Morgunblaðið - 30.07.2003, Qupperneq 34
MINNINGAR
34 MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Fyrir hartnær 40
árum stofnuðu sex
ungir menn veiði-
klúbbinn Rílax.
Markmið með fé-
lagsskapnum var í upphafi að njóta
saman náttúru landsins, veiða fisk
og blanda geði. Upphafsmaðurinn
var Ólafur Jensson. Fljótlega bætt-
ust eiginkonur okkar í hópinn sem
virkir þátttakendur í ýmsum uppá-
komum og leiðöngrum.
Ólafur varð fyrir áfalli fyrir
nokkrum árum sem takmarkaði
atorku hans og hreyfigetu. Þó að
svo væri komið sleppti hann ekki
veiðiferðum okkar og samkomum
en hélt þar uppi fullri reisn. Aðeins
tveim dögum fyrir andlátið var
hann við veiðar í Elliðaánum með
einum okkar Rílaxfélaga.
Víst er fráfall Óla mikið áfall fyr-
ir Rílaxhópinn en minningarnar
sem lifa eru dýrmætar og margs er
að minnast:
Félagslynda mannsins sem hafði
unun af því að hlúa að sameig-
inlegum áhugamálum og skipu-
leggja samverufundi.
Veiðimannsins glaðværa og sí-
brosandi sem miðlaði okkur, byrj-
endum, af mikilli reynslu sinni.
Kvöldsvæfa morgunhanans sem
fór langfyrstur að sofa á kvöldin en
var alltaf tilbúinn með girnilegan
morgunverð þegar hann vakti hóp-
inn með því að skenkja honum
„lýsisskammtinn“ úr ausu fullri af
Gammeldansk.
Söngvarans sem þóttist vera lag-
laus en söng í okkar hópi með
björtum tenór uppáhaldslagið sitt,
„Áfram veginn í vagninum ek ég“.
Viðmótsins hlýja og brossins
sem alltaf kallaði fram jákvæðar
hugsanir.
Samverustundanna mörgu með
Möllu og Óla í Maríubúðum, sum-
arbústað þeirra hjóna.
Skarð það sem Ólafur Jensson
skilur eftir meðal Rílaxa verður
ekki fyllt en við munum minnast
hans meðan til verðum og segja
mörg orð af viti í minningu hans.
Við kveðjum kæran vin okkar,
Óla Jens, og biðjum Guð að styrkja
og styðja Möllu, börn þeirra,
tengdabörn og barnabörn.
Kveðja,
Rílaxar.
Um svipað leyti og ég var að
leggja af stað í fjögurra daga
gönguferð um eina af náttúruperl-
um landsins lagði Óli Jens vinur
minn upp í sína hinstu ferð. Ég
kynntist Óla fyrir um 20 árum og
síðan þá hafa Óli og Malla verið
meðal minna bestu og traustustu
vina. Kynni okkar hófust þegar Óli
ásamt öðrum tók að sér það verk-
efni að undirbúa þátttöku Íslands í
Olympíuleikum fatlaðra 1984.
Skömmu síðar var Óli kosinn for-
maður Íþróttasambands fatlaðra,
en ég var á þessum tíma starfs-
maður sambandsins. Ekki veit ég
nákvæmlega hvað varð þess
valdandi að vinátta okkar varð jafn
traust og raun bar vitni því við
fyrstu sýn virðist sem fleira hafi
sundrað okkur en sameinað. Óli
var t.d. nokkru eldri en ég, hann
kaus Sjálfstæðisflokkinn, hélt með
KR hér innanlands og Manchester
United í enska boltanum.
Ég tel að það hafi verið mikil
gæfa fyrir Íþróttasamband fatlaðra
og íþróttastarf fatlaðra hér á landi
að fá Óla Jens til liðs við sig. Og
fyrir mig persónulega var það á við
besta skóla að fá tækifæri til að
vinna með og undir stjórn Óla Jens.
ÓLAFUR
JENSSON
✝ Ólafur Jensson,fyrrverandi
framkvæmdastjóri
Byggingaþjónust-
unnar, fæddist í
Reykjavík 8. septem-
ber 1934. Hann lést
20. júlí síðastliðinn
og var útför hans
gerð frá Hallgríms-
kirkju 29. júlí.
