Morgunblaðið - 25.07.2003, Side 48
FÓLK Í FRÉTTUM
48 FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BORGARSKJALASAFN REYKJAVÍKUR
www.rvk.is/borgarskjalasafn
Sími 563 1770
Hver var Lárus?
Sýning um Lárus Sigurbjörnsson,
skjala- og minjavörð Reykjavíkurbæjar
1954-1968 á 3. hæð, Tryggvagötu 15.
Opin alla virka daga kl. 10-16.
Aðgangur ókeypis.
Minjasafn Reykjavíkur
Árbæjarsafn
Kanntu að slá með orfi og ljá?
Heyannir sunnudag.
Ljúffengar veitingar í Dillonshúsi
Viðey:
Ganga þriðjudag kl. 19.30
Upplýsingar um leiðsögn í Viðey
í síma 568 0535 og 693 1440
Minjasafn Orkuveitu Reykjavíkur
sími 567 9009
Sjáið einu talandi eldavél landsins!
Opið 13-17 alla daga.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur
www.ljosmyndasafnreykjavikur.is
Frumefnin Fimm -
Ferðadagbækur Claire Xuan
24. maí - 1. sept. 2003.
Tekið er á móti hópum eftir samkomulagi,
nánari upplýsingar í síma 563 1790.
Afgreiðsla og skrifstofa opin virka daga
frá 10-16. Opnunartími sýninga virka daga
12-19 og 13-17 um helgar.
Aðgangur ókeypis.
www.listasafnreykjavikur.is
sími 590 1200
HAFNARHÚS, 10-17
Smekkleysa í 16 ár, Alþjóðleg
samtímalist á Íslandi, Erró - Stríð
Leiðsögn alla sunnud. kl. 15.00
KJARVALSSTAÐIR, 10-17
Íslensk samtímaljósmyndun,
Kjarval
Leiðsögn alla sunnud. kl. 15.00
ÁSMUNDARSAFN, 10-16
Ásmundur Sveinsson - Nútímamaðurinn
Menningarmiðstöðin Gerðuberg.
Sími 575 7700. Gerðubergi 3-5, 111 Rvík
Lokað vegna sumarleyfa starfsmanna.
Opnum aftur 12. ágúst.
Fjölbreytt dagskrá framundan.
www.gerduberg.is
www.borgarbokasafn.is
Upplýsingar um afgreiðslutíma
sími 552 7545
MÖGNUÐ MIÐBORG
Bókmenntaganga um miðborgina
laugardaginn 26. júlí
Lagt af stað frá Grófarhúsi
Tryggvagötu 15 kl. 16
LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ
Kl. 14:00 Erindi í Skálholtsskóla: Jaap Schröder fiðluleikari fjallar
um strengjaverk Joseph Haydns.
Kl. 15:00 Strengjakvartettinn „Sjö orð Krists á krossinum“ eftir
Joseph Haydn. Flytjendur: Jaap Schröder barokkfiðla, Rut
Ingólfsdóttir barokkfiðla, Svava Bernharðsdóttir barokkvíóla og
Sigurður Halldórsson barokkselló. Sr. Egill Hallgrímsson les úr
Passíusálmum Hallgríms Péturssonar milli þátta.
Kl. 17:00 Guðrún Óskarsdóttir semballeikari leikur þrjár franskar
svítur eftir Johann Sebastian Bach
SUNNUDAGUR 27. JÚLÍ
KL. 15:00 Endurflutt dagskrá frá laugardegi kl. 17:00
Einleikur á sembal: Guðrún Óskarsdóttir.
Kl. 16:40 Orgelstund fyrir messu. Flutt verða íslensk orgelverk.
Hilmar Örn Agnarsson orgel.
Kl. 17:00 Messa með þátttöku tónlistarmanna.
AÐGANGUR ÓKEYPIS
Dagsferð frá Hótel Loftleiðum laugardag kl. 13:30
Kynnisferðir, sími 562 1011
SUMARTÓNLEIKAR Í
SKÁLHOLTSSKIRKJU
28. júní - 4. ágúst 2003
Sumarkvöld við orgelið
26. júlí kl. 12
Lars Frederiksen orgel
27. júlí kl. 20
Lars Frederiksen
Verk m.a. eftir Buxtehude
og Reger.
