Morgunblaðið - 30.07.2003, Page 14
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
14 MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
F
í
t
o
n
Ingvar
Helgason notaðir bílar
Ingvar Helgason hf. · Sími 525 8000 · Sævarhöfða 2
ih@ih.is · www.ih.is/notadir · opið virka daga kl. 9-18
GÓÐUR
NOTAÐUR BÍLL
NISSAN PATRO
L ELEGANCE
Verð 4.240.000 kr.
Skráður 01/2001, ekinn 65.000 km.
Íslandsflug semur
við Air Hong Kong
ÍSLANDSFLUG hefur gert samning
við Air Hong Kong um fraktflug milli
Hong Kong og Singapúr. Samning-
urinn er sá fyrsti sem Íslandsflug ger-
ir við flugfélag í Asíu. Ekki er vitað
upp á hve háa fjárhæð samningurinn
hljóðar en samið er um að Airbus 300-
600R fraktvél Íslandsflugs hefji flug á
umræddri leið í haust og haldi því
áfram til ársins 2005.
Nýverið breyttist eignarhald í Ís-
landsflugi þegar Blue Sky Transport
SA, sem skráð í Lúxemborg, eignað-
ist tæplega 34% hlut í flugfélaginu.
Blue Sky Transport er í eigu Magn-
úsar Þorsteinssonar, eins af eigend-
um flugfélagsins Atlanta, og Ómars
Benediktssonar framkvæmdastjóra
Íslandsflugs. Ómar átti fyrir hlut í fé-
laginu en Magnús ekki. Aðrir hluthaf-
ar Íslandsflugs eru Gunnar Björg-
vinsson í Lichtenstein, Birkir
Baldvinsson í Lúxemborg og Olíu-
verzlun Íslands. Samtals eiga þessir
fjórir hluthafar um 75% í Íslandsflugi.
Í flugflota Íslandsflugs eru fjórtán
flugvélar. Þar af eru tvær Dornier-
vélar, sem sinna innanlandsflugi, sjö
Boeing-vélar og fimm Airbus-flugvél-
ar. Vegna samningsins við Air Hong
Kong verður ein Airbus-flugvélanna
nýtt í flug milli Singapúr og Hong
Kong fram til ársins 2005.
HAGNAÐUR Íslandsbanka nam
2.404 milljónum króna á fyrri hluta
ársins, sem er 46% meiri hagnaður
er á sama tímabili í fyrra. Hagn-
aðurinn er 12% meiri en greining-
ardeildir hinna bankanna höfðu
spáð, því meðalspá þeirra var 2.141
milljón króna. Arðsemi eigin fjár
hækkaði milli ára úr 17,6% í 27,7%
og hagnaður á hlut hækkaði um
59% í 27 aura á hverja krónu hluta-
fjár.
Hagnaður bankans hefur vaxið
fjóra ársfjórðunga í röð og hagn-
aðurinn á síðasta ársfjórðungi nam
1.342 milljónum króna, sem er tvö-
faldur hagnaður sama tímabils í
fyrra.
„Rekstur bankans gekk vel á
tímabilinu og það eru fyrst og
fremst aukin umsvif og hagstæð
verðþróun á hlutabréfa- og skulda-
bréfamarkaði sem eru ráðandi
þættir í góðri afkomu,“ segir
Bjarni Ármannsson, forstjóri Ís-
landsbanka, spurður að því hvað
hafi einkennt afkomuna á fyrri
hluta ársins.
Bæði vaxtatekjur og vaxtagjöld
drógust saman miðað við fyrstu
sex mánuði fyrra árs. Þar sem
vaxtagjöld minnkuðu meira en
vaxtatekjur jukust hreinar vaxta-
tekjur og voru 4% hærri en á sama
tímabili í fyrra. Vaxtamunur, sem
er hlutfall hreinna vaxtatekna af
meðalstöðu heildarfjármagns, jókst
milli ára úr 2,9% í 3,1%, en lækkaði
um 0,1% frá fyrsta fjórðungi þessa
árs til annars fjórðungs.
Aukin gæði útlánasafns
Aukning annarra rekstrartekna
nam 1.265 milljónum króna milli
ára, eða 63%. Inni í þeirri tölu er
1.100 milljóna króna aukning geng-
ishagnaðar af annarri fjármála-
starfsemi, en gengishagnaður jókst
úr 63 milljónum króna í 1.163 millj-
ónir króna. Hreinar rekstrartekjur,
sem samanstanda af hreinum
vaxtatekjum og öðrum rekstrar-
tekjum, jukust um 1.440 milljónir
króna, eða 21%.
