Morgunblaðið - 30.07.2003, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Traustur banki
Taktu þátt í Sumarnetleiknum okkar og þú
gætir unnið glæsilegan vinning. Þú þarft
aðeins að fara inná www.bi.is og skrá þig í
þann netklúbb sem höfðar til þín.
Dregið verður 1. júlí, 1. ágúst og 1. september.
Þú gætir dottið í lukkupottinn!
Sumarnetleikur
Búnaðarbankans
Viðskiptavinir!
VILHJÁLMUR Þ. Vilhjálmsson,
oddviti Sjálfstæðisflokksins í borg-
arstjórn Reykjavíkur, segir í sam-
tali við Morgunblaðið að Þórólfur
Árnason, borgar-
stjóri tali gegn
betri vitund þeg-
ar hann segist
ekki hafa vitað af
meintu ólöglegu
samráði olíufé-
laganna við út-
boð til Reykja-
víkurborgar árið
1996.
Borgarráðs-
fulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins beindu fyrirspurn
til Þórólfs sem hann svaraði skrif-
lega á borgarráðsfundi í gær.
Spurt var hvort olíufélögin hafi
haft með sér samráð um útboðið og
hvort Þórólfur hafi tekið þátt í því.
Hann var þá markaðsstjóri Olíufé-
lagsins. Borgarstjóri neitaði því.
„Ekki að segja satt
og rétt frá“
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson legg-
ur ekki trúnað í orð borgarstjór-
ans. „Svar borgarstjóra er ekki
trúverðugt. Ég tel að hann tali
gegn betri vitund. Allt sem komið
hefur fram í frumskýrslu Sam-
keppnisstofnunar rennir stoðum
undir það að olíufélögin hafi haft
með sér samráð í útboði á vegum
Reykjavíkurborgar og að Þórólfur
Árnason, þáverandi markaðsstjóri
ESSO, hafi verið einn af aðalfor-
ystumönnum olíufélaganna í
meintu ólögmætu samráði þeirra.
Fyrir liggur tölvupóstur, undirrit-
aður af Þórólfi Árnasyni, sem var
birtur í Morgunblaðinu 19. júlí á
blaðsíðu 10 og 11. Þessi tölvupóst-
ur er dagsettur í lok júní 1996 og
annar 11. júlí 1996, skömmu áður
en olíufélögin gengu frá tilboði sínu
í innkaup borgarinnar á eldsneyti
fyrir Vélamiðstöð Reykjavíkur-
borgar, SVR og Malbikunarstöðv-
arinnar en tilboðin, sem opnuð
voru í september, voru nánast sam-
hljóða. Í tölvupóstinum er lagt á
ráðin um hvernig olíufélögin muni
bjóða vegna ýmissa útboða. Því
miður bendir því allt til þess að
borgarstjóri sé ekki að segja satt
og rétt frá,“ sagði Vilhjálmur í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Svörin ótæk
Tölvuskeytin sem Vilhjálmur
vísar í eru annars vegar frá Þórólfi
Árnasyni til forstjóra ESSO, Geirs
Magnússonar, og hins vegar tölvu-
póstur Þórólfs innan ESSO. Í fyrra
skeytinu segir: „Eftir þreifingar
Skeljungsmanna um sameiginlega
stefnu í útboðsmálum bað ég um
tillögu frá þeim, sem forstjórar
geta rætt. Friðrik Stefánsson hjá
Skeljungi er ekki tilbúinn með til-
lögu, hann ræddi við Kristin
Björnsson sem vill að forstjórar
hittist fyrst til að ræða hvort
grundvöllur sé. Getur þú fundað
með forstjórunum nk. þriðjudag?
