Morgunblaðið - 30.07.2003, Side 6
FRÉTTIR
6 MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
www.icelandair.is
New York
www.icelandair.is/newyork
Rölta um listamannahverfið Williamsburg
í Brooklyn, kíkja á galleríin og markaðina
þar sem fólk selur hlutina á góðu verði.
Í New York þarftu að:
á mann í tvíbýli í 3 nætur. Innifalið: flug, gisting á
Cosmopolitan Hotel Tribeca, flugvallarskattar og
þjónustugjöld.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
21
70
5
0
7/
20
03
Soho
Greenwich
Village
Lover
West
Side
Chelsea
Little
ItalyCosmopolitan
Hotel Tribeca
w
ay
Br
oa
dw
ay
Br
oa
dw
ay
WillamsburgBridge
East Houston Street
West Houston Street
Delany St,
Broome St.
East 14th Street
West 14th Street
East 23rd Street
34rd Street
Fi
fth
A
ve
nu
e
Av
en
ue
o
f t
he
A
m
er
ica
ns
M
ad
iso
n
A
ve
.
Madison
Square Park
VR orlofsávísun
Munið ferða-
ávísunina
Verð frá 63.440 kr.
VEGAGERÐIN ráðgerir að verja
samtals um 3,9 milljörðum króna í
nýframkvæmdir við stofnbrautir og
mislæg gatnamót á höfuðborgar-
svæðinu á þessu ári og því næsta.
Um 300 milljónir af um milljarði
króna sem ríkisstjórnin ákvað í febr-
úar sl. að setja í flýtiframkvæmdir
vegna vegaframkvæmda á höfuð-
borgarsvæðinu nýtast á þessu ári,
hinar 700 milljónirnar verða notaðar
á næsta ári.
Jónas Snæbjörnsson, umdæmis-
stjóri Vegagerðarinnar í Reykjanes-
umdæmi, segir þetta ekki að fullu í
samræmi við þau áform sem í fyrstu
var lagt upp með en þá var ráðgert
að verja bróðurparti af fénu til flýti-
framkvæmda á þessu ári. Vegna
þess hve hönnun mannvirkja hefur
dregist á langinn hefur hins vegar
ekki getað orðið af því.
Framkvæmdum við gerð mis-
lægra gatnamóta við Stekkjarbakka,
Reykjanesbraut og Smiðjuveg miðar
vel og er ætlunin að hleypa umferð
um mannvirkið 1. nóvember nk.
Áætlaður kostnaður er um 800 m.kr.
Ráðgert er að tvöfalda Reykjanes-
braut frá Fífuhvammsvegi í Kópa-
vogi að Álftanesvegi í Garðabæ. Að
sögn Jónasar er áætlað að bjóða
verkið út í október eða nóvember en
framkvæmdir hefjast eftir áramót.
Kostnaður við 1. áfanga er áætlaður
6–700 milljónir og verklok verða á
árinu 2005. Til viðbótar er fyrirhugað
að reisa þrjú mislæg gatnamót á um-
ræddum kafla og því verði að fullu
lokið á árabilinu 2008–10.
Vinna er hafin við breikkun
Reykjanesbrautar frá Lækjargötu
og færslu hennar suður fyrir kirkju-
garðinn í Hafnarfirði og þar með
gerð nýrra mislægra gatnamóta við
Kaldárselsveg. Vegarkaflinn sem um
ræðir er 1,6 km og tengist núverandi
Reykjanesbraut vestan kirkjugarðs-
ins. Ráðgert er að taka veginn í notk-
un fyrrihluta næsta sumars. Kostn-
aður við fyrsta áfanga er áætlaður
um einn milljarður króna. Í beinu
framhaldi er stefnt að breikkun
Reykjanesbrautar á kaflanum milli
Kaplakrika og Lækjargötu og er
kostnaður við það áætlaður u.þ.b. 200
m.kr.
Vinna við mislæg gatnamót við
Kringluna hefjist 2004?
Til viðbótar þessum verkefnum
liggur fyrir bráðabirgðaskýrsla Vega-
gerðarinnar og borgarverkfræðings
þar sem m.a. er að finna yfirlit yfir til-
lögur um mislæg gatnamót Kringlu-
mýrarbrautar og Miklubrautar. Lögð
er áhersla í skýslunni á gerð mis-
lægra gatnamóta á þremur hæðum
sem áætlað er að kosti um um 2,7
milljarða í byggingu. Að sögn Jónasar
verður væntanlega tekin ákvörðun á
næstu mánuðum um það hvort sú
lausn verður fyrir valinu eða tveggja
hæða lausn með umferðarljósum.