18. SÝNING LAUGARDAG 26/7 - KL. 17 UPPSELT
19. SÝNING MIÐVIKUDAG 30/7 - KL. 20 UPPSELT
20. SÝNING FIMMTUDAGINN 31/7 - KL. 20 UPPSELT
21. SÝNING MIÐVIKUDAGUR 20/8 - KL. 20 LAUS SÆTI
22. SÝNING FIMMTUDAGINN 21/8 - KL. 20 LAUS SÆTI
23. SÝNING LAUGARDAGINN 23/8 - KL. 16 LAUS SÆTI
24. SÝNING LAUGARDAGINN 23/8 - KL. 20 LAUS SÆTI
25. SÝNING FÖSTUDAGINN 29/8 - KL. 20 LAUS SÆTI
26. SÝNING LAUGARDAGINN 30/8 - KL. 16 LAUS SÆTI
ATHUGIÐ ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA ! TALA tvífætlinga á hríseyskri
grundu varð hærri en hinna fjór-
fættu um helgina síðustu en þá var
fagnað fullveldi perlu Eyjafjarðar –
eins og Hrísey er gjarnan kölluð.
Allt að tvö þúsund manns sóttu
þessa sívinsælu fullveldishátíð að
þessu sinni. Hátíðin er árlegur við-
burður og stendur yfir frá föstu-
degi fram á sunnudag en í ár var
hún haldin í sjöunda skiptið.
Hátíðardagskráin verður mynd-
arlegri með ári hverju, en fyrir ut-
an allt það sem fjölskrúðug náttúra
eyjarinnar sjálfrar hafðu upp á að
bjóða, skipulögðu eyjaskeggjar
hina ýmsu viðburði sem stóðu nær
linnulaust frá síðdegi föstudags
fram á síðdegi sunnudags. Komið
var upp leiktækjum fyrir yngstu
hátíðargestina, haldnar skemmti-
legar keppnir á borð við söngva-
keppni fyrir börn og unglinga,
kassaklifur, stultukeppni, vatns-
slag, ratleik, sjóstangveiði, þolfimi,
akstursleikni á dráttarvélum o.fl.
Ennfremur stóð gestum til boða að
kynnast eynni betur, starfsháttum
og menningu. Boðið var uppá skoð-
anaferðið norður í vitann, farið var
í dúntekjuferð og hópakstur um
byggðina á hinum glæsilega forn-
dráttarvélaflota bæjarbúa. Óvissu-
ferðin var á sínum stað og reyndist
vera Dalvíkurferð hvar efnt var til
heljarinnar húllumhæs á bryggj-
unni. Þá var hátíðargestum boðið
að kynna sér hina eftirtektarverður
bláskeljarrækt sem stunduð hefur
verið skammt undar ströndu Hrís-
eyjar í tvö ár með góðum árangri.
Myndlistarkonan Aðalheiður S.
Eysteinsdóttir hélt svo sýningu í fé-
lagsheimilinu Sæborgu sem var lið-
ur í verkinu „40 sýningar á 40 dög-
um“.
Veitingarstaðirnir Brekka og
Fossinn buðu upp á skemmtun fram
á nótt alla helgina. Á Brekku héldu
uppi fjörinu gleðisveitin Skál í botn
og Johnny King á meðan hið síunga
og vandaða Jassband lék á Foss-
inum stutt gestaspilurum á borð við
Dan Cassidy fiðlusnilling.
Á laugardagskvöldið leiddi hinn
óþreytandi og síkáti kynnir hátíð-
arinnar Ómar Hlynsson veglega
dagskrá á hátíðarsviðinu. Þar flutti
Einar Georg fyrrum skólastjóri
grunnskólans í Hrísey erindi um
sjálfstæðisbaráttu Hríseyinga.
Fyrstu ræðismenn hinnar sjálf-
stæðu Hríseyjar voru skipaðir þeir
Árni Tryggvason leikari og Þor-
steinn Þorsteinsson,eða Steini
rjúpa eins og hann er jafnan kall-
aður sökum þekkingar hans og
áhuga á fuglalífi eyjarinnar, en
báðir hafa þeir löngum haldið nafni
Hríseyjar hátt á lofti á meginland-
inu. Eftir að Árni Tryggva hafði
sagt nokkrar vel valdar gaman-
sögur og sungið gömlu góðu
„Vögguvísuna“ úr Dýrunum úr
Hálsaskógi steig á svið Jóhannes
eftirherma og flutti gamanmál. Þá
var komið að Rögnvaldi gáfaða og
Hvanndalsbræðrum sem léku
gáskafull lög uns varðeldur var
kveiktur ofan við höfn. Brekku-
söngnum stýrði Ingvar Jónsson
Hafnfirðingur, við tók Ómar Hlyns-
son kynnir og stjórnaði fjöldasöng
og kvöldið endaði með því að gamla
sveitin hans Ingvars, hinir vinsælu
Papar léku fyrir dansi.
Morgunblaðið/Skarphéðinn
Hún var glæsileg dráttarvélalestin sem liðaðist um eynna með hátíðargesti.
Fínasta fjör á
fullveldishátíð
Hrísey. Morgunblaðið.
