Morgunblaðið - 25.07.2003, Side 47
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2003 47
Barna- og unglingaráð (BUR)
knattspyrnudeildar Fjölnis
óskar eftir umsóknum í eftirfarandi störf:
Yfirþjálfari
Starfið felur í sér að hafa umsjón með starfi yngri flokkana
í samráði við BUR og fylgja eftir stefnu BUR.
Þjálfari
Starfið felst í þjálfun í yngri flokkum knattspyrnudeildar
Fjölnis (8.-3. flokki drengja og 6.-3. flokki stúlkna).
Starfsmaður á skrifstofu
Starfið felur í sér almenn skrifstofustörf, mótamál o.fl.
Um er að ræða hálft starfshlutfall.
Allar frekari upplýsingar fást hjá Inga Pétri Ingimundarsyni,
framkvæmdastjóra knattspyrnudeildar Fjölnis, netfang:
ingi@fjolnir.is, gsm 824 2299.
Umsóknir sendist til Inga Péturs Ingimundar-
sonar, framkvæmdastjóra knattspyrnudeildar Fjölnis,
Dalhúsum 2, 112 Reykjavík (netfang: ingi@fjolnir.is).
Umsóknarfrestur er til 10. ágúst 2003.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Knattspyrnudeild Fjölnis er fjölmennasta knattspyrnudeild landsins.
BUR knattspyrnudeild Fjölnis sér um málefni og rekstur yngri flokka
Fjölnis.
Leikurinn byrjaði nokkuð fjörlega,heimamenn voru nær því að
skapa sér opin færi, en alltaf vantaði
herslumuninn.
Heimamenn börðust
af krafti um hvern
einasta bolta en gekk
ekkert að skapa sér
marktækifæri. Gestirnir náðu því
hins vegar, fyrst á 29. mínútu þegar
þeir komust þrír gegn tveimur varn-
armönnum Grindvíkinga, komust upp
að endamörkum en sendingin, sem
var vel hugsuð, út í teig lenti fyrir aft-
an sóknarmanninn og ekkert varð úr.
Skömmu síðar átti Helgi Valur
Daníelsson skot í stöngina og fyrir
fætur Finns Kolbeinssonar alveg við
markstöngina, en Helgi Már Helga-
son, markvörður Grindvíkinga lokaði
vel á hann.
Markvörðurinn ungi, sem átti fínan
leik, kom hins vegar engum vörnum
við mínútu síðar þegar Sverrir Sverr-
isson kom gestunum yfir með marki
úr vítaspyrnu sem var réttilega
dæmd er Kekic felldi Ólaf Pál Snorra-
son. Spurning hvort Kekic hefði ekki
átt að fá rautt spjald í stað guls vegna
brotsins.
Skömmu fyrir leikhlé jafnaði Ey-
þór Atli Einarsson fyrir heimamenn
með glæsilegu marki, hans fyrsta
mark í efstu deild.
Dæmið snérist við í síðari hálfleik.
Fylkismenn voru mestmegnis með
knöttinn og sóttu látlítið en heima-
menn fengu færin, það er að segja Óli
Stefán Flóventsson fékk tvö fín færi,
skaut yfir af markteig í því fyrra en
mistókst að taka boltann með sér rétt
framan við markstöngina í því síðara.
Í millitíðinni fengu gestirnir horn-
spyrnu og mikil þvaga myndaðist á
markteig heimamanna. Því lauk með
laglegri dýfu Helga Más markvarðar
sem lét sig vaða inn í þvöguna og
handsamaði knöttinn.
Sinisa Kekic fékk síðan sitt annað
gula spjald á 79. mínútu og í kjölfarið
rautt spjald. Hann var á þriðjudaginn
dæmdur í eins leiks bann vegna
fjögurra gulra spjalda og nú bætist
annar leikur við vegna rauða spjalds-
ins.
Heimamenn þjöppuðu sér vel sam-
an eftir að þeir misstu mann útaf og ef
eitthvað var voru þeir heldur betri
það sem eftir lifði leiks. Það dugði
þeim þó ekki til að skora.
Þrátt fyrir að marktækifæri yrðu
ekki mörg var leikur liðanna alls ekki
leiðinlegur. Baráttan var mikil og fínt
samspil sást á köflum þó svo á stund-
um væri miðja liðanna yfirspiluð með
löngum sendingum.
Varnir liðanna voru þéttar fyrir
með dyggri aðstoð miðjumanna sem
voru duglegir að vinna til baka.
„Ég er svona sæmilega sáttur, en
ekki meira því ég hefði viljað fá fleiri
stig. Miðað við hvernig við lékum í
fyrri hálfleik er það kannski ekki
sanngjarnt en við vorum sterkari í
síðari hálfleik. Það vantaði samt eitt-
hvað hjá okkur, við lékum ágætlega
saman, viljinn og baráttan var til stað-
ar en við klikkuðum á smáatriðum,“
sagði Aðalsteinn Víglundsson, þjálf-
ari Fylkis eftir leikinn og nefndi rétti-
lega sem dæmi ein þrjú tilvik þegar
sóknarmenn hans voru að leggja af
stað og stinga sér inn fyrir vörnina en
stigu á knöttinn og féllu við.