Vonir standa til þess að hægt verði að
hefjast handa við verkið upp úr miðju
næsta ári og að því ljúki um mitt ár
2005.
Þá er gert ráð fyrir að bjóða út
færslu Hringbrautar suður fyrir Um-
ferðarmiðstöðina og Læknagarð í
nóvember eða desember og að meg-
inþungi framkvæmda verði á næsta
ári. Stefnt er að því að umferð verði
hleypt á veginn haustið 2004 og ráð-
gert að framkvæmdirnar kosti alls
um 1.240 milljónir króna.
Síðla hausts verða hafnar fram-
kvæmdir við Arnarnesveg fyrir um
200 m. kr. sem tengir saman Salarveg
og Fífuhvammsveg.
Breikkun vegarins frá Víkurvegi til
Mosfellsbæjar kemur til fram-
kvæmda á næsta ári. Kostnaður er
áætlaður 800 m. kr og stefnt að því að
ljúka verkinu á næsta ári. Þá eru
ótaldar framkvæmdir við Hallsveg
sem boðnar verða út í haust. Einnig
má nefna að Vegagerðin leggur til um
30 milljónir króna við framkvæmd við
göngubrú yfir gjána í Kópavogi. Til
viðbótar fara um 20 m. kr. í færslu ak-
brautar á Hafnarfjarðavegi í átt að
Reykjavík svo unnt sé að koma að að-
rein þegar ekið er af Digranesvegi og
niður í gjána. Stefnt er að því að fram-
kvæmdum ljúki samhliða fram-
kvæmdum við Hamraborg. Ef litið er
lengra fram í tímann er breikkun
Breiðholtsbrautar/Nesbrautar milli
Suðurlandsvegar og Vesturlandsveg-
ar ráðgerð í fyrsta lagi árið 2007.
Kostnaður er áætlaður um 400 m.kr.
Um 3,9 milljörðum varið í vegaframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu 2003–4
Tafir á hönnun dregið
úr framkvæmdarhraða
Ljósmynd/Guðmundur Viðarsson
Séð yfir framkvæmdasvæðið við gjána í Kópavogi.
53.488 ein-
tök á dag
MEÐALTALSSALA Morgun-
blaðsins á fyrri helmingi þessa árs
var 53.488 eintök á dag. Á sama
tíma í fyrra var meðaltalssalan
53.916 eintök á dag. Upplýsing-
arnar eru staðfestar með skoðun
bókhaldsgagna Morgunblaðsins.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá
upplagseftirliti Verslunarráðs Ís-
lands en Morgunblaðið og Frétta-
blaðið taka nú þátt í upplags-
eftirliti dagblaða. Annars vegar er
um að ræða seld eintök Morgun-
blaðsins og hins vegar upplýsingar
um prentun og dreifingu Frétta-
blaðsins.
Þegar gögn Fréttablaðsins voru
skoðuð var staðfest að prentuð
blöð á fyrri helmingi ársins voru að
meðaltali 90.586 á dag.
„Fréttablaðinu er ýmist dreift
með útburði í hús með bréfberum
eða með því að blöðin eru
lögð fram til dreifingar í versl-
unum og fyrirtækjum. Frá 27.
mars bættist Reykjanessvæðið
við varðandi dreifingu með bréf-
berum og því eru upplýsingar um
dreifingu með bréfberum
sett fram fyrir tvö tímabil hér að
neðan. Samkvæmt upplýsingum
frá blaðinu var dreifingin eftirfar-
andi: Dreifð blöð með bréfberum á
Stór-Reykjavíkursvæðinu, og á
Akureyri 1. jan til 26. mars 76.167.
Dreifð blöð með bréfberum á Stór-
Reykjavíkursvæðinu, Reykjanesi
og Akureyri 27. mars til 30. júní
82.455. Blöð lögð fram til dreif-
ingar á Stór-Reykjavíkursvæðinu,
á Akureyri og á landsbyggðinni
voru að meðaltali á tímabili 11.189
hvern dag,“ segir í tilkynningu frá
Verslunarráði Íslands.
„Upplagseftirlit Verslunarráðs-
ins annast einnig eftirlit og stað-
festingu upplags prentmiðla fyrir
útgefendur, sem óska eftir því og
gangast undir eftirlitsskilmála.
Trúnaðarmaður eftirlitsins er
Reynir Vignir, löggiltur endur-
skoðandi hjá Pricewaterhouse-
Coopers, og umsjónarmaður er
Sigríður Ásthildur Andersen, lög-
fræðingur VÍ.“
Meðaltalssala
Morgunblaðsins
KOSTNAÐUR Vegagerðar-
innar vegna framkvæmda við
Reykjanesbraut á höfuðborg-
arsvæðinu á þessu ári er áætl-
aður 1.350 m. kr. Þar af fara
um 900 m. kr. í framkvæmdir
Hafnarfjarðarmegin og 450 m.
kr. milli Kópavogs og Garða-
bæjar. Í tengslum við fram-
kvæmdirnar eru 300 milljónir
kr. teknar af svokölluðu flýtifé
frá ríkissjóði.