ÞEGAR hinir væntanlegu tengda-
feður, Steve Tobias og dr. Jerome
Peyser, hittast í fyrsta skipti til
þess að fagna brúðkaupi barna
sinna er fjandinn laus.
Peyser er afslappaður fótaað-
gerðafræðingur, sem gerir allt
hvað hann getur til þess að forðast
aukið álag. Tobias, sem starfar hjá
bandarísku leyniþjónustunni, tekur
lífinu ekki eins rólega. Hann sæk-
ist sífellt eftir meiri spennu og af
henni fær hann nóg í starfi sínu. Á
venjulegum degi þarf hann að
semja við vopnasmyglara, stela
einkaþotum og beygja sig undan
banvænum byssukúlum. Hinn óút-
reiknanlegi lífsstíll leyniþjónustu-
mannsins hefur nú þegar eyðilagt
hjónaband hans, samband hans við
soninn Mark er ekki upp á marga
fiska og nú er röðin komin að föður
brúðarinnar.
Hinn jarðbundni fótaaðgerða-
fræðingur er ekki alls kostar
ánægður með framgöngu Tobiasar,
sem lendir í slagsmálum við óðan
byssumann og er sífellt að minnast
á rússnesku flóttakonuna Olgu.
Peyser sér fyrir sér að brúðkaupið
muni verða algerlega misheppnað,
en áður en hann fær tækifæri til
þess að aflýsa því er hann kominn
á kaf í ævintýralega baráttu ásamt
Tobiasi við illþýði heimsins. Hinir
ólíku tengdafeður lenda í ýmsum
ævintýrum saman og áður en þeir
vita af eru þeir komnir hálfa leið í
kringum hnöttinn. Félagi Tobiasar
í leyniþjónustunni, Angela, er ekki
alls kostar ánægð með bandamann
sinn, fótaaðgerðafræðinginn og
lætur hún þá skoðun sína óspart í
ljós. Hinn ósamvinnuþýði doktor
þarf þó að taka þátt í þessu verk-
efni, hvort sem þeim líkar það bet-
ur eða verr.
Þegar börn þeirra eru skyndi-
lega í hættu komast Tobias og
Peyser að því að þeir mynda í raun
og veru prýðilegt teymi.
Taugatrekktir
tengdafeður
Laugarásbíó og Regnboginn frumsýna
kvikmyndina The Inlaws (Tengdafor-
eldrarnir). Leikstjóri: Andrew Fleming.
Aðalhlutverk: Michael Douglas, Albert
Brooks og Ryan Reynolds.
Tengdafeðurnir verðandi lenda í
ýmsum ævintýrum.
HERSTJÓRINN Nathan West held-
ur ásamt sex sérsveitarmönnum sín-
um inn í skóga Panama, þar sem þeir
félagarnir ætla að bæta hæfni sína í
meðferð hertóla. Veðurspáin er ekki
upp á marga fiska og jafnvel er búist
við hvirfilbyl. West, sem er annálaður
skaphundur, lætur slíkar hrakspár
sem vind um eyru þjóta og eggjar
menn sína til æfinga. Það hefði hann
betur látið ógert, því einungis tveir
þeirra snúa aftur á lífi, sérsveitar-
mennirnir Dunbar og Kendall.
Kvenskörungurinn og kapteinninn,
Julia Osborne, stjórnar rannsókn á
hvarfi þessara manna. Henni verður
þó lítið ágengt þar sem þeir Dunbar
og Kendall neita að gefa nokkuð upp
sem gæti varpað ljósi á afdrif félaga
þeirra. Fyrrverandi sérsveitar-
maðurinn Tom Hardy er þá fenginn
til þess að aðstoða við rannsóknina.
Fíkniefnalöggan Hardy, sem er í leyfi
vegna gruns um spillingu, sýnir sér-
sveitarmönnunum enga linkind. Að
lokum knýr hann fram játningu bæði
hjá Dunbar og Kendall. Þeir tjá
honum báðir að sérsveitarmennirnir
og West séu látnir, að öðru leyti ber
þeim ekki saman í frásögnum.
Hvað kom fyrir West og sér-
sveitarmenn hans og hvað voru þeir í
raun að vilja í skóginum?
Hardy og Julia þurfa að klóra sig í
gegnum vef blekkinga og lyga áður
en þau komast að því hvaða
hræðilegu örlög biðu West og manna
hans.
Lygar og blekkingar
Sambíóin og Háskólabíó frumsýna kvik-
myndina Grundvallaratriði (Basic). Leik-
stjórn: John McTiernan. Aðalhlutverk:
John Travolta, Samuel L. Jackson,
Connie Nielsen og Giovanni Ribisi.
Hershöfðinginn Nathan West er
sannkallað hörkutól.