Bæði launakostnaður og annar
almennur rekstrarkostnaður hækk-
uðu um 18% milli ára og á heildina
litið hækkuðu önnur rekstrargjöld
um 15%. Hreinar rekstrartekjur
hækkuðu þó meira, eða um 21%, og
því lækkaði kostnaðarhlutfall bank-
ans úr 53,9% í 51,4%. Á öðrum
fjórðungi þessa árs var hlutfallið
48,4%, sem er talsverð lækkun frá
síðustu fjórðungum.
Þrátt fyrir þessa lækkun hlut-
fallsins á öðrum fjórðungi segir
Bjarni Ármannsson að markmið
bankans um að hlutfallið sé undir
50% hafi ekki enn náðst en rekst-
urinn færist í þá átt. Hann segir að
hlutfallið sé um eða innan við 50%
hjá hagkvæmustu bönkum erlendis
og að stefnt sé að því að Íslands-
banki nái því markmiði á næsta ári.
Framlag í afskriftareikning út-
lána lækkaði lítillega milli ára og
nam 1.114 milljónum króna. Sem
hlutfall af útlánum og veittum
ábyrgðum hefur afskriftareikning-
ur útlána lækkað úr 2,7% í 2,4%
frá miðju ári í fyrra til sama tíma í
ár.
Bjarni Ármannsson segir spurð-
ur að út úr þessum tölum megi lesa
að gæði útlánasafns bankans fari
vaxandi. Þar komi tvennt til, ann-
ars vegar að staða ýmissa við-
skiptamanna bankans hafi farið
batnandi, og hins vegar að ný útlán
bankans séu að meðaltali betri en
þau útlán sem fyrir voru.
Íslandsbanki gerir reksturinn
upp eftir afkomusviðum og voru
þau öll rekin með hagnaði á fyrri
helmingi ársins. Bankinn reiknar
út svokallaðan hagsauka af rekstr-
inum, þar sem gerð er 12,5% arð-
semiskrafa til eigin fjár hans.
Hagsaukinn er jákvæður fyrir öll
afkomusvið bankans nema úti-
búasviðið, sem er með neikvæðan
hagsauka.
Aukin samkeppni
á fjármálamarkaði
Inntur eftir skýringu á þessari
afkomu útibúasviðsins segir Bjarni
Ármannsson að hún sé tvíþætt.
Annars vegar hafi samkeppni á
fjármálamarkaði farið vaxandi og
hins vegar hafi ákveðinn óreglu-
legur kostnaður fallið til á fyrri
helmingi ársins sem dragi afkomu
útibúasviðsins niður.
Aukning heildareigna bankans
nam um 21% á tímabilinu og voru
eignirnar 379 milljarðar króna um
mitt ár. Aukning útlána til við-
skiptavina nam 20 milljörðum
króna, fór í 259 milljarða króna, og
um 60% nýrra útlána voru til er-
lendra viðskiptavina Íslandsbanka.
Skuldabréfaeign bankans jókst um
167% á tímabilinu og fór úr rúmum
9 milljörðum króna í 25 milljarða
króna.
Bankinn tók töluvert af erlend-
um lánum á tímabilinu og jókst
lántaka hans um 52 milljarða króna
í 216 milljarða króna.
Eigið fé dróst saman um 6% frá
áramótum, meðal annars vegna
þess að útistandandi hlutafé var
lækkað úr 9,4 milljörðum króna í
9,0 milljarða króna. Eiginfjárhlut-
fall á CAD-grunni lækkaði úr
12,7% um áramót í 10,8% um mitt
ár, en lögbundið lágmark er 8%.
Eiginfjárþáttur A lækkaði úr
10,0% í 8,5%.
47,7 milljarða markaðsverð
Í fréttatilkynningu Íslandsbanka
vegna uppgjörsins segir að miðað
við forsendur um áframhaldandi
stöðugleika í efnahagslífinu og
aukna innlenda eftirspurn, geri
bankinn sem fyrr ráð fyrir því að
hagnaður þessa árs verði meiri en
á síðasta ári og að arðsemi eigin
fjár aukist milli ára. Hagnaður árs-
ins í fyrra var 3.407 milljónir króna
og arðsemin var 18,2%.
Lokagengi Íslandsbanka í gær
var 5,30 og hækkaði um 2,9% í 410
milljóna króna viðskiptum dagsins.
Miðað við þetta gengi er markaðs-
verð bankans 47,7 milljarðar
króna.
Hagnaður Íslands-
banka eykst um 46%
Kostnaðarhlutfall lækkaði frá fyrra
ári en vaxtamunur fór úr 2,9% í 3,1%
!"
#$"$
!$"
!
% $
&
'
# "$
"
&
( )*+,-
(
./ )
0
() 12 34
$"3"4
3!4
3$" ##
#$"
##
$"
#"!
