Morgunblaðið - 30.07.2003, Qupperneq 1
Reuters
EITTHVAÐ var minna um skot-
hríð í Monróvíu, höfuðborg Líb-
eríu, í gær eftir að helstu sam-
tök uppreisnarmanna lýstu
einhliða yfir vopnahléi. En trú
manna á að það yrði virt var lítil
og fólkið í fátækrahverfinu West
Point virtist ekki sjá ástæðu til
bjartsýni í gær. Íbúar í West
Point eru flestir af Kru-ættbálki
og stunda fiskveiðar en þessa
dagana er hverfið í skotlínu
stríðandi aðila.
Forseti Nígeríu, Olusegun
Obasanjo, sem nú er staddur í
London, tjáði fréttamönnum í
gær að nígerískt herlið væri
væntanlegt til Líberíu innan
„nokkurra daga“. Embættis-
menn í heimalandi hans segja
hins vegar að íhlutun í ófriðinn
hafi tafist vegna deilu við
Bandaríkin og fleiri ríki um það
hver eigi að bera kostnaðinn af
því að senda herlið á staðinn.
Örvænting
í Monróvíu
STOFNAÐ 1913 204. TBL. 91. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Litbrigði
norðurs
Síðasta
Bjallan
Framleiðslu Bjöllunnar hætt
fyrir fullt og allt Bílar 9
Vænn
tékki
Börkur Gunnarsson hlýtur leik-
stjórastyrk í Tékklandi Fólk 48
NORÐMENN eru orðnir of ríkir til
að leggja sig niður við að flaka fisk.
Kemur það fram í viðtali við Terje
Vassdal, prófessor í sjávarútvegs-
fræðum, í Fiskeribladet.
„Það er hreint ekki víst, að fiskiðn-
aðurinn komist út úr þeim erf-
iðleikum, sem hann stríðir við núna.
Hann gæti þess vegna farið sömu
leiðina og konfektiðnaðurinn á Vest-
urlandinu,“ sagði Vassdal, sem við-
urkenndi að hugsanlega væri hann
of svartsýnn. Hann minnti hins vegar
á, að sjávarútvegurinn væri að fær-
ast í hendur stórfyrirtækja, sem leit-
uðu eftir hráefni, vinnuafli og öðru í
þeim löndum þar sem það væri
ódýrast.
Vassdal segir, að þegar litið sé á
sjávarútveginn í heild sé framlegðin
svipuð og í öðrum iðnaði en þegar
betur sé að gáð komi í ljós, að lang-
mestur hluti hennar sé í veiðunum.
Of ríkir til
að flaka fisk
ÞÓRÓLFUR Árnason borgarstjóri
segir í viðtali við Morgunblaðið að
hann telji sig ekki hafa platað
Reykjavíkurborg með undirritun
tilboðs vegna útboðs 1996. Hann
hafi ekki fengið fulla yfirsýn yfir
málið fyrr en í viðtali hjá Sam-
keppnisstofnun á síðasta ári.
Hann segist hafa gert sér grein
fyrir í starfi sínu hjá Olíufélaginu að
samráð væri á milli félaganna.
„Fljótlega eftir að ég hóf störf hjá
Olíufélaginu fór ég að sjá að ýmis-
legt á sviði verðákvarðana og sam-
vinnu milli félaganna var með öðr-
um hætti en almennt tíðkast í
samkeppnisrekstri. Án efa er
ástæðan, ef maður fer að reyna að
gera sér hana í hugarlund, áratuga-
langt samstarf sem upphaflega
byggðist á forsögn af hálfu stjórn-
valda. Ég gekk út frá því í upphafi
að þetta vinnuumhverfi væri eðli-
legt í þessum viðskiptum. Þetta var
við lýði áður en ég kom til starfa og
hélt áfram eftir að ég fór af vett-
vangi.“
Hann segist sjálfur aldrei hafa
ákveðið verð á olíu eða bensíni til
viðskiptavina. Það hafi verið á verk-
sviði forstjóra félagsins. Tölvu-
skeyti, sem vísað hefur verið til í
umræðum, telur hann síður en svo
sanna að hann hafi átt aðild að sam-
ráði olíufélaganna. „Ég held því
fram að séu skeytin lesin af yfirveg-
un og sanngirni í samhengi við ann-
að sem fram kemur í frumathugun
Samkeppnisstofnunar, sýni þau
þvert á móti að mér var í mun að
nýta öll tækifæri sem gáfust til sam-
keppnisaðgerða.“
Hvað útboð Reykjavíkurborgar
árið 1996 varðar segist hann hafa
grunað að tilboð sem þá voru lögð
fram hafi verið vegna fundar for-
stjóra olíufélaganna.
