Morgunblaðið - 25.07.2003, Side 56
Morgunblaðið/Júlíus
Fíkniefnahundar lögreglunnar í Reykjavík leita að hugsanlegum ólöglegum efnum í innanlands-
pósti hjá Flugfélagi Íslands. Fíkniefnaneysla hefur oft verið nokkur um verslunarmannahelgina.
LÖGREGLAN í Reykjavík hefur hert fíkni-
efnaeftirlit sökum þess að nú styttist í versl-
unarmannahelgina en í gegnum tíðina hefur eit-
urlyfjaneysla talsvert sett mark sitt á
skemmtanahald um þessa helgi. Hundarnir Ar-
on og Dofri þefuðu áhugasamir af póstsendingu
í farangursgeymslu Flugfélags Íslands á
Reykjavíkurflugvelli í gær en fundu engin fíkni-
efni í þetta skiptið. Sjaldan eða aldrei hafa
skipulögð hátíðarhöld verið í boði á jafnmörgum
stöðum um verslunarmannahelgina en sextán
hátíðir eru fyrirhugaðar í ár.
Karl Steinar Valsson, aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn, segir að eftirlit með póst- og vörusend-
ingum hafi þegar verið hert. Þegar nær dregur
helginni verði lögreglumenn við helstu sam-
komustaði, þ.m.t. flughafnir og við áfangastaði
fólksflutningabíla. Lögreglan í Reykjavík á nú
sex fíkniefnaleitarhunda og einn sem er sér-
þjálfaður í leit að sprengjum. Aukinn kraftur
verður þar að auki settur í umferðareftirlit eins
og venja er til. Strax um helgina verður sér-
staklega gætt að því að á bílum með tjaldvagna í
eftirdragi sé speglabúnaður í lagi og að þeim sé
ekið á löglegum hraða en ekki geri allir sér
grein fyrir því að hámarkshraði með tjaldvagn
sé 80 km/klst. Að auki verður lögregla með hert
eftirlit í íbúðarhverfum um þessa miklu ferða-
helgi. Karl Steinar hvetur fólk til að skilja vel
við hús sín og ef kostur er að biðja nágranna um
að hafa auga með heimilinu. Einnig eru ýmsar
upplýsingar á lögregluvefnum, www.logreglan-
.is.
Á annan tug skipulagðra hátíðarhalda er fyr-
irhugaður á landinu öllu um verslunarmanna-
helgina. Dagskrá flestra hátíðanna er sniðin að
þörfum fjölskyldunnar, en fólk á öllum aldri
ætti að geta fundið sér eitthvað við að vera. Á
Ísafirði verður unglingalandsmót UMFÍ,
kántrítónleikar verða á Skagaströnd, þjóðhátíð
í Vestmannaeyjum, kotmót í Kirkjulæk, auk
fjölda annarra móta. Þá hefur vímulausum há-
tíðum fjölgað.
Í fyrra kom út skýrsla starfshóps sem var
skipaður til að fara yfir reglur og lagaumgjörð
varðandi útihátíðir og dómsmálaráðuneytið hef-
ur fylgt henni eftir með bréfi til ríkislögreglu-
stjóra og allra lögreglustjóra. Að sögn Jóns
Þórs Ólasonar, lögfræðings hjá dómsmálaráðu-
neytinu, er lögð sérstök áhersla á gott samráð
milli lögreglunnar, heilbrigðisstofnana, björg-
unarsveita og mótshaldara á hverjum stað fyrir
sig.
Lögreglan hefur hert
leitina að fíkniefnum
16 hátíðir um verslunarmannahelgina og hafa sjaldan verið fleiri
Fjölskyldan/miðopna
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
ÁRNI Friðriksson, skip Hafrannsóknar-
stofnunar, er nú djúpt suður af landinu við
kortlagningu hafsbotnsins. Mælingarnar eru
gerðar vegna kröfugerðar til landgrunns-
nefndar Sameinuðu þjóðanna en Ísland hef-
ur m.a. gert kröfu um yfirráð yfir Hatton-
Rockall svæðinu. Hafrannsóknarstofnun
vinnur verkefnið fyrir Orkustofnun.