$5
%!5
$!#
$5!
$3"4
"354
#34
3" $$
!"!#
$%& NÝJUM forstjóra bandarísku versl-
unarkeðjunnar Gap Inc. virðist
vera að takast að hífa reksturinn
upp á við á ný.
Paul Pressler, fyrrum yfirmaður
skemmtigarðadeildar Walt Disney
Co., tók við starfi forstjóra Gap fyr-
ir tíu mánuðum síðan. Pressler var
ráðinn til Gap eftir að Mickey
Drexler, forstjóri Gap til tuttugu
ára, sagði starfi sínu lausu síðast-
liðið haust. Strax eftir yfirmanna-
skiptin hjá Gap fór að síga á ógæfu-
hliðina enda hafði Drexler verið
afar farsæll í starfi, að því er kemur
fram í grein Wall Street Journal
(WSJ).
Gap kynnti nýja tískulínu fyrir-
tækisins sl. mánudag og eru miklar
vonir bundnar við að hún tryggi
Gap auknar tekjur. Ein af þeim
markaðsbrellum sem hinn nýi for-
stjóri Gap hefur gripið til er að ráða
poppdrottninguna Madonnu ásamt
hip hop dívunni Missy Elliot til að
kynna föt fyrirtækisins í sjónvarps-
auglýsingum. Að því er segir í grein
Wall Street Journal er það þó ekki
poppið sem laðar yfirmann Gap að
Madonnu heldur hin móðurlega
ímynd sem henni fylgir þessa dag-
ana. Hún er talin henta vel ímynd
Gap sem síst vill gefa sig út fyrir að
vera fórnarlamb einhvers konar
poppmenningar. Enda ber hinn ein-
staki stíll Madonnu það með sér að
hún er ekki fórnarlamb tísku-
strauma heldur skapar þá sjálf.
Pressler hefur fleiri brellur í
pokarhorninu. Flauel er það sem
koma skal, ef marka má nýju línuna
sem Gap kynnti fyrr í vikunni. Pils,
töskur, jakkar, húfur og fleira frá
Gap verður allt úr flaueli. Til að
draga úr hefðbundnu yfirbragði
flauelsins ætlar Gap að selja flauels-
vörur í öllum regnbogans litum, allt
frá dæmigerðum mosagrænum upp
í skærbleikan. Pressler er með
þessu að feta nokkurn veginn í fót-
spor forvera síns Drexler, en sá var
þekktur fyrir að nota einföld, klass-
ísk efni og gera úr þeim tískuvöru.
Gap verslanirnar eru þó ekki þær
einu sem hyggjast leggja áherslu á
flauel þetta haustið, því samkvæmt
WSJ ætla aðrar fatakeðjur í Banda-
ríkjunum að gera hið sama. Þeirra
á meðal er fatakeðjan J.Crew sem
er með verslanir um öll Bandaríkin.
Forstjórinn þar er enginn annar en
Mickey Drexler fyrrverandi for-
stjóri Gap keðjunnar. Fjármála-
sérfræðingar vestra segja að
Pressler sé að sýna ágætan árangur
með Gap en að sala á hinni flauels-
væddu haustlínu geti gert útslagið
um hvort hann nær að rífa fyrir-
tækið almennilega upp.
Gap tekur við sér
Madonna og
Missy Elliot aug-
lýsa nýja haustlínu
Reuters
Madonna kynnir vörur Gap í sjón-
varpsauglýsingum.
Gengishagnaður
vegur þungt
GENGISHAGNAÐUR Íslands-
banka af annarri fjármála-
starfsemi jókst um 1.100 millj-
ónir króna á fyrri helmingi
þessa árs miðað við sama tíma-
bil í fyrra. Gengishagnaðurinn
nam 63 milljónum króna í
fyrra, en 1.163 milljónum
króna í ár. Þessi aukning staf-
ar aðallega af mikilli aukningu
gengishagnaðar af hlutabréf-
um, en einnig af auknum geng-
ishagnaði af skuldabréfum. Þá
snerist gengistap vegna
gjaldeyrisviðskipta í fyrra yfir
í lítilsháttar hagnað í ár.
Gengishagnaður af annarri
fjármálastarfsemi er almennt
nokkuð sveiflukenndur liður
eins og sjá má í reikningum ís-
lensku bankanna á síðustu ár-
um. Ef litið er framhjá honum
minnkar hagnaður fyrir skatta
sem því nemur. Ef gengis-
hagnaðarins hefði ekki notið
við hjá Íslandsbanka hefði
hagnaður fyrir skatta dregist
saman um 11% milli ára en
ekki aukist um 43% eins og
raun varð á.