Morgunblaðið - 30.07.2003, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 30.07.2003, Qupperneq 2
FRÉTTIR 2 MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ RUSLPÓSTUR VANDAMÁL Ruslpóstur er orðið mikið vanda- mál í netheimum en áætlað er að daglega séu send út um 13 millj- arðar óumbeðinna tölvuskeyta. Þetta veldur álagi á gagnaflutnings- leiðum og vefþjónum og algengt er að fólk neyðist til að skipta um póst- hólf. Erfitt er að losna af út- sendilistum sem senda út mikið magn af markaðspósti. Bonus Stores í endurskoðun Bonus Stores, dótturfélag Baugs Group í Bandaríkjunum, hefur feng- ið heimild til gjaldþrotameðferðar. Bonus Stores rekur 336 verslanir í Bandaríkjunum en fyrirtækið hefur nýverið ákveðið að selja 214 þeirra og loka dreifingarmiðstöð á vegum félagsins. Í fréttatilkynningu frá fé- laginu segir að til standi að fara í gegnum mikla endurskipulagningu. Ákvað ekki samráð Þórólfur Árnason borgarstjóri segist hafa gert sér grein fyrir því í starfi sínu hjá Olíufélaginu að sam- ráð væri milli félagana en hann hafi talið það eðlilegt vinnuumhverfi. Hann segist þó ekki hafa komið ná- lægt ákvörðunum um samráð og að hann hafi ekki haft fulla yfirsýn yfir málið fyrr en hann kom í viðtal hjá Samkeppnisstofnun í fyrra. Handtökur í Tikrit Bandarískir hermenn gerðu skyndiárás á hús stuðningsmanna Saddams Husseins, fyrrverandi for- seta Íraks, í borginni Tikrit í gær- morgun og handtóku 12 manns. Meðal þeirra var einn mikilvægasti lífvörður Saddams. Segulbands- upptaka með rödd sem sögð var Saddams var flutt í arabískri sjón- varpsstöð í gær. Fagnaði hann þar að synir hans tveir hefðu fallið í orr- ustu og yrðu því píslarvottar. Deilt um kostnað við íhlutun Ráðamenn í Nígeríu vilja að Bandaríkjamenn og fleiri þjóðir taki þátt í kostnaði við að skakka leikinn í Líberíu en áfram var barist í Monr- óvíu, höfuðstað landsins, í gær. Öfl- ugustu samtök uppreisnarmanna, LURD, sem berjast gegn Charles Taylor forseta, lýstu einhliða yfir vopnahléi í gær. Áður hefur verið lýst yfir vopnahléi í landinu síðustu vikur en án árangurs.  VILLIDÝRIÐ BMW 330XI  MEGANE COUPÉ ÍSLANDSMÓT Í MÓTORKROSS ÖFLUG ELANTRA  Í MINNINGU BJÖLLUNNAR  NOTAÐIR OG NÝTILEGIR ÍÐILFAGURT TORFÆRUTRÖLL Ljósmynd/Eiríkur P FLATAHRAUNI 31 • HAFNARFIRÐI SÍMI 555 6025 • www.kia.is K IA ÍSLAND Bílar sem borga sig! Þjónustuaðili fyrir öryggis- og þjófavarnarbúnað frá DIRECTED. VIPER á Íslandi S u ð u r l a n d s b r a u t 2 2 S í m i 5 4 0 1 5 0 0 w w w. l y s i n g . i s LÝSING Alhliða lausn í bílafjármögnun Yf ir l i t Í dag Sigmund 8 Viðhorf 30 Viðskipti 14/15 Minningar 30/35 Erlent 16/17 Bréf 38 Höfuðborgin 18/19 Dagbók 40/41 Akureyri 20/21 Kirkjustarf 41 Suðurnes 22 Íþróttir 42/45 Landið 22/23 Fólk 46/49 Listir 24 Bíó 46/49 Umræðan 25 Ljósvakamiðlar 50 Forystugrein 26 Veður 51 * * * HÉRAÐSDÓMUR Vestfjarða hefur sýknað ökumann jeppa af ákæru fyr- ir manndráp af gáleysi vegna bana- slyss sem varð í Skutulsfirði síðast- liðið haust þegar þrír farþegar jeppans létust í bílveltu. Áfrýjunar- réttur er í höndum ríkissaksóknara, en ekki hefur verið tekin ákvörðun um áfrýjun. Slysið varð á Djúpvegi í Skutuls- firði með þeim hætti að vindhviða kom á tengivagn jeppans og missti ökumaðurinn stjórn á bílnum. Sex manns voru í bílnum og slösuðust fimm þeirra. Kona og tvær ungar dætur hennar létust í kjölfarið af áverkum sem þær hlutu í slysinu. