Morgunblaðið - 30.07.2003, Side 23
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2003 23
Kjörvari 16 - þekjandi
- alkýðolíubundin þekjandi
viðarvörn sem sameinar kosti
olíu og akrýls, góða smýgni
og frábært veðrunarþol.
Kjörvari 12 - pallaolía
- olíubundin viðarvörn með
frábært veðrunarþol.
Kjörvari 14 - gagnsær
- gagnsæ, olíubundin viðarvörn á
hvers konar við sem smýgur
einstaklega vel inn í viðinn.
- Fæst í yfir 300 litum og myndar
þannig góða vörn gegn áhrifum
sólarljóss á viðinn.
fyrir íslenskar aðstæður
Sérhönnuð viðarvörn
Við erum sérfræðingar í útimálningu
fyrir íslenskar aðstæður.
Útsölustaðir Málningar:
Byko Kópavogi • Byko Hringbraut • Litaver Grensásvegi • Byko Hafnarfirði • Málningarbúðin Akranesi • Byko Akranesi •
Axel Þórarinsson, málarameistari, Borganesi • Verslunin Hamrar, Grundafirði • Litabúðin Ólafsvík • Núpur
byggingavöruversl. Ísafirði • Vilhelm Guðbjartsson, málarameistari, Hvammstanga • Verslunin Eyri, Sauðárkróki • Byko
Akureyri • Versl. Valberg, Ólafsfirði • Versl. Vík, Neskaupstað • Byko Reyðarfirði • Málningarþjónustan Selfossi •
Miðstöðin Vestmannaeyjum • Byko Keflavík.
Við erum sérfræðingar í viðarvörn. Á rannsóknastofu Málningar er haft
strangt eftirlit með framleiðslu og hráefnum og unnið kröftuglega að
vöruþróun þar sem nýjungar á sviði yfirborðsmeðhöndlunar með tilliti til
íslenskra aðstæðna hafa skapað viðarvörn frá okkur algjöra sérstöðu.
ÞAÐ VAR hátíðarstund í gömlu torf-
kirkjunni á Hofi í Öræfum þann 18.
júlí sl. er þau Bernard Morris og
Anna Rowland gengu í heilagt
hjónaband. Þetta var einn besti dag-
ur sumarsins, ca. 25°C hiti, sól og
blíða. Þetta glæsilega par kom alla
leið frá San Francisco í Kaliforníu til
að gifta sig.
Ýmsum lék forvitni á því hvers
vegna Ísland varð fyrir valinu. „Ice-
land, why not,“ (af hverju ekki Ís-
land?) svaraði brúðguminn með sínu
blíðasta brosi. Forsaga málsins var
sú, að einn vinur þeirra hafði sýnt
þeim myndir héðan, þau heillast af
landinu og þar með var þetta ákveð-
ið. Brúðurin hafði samband við Dóru
Ósk Bragadóttur, sem heldur úti
vefsíðu um brúðkaup á netinu, og
eitt leiddi af öðru. Í ljós kom að þau
Bernard og Anna voru spennt fyrir
torfkirkjum og ákváðu að velja Hofs-
kirkju í Öræfum, þar sem Amazing
Grace hljómaði í bland við þá Wagn-
er og Mendelssohn þennan ham-
ingjuríka dag. Þau ákváðu að dvelja
nokkra daga á Íslandi en svo er
stefnan tekin á hveitibrauðsdaga í
París.
Ljósmynd/Dóra Ósk Bragadóttir
Bernard og Anna Morris fyrir
kirkjudyrum ásamt sóknarprest-
inum Sr. Einari G. Jónssyni.
Amerískt
brúðkaup í
torfkirkju
Suðursveit
arsstöðum í Þistilfirði sem fulltrúi héraðs-
nefndar Þingeyinga. Helstu markmið og hlut-
verk setursins eru að vera miðstöð rannsókna í
héraðinu, að hafa frumkvæði að rannsókn-
arstarfsemi í héraðinu og að treysta undir-
stöður háskólanáms í fjarnámi í héraðinu.
Fyrirhugað er að nýstofnuð Náttúrustofa
Norðausturlands muni leigja aðstöðu og starfa
innan ÞÞ.
Að sögn Aðalsteins Árna Baldurssonar og
Erlu Sigurðardóttur, stjórnarmanna ÞÞ, var
einhugur í stjórninni um að ráða Óla og þar sem
ÞÞ er sjálfseignarstofnun bar þeim ekki skylda
til að auglýsa starfið til umsóknar. Þau segja að
það sé einkar ánægjulegt að ráða Óla til starfs-
ins því hann ásamt félaga sínum, Þorkeli L. Þór-
STJÓRN Þekkingarseturs Þingeyinga hefur
ráðið Óla Halldórsson umhverfisfræðing for-
stöðumann setursins. Óli mun hefja störf form-
lega 1. nóvember nk. en unnið er að því að finna
hentugt húsnæði undir starfsemi setursins.
Þekkingarsetrið var stofnað í lok júní sl. og
eru stofnaðilar Húsavíkurbær, Fræðslumiðstöð
Þingeyinga, Náttúrustofa Norðausturlands,
Háskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri.
Stjórn þess skipa fulltrúar þessara aðila, þau
Aðalsteinn Árni Baldursson, Erla Sigurðar-
dóttir, Margrét María Sigurðardóttir, Rögn-
valdur Ólafsson og Björn Gunnarsson. Þá á sæti
í stjórninni Jóhannes Gunnarsson á Gunn-
arinssyni líffræðingi, séu í raun frumkvöðlar að
stofnun þessa seturs. Þá sé það ekki síður
ánægjulegt við ráðningu Óla að hann er heima-
maður. Ráðning hans sé dæmi um að unga fólk-
ið sem fer til langskólanáms geti snúið til baka á
heimaslóðir og samfélögin þannig fengið að
njóta starfskrafta þeirra og menntunar.
Óli segist spenntur að takast á við hið nýja
starf. „Starfsvettvangurinn finnst mér afar
spennandi sem slíkur, enda mörg tækifæri á
sviði þessarar stofnunar í Þingeyjarsýslum. Það
sem gerir þetta allt saman ennþá meira spenn-
andi er það að hafa komið fyrst að þessu máli á
hugmyndastigi fyrir nokkrum misserum og fá
svo tækifæri til þess að sjá hugmyndina verða
að veruleika og fylgja henni eftir. Eins er því
ekki að neita að mér finnst það mjög ánægjulegt
að snúa aftur á heimaslóðir eftir nokkra búsetu
við nám og störf í höfuðborginni,“ sagði hinn ný-
ráðni forstöðumaður Þekkingarseturs Þing-
eyinga að lokum.
Óli Halldórsson er fæddur á Húsavík 1975,
hann er kvæntur Herdísi Þ. Sigurðardóttur og
eiga þau tvö börn. Óli lauk stúdentsprófi frá
framhaldsskólanum á Húsavík árið 1994, BA-
prófi í heimspeki frá Háskóla Íslands 1999 og
MA-prófi frá Háskóla Íslands, Umhverfis-
stofnun, 2002. Óli hefur frá árinu 2001 starfað
sem sérfræðingur í mati á umhverfisáhrifum
hjá umhverfissviði Skipulagsstofnunar.
Ráðinn forstöðumaður Þekk-
ingarseturs Þingeyinga
Húsavík
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Óli Halldórsson nýráðinn forstöðumaður
Þekkingarseturs Þingeyinga.