Kæri vinur. Á
kveðjustund langar
mig að þakka þér fyrir
allar samverustund-
irnar, allar fallegu
kveðjurnar sem þú
sendir Margréti og
Helgu Jónínu, allar
sögurnar (þó margar
væru nokkuð færðar í
stílinn), alla brandar-
ana (þeir hafa oft
komið sér vel), öll
heilræðin og leiðbein-
ingarnar sem þú gafst
mér og ekki síst þitt
góða skap og jákvæða
hugarfar. Og eitt máttu vita. Ef
mér tekst ekki að framkvæma
hlutina sem ég er að vinna að með
sæmilegum stæl, þá sleppi ég þeim
frekar.
Elsku Malla og fjölskylda. Hug-
ur minn er hjá ykkur þessa dag-
ana. Ef það er til að létta ykkur
sorgina þá get ég sagt ykkur að ég
hef sjaldan umgengist mann sem
hefur talað jafn fallega og borið
jafn mikla virðingu fyrir fjölskyldu
sinni og Óli Jens. Margsinnis hef
ég heyrt hann segja fólki frá því að
hann hefði aldrei getað tekið að sér
öll þau verkefni sem honum var
trúað fyrir nema hann ætti ein-
staklega skilningsríka og góða fjöl-
skyldu.
Megi góður Guð styrkja ykkur
og vernda á þessum erfiða tíma.
Ykkar vinur,
Markús.
Engin orð ná að lýsa þeim ein-
staka mannvini, Ólafi Jenssyni,
sem svo skyndilega hefur hafið
nýja vegferð. Sumt fólk nýtur for-
réttinda, sem felast í því að fá að
vera samferða stórkostlegu fólki
sem gefur sér tíma til að varpa
birtu yfir lífsgöngu annarra.
Það var örlagarík ákvörðun sem
ég tók, vorið 1990, þegar ég var að
ljúka námi í Kaupmannahöfn. Búin
að endurráða mig í kennslu á
Húsavík, þar sem beið mín íbúð í
„Latínuhverfinu“ og frábæru nem-
endurnir, sem ég hafði lofað að
hitta aftur að ári. Það var þá sem
Óli Jens boðaði mig til fundar í
Kaupmannahöfn, þar sem tilgang-
urinn var að bjóða mér starf hjá
Íþróttasambandi fatlaðra. Persónu-
töfrar og alúðlegt viðmót hans opn-
aði honum leið að hjarta fólks og
hann kunni þá list að láta fólki
finnast það vera alveg einstakt,
hvort sem um var að ræða góða
vini eða fólk á förnum vegi. Ég
hafði því ekkert val, það var ekki
hægt að segja nei við Óla og þessi
fundur var upphafið að áralöngu,
lærdómsríku, gefandi og skemmti-
legu samstarfi og ómetanlegri vin-
áttu okkar Óla. Hann sparaði ekki
hvatningarorð og hrós til með-
bræðra sinna og var ljósgjafi hvar
sem hann kom. Hann vildi lifa líf-
inu lifandi og njóta þess sem það
hafði upp á að bjóða og sterkast
kom persónuleiki hans í ljós á síð-
ustu árum, þegar mikið reyndi á.
Þá var áfram stutt í brosið, alúðina
og umhyggjuna fyrir náunganum.
Baráttuandinn, áhuginn og viljinn
til að liðsinna og vera til staðar fyr-
ir okkur öll, var einkennandi fyrir
persónu hans Það var alltaf stutt í
grín og glens hjá Óla og það var
ævintýri að að ferðast með honum
innanlands og utan. Vinir og sam-
starfsfólk tók honum alls staðar
fagnandi og hann hlaut heiðurs-
nafnbótina „konungur Íslands“ hjá
vinum okkar á Norðurlöndum.
