
Sigurpáll Geir Sveinsson, GA....................68
Örn Ævar Hjartarson, GS.........................69
Björgvin Sigurbergsson, GK ....................69
Magnús Lárusson, GKj. ............................69
Davíð Már Vilhjálmsson. GKj. ..................69
Ólafur Már Sigurðsson, GK ......................69
Kristinn Gústaf Bjarnason, GKG .............70
Viggó Viggósson, GR .................................71
Sveinn Sigurbergsson, GK........................71
Haraldur H. Heimisson, GR .....................71
Björn Þór Hilmarsson, GR........................71
Brynjólfur Einar Sigmarsson, GKG ........71
KONUR
Þórdís Geirsdóttir, GK ..............................77
Ólöf María Jónsdóttir, GK.........................77
Helena Árnadóttir, GA ..............................77
Nína Björg Geirsdóttir, GKj. ....................78
Ragnhildur Sigurðardóttir, GR ................78
Katrín Dögg Hilmarsdóttir, GKj..............78
Anna Lísa Jóhannsdóttir, GR ...................79
Helga Rut Svanbergsdóttir, GKj..............80
FH 3:2 KA
Leikskipulag: 4-3-3 Landsbankadeildin,
11. umferð
Kaplakriki
Fimmtudaginn 24. júlí 2003
Aðstæður:
Rigning, 13 stiga hiti, völl-
urinn góður.
Áhorfendur: Um 600
Dómari:
Garðar Örn Hinriksson, Þrótt-
ur R., 5
Aðstoðardómarar:
Hans Scheving,
Ingvar Guðfinnsson
Skot á mark: 12(7) - 10(5)
Hornspyrnur: 4 - 2
Rangstöður: 4 - 1
Leikskipulag: 4-4-1-1
Daði Lárusson
Guðmundur Sævarsson M
(Baldur Bett 75.)
Tommy Nielsen
Sverrir Garðarsson
Magnús Ingi Einarsson
Ásgeir Gunnar Ásgeirsson M
Heimir Guðjónsson
Hermann Albertsson
(Freyr Bjarnason 81.)
Jón Þorgrímur Stefánsson MM
Allan Borgvardt M
Atli Viðar Björnsson M
(Jónas Grani Garðarsson 83.)
Sören Byskov
Örlygur Þór Helgason M
Slobodan Milisic
(Hreinn Hringsson 65.)
Ronnie Hartvig
Steingrímur Örn Eiðsson
Pálmi Rafn Pálmason
Steinn V. Gunnarsson M
Óli Þór Birgisson M
Jóhann Helgason
(Elmar Dan Sigþórsson 80.)
Dean Martin M
Steinar Tenden
(Þorleifur K. Árnason 80.)
0:1 (9.) Örlygur Helgason sendi boltann fyrir af hægri kannti. Þar var Jóhann
Helgason sem skoraði af stuttu færi.
1:1 (18.) Jón Þórgrímur Stefánsson lék glæsilega upp vinstri kannt og inn að
miðju, dró til sín varnarmann og gaf hann á Atla Viðar Björnsson sem
skoraði með góðu innanfótarskoti
1:2 (23.) Jóhann Helgason með sendingu frá vinstri á Steinar Tenden sem
snéri á varnarmann í markteig FH-inga og skoraði.
2:2 (29.) Jón Þorgrímur lék Steingrím Eiðsson grátt á hægri kannti. Eftir að hafa
leikið hann hann upp úr skónum sendi hann knöttinn fyrir markið og
eftir smá barning í teignum barst boltinn til Allan Borgvardt sem skor-
aði.
3:2 (68.) Jón Þorgrímur fékk boltann á hægri kannti. Hann spyrnti glæsilegri fyr-
irgjöf fyrir marki þar sem Allan Borgvardt mætti á mikill ferð og skor-
aði með glæsilegum skalla.
Gul spjöld: Hermann Albertsson, FH (52.) fyrir brot Atli Viðar Björnsson, FH (54.) fyrir
brot Óli Þór Birgisson, KA (70.) fyrir brot Dean Martin, KA (76.) fyrir brot.
Rauð spjöld: Engin
Heimamenn byrjuðu leikinn afmiklum krafti og voru þrisvar
sinnum mjög nálægt því að komast
yfir. Gestirnir geta
þakkað Magnúsi
Karli Péturssyni,
markverði Stjörn-
unnar, fyrir að hafa ekki lent undir
en hann varði í tvígang mjög vel.
Stjarnan komst yfir á 16. mínútu
þegar Vilhjálmur Vilhjálmsson skor-
aði fallegt mark en þetta var í fyrsta
sinn sem gestirnir ógnuðu marki
heimamanna. Afturelding jafnaði
metin þremur mínútum síðar en þá
varð Sveinn Magnússon fyrir því
óláni að skora sjálfsmark.
Gestirnir komust aftur yfir á 29.
mínútu en þá skoraði Vilhjálmur aft-
ur og nú úr vítaspyrnu eftir að brot-
ið hafði verið á Brynjari Sverrissyni.
Þegar tíu mínútur voru eftir af fyrri
hálfleik fékk Magnús Karl rauða
spjaldið fyrir að brjóta á Henning
Jónssyni. Ólafur Gunnarsson, varn-
armaður gestanna, fór í markið en
enginn varamarkvörður var á
bekknum hjá Stjörnunni.
Heimamenn jöfnuðu metin á 50.
mínútu en þá skoraði Þorvaldur Már
Guðmundsson beint úr hornspyrnu.
Gestirnir sátu til baka fyrstu tutt-
ugu mínútur síðari hálfleiks en Aft-
urelding náði ekki að skapa sér nein
marktækifæri í þessum leikkafla.
Eftir þetta hresstust gestirnir til
muna og hófu að sækja stíft að
marki heimamanna. Pressa Stjörn-
unnar bar árangur á 76. mínútu þeg-
ar Valdimar Kristófersson skoraði
af stuttu færi eftir að Axel Gomez,
markvörður Aftureldingar, hafði
misst boltann eftir aukaspyrnu Vil-
hjálms. Leikmenn Aftureldingar
mótmæltu markinu kröftuglega en
þeir töldu að Brynjar Sverrisson
hefði brotið á Axeli áður en Valdi-
mar náði boltanum. Það sem eftir
lifði leiks sátu gestirnir til baka en
Afturelding náði aldrei að ógna
marki Stjörnunnar að ráði. Stjörnu-
menn sóttu hratt á heimamenn þeg-
ar færi gafst en þeir voru klaufar að
gera ekki fleiri mörk og þá sérstak-
lega Brynjar Sverrisson sem fékk
fjögur úrvalsfæri, oft eftir að hafa
leikið varnarmenn Aftureldingar
grátt.
Maður leiksins: Valdimar
Kristófersson, Stjörnunni.
Stjörnumenn
hirtu öll stigin
STJARNAN sigraði Aftureldingu, 2:3, í Mosfellsbæ í 1. deild
karla en Stjörnumenn hafa leikið vel að undanförnu eftir slæma
byrjun.
Atli Sævarsson
skrifar