Morgunblaðið - 25.07.2003, Page 50

Morgunblaðið - 25.07.2003, Page 50
Iceland Express bauð hei lu kr ikket l ið i t i l landsins HUGH Ellerton bankamaður með meiru segir flest stórfyrirtæki í Bretlandi var með krikketlið, golfklúbb og fótboltalið. Ell- erton er kafteinn liðs EFG bankans og segir liðið reyna að fara utan á hverju ári til að spila krikket. Hann segir Íslandsferð liðsins um síðustu helgi hafa verið afar vel heppnaða og hrósar Ice- land Express sérstaklega fyrir undirbúninginn. Jöklakrikketið sló í gegn hjá ensku bankamönn- unum. Ellerton er hrifinn af Íslandi fyrir margar aðrar sakir, en hann hef- ur komið nokkrum sinnum til landsins í viðskiptaerindum. „Ísland er eini staðurinn í heiminum þar sem ég get hagað mér eins og heima hjá mér og komist upp með það,“ segir Ellerton og bætir við til útskýr- ingar: „jú sjáðu til, þið Íslendingar hafið nákvæmlega sama húmor og við Englendingarnir. Hér virka sömu brandarar og heima. Ég er með nokkra stóra kúnna í Hollywood en þegar ég fer til Bandaríkjanna þá er allt- af hætta á að móðga einhvern. Íslendingar hafa húmor fyrir sjálfum sér og taka sjálfa sig ekki eins alvarlega og til dæmis Bandaríkjamenn gera.“ Til að leggja enn meiri áherslu á þetta bregður Ell- erton sér í hlutverk spyrjand- ans og vill fá að vita hvaða breski sjónvarps- þáttur sé í mestu uppáhaldi blaðamanns. „Ég vissi að þú myndir segja þetta,“ segir hann og hlær dátt þegar blaðamaður segist hafa gam- an af að horfa á The Office. „Börnin mín hefðu nefnilega sagt nákvæmlega það sama, þau horfa á þennan þátt daginn út og daginn inn. Þið Íslending- arnir eruð alveg eins og við þegar kemur að gríni.“ Til að snúa snúa talinu ör- lítið að sjálfu krikketi inni blaðamaður Ellerton eftir því hvort Íslendingar geti eitthvað í þessari þjóðar- íþrótt Breta. „Þeir eru allavega mun betri núna en fyrir viku síðan,“ segir Ellerton og hlær. Hann upplýsir að ís- lensku spil- urunum hefði þegar verið boðið að spila í Bretlandi næsta sumar og segist binda vonir við að krikket nái fótfestu hér á landi. „Við unn- um reyndar alla leikina en það var alls ekki auðvelt. Þeir voru mun betri en við gerð- um ráð fyrir.“ Hinir krikket- glöðu Ís- og Eng- lendingar spiluðu nokkra leiki um síðustu helgi og skemmtu sér meðal annars saman í boði breska sendiherrans á Íslandi, en hann er sjálfur öflugur krikketspil- ari að sögn Ellertons. Mynd af Ellerton á Lang- jökli birtist á forsíðu Morgunblaðsins sl. mánu- dag. Sjálfur segist hann hafa haft gaman af að sjá mynd af sér og Tony Blair, forsætisráðherra Breta, á sömu forsíðu. Buxurnar sem Ellerton klæddist í krikketleiknum á Langjökli eru keyptar af enskum séntilmanni sem er líklega enn frægari en Blair. „Ég keypti buxurnar á uppboði sem haldið var á fötum Eltons Johns fyrir skömmu,“ segir Ellerton og bætir við að hann hafi klæðst þeim í fyrsta sinn við þetta tækifæri. Fann fax frá Elton John í vasanum „Sjáðu merkið,“ segir Ellerton og bendir sposkur á ísaumað merki Gianni Versace innan á fóðri jakkans sem hann er í. „Viltu fá almenni- lega sögu?“ spyr Ellerton og færist allur í aukana. „Ég keypti þessi jakkaföt líka af Elton John, þurfti reyndar að láta klæðskera breyta þeim þar sem ég og herra John notum ekki beinlínis sömu stærð. Þegar ég stakk hendinni í vasann fann ég blaðsnepil sem ég hélt fyrst að krakkarnir mínir hefðu sett þarna. Ég rétti þeim blaðið og það sló þögn á hópinn. Á blaðinu mátti sjá rithönd Eltons Johns og ljóst mátti vera að hann hafði klæðst fötunum stuttu eftir lát Díönu prinessu. Blaðið var fax sem sent hafði verið til útsendingarstjóra í Los Angeles með uppkasti að textanum við Candle in the wind,“ segir hann um leið og hann sýnir blaða- manni faxið. Lagasmiðir eru greinilega mistæk- ir eins og aðrir og mörg orð höfðu verið strikuð út út textanum. Undir uppkastið, sem hvílir í vasa bankamannsins, ritar E. J. Ellerton segist ætla að geyma faxið í vasanum áfram. Spilaði jöklakrikket í buxum af Elton John Enskt krikketlið mætti íslensku á Langjökli um síðusu helgi. Eyrún Magnúsdóttir var svo heppin að ná tali af kafteini enska liðsins sem gengur í fötum af Elton John og dáir íslenskan húmor. Morgunblaðið/Jim Smart Kuldinn beit ekki á krikketliðið sem yljaði sér á eldgömlu eðalviskíi. Fána breska heimsveld- isins var hampað líkt og hinum íslenska. Krikket hefur aldrei áður verið spilað á jökli. Hugh Ellerton er kafteinn krikketliðsins. Hann klæddist röndóttu Gianni Versace buxunum í fyrsta sinn á Langjökli en bux- urnar fékk hann á góðgerðaruppboði á fötum og fylgihlutum Eltons Johns. eyrun@mbl.is 50 FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 6, 8 og 10.15. B.i. 14 ára. Stríðið er hafið! Sýnd kl. 8. FORSÝND KL. 10.15 Í KVÖLD Tortímandinn er kominn aftur. Fyrsta flokks spennumynd.  Kvikmyndir.com SV. MBL Sýnd kl. 6. FORSÝNING HUGSAÐU STÓRT EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS Miðasala opnar kl. 15.30 Sýnd kl. 4. Ísl. tal. 500 kr. Sýnd kl. 8, 10 og 12. B.i. 14  X-IÐ 97.7  SV MBL  ÓHT RÁS 2  HK DV Sýnd kl. 6. Sýnd kl. 4, 5.40, 8, 10.20 og 12.50. Sýnd kl. 5.30, 8, 10.30 og Powersýning kl. 12.50. B.i. 14 ára. kl. 6, 8.30 og 11. Stríðið er hafið! POWE R SÝNIN G KL. 12 .50. . SV. MBL HK. DV Tortímandinn er kominn aftur. Fyrsta flokks spennumynd.  Kvikmyndir.com Hitt húsiðSíðasti Föstudagsbræðingurinn í sumar: Uppskeruhátíð sumarstarfs Hins Hússins. Víðsvegar um borgina verða uppákomur fjöl- margra listahópa. M.a. Tríó Cantabile, Götu- leikhúsið, Herra Sívertsen og farandspil- ararnir, Lúðrasveit lýðsins, Fúsion, Ljóðaleikur, Ofleikur, Sumarópera, Útvarp mandólín, Glöðu málararnir, flóamarkaður, leikir andlitsmálun, Reykvíska Listaleikhúsið og tónleikar á Ingólfstorgi með Kuai, Original Melody, Doctuz, Ókind og Bent & 7Berg. Í DAG  Sjá einnig Staður og stund á mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.