Fékk fyrst fulla yfirsýn í sam-
tali við Samkeppnisstofnun
„En ég hafði ekkert í hendi og
fékk ekki fulla yfirsýn yfir málið
fyrr en í samtali í Samkeppnisstofn-
un í fyrra þegar mér voru sýnd gögn
um málið, sem meðal annars voru
haldlögð gögn úr húsrannsókn. Ég
fullyrði þess vegna að ég plataði
ekki Reykjavíkurborg. Henni voru
boðin með minni undirritun við-
skiptakjör sem voru í fullu sam-
ræmi við þann afsláttarflokk sem
borginni bar í viðskiptamannaflóru
Olíufélagsins. Ef niðurstaða Sam-
keppnisstofnunar verður sú að
sannað þyki að ólögmætt samráð
hafi átt sér stað í þessu tilviki, kom
ég að því með þessari undirritun
minni. Það harma ég. En ég kom
ekki nálægt ákvörðun um samráð,
eða ákvörðun um verð,“ sagði Þór-
ólfur.
Þórólfur lagði fram skriflegt svar
við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa
Sjálfstæðisflokks á borgarráðsfundi
í gær. Þar neitar hann að hafa tekið
þátt í meintu ólögmætu útboði olíu-
félaganna. Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son, oddviti sjálfstæðismanna, segir
svarið ekki trúverðugt. Fyrir liggi
að hann hafi verið einn af aðalmönn-
unum í verðsamráði félaganna.
Þórólfur Árnason borgarstjóri kveðst ekki hafa blekkt Reykjavíkurborg
Kom ekki nálægt
ákvörðun um samráð
Olíufélögin/4
Samráð/10-11ARIEL Sharon, forsætisráðherra Ísraels,
sagði á blaðamannafundi í gær, að loknum
fundi hans og George W. Bush Bandaríkja-
forseta, að byggingu öryggisgirðingar, sem
Ísraelsmenn eru að reisa milli svæða Ísr-
aela og Palestínumanna, yrði haldið áfram.
Bush hvatti Sharon ekki til að stöðva bygg-
ingu girðingarinnar en sagði að Ísr-
aelsstjórn yrði að hugleiða afleiðingar
hennar á friðarferlið í Mið-Austurlöndum.
Palestínumenn gagnrýndu yfirlýsingu
Sharons harðlega í gær og sagði Nabil
Amr, upplýsingamálaráðherra Palestínu-
manna, að girðingin væri mikil fyrirstaða í
framvindu friðar. Hann kvað ummæli Shar-
ons öll hafa verið neikvæð. „Hann gaf ekk-
ert jákvætt til kynna,“ sagði Amr. „Hann
ætlar ekki að stöðva landtöku (gyðinga) og
hann hyggst halda uppbyggingu girðingar-
innar áfram.“
Palestínumenn líta svo á að með girðing-
unni séu Ísraelar að tryggja landamæri
framtíðarríkis en Ísraelsmenn segja hana
eiga að koma í veg fyrir fyrirhugaðar árásir
ófriðarsinna frá Vesturbakkanum.
Sharon hvikar ekki
Öryggis-
girðing
verður reist
Washington, Gazaborg. AFP, AP.
Reuters
George W. Bush og Ariel Sharon í Rósa-
garðinum við Hvíta húsið í gær.
BANDARÍSKIR hermenn handtóku í gærmorg-
un 12 manns í borginni Tikrit í Írak og er talið að
ýmis gögn sem þeir fundu, þ. á m. myndamöppur,
persónuskilríki og skýrslur úr fórum Baath-
flokksins muni gera auðveldara að hafa uppi á
Saddam Hussein, fyrrverandi forseta landsins.
Meðal hinna handteknu í Tikrit var Adnan
Abdullah Abid al-Musslit, sem var lengi einn af
helstu lífvörðum Saddams. Al-Musslit er sagður
hafa verið drukkinn er hann var handtekinn en
hermennirnir komust inn í herbergi hans áður en
honum tókst að grípa vélbyssu sína.
Sjónvarpsstöðin Al-Arabiya í Dubai flutti í gær
segulbandsupptöku sem sögð var vera frá Sadd-
am. Þar þakkar hann Guði fyrir að hafa heiðrað
sig með „píslarvætti“ sona sinna. Röddin á segul-
bandinu í Dubai segir að ungir Írakar og aðrir
arabar muni fylgja í fótspor sonanna Udays,
Qusays og Mustafa, sonar Qusays, „í heilögu
stríði“. Saddam sagði einnig að þeir sem féllu í
fræknum bardaga yrðu píslarvottar á himnum.
Framkvæmdaráð Íraks, sem skipað er 25
fulltrúum, tókst ekki að sameinast um einn for-
seta og ákvað í gær að níu félagar þess myndu
skiptast á um að gegna embættinu. Ráðinu er
m.a. ætlað það hlutverk að skipa menn í ríkis-
stjórn og leggja drög að gerð stjórnarskrár auk
þess sem ráðið á að huga að efnahagsstefnu. Olíu-
vinnsla er þegar hafin á ný í Írak og framleiðslan
komin í rúmlega milljón tunnur á dag.
Lífvörður Saddams handtekinn
Bagdad, Tikrit, Dubai. AP, AFP.
Saddam segir syni sína hafa verið píslarvotta
LÍFVÖRÐURINN Adnan Abdullah Abid al-
Musslit, sem handtekinn var í gær, sést hér með
Saddam. Hann er frændi leiðtogans fyrrver-
andi og er talinn vita mikið um felustaði hans.
AP
Frændur á góðri stund
Ljósmyndir Ragnars Axelssonar
í Toskana á Ítalíu Listir 24