EDUARDO Lopez Beci, tæknileg-
ur ráðgjafi hjá Deportivo La Coruna
á Spáni, sagði í gær að liðið og Bay-
ern München væru búin að ná sam-
komulagi um að hollenski marka-
hrókurinn Roy Maraay færi til
Bæjara. Maraay skoraði 28 mörk í
38 deildarleikjum sl. keppnistímabil
og fékk Gullskóinn, fyrir að hafa ver-
ið mesti markahrókur Evrópu. Hann
hefur skorað 79 deildarmörk á þeim
fjórum leiktíðum sem hann hefur
leikið með La Coruna.
SVÍINN Marcus Allback skoraði
þrjú mörk fyrir Aston Villa er liðið
lagði Pitea í Finnlandi, 8:0.
ASTON Villa gekk frá kaupum á
miðjumanninum Gavin McCann, 25
ára, frá Sunderland í gær á 2,25
millj. punda.
DINO Baggio, 32 ára, einn af
kunnustu knattspyrnumönnum Ítal-
íu, liggur nú undir feldi og skoðar til-
boð frá Wolves í Englandi, sem vilja
fá hann til sín frá Lazio. Hann er
ekki inn í framtíðarplani Rómarliðs-
ins. Baggio hefur leikið yfir 300
deildarleiki með Inter, Juventus,
Parma og Lazio og þá á hann 63
landsleiki að baki fyrir Ítalíu.
KOLO Toure, 22 ára, fyrirliði
landsliðs Fílabeinsstrandarinnar og
leikmaður með Arsenal, segir að litli
bróðir hans, Yaya, sé betri leikmað-
ur en hann og hann hafi trú á að Ars-
ene Wengers, knattspyrnustjóri
Arsenal, fái hann til liðs við sig. Yaya
lék æfingaleik með Arsenal í Aust-
urríki á dögunum og minnti menn á
Patrick Vieira. Hann er leikmaður
með Beveren í Belgíu, sem er eitt af
vinafélögum Arsenal. „Yaya verður
einn af stóru nöfnunum hjá Arsenal
á komandi árum,“ sagði Kolo.
FÓLK
Grindavík 1:1 Fylkir
Leikskipulag: 4-3-3 Landsbankadeildin,
11. umferð
Grindavíkurvöllur
Fimmtudaginn 24. júlí 2003
Aðstæður:
Gola, þurrt og 13 stiga hiti.
Fínn völlur.
Áhorfendur: 954
Dómari:
Kristinn Jakobsson, KR, 4
Aðstoðardómarar:
Guðmundur H. Jónsson,
Eyjólfur Finnsson
Skot á mark: 10(4) - 9(3)
Hornspyrnur: 3 - 2
Rangstöður: 0 - 3
Leikskipulag: 4-3-3
Helgi Már Helgason M
Óðinn Árnason
Sinisa Kekic
Ólafur Örn Bjarnason M
Gestur Gylfason M
Guðmundur A. Bjarnason
Mathias Jack M
(Eysteinn Húni Hauksson 73.)
Eyþór Atli Einarsson M
Óli Stefán Flóventsson
Alfreð Elías Jóhannsson
(Jerry Brown 64.)
Paul McShane
Kjartan Sturluson
Þórhallur Dan Jóhannsson
Hrafnkell Helgason M
Kjartan Antonsson
Gunnar Þór Pétursson
(Arnar Þór Úlfarsson 65.)
Ólafur Ingi Skúlason M
Sverrir Sverrisson
Helgi Valur Daníelsson M
Ólafur Páll Snorrason M
(Sævar Þór Gíslason 67.)
Finnur Kolbeinsson M
Haukur Ingi Guðnason
0:1 (33.) Ólafur Páll Snorrason vann boltann laglega af Sinisa Kekic á vítateig,
lék áfram og var kominn í fínt færi þegar Kekic felldi hann og dæmd
var vítaspyrna. Úr henni skoraði Sverrir Sverrisson af miklu öryggi.
1:1 (42.) Eyþór Atli Einarsson fékk boltann rétt utan við vinstra vítateigshornið
og voru tveir varnarmenn Fylkis á honum. Hann sneri annan þeirra lag-
lega af sér og náði fallegu skoti, sendi boltann í boga í honrið fjær –
stöngin inn.
Gul spjöld: Sinisa Kekic, Grindavík (32.) fyrir brot. Gunnar Þór Pétursson, Fylki (34.)
fyrir brot.
Rauð spjöld: Sinisa Kekic, Grindavík (79.) annað gult spjald, fyrir brot.
Morgunblaðið/Jim Smart
Grindvíkingurinn Paul McShane í baráttunni við Fylkismennina Þórhall Dan Jónsson og Hrafnkel Helgason.
Stöðug stöðubarátta
LEIKUR toppliðanna, Fylkis og
Grindavíkur á heimavelli síð-
arnefnda liðsins var stöðubar-
átta frá upphafi til enda. Lítið
var um opin marktækifæri,
Grindvíkingar sterkari í fyrri
hálfleik en Fylkismenn í þeim
síðari þannig að 1:1 jafntefli
urðu trúlega sanngjörn úrslit.
Fylkir áfram í efsta sæti en
Grindvíkingar fóru úr því þriðja í
annað.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
Helgi var
að „njósna“
HELGI Kolviðsson, fyrrverandi
landsliðsmaður í knattspyrnu, og
Hannes Haubitz, þjálfara Kärnten,
liðinu sem Helgi leikur með í Austur-
ríki, voru í Grindavík í gærkvöldi.
Þeir koma gagngert til að fylgjast
með Grindavíkurliðinu í leiknum
gegn Fylki. Grindavík mætir Kärnt-
en í forkeppni UEFA-keppninnar 14.
ágúst í Austurríki og 28. ágúst í
Grindavík.