Mér skilst að bæði Einar og Krist-
inn geti þá.“ Seinna skeytið hljóðar
svo: „Tvær leiðir: Stinga djúpt og
ná viðskiptunum, eiga þá á hættu
að missa framlegð niður ef verð
fréttist. Hin leiðin að skoða dæmið
í samhengi. Ákveða þarf á næsta
fundi verðpólitík miðað við þessar
tvær leiðir og eiga báðar í vasanum
fram á síðustu stundu.“
Vilhjálmur telur að hvert manns-
barn geti séð að borgarstjóri hafi
verið á fullu við að skipuleggja
samráð. Samt sem áður neiti hann
því algjörlega. Svör hans séu ótæk,
Þórólfur hafi verið markaðsstjóri
félagsins og fráleitt að halda því
fram að hann hafi ekkert vitað.
„Það gefst aldrei vel þegar stjórn-
málamenn segja ekki rétt og satt
frá hlutunum,“ sagði Vilhjálmur.
Í höndum meirihlutans
Vilhjálmur var spurður að því
hvort hann teldi að Þórólfur ætti
að segja af sér sem borgarstjóri.
„Ef ég sem borgarstjóri hefði lent í
svona væri ég búinn að segja af
mér. Ég hefði ekki boðið félögum
mínum upp á svona darraðardans,“
sagði Vilhjálmur. „Ég spyr þig og
ég spyr borgarbúa: Hvað á borg-
arstjóri að gera? Ég tel að hann
hafi verið einn af aðalmönnunum í
þessu samráði og byggi þessa af-
stöðu mína á hans eigin gögnum og
hans eigin tölvupósti. Það eru mjög
sterkar líkur á að hann sé ekki að
segja okkur satt. Þórólfur verður
væntanlega að gera það upp við
samvisku sína hvað hann gerir. Og
ekki síður þeir borgarfulltrúar sem
stóðu að ráðningu hans,“ sagði
hann. Vilhjálmur minnti jafnframt
á að sjálfstæðismenn væru í minni-
hluta í borgarstjórn og blaðamenn
hlytu að leita eftir viðbrögðum for-
ystumanna meirihlutans.
Í svari Þórólfs Árnasonar kemur
fram að hann hafi ekki borið
ábyrgð á verðákvörðunum Olíufé-
lagsins. Vilhjálmur telur að það
skipti ekki máli. Það sé greinilegt
að Þórólfur hafi vitað af samráðinu
enda hafi hann beinlínis rætt um
það í tölvupósti.
Frekari skýringar
skipta ekki máli
Umrædd skýrsla er frumathug-
unarskýrsla og eiga olíufélögin eft-
ir að koma andmælum til stofn-
unarinnar. Jafnframt er Þórólfur
að vinna að greinargerð um störf
sín hjá Olíufélaginu og aðkomu
hans að málefnum félaganna.
Spurður að því hvort það væri
hugsanlegt að frekari útskýringar
borgarstjóra gætu breytt áliti hans
sagði Vilhjálmur: „Nei. Það liggur
fyrir að hann var einn af aðalmönn-
unum í þessu verðsamráði. Það
liggja fyrir tölvuskeyti sem hann
sjálfur skrifaði og sýna hug hans
sjálfs.“ Vilhjálmur ítrekaði að í
málinu lægju fyrir gögn frá Þórólfi
þar sem hann ræði beinlínis um
verðsamráð. „Svo segir hann núna
við okkur að hann hafi hreinlega
ekki áttað sig á því að það væri
verðsamráð í gangi. Samt er hann
sjálfur að tala um að mynda verð-
pólitík í einu tölvuskeytinu sem
liggur fyrir,“ sagði Vilhjálmur.
Vilhjálmur lagði áherslu á að
ekki væri hægt að líta svo á að
Sjálfstæðisflokkurinn væri að
sækja að Þórólfi að ósekju, að með
þessu væri verið að koma höggi á
pólitískan andstæðing. „Hann er
borgarstjóri, æðsti embættismaður
borgarinnar. Og um það snýst mál-
ið. Ef hann væri það ekki værum
við ekki að velta þessu fyrir okk-
ur,“ sagði hann.
