Morgunblaðið - 30.07.2003, Blaðsíða 36
FRÉTTIR
36 MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Verkstjóri, tæknimað-
ur og gröfumaður
Óskum eftir að ráða verkstjóra, tæknimann
og gröfumann strax. Mikil vinna framundan.
Aðeins menn vanir jarðvinnu koma til greina.
Klæðning ehf., Bæjarlind 4, Kópavogi,
símar 565 3140 og 899 2303.
Hjá Jóa Fel - bakarí
Okkur vantar duglegt og hresst starfsfólk í
afgreiðslu. Tvískiptar vaktir. Einnig óskum við
eftir starfsmanni í ræstingar.
Upplýsingar hjá Lindu í síma 588 8998 eða
Unni í síma 893 0076.
ÁSTÚN SÉRÚRRÆÐI
• Kennari óskast við sjúkra- og skamm-
tímaúrræðið Ástún.
Laun samkvæmt samningum Launanefndar
sveitarfélaga og KÍ
Umsóknarfrestur er til 15. ágúst n.k.
Upplýsingar veitir Tómas Jónsson, sérkennslu-
fulltrúi Kópavogsbæjar sími 5701600.
Umsóknir sendist á Fræðslusvið Kópavogsbæjar,
Fannborg 2, 200 Kópavogi
Starfsmannastjóri
Sjá ennfremur: www.kopavogur.is og www.job.is
KÓPAVOGSBÆR
www.kopavogur.is
ⓦ í afleysingar
í efra-Breiðholt
Upplýsingar
í síma
569 1116.
RAÐAUGLÝSINGAR
Bæir í Bláskógarbyggð
Vegna frétta í Morgunblaðinu í
gær um eldingar og tjón sem þær
ollu í Bláskógarbyggð skal tekið
fram að bæirnir Miðdalskot og Ket-
ilvellir eru í Laugardal og tilheyrðu
áður hinum gamla Laugardals-
hreppi. Hægt er að skilja fréttina á
þann veg að bæirnir séu í Biskups-
tungum, en sá hreppur tilheyrir nú
Bláskógarbyggð eins og Laugar-
dalshreppur.
LEIÐRÉTT
Stuðningshópur kvenna sem
fengið hafa krabbamein í eggja-
stokka heldur rabbfund í dag
klukkan 17. Verður hann í húsi
Krabbameinsfélagsins við Skóg-
arhlíð 8. Fundir þessir eru jafnan
haldnir síðasta miðvikudag í hverj-
um mánuði.
Í DAG
Skógarganga í Þrastaskógi.
Laugardaginn 1. ágúst kl. 14–16 efn-
ir Alviðra, fræðslusetur Land-
verndar, til göngu um Þrastaskóg
sem nú skartar sínu fegursta. Dag-
björt Óskarsdóttir leiðsögumaður
mun leiða gönguna. Lagt verður upp
frá hliðinu fyrir ofan veitingaskál-
ann Þrastarlund. Gangan er létt og á
flestra færi. Boðið verður upp á kakó
og kleinur í göngunni. Þátttökugjald
er kr. 800 fyrir fullorðna, ókeypis
fyrir börn yngri en 12 ára, veitingar
innifaldar. Allir eru velkomnir.
Á NÆSTUNNI
RAFIÐNAÐARSAMBAND Ís-
lands (RSÍ) hefur gert nýjan
kjarasamning vegna Félags sýn-
ingarmanna, en samningurinn
rann út í vor.
Á heimasíðu RSÍ kemur fram að
undanfarið hafi staðið yfir viðræð-
ur um endurnýjun samningsins.
Samkomulag við Norðurljós um að
tengja samning sýningarmanna
sem starfa hjá því fyrirtæki við að-
alsamning RSÍ við fyrirtækið. Hér
er átt við „Stöðvar 2“ samning
RSÍ eins og hann hefur oftast ver-
ið nefndur. Með þessu urðu tölu-
verðar breytingar en sýningar-
menn hjá kvikmyndahúsum
Norðurljósa voru sáttir við þær
breytingar og nýtt launakerfi.
Í framhaldi af því hófust samn-
ingaviðræður við SAMbíóin og ný-
verið náðist nýr kjarasammningur
við SAMbíóin og Háskólabíó.
Samningurinn gildir til 31. október
2004.
Nýir kjarasamn-
ingar vegna
Félags sýning-
armanna
anum um kl. 11 og skipst á að
halda undir burðarstól.
Að fjallgöngu lokinni er svo mat-
arveisla í Ólafshúsi. Þangað er öll-
um boðið sem aðstoða við fjall-
gönguna.
Sumarbúðunum hefur nú
áskotnast nýr og endurbættur
burðarstóll sem smíðaður er úr
trefjaplasti af Sigurjóni Magnús-
syni á Ólafsfirði.
Er Rauða kross-fólk sérstaklega
hvatt til að mæta og aðstoða við
gönguna en allir sem áhuga hafa á
verkefninu eru velkomnir og er
hjálp þeirra vel þegin.
FJALLGANGA á Tindastól er fyr-
irhuguð sunnudaginn 3. ágúst, ef
veður leyfir. Sumarbúðir Rauða
krossins á Löngumýri í Skagafirði
eru nú reknar 5. sumarið í röð.
Tímabilin eru þrjú og standa í eina
viku hvert. 1. tímabilið var 30. júní
til 7. júlí, 2. var 15. til 22. júlí og
það þriðja og síðasta verður 31.
júlí til 7. ágúst.
Dagskrá búðanna er mjög fjöl-
breytt og fræðandi, skv. upplýs-
ingum forsvarsmanna búðanna.
Farið er í flúðasiglingar niður
Blöndu með Ævintýraferðum í
Skagafirði, sjóferð út að Drangey
og Þórðarhöfða með Eyjaskipum,
á hestbak hjá Áshestum að Neðra-
Ási II, í fjallgöngu á Tindastól og
skoðunarferðir í Vesturfarasetrið
á Hofsósi og fleiri áhugaverða
staði. Fræðsla um sögu Rauða
krossins og skyndihjálp er að sjálf-
sögðu fastur liður í dagskránni og
auk þess er farið í ýmsa leiki og
íþróttir svo sem Solferino-leikinn,
borðtennis, fótbolta, júdó, frjálsar
íþróttir og daglega í sund, oftast í
sundlaugina í Varmahlíð.
Sunnudaginn 3. ágúst verður
gengið á Tindastól ef veður leyfir.
Lagt verður af stað frá skíðaskál-
Fjallganga á Tindastól
Frá starfi í Sumarbúðum á Löngumýri í Skagafirði.
NORÐURÁ er að detta í þúsund
laxa og þar er góð veiði um þess-
ar mundir. Þá eru tvær ár komn-
ar yfir þúsund laxa og fleiri á
leiðinni. Smálaxatregða norðan
heiða er þó enn viðvarandi þrátt
fyrir að straumur hafi verið vax-
andi með hámarki í dag og
vætutíð hafi komið ánum í betra