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa ekið bílnum án nægjanlegrar til- litssemi og varúðar og of hratt miðað við aðstæður. Fram kemur í dómi héraðsdóms, að dómkvaddir mats- menn hafi talið að ekki yrði ráðið af ummerkjum og umfangi skemmda á bíl og kerru að ækinu hafi verið ekið yfir leyfilegum hámarkshraða miðað við bestu aðstæður. Ljóst hafi þó ver- ið að miðað við veðurhæð hafi for- svaranlegur hámarkshraði ækisins verið töluvert lægri en sem nemi leyfilegum hámarkshraða miðað við kjöraðstæður. Ekki áberandi erfið aksturs- skilyrði fyrr en við Bása Hins vegar virðist ekki hafa verið um áberandi erfið akstursskilyrði að ræða fyrr en komið var að vegarkafl- anum við Bása. Því töldu matsmenn- irnir líklegra að sterk og tiltölulega óvænt vindhviða hafi haft þessi ófyr- irsjáanlegu áhrif á ækið. Þá sögðu matsmennirnir að ekkert hefði bent til þess að vanbúnaður eða ófyrirséð bilun í ökutækjunum hefði valdið slysinu að hluta til eða að öllu leyti. Kerran hefði verið nánast ný, tekin í notkun tveimur mánuðum fyr- ir slysið, bifreiðin fjögurra ára gömul og frekar lítið ekin. Þá töldu mats- mennirnir vegstæði og frágang vegar ekki aðfinnsluverð. Þótt tiltölulega bratt sé beggja megin niður af veg- inum á þeim vegarkafla þar sem bif- reiðin og kerran ultu væri ekki að sjá að hann væri áberandi varhugaverð- ur og ekki væri þörf á vegriði þarna umfram aðra svipaða staði á þjóðveg- um landsins. Hins vegar þyrfti að sýna meiri aðgát á þessum stað en öðrum við þær aðstæður sem ríktu umræddan dag, þ.e. vindur tiltölu- lega hvass og með hviðum. Þá töldu matsmenn að það sem hefði átt afgerandi þátt í að valda þeirri röskun í akstri sem raunveru- lega olli slysinu hefði verið það, að kerran stóðst ekki vindálagið og fauk til hliðar. Miðað við árstíma hefðu þó ekki ríkt í þessu tilfelli óvenjulegar eða óeðlilegar veðurfarsaðstæður og aðstæður sem þessar gætu einnig komið upp að sumarlagi í ákveðnum tilfellum. Héraðsdómur komst að þeirri nið- urstöðu, að ekki væri hægt að virða ákærða það til gáleysis í skilningi ákvæða umferðarlaga og almennra hegningarlaga að hafa ekki gert sér grein fyrir því er hann ók út með Skutulsfirði í þægilegum meðvindi að hann mætti vænta skyndilegrar vind- hviðu þvert á veginn, svo hvassrar að hún dygði til að hliðra kerrunni til. Var hann því sýknaður af ákærunni. Erlingur Sigtryggsson dómstjóri dæmdi málið. Verjandi ákærða var Guðmundur Ágústsson hdl. Málið sótti Sigríður Björk Guðjónsdóttir sýslumaður. Sterk og tiltölulega óvænt vindhviða Sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi REYKJAVÍK er níunda dýrasta borg í heimi samkvæmt nýjum sam- anburði tímaritsins The Economist. Birtir blaðið rannsókn af þessu tagi tvisvar á ári. Efst tróna japönsku borgirnar Tókýó og Osaka, líkt og þær hafa gert undanfarin 12 ár. Hins vegar skjótast margar Evr- ópuborgir hærra á listann í kjölfar upptöku og styrkingar evrunnar, sem og hækkandi verðlags af henn- ar sökum. Sömuleiðis vegur lágt gengi dollarans þar þungt, og er New York til dæmis í 13. sæti, fjór- um sætum ódýrari en Reykjavík. Norrænar borgir ofarlega Dýrasta borg Norðurlanda er Ósló, í þriðja sæti listans. Kaup- mannahöfn er í sjötta sæti og Stokkhólmur í því sextánda. Að sögn sænska blaðsins Hallandpost- en er þar mest auknum styrk sænsku krónunnar um að kenna að Stokkhólmur hefur þotið úr 44. sæti á síðasta ári. Kaupmannahöfn telst dýrasta borgin innan Evrópusam- bandsins með þessu móti og skýtur þar með Lundúnum ref fyrir rass sem lengi hefur notið þess vafasama heiðurs, en er nú í 10. sæti. Sömu- leiðis er París nú dýrari en London, í sjöunda sæti. Ódýrasta borg Evr- ópu telst Búkarest í Rúmeníu, í 114. sæti. Ódýrasta borg í heimi er Teheran í Íran. Húsaleigan ekki með Rannsókn The Economist er víð- tæk og flókin og tekur til fjömargra þátta daglegs lífs í borgunum 129 sem rannsakaðar eru. Þær dreifast yfir 86 lönd heimsins. Verð 167 hluta eða þátta er kannað, jafnt snyrtivara og salernispappírs sem og heimilishjálpar og leigubíla- kostnaðar. Hins vegar er húsaleiga ekki tekin með í reikninginn. Fjöl- mörg fyrirtæki og stofnanir nota listann til þess að meta hvar hag- kvæmt sé að staðsetja starfsmenn sína, að sögn tímaritsins. Dýrt að lifa í Evr- ópu með evrunni Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Bláberin orðin þroskuð í júlí Stykkishólmi. Morgunblaðið. HJÓN í jeppa með stórt fellihýsi í eftirdragi sluppu með minni háttar meiðsli á Mývatnsvegi við Neslönd í Mývatnssveit í gær þegar bifreið þeirra valt út af