„Í þessu gegnir afmörkun landgrunnsfót-
arins lykilhlutverki og verkefnið gengur út á
að kortleggja hann af mikilli nákvæmni,“
sagði Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Haf-
rannsóknarstofnunar. „Við lítum á þetta sem
hluta af kortlagningu af Íslandsmiðum og
gögnin nýtast einnig fyrir það verkefni.“
Danir við svipaðar rannsóknir
Í næstu viku leggur rannsóknarskip á veg-
um dönsku og grænlensku jarðfræðirann-
sóknarstofnunarinnar GEUS (Danmarks og
Grønlands Geologiske Undersøgelse) upp í
svipaðan rannsóknarleiðangur en skipið mun
kanna landgrunn utan 200 mílna lögsögu
Grænlands og Færeyja, m.a. á Hatton-Rock-
all svæðinu sem Bretar, Danir, Írar og Ís-
lendingar hafa gert tilkall til. Tómas H. Heið-
ar, þjóðréttarfræðingur utanríkisráðu-
neytisins segir að Danir hafi gert kröfu til
Hatton-Rockall svæðisins f.h. Færeyinga.
Rannsóknarleiðangurinn tengist væntanlega
því að Danir muni brátt gerast aðilar að haf-
réttarsamningi Sameinuðu þjóðanna. Ríki
sem gerist aðili að samningnum hefur 10 ár
til að skila greinargerð til landgrunnsnefnd-
ar SÞ um svæði sem það gerir tilkall til.
Á sínum tíma samþykkti ríkisstjórnin að
veita 700 milljónir til að gera mælingar á
landgrunninu og undirbúa greinargerð til
landgrunnsnefndarinnar. Mælingar hófust í
fyrra en standa fyrst og fremst yfir í ár og á
næsta ári. Stefnt er að því að skila grein-
argerð um kröfur Íslands árið 2005 en frest-
ur rennur út vorið 2009. Árni Friðriksson
annast mælingarnar, jafnt á Reykjanes-
hrygg, Hatton-Rockall og í Síldarsmugunni.
Kortleggur
hafsbotninn
af nákvæmni
Árni Friðriksson í veiga-
miklum rannsóknarleiðangri
MARGRÉT Hallgrímsdóttir,
heimasæta á Miðhúsum í Bisk-
upstungum, stelst til að fá sér
ylvolgan mjólkursopa beint úr
spena kýrinnar Sæbjargar. Bun-
an rataði ekki alveg rétta leið
heldur skaust í augað sem vakti
kátínu Lindu Rósar frænku
Margrétar sem var í heimsókn
og heldur betur liðtæk við fjós-
verkin.
Þær fullyrtu að hvítur sopi
beint úr kúnni væri „besta
mjólk í heimi.“
Frænkurnar láta sér fátt fyrir
brjósti brenna, kunna að hefta
kýrnar og handmjólka ef þörf
krefur. Kippa sér ekki upp við
það þótt „kannski þurfi að
slátra henni Búkollu því hún er
með svo stórt júgur að hún get-
ur varla gengið“.
Þeim finnst best að vera ber-
fættar og þær velta sér í ilm-
andi töðu á túni, baða hundinn,
skella sér á hestbak, príla upp á
hlöðuþak og skoða heiminn frá
mæninum. Fóðra samvisku-
samlega fimmtán kanínur og
hafa vökult auga með óboðnum
gestum því minkur liggur undir
grun.
Í Daglegu lífi í dag má sjá
nokkur brot úr sólríkum degi í
sveitinni með þeim Möggu og
Lindu Rós.
Morgunblaðið/Jim Smart
Besta mjólk í heimi
Daglegt líf /4
EITT af því sem verður í boði á Menning-
arnótt þann 16. ágúst næstkomandi verður
sýning á myndum eftir hinn heimsþekkta
bandaríska popplistamann, Andy Warhol
(1928-1987).
Að sögn Elínbjartar
Jónsdóttur hjá Galleríi
Fold er um að ræða por-
trettmyndaröð af íþrótta-
mönnum í eigu banda-
ríska auðkýfingsins og
listaverkasafnarans
Richard Weisman.
„Weisman og Warhol
voru góðir vinir og hann
fékk Warhol til að gera
portrettmyndaröð, alls
tíu myndir, af heims-
þekktum íþróttamönnum á áttunda áratugn-
um á svipuðum tíma og hann var að gera
þekktar seríur af leikurum og öðru frægu
fólki. Meðal þeirra íþróttamanna sem War-
hol gerði myndir af voru Mohammad Ali,
Jack Nicklaus og O.J. Simpson.
Á sýningunni verða 13 myndir því auk
hinna tíu verða tvær aukamyndir af Moham-
mad Ali og portrett sem Warhol gerði af
Weisman sjálfum.“
Weisman mun sjálfur setja upp sýninguna
og verða viðstaddur opnunina en sýningin
stendur í viku.
Myndir
Andy Warhol
á sýningu
Ein mynda Andy
Warhols af Muham-
mad Ali.
Menningarnótt
♦ ♦ ♦