Lífssaga Óla Jens lýsir sér sjálf,
skrifuð kveðjuorð eru lítils megn-
ug. Hann var einstakur maður sem
nú er sárt saknað af fjölskyldu,
vinum og samstarfsfólki innanlands
og erlendis. Samskipti við slíka
persónu, sem Óli var, eru mann-
bætandi og lærdómsrík og ég verð
ævarandi þakklát fyrir að hafa ver-
ið í hópi þeirra, sem fengu að njóta
mikilla samvista við þennan ein-
staka mannvin.
Boðberi kærleikans, gimsteinn á
veraldar vegi
þín vegferð færði birtu nýjum degi
mannvinur mesti, perla í lífsins ljóði
ljóssins sonur, vinurinn minn góði.
Elsku María og fjölskyldan öll,
innilegar samúðarkveðjur.
Anna Karólína Vilhjálmsdóttir.
Kæri nafni.
Þú sagðir reyndar alltaf að fæst
orð hefðu minnsta ábyrgð en ég
segi samt og skrifa – þú varst ein-
stakur, hvort heldur var sem
vinnuveitandi eða vinur. Það var
stíll yfir þér og því sem þú gerðir.
Með tilkomu þinni sem formaður
Íþróttasambands fatlaðra færðirðu
þennan stíl og „elegans“ yfir allt
sem þar var gert. Þú einsettir þér
að íþróttir fatlaðra öðluðust verð-
ugan sess meðal alls almennings og
það gekk svo sannarlega eftir því
undir þinni handleiðslu var ótal-
mörgu hrint í framkvæmd sem
manni fannst á stundum óyfirstíg-
anlegt. „Þetta er bara framkvæmd-
aratriði,“ varstu vanur að segja og
það reyndist rétt. Þótt manni fynd-
ist nákvæmni þín á stundum full-
mikil voru það þessi litlu atriði sem
síðan gerðu gæfumuninn. Sem vin-
ur varstu mér og mínum líka ein-
stakur og hjá dætrum mínum nán-
ast í guðatölu. Mér og konu minni
kenndirðu svo ótalmargt um lífið
og tilveruna – „Njótið augnabliks-
ins og sjáið björtu hliðarnar, það er
alltaf sól alls staðar, hún er bara
stundum bak við skýin,“ fékk mað-
ur iðulega að heyra frá þér. Þú
lifðir líka sjálfur samkvæmt þessu
og þrátt fyrir þín miklu veikindi
undanfarinn áratug sástu alltaf
björtu hliðarnar á öllu og tókst á
móti manni með sólskinsbrosi, um-
faðmaðir mann og sagðir alltaf allt
ágætt.
Það verður ekki leiðinlegt kring-
um þig í himnaríki frekar en ann-
ars staðar sem þú varst – takk fyr-
ir allt, nafni, og þegar við hittumst
aftur hinum megin fáum við okkur
örugglega einn áður en lætin byrja
og rifjum upp allt sem við gerðum.
Elsku Malla, missir þinn er mik-
ill. Megi guð styrkja þig og þína í
sorg ykkar og blessa minningu
Ólafs vinar okkar Jenssonar.
Ólafur, Guðbjörg og dætur.
Ég heimsótti Óla vin minn um sl.
mánaðamót. Við ræddum fjölmörg
mál og hann kom víða við í um-
ræðunni. Óli var þó ekki jafnupp-
rifinn eins og oftast áður því hans
góða kona, Malla, dvaldi á sjúkra-
húsi. Á þeirra fallega heimili á
Skúlagötu 40 var gott að koma,
ávallt vel fagnað og umræðan um
menn og málefni svo gefandi. Ólaf-
ur var góður drengur, jákvæður og
hjartahlýr. Það ríkti mikil glað-
værð í kringum hann og jafnvel í
erfiðum úrlausnarmálum sá hann
ætíð spaugilegar hliðar. Þrátt fyrir
erfiðar sjúkraaðgerðir og heilsu-
brest var hann jafnan hress og kát-
ur.
Leiðir okkar Óla lágu fyrst sam-
an í starfi fyrir Sjálfstæðisflokkinn
árið 1975. Þá var hann formaður í
hverfafélagi sjálfstæðismanna í
Austurbæ. Honum var einkar lagið
að vinna með fólki, sjá jákvæðu
hliðarnar á öllum málum og jafna
ágreining. Óli var mikill sjálfstæð-
ismaður og jafnframt öflugur fé-
lagsmálamaður. Allt sem hann tók
sér fyrir hendur gerði hann vel og
skipulega og var einstaklega laginn
við að laða það besta fram hjá öllu
sínu samstarfsfólki.