veginum og lenti á þakinu. Í veltunni kastaðist 700 kg fellihýsið á bílinn þar sem hann hafði staðnæmst utan vegar og lagðist of- an á bílinn sem var á hvolfi. Lögreglan á Húsavík var kvödd á vettvang en ekki var þörf á sjúkra- flutningi. Hjónin hugðust leita sér aðhlynningar læknis á eigin spýtur. Jeppinn og fellihýsið eru hvort tveggja mjög illa farin ef ekki ónýt, að sögn lögreglunnar. Óhappið mun hafa orðið nálægt beygju á veginum þar sem ökumaður missti stjórn á jeppanum. Valt með felli- hýsi í eftirdragi ÞESSI hjólreiðakona var vel var- in og óhult fyrir umferðinni á leið sinni yfir Kringlumýrar- brautina enda með hjálm á höfði og hafði auk þess grindverkið til hliðar við sig. Mikilvægt er að hjólreiðamenn hafi nauðsynlegan hlífðarbúnað enda aldrei að vita hvar hætturnar í umferðinni leynast. Morgunblaðið/Kristinn Vel varin í umferðinni FRAMTELJENDUR geta skoðað framtal sitt á Netinu í dag kl. 16.01. Þetta er í fyrsta skipti sem hægt er að skoða framtal rafrænt eftir að álagn- ingu er lokið. Þeir sem skoða vilja álagninguna þurfa að hafa veflykil sem er sá sami og fylgdi skattframtal- inu þegar því var dreift. Að sögn Indriða H. Þorlákssonar ríkisskattstjóra er í skoðun hjá skattayfirvöldum að senda upplýsing- ar um álagningu einungis rafrænt til þeirra sem vilja. „Við munum rann- saka vel hver viðbrögð verða við möguleikanum um að skoða álagn- inguna rafrænt. Ef það sýnir sig að menn telji þetta fullnægjandi, munum við líklega hætta að senda álagning- arseðil til þeirra sem þess óska,“ sagði Indriði í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann segir kostnað við sendingu seðlanna velta á nokkrum milljónum. „Þetta eru á annað hundrað þúsund umslög, og kostnaður er tugir króna á hvert umslag. Nú þegar spörum við töluvert með færri framtölum sem við sendum út,“ útskýrir Indriði, og bæt- ir við að margir hafi lýst yfir ánægju sinni með rafræn skattframtöl. Álagningarskrá gerð opinber Álagningarskrár vegna opinberra gjalda einstaklinga verða lagðar fram á morgun, fimmtudag. Ávísanir til gjaldenda sem eiga inneign hjá skatt- inum vegna oftekins tekjuskatts, barnabóta og vaxtabóta verða póst- lagðar á morgun eða lagðar inn á bankareikninga viðkomandi á föstu- dag. Álagningarseðlarnir ættu því að berast landsmönnum á föstudag. Á álagningarseðlunum kemur fram álagning ársins og upplýsingar um skattaskuldir, eða endurgreiðslur ef um þær er að ræða. Flestir sem skilað hafa framtali sínu rafrænt geta í dag kl. 16.01 nálg- ast álagningarseðil sinn með því að slá inn kennitölu og veflykil sem notaður var við framtalsgerðina. Upplýsing- arnar er að finna á www.rsk.is. Auk þess verður hægt að nálgast (staðfest) afrit af framtali 2003 með breytingum sem kunna að hafa verið gerðar í meðförum skattstjóra. Skrárnar munu liggja frammi til sýnis á skattstofu hvers skattum- dæmis og hjá umboðsmanni skatt- stjóra eða þjónustuaðila hans í hverju sveitarfélagi dagana 31. júlí til 14. ágúst að báðum dögum meðtöldum. Kærur vegna allra álagðra opin- berra gjalda, vaxtabóta og barnabóta, sem gjaldendum verður tilkynnt um með skattseðli 2003, þurfa að hafa borist skattstjóra eigi síðar en mánu- daginn 1. september 2003. Samtals hafa borist 179 þúsund raf- ræn skattframtöl, en það þýðir að u.þ.b. 80% af öllum framteljendum telja fram á Netinu. Í fyrra voru raf- ræn framtöl um 160 þúsund og 132 þúsund árið 2001. Álagningarseðlar verða póstlagðir á morgun Hægt að skoða eigin álagningu á Netinu BERJAÁHUGAMENN í Stykkis- hólmi fóru um helgina að athuga ástand berja. Sú sjón sem blasti við þeim var óvenjuleg og ótrúleg mið- að við árstíma. Kom í ljós að berjaspretta er mik- il að þessu sinni og að bláberin eru orðin það þroskuð og safarík að hægt er að fara að tína þau, þrátt fyrir að enn er júlímánuður. Að- albláberin er ekki síður orðin þroskuð. Góð berjalönd eru í kring- um Stykkishólm eins og Bjarni Lár- usson þekkir vel. ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.