Morgunblaðið - 30.07.2003, Síða 8

Morgunblaðið - 30.07.2003, Síða 8
FRÉTTIR 8 MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Segðu herra Bush að okkur væri það mjög óljúft að þurfa að beita hervaldi. Rúmlega sextíu golfvellir á landinu Um 30.000 Íslendingar stunda golf UM síðustu helgilauk Íslandsmóti íhöggleik og í gær hófst Íslandsmót unglinga í höggleik hjá Golfklúbbi Reykjavíkur. Það er mikil gróska í golfíþróttinni hér á landi. Júlíus Rafnsson er forseti Golfsambands Ís- lands. Það er mikið um að vera í golfinu þessa dagana? „Já. Hér á árum áður var Íslandsmótið í golfi flokkaskipt þar sem keppt var í öllum forgjafarflokk- um á sama vellinum, en í dag eru einungis þeir bestu sem keppa á Íslands- mótinu en önnur mót s.s. Íslandsmót 35 ára og eldri eru höfð á öðrum tíma. Golfsamband Íslands stendur fyrir tveimur mótaröðum, Toyotamótaröðinni, sem er móta- röð bestu kylfinga landsins og það eru alls sex mót, og síðan er það Vaxtalínumótaröð unglinga. Þá stendur sambandið einnig fyrir Ís- landsmótum í öðrum aldursflokk- um auk þess sem haldnar eru sveitakeppnir. Í gær hófst svo Ís- landsmót í höggleik fyrir unglinga hjá Golfklúbbi Reykjavíkur á Korpúlfsstaðavelli. Mótið stendur í þrjá daga og tæplega 200 ung- lingar taka þátt í því á aldrinum 12–18 ára.“ Hvað stunda margir golf á Ís- landi? „Undanfarin ár hefur Gallup gert kannanir á golfþátttöku Ís- lendinga og þar hefur komið fram að tæplega 30.000 Íslendingar fara í golf oftar en fimm sinnum á ári. Félagsmenn í GSÍ eru aftur á móti rúmlega 11.000 talsins og það væri æskilegt að fleiri golfiðkend- ur væru skráðir í golfklúbba landsins.“ Eru nógu margir golfvellir á landinu til að taka á móti öllum þessum golfiðkendum? „Í sjálfu sér eru vellirnir nægi- lega margir þegar á heildina er lit- ið en þeir eru 55 talsins innan vé- banda Golfsambands Íslands og 4–5 vellir eru fyrir utan samtökin svo í allt eru þeir rúmlega 60. Á hinn bóginn er verulegur skortur á golfvöllum á höfuðborg- arsvæðinu og nú er svo komið að allir golfklúbbar á því svæði eru með biðlista og sumir með nokkur hundruð manns sem bíða eftir að fá félagsaðild.“ Hvers vegna þarf fólk að vera í golfklúbbi til að stunda golf? „Í fyrsta lagi þá kostar það minna og gefur viðkomandi golf- klúbbi þá kjölfestu sem þarf. Í öðru lagi þá fá meðlimir leiðbein- ingar og tilsögn í golfreglum þannig að meðlimir hafa þekkingu á golfreglum og golfsiðum en það er afar mikilvægt.“ Eru þessar reglur flóknar? „Þær eru kannski ekki flóknar en þær eru stífar. Það er t.d. ekki gott að stunda golf og vera ekki heima í þessum reglum. Ég get nefnt eina einfalda en afar mikilvæga reglu. Iðkandinn er kominn á völlinn og ætlar að spila með einhverjum. Þá þarf viðkom- andi að vita að maður heldur ekki uppi samræðum þegar einhver er að fara að slá. Þá er þögn. Það er tvennt ólíkt að fylgjast með keppni í golfi og fótbolta. Þegar keppt er í golfi þegja allir meðan slegið er en ef tilefni gefst til þá brjótast fagnaðarlætin út á eftir.“ Er hægt að byrja á öllum aldri að stunda golf? „Já, og það er aldrei of seint að byrja. Við erum með byrjendur sem eru allt frá litlum krökkum upp í fólk sem komið er hátt á átt- ræðisaldur.“ Hvað heldur þú að skýri þennan mikla golfáhuga landans? „Meginskýringin held ég að sé útiveran og síðan líka að þessi íþrótt hentar mjög vel fjölskyldu- fólki.“ Það hefur loðað við golf að það sé rándýrt að stunda það? „Það fer nú allt eftir því við hvað er miðað. Ég tel að þetta sé alls ekki dýrt sport. Það er þó með þetta eins og annað að það er hægt að kaupa rándýrar kylfur og dýr- an búnað. Grunnbúnaður í golf er alls ekki dýr. Þá er ekki dýrt að vera meðlimur í golfklúbbi á Ís- landi og kostar síður en svo meira en að taka þátt í öðrum íþrótta- greinum.“ Hvað gera iðkendur á veturna þegar ekki er hægt að spila golf? „Þá fara margir til útlanda og spila þar. Auk þess eru starfrækt- ir golfhermar hér á nokkrum stöð- um og þar næst svona „hérumbil“ tilfinning. Golfkennarar eru einn- ig að störfum allt árið og bjóða upp á æfingar inni í húsi yfir vetr- armánuðina þar sem sveiflan er æfð og henni haldið við.“ Það er farið að kenna golf í sum- um grunnskólum? „Síðastliðin fjögur ár hefur Golfsamband Íslands unnið að því að koma á kennslu í golfi í grunn- skólum landsins sem er þá hluti af íþróttakennslu í skólunum.Við höfum látið útbúa kennsluefni og kennslutæki til að hægt sé að kenna þetta eins og hverja aðra íþrótta- grein. Þegar er farið að kenna golf víða í skólum landsins en einna erfiðast hefur þó verið að koma þessu að í skólum á Reykja- víkursvæðinu. Golf er valgrein við Íþrótta- kennaraháskólann á Laugarvatni og Golfsamband Íslans hefur gefið þangað kennsluefni og önnur kennslugögn. Nú er svo komið að nánast allir lokaársnemendur þar taka þessa valgrein.“ Júlíus Rafnsson  Júlíus Rafnsson er 56 ára gam- all. Hann er fæddur í Njarðvík en starfar sem framkvæmdastjóri á Grund, dvalar- og hjúkrunar- heimili. Júlíus hefur verið forseti Golfsambands Íslands frá því á haustmánuðum 2001. Eiginkona hans er Guðrún Gísladóttir for- stjóri. Þegar einhver er að fara að slá er þögn ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S H U S 21 65 9 0 7/ 20 03 í Húsasmiðjunni Muna: að mála sig ekki út í hor n! 10 lítrar hágæða akrýlmálning á stein. Framleiðandi HarpaSjöfn. 20-30% AFSLÁTTU R AF ALLRI VIÐARVÖR N Ný stórverslun Smáratorgi. 8.990 kr. 4.990kr.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.