Ég kynntist Óla best þegar mér
var falin formennska í skipulags-
nefnd borgarinnar árið 1982. Þá
eins og nú voru haldnar fjölmargar
samkeppnir, um skipulag nýrra
svæða og ýmis önnur viðfangsefni.
Óli var trúnaðarmaður dómnefndar
í tveimur samkeppnum sem ég
veitti forstöðu. Í því starfi naut
hann sín vel. Hann kunni vel til
verka og hafði fullan trúnað allra
dómnefndarmanna. Það umhverfi
sem hann skapaði dómnefndinni í
þessum störfum var með þeim
hætti, að starfið var bæði skemmti-
legt og spennandi og þegar yfir
lauk og niðurstaða lá fyrir voru all-
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 551 9090.
Elsku afi. Nærvera
þín hefur alltaf verið
góð og mun hún héðan í
frá verða sterkari en
nokkru sinni fyrr því
ég veit að þú vakir yfir
okkur á björtum og góðum stað við
hlið guðs föður.
Það er eins og það hafi gerst í gær,
að þú vippaðir mér upp á afgreiðslu-
borðið í skóbúðinni á Strandgötu og
ég aðstoðaði þig við að setja skó í
poka fyrir ánægðan viðskiptavin, en
þeir voru þónokkrir í gegnum þau ár
sem þið amma voruð með skóbúðina.
Það voru góðir dagar þegar við sát-
um á móti hvor öðrum inni á skrif-
stofu, þú varst í símanum, ég á
reiknivélinni og amma kom með vín-
arbrauð og mjólk. Það var á þessum
dögum sem mig dreymdi um að
verða jafn góður og stoltur kaup-
maður eins og afi Geir.
Þeir dagar eru nú taldir en minn-
ingar mínar um þig lifa áfram með
mér vel og lengi, eða þar til við hitt-
umst á ný í bjartara ljósi með bros á
vör. Guð blessi þig, elsku afi, og takk
fyrir allt.
Sverrir Bjarnason.
Elsku afi. Ég vil þakka þér fyrir
allar þær ánægjustundir sem ég átti
með þér og ömmu. Þú varst alltaf svo
kátur og jákvæður að það geislaði
allt í kringum þig. Ég man eftir ferð-
inni sem við fórum til Mallorca. Þá
varstu búinn að vera svolítið veikur.
Við skemmtum okkur vel þar. Alltaf
leið þér best í faðmi fjölskyldunnar
þegar öll börnin þín og barnabörn
komu upp á Hringbraut í kaffi eða
mat. Þið amma áttuð fallegt heimili
og þar leið mér vel.
Elsku afi, ég hef alltaf verið stolt-
ur af því að heita í höfuðið á þér. Ég
mun sakna heimsóknanna til þín á
Hringbrautina og síðar á Hrafnistu.
Þar vorum við alltaf að þræta um það
hvor væri sterkari og svo glottir þú á
eftir.
Elsku afi, guð gleymi þig.
Geir Bjarnason.
Kveðja frá Fimleikafélagi
Hafnarfjarðar
Eldri og miðaldra Hafnfirðingar
muna og sáu í áratugi spengilegan
mann koma gangandi sunnan af
„Hamri“ á leið í vinnuna á Strand-
götu, til að opna skóbúð sína sem
hann rak í yfir 44 ár.
Þessi myndarlegi maður var Geir
GEIR
JÓELSSON
✝ Erlendur GeirJóelsson fæddist
í Hafnarfirði 17. des-
ember 1920. Hann
lést á Hrafnistu í
Hafnarfirði 13. júlí
síðastliðinn og var
útför hans gerð frá
Hafnarfjarðarkirkju
18. júlí.
Jóelsson kaupmaður,
Hafnfirðingur og Gafl-
ari, alinn upp í miðbæn-
um og í anda KFUM,
þar sem faðir hans var
leiðtogi.
