Morgunblaðið - 30.07.2003, Side 15
ÚR VERINU
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2003 15
!" # $
%&$$ $
'#$()( ) #$ ' *
$ , () $
- &
$ $ & " $ ,
,). -$ $ // $
0(
1, " 23445677
Á FYRSTU fjórum mánuðum árs-
ins 2003 nam aflaverðmæti ís-
lenskra skipa af öllum miðum 24,7
milljörðum króna en heildaraflinn
var 795 þúsund tonn, samkvæmt
bráðabirgðatölum frá Hagstofunni
sem byggja á vigtar- og ráðstöf-
unarskýrslum sem Fiskistofa safn-
ar frá fiskkaupendum.
Verðmæti þorsks
10,9 milljarðar
Verðmæti botnfiskaflans var
17,5 milljarðar króna sem fengust
fyrir 160 þúsund tonn, þar af var
verðmæti þorsks 10,9 milljarðar
króna en magnið 82 þúsund tonn.
Verðmæti uppsjávartegunda var
4,6 milljarðar króna og magnið 612
þúsund tonn. Af flatfiski var landað
10.500 tonnum að verðmæti 1650
milljónir króna og fyrir 13.000 tonn
af skel- og krabbadýrum fengust
961 milljón króna.
Á Austurlandi var stærstur hluti
aflans unninn eða 310 þúsund tonn,
að mestu uppsjávartegundir, og
námu verðmæti þessa afla 3,6
milljörðum króna. Á Suðurnesjum
var unnið úr mestum verðmætum
eða fyrir 4,8 milljarða króna en
magnið var 109 þúsund tonn. Á
Suðurnesjum var mest unnið af
botnfiski eða 33 þúsund tonn að
verðmæti 4 milljarðar króna en á
höfuðborgarsvæðinu var unnið úr
32 þúsund tonnum fyrir 3,3 millj-
arða króna.
5% út í gámum
Rúmlega helmingur (52%) af
verðmæti sjávaraflans er tilkominn
vegna beinnar sölu útgerða til eig-
in vinnslustöðva, 24% verðmætis
vegna sölu á sjófrystum afla, 17,5%
vegna sölu á fiskmörkuðum innan-
lands en 5% verðmæta eru tilkom-
in vegna útflutnings á fiski í gám-
um.
Á tímabilinu var unnið úr 82 þús-
und tonnum af þorski og var mestu
ráðstafað í saltfiskvinnslu eða rúm-
lega 43%. Í vinnslustöðvum á landi
voru 32% þorskaflans fryst en tæp-
lega 18% um borð í vinnsluskipum.
Um 5% þorskaflans var sendur
ferskur með flugi á markaði er-
lendis.
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Þorskurinn skilar mestum verð-
mætum að vanda.
Aflaverð-
mæti 25
milljarðar
Kolmunnaafl-
inn orðinn
225.000 tonn
SÍÐUSTU daga hafa borist á land
rúm 3.400 tonn af kolmunna úr ís-
lenskum skipum. Samtals er kol-
munnaaaflinn orðinn 294.000 tonn,
þar af 225.000 tonn úr íslenskum
skipum.
Úthlutaður kolmunnakvóti er
547.000 tonn og eiga íslensk skip eft-
ir tæp 326.000 tonn óveidd. Erlend
skip hafa veitt tæp 70.000 tonn á
árinu.
Hoffell landaði 950 tonnum á Fá-
skrúðsfirði á sunnudag, Ásgrímur
Halldórsson kom til Seyðisfjarðar
með 950 tonn á mánudag og Jón
Kjartansson landaði 1.500 tonnum á
þriðjudag á Eskifirði.
Mestu hefur verið landað af kol-
munna hjá Síldarvinnslunni í Nes-
kaupstað, 65.000 tonnum, þar af
13.400 tonnum úr erlendum skipum,
Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði hefur
tekið á móti 54.000 tonnum, þar af
eru tæpir þrír fjórðu hlutar úr er-
lendum skipum, og hjá Eskju á Eski-
firði hefur verið landað tæplega
50.000 tonnum, 45.500 tonnum úr ís-
lenskum skipum.