Segir borgarstjóra tala
gegn betri vitund
LÖGMENN Olís og Skeljungs, þeir
Gestur Jónasson hrl. og Gísli Baldur
Garðarsson hrl., hafa sent frá sér
sameiginlega fréttatilkynningu
vegna umfjöllunar um rannsókn
Samkeppnisstofnunar á meintu
samráði olíufélaganna og birtist hún
hér í heild en fyrirsagnir eru Morg-
unblaðsins.
Andmæla þegar heildarskýrsla
liggur fyrir
„Vegna opinberrar umræðu um
rannsókn Samkeppnisstofnunar á
starfsemi íslensku olíufélaganna ár-
in 1993 til 2001 vilja lögmenn Olís og
Skeljungs koma eftirgreindu á
framfæri.
Hinn 8. janúar 2003 sendi Sam-
keppnisstofnun forsvarsmönnum
félaganna drög að fyrri hluta frum-
athugunar á málinu og bauð félög-
unum að leggja fram athugasemdir
við það sem þar kom fram. Jafn-
framt lýsti stofnunin því að þessi
hluti frumathugunarinnar verður á
síðari stigum hluti af heildarskýrslu
um starfsemi olíufélaganna, sem fé-
lögin eiga að lögum rétt til þess að
gera athugasemdir við. Að athug-
uðu máli varð það niðurstaða Olís og
Skeljungs að nýta rétt sinn til and-
mæla að fenginni heildarskýrslu um
málið. Olíufélagið sendi inn stuttar
athugasemdir en hefur áskilið sér
rétt til andmæla og athugasemda
þegar skýrslan liggur fyrir í endan-
legri mynd.
Forsvarsmenn félaganna hafa
unnið með Samkeppnisstofnun að
rannsókn málsins og gefið upplýs-
ingar til stofnunarinnar eftir því
sem eftir hefur verið leitað. Þetta
hefur verið gert í góðri trú um að
það væri öllum í hag að ljúka rann-
sókninni sem fyrst þannig að enginn
vafi verði um að starfsemi fé-
lagannna verði framvegis í sam-
ræmi við ákvæði samkeppnislaga og
því breytt í starfsemi félaganna sem
að áliti Samkeppnisstofnunar kann
að fara í bága við reglur samkeppn-
islaga. Með þetta að leiðarljósi leit-
uðu félögin sameiginlega eftir við-
ræðum við stofnunina í febrúar sl.
þar sem óskað var viðræðna um að
ljúka málinu með sátt. Viðræðurnar
leiddu ekki til niðurstöðu vegna
þess að hugmyndir aðila um hæfi-
legar sektir vegna ætlaðra brota á
samkeppnislögum voru mismun-
andi.
Umræða eingöngu byggð á
skýrsludrögum
Nú hefur það gerst að drögin að
fyrri hluta skýrslu Samkeppnis-
stofnunar hafa lekið til fjölmiðla.
Engar skýringar hafa fengist á því
hvernig þetta gat gerst, en ljóst er
að alvarlegt trúnaðarbrot hefur átt
sér stað þegar skýrslunni var lekið.
Ekkert hefur heyrst frá Samkeppn-
isstofnun um að reynt hafi verið að
kanna með hverjum hætti þessi
trúnaðarbrestur átti sér stað. Af-
leiðing lekans er m.a. sú að forsvars-
menn félaganna og félögin sjálf hafa
orðið að þola umræðu á grundvelli
skýrsludraga, sem þau hafa veru-
legar athugasemdir við, án þess að
geta borið hönd fyrir höfuð sér.