Geir hóf iðkun
íþrótta strax á unga-
aldri, enda ekki langt
að sækja þann áhuga,
þar sem faðir hans var
mikill áhugamaður og
þátttakandi á þeim
vettvangi, reyndar
fyrstur Hafnfirðinga til
að taka þátt í opinberu
íþróttamóti árið 1909,
þ.e. svokölluðu „Míluhlaupi“ (u.þ.b.
7,5 km) frá Árbæ til Reykjavíkur.
Geir Jóelsson var í hópi drengja
sem stofnuðu Knattspyrnufélagið
Hauka 12. apríl 1931, lék þar og æfði
knattspyrnu í yngri flokkum félags-
ins fram til ársins 1939, er hann yf-
irgaf Hauka og gerðist alfarið félagi
og keppnismaður í Fimleikafélagi
Hafnarfjarðar – FH.
Sprækur strákur eins og Geir var
fór strax í leikfimihóp pilta hjá Hall-
steini Hinrikssyni, fimleikakennara
og þjálfara hjá FH, sem Hallsteinn
stofnaði árið 1932. Geir var þar góð-
ur liðsmaður í áraraðir, var m.a. í
sýningarflokki FH árið 1939.
Geir var fjölhæfur íþróttamaður,
hann tók þátt í öllum íþróttagreinum
sem FH stundaði, þ.e. fimleikum,
frjálsum íþróttum, knattspyrnu og
handknattleik, og var hann m.a. for-
maður handknattleiksnefndar FH
um tíma.
Eftirminnilegust í sambandi við
íþróttaferil Geirs er þátttaka hans í
meistaraflokki FH í knattspyrnu.
Þar lék hann í fyrsta meistaraflokki
félagsins frá árinu 1939. Þessi flokk-
ur var einstæður á margan hátt, fyr-
ir utan það að vera góður knatt-
spyrnuflokkur voru þarna
„Hólsbræðurnir“ fimm og mágur
þeirra, sem er einsdæmi í íslenskri
knattspyrnusögu, þetta var glæstur
flokkur með afburða íþróttamenn,
þeir gerðu FH m.a. að stóru og öfl-
ugu félagi. Þarna naut Geir sín vel á
hægri kantinum, með sinn mikla
kraft og hraða og leiftrandi leikgleði.
Það geislaði af þessum knattspyrnu-
flokki. Hópurinn hélt saman frá 1939
til 1948 með litlum breytingum, eða
allt þar til hann flosnaði upp, eins og
reyndar allir knattspyrnuflokkar í
Hafnarfirði, er bærinn hóf aðgerðir
við að stækka knattspyrnuvöllinn á
Hvaleyrarholti árið 1948, sem tók
langan tíma. Það var synd að sjá
þetta mikla og kröftuga íþróttastarf
fara fyrir lítið. Það tók íþróttafélögin
áratugi að ná aftur viðmóta starfi í
bænum.
Á þessum góðu árum frá 1940–48
var Geir Jóelsson jafnan í sameinuðu
knattspyrnuliði Hafnfirðinga undir
merki Knattspyrnufélags Hafnar-
fjarðar, KH. Þeir áttu iðulega í bar-
áttu við toppliðin í Reykjavík og
jafnvel Íslandsmeistara þess tíma og
höfðu í fullu tré við þá þegar best lét,
þannig var staða knattspyrnunnar í
Hafnarfirði í þá daga.
Um leið og við FH-ingar vottum
fjölskyldu Geirs dýpstu samúð þökk-
um við Geir Jóelssyni mikið og gott
starf.
Blessuð sé minning hans.
MINNINGARGREINUM þarf
að fylgja formáli með upplýsing-
um um hvar og hvenær sá sem
fjallað er um er fæddur, hvar og
hvenær dáinn, um foreldra
hans, systkini, maka og börn og
loks hvaðan útförin verður gerð
og klukkan hvað. Ætlast er til að
þetta komi aðeins fram í formál-
anum, sem er feitletraður, en
ekki í greinunum sjálfum.
Formáli
minning-
argreina