Þá er ótalinn 545 m.kr.
kostnaður á árinu vegna fram-
kvæmda við gatnamót við
Stekkjarbakka sem tengjast
m.a. framkvæmdum við
Reykjanesbraut.
Gatnaframkvæmdir fyrir
2,2 milljarða á næsta ári
Samkvæmt vegaáætlun er
áætlað að framkvæmdir Vega-
gerðarinnar á höfuðborgar-
svæðinu kosti um 2,2, millj-
arða á þessu ári. Ljóst er, að
sögn Jónasar Snæbjörnssonar,
umdæmisstjóra hjá Vegagerð-
inni, að um 1,5–2 milljarðar af
fénu muni nýtast á þessu ári.
Á vegaáætlun 2004 er gert ráð
fyrir 1.700 milljónum til vega-
framkvæmda og er þá flýtifé
úr ríkissjóði, 700 m. kr., með-
talið. Ráðgert er að verja því
fjármagni, auk um 500 millj-
óna sem færast á milli ára, til
vegaframkvæmda á næsta ári.
Þar af verður um 300 m. kr. af
flýtifé ríkissjóðs varið til fram-
kvæmda við færslu Hring-
brautar sem kemur að fullu til
framkvæmda á næsta ári.
Heildarkostnaður við verkið
er áætlaður um 1.240 m. kr.
Hvert fara
peningarnir?
Morgunblaðið/Jim Smart
Strætisvagn og
vörubifreið rákust á
skemmdir á ökutækjunum og
varð að fjarlægja vörubifreiðina
og tengivagn með kranabifreið.
Miklar umferðartafir urðu á og
við Miklubrautina vegna óhapps-
ins.
HARÐUR árekstur tveggja bif-
reiða, strætisvagns og vöru-
bifreiðar, varð á Miklubraut í
Reykjavík, neðan við Grensásveg,
rétt fyrir hádegið í gær. Ekki
urðu meiðsli á fólki en töluverðar
Fjórar vikur frá dómi í
málverkafölsunarmálinu
Dómnum
verður
áfrýjað
JÓNAS Freydal Þorsteinsson mun
áfrýja dómnum sem hann hlaut í
málverkafölsunarmálinu til Hæsta-
réttar. Þetta staðfesti verjandi hans,
Karl Georg Sigurbjörnsson hrl., í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Ekki er enn ljóst hvort Pétur Þór
Gunnarsson muni áfrýja dómnum
fyrir sitt leyti en áfrýjunarfrestur
hans rennur út í dag.
Jónas Freydal var dæmdur í fjög-
urra mánaða skilorðsbundið fangelsi
og til að greiða 1/8 af málsvarnar-
launum og málskostnaði en héraðs-
dómur komst að þeirri niðurstöðu að
hann hafi vitað að tvö málverk sem
hann seldi væru fölsuð. Dómurinn
var kveðinn upp 2. júlí sl. en Karl
Georg segir að hann hafi ekki verið
birtur Jónasi Freydal fyrr en í gær,
en hann er búsettur í Kanada. Áfrýj-
unarfrestur miðist við birtingu dóms
og hann hafi því með réttu fjórar vik-
ur til að ákveða sig.
Áfrýjunarfrestur ríkissaksóknara
er átta vikur.
Ákært var vegna fölsunar á 102
myndum. Héraðsdómur taldi sannað
að rúmlega 42 væru falsaðar en þrátt
fyrir líkur á fölsunum í öðrum til-
vikum taldist það ekki nægjanlega
sannað í sakamáli.
LÖGREGLAN í Reykjavík fékk
um helgina tilkynningu um að öku-
maður jeppabifreiðar hefði slegið
ökumann bifreiðar sem hann tók
fram úr í hálsinn. Atvikið átti sér
stað á Suðurlandsvegi við Rauð-
hóla um miðjan laugardaginn.
Ökumaður jeppabifreiðarinnar
mun hafa reiðst hinum ökumann-
inum fyrir að auka hraðann þegar
hann ætlaði fram úr. Hann stöðv-
aði bifreið sína þegar hann hafði
tekið fram úr og sló ökumanninn
og ók að því búnu á brott. Að sögn
lögreglu íhugar ökumaðurinn að
kæra verknaðinn.
Sló til bílstjórans