Engin leið er fyrir forsvarsmenn fé-
laganna að taka þátt í umræðu um
efnisatriði málsins á opinberum
vettvangi meðan þeir hafa ekki
fengið skýrslu Samkeppnisstofnun-
ar í hendur og hafa ekki átt þess
kost að nýta andmælarétt sinn Þá
hefur það komið fram í fréttum að
forsvarsmenn Samkeppnisstofnun-
ar hafi leitað til lögreglu í júní sl. og
gert henni grein fyrir stöðu málsins
með hugsanlega lögreglurannsókn í
huga. Í því samhengi er það um-
hugsunrefni að forsvarsmenn félag-
anna hafa að ósk Samkeppnisstofn-
unar gefið skýrslur um málsatvik af
fúsum og frjálsum vilja án þess að
hafa réttarstöðu sakaðs manns.“
Olíufélögin ákváðu að
bíða með andmæli sín
Lögmenn segja forsvarsmenn félaganna hafa
gefið skýrslur af fúsum og frjálsum vilja án
þess að hafa réttarstöðu grunaðs manns
Morgunblaðið/Arnaldur
ÞÓRÓLFUR Árnason borgarstjóri lagði á borgarráðsfundi í gær fram skrif-
legt svar sitt við fyrirspurn sjálfstæðismanna um hvort olíufélögin hefðu haft
með sér samráð um útboð Reykjavíkurborgar árið 1996. Í svarinu segist
hann ekki hafa vitað um meint ólögmætt samráð olíufélaganna við útboðið.
Hann kveðst vera að vinna að greinargerð um málið.
Í svari sínu segir borgarstjóri ennfremur að hann hafi
ekki borið ábyrgð á verðákvörðun Olíufélagsins hf. í því
tilboði sem um ræðir og segir síðan: „Forstjóri félagsins
lét mig fá upplýsingar um þær tölur sem fyrirtækið ætti
að bjóða. Gengið var frá tilboðinu með þeim hætti og ég
undirritaði það f.h. félagsins, þar sem ég bar ábyrgð á að
svar bærist við öllum verðfyrirspurnum. Tilboðsupphæðin
var, miðað við magn viðskiptanna, í góðu samræmi við þau
kjör sem Olíufélagið hf. bauð almennt í sambærilegum
viðskiptum á þeim tíma,“ segir einnig í svari borgarstjóra.
Spurningar borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins voru
þessar: Höfðu olíufélögin með sér samráð við gerð þessara tilboða? Ef svo er,
tók Þórólfur Árnason, núverandi borgarstjóri og þáverandi markaðsstjóri
Olíufélagsins, þátt í því?“ Svar borgarstjóra var eftirfarandi: „Ef marka má
meginniðurstöðu Samkeppnisstofnunar í frumathugun hennar virðast olíufé-
lögin hafa haft með sér samráð í umræddu útboði. Það vissi ég ekki þá. Ég
kom ekki að samráði í aðdraganda þessa útboðs,“ segir í bréfinu.
Borgarstjóri lagði einnig fram bréf sem hann sendi Samkeppnisstofnun sl.
mánudag þar sem hann kveðst ætla að ræða málefni olíufélaganna op-
inberlega. Segist hann hafa virt trúnað við Samkeppnistofnun en teldi nú
þörf á að ræða málið og óskar eftir því að stofnunin sýni þessari ákvörðun
skilning.
Borgarstjóri svarar borgarráðsfulltrúum Sjálfstæðisflokks um meint samráð olíufélaganna
Vissi ekki af sam-
ráði við tilboð
Þórólfur
Árnason
Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson
MORGUNBLAÐINU hefur
borist eftirfarandi yfirlýsing
frá Geir Magnússyni, fyrrv.
forstjóra Olíufélagsins hf.
ESSO:
„Vegna umræðu um tengsl
Þórólfs Árnasonar borgar-
stjóra við málefni olíufélag-
anna undanfarið vil ég taka
fram að Þórólfur hafði ekki
ákvörðunarvald né ábyrgð á
verðlagningu á bensíni og olíu
og viðskiptakjörum til stórnot-
enda í starfi sínu hjá Olíufélag-
inu hf.“
Yfirlýsing frá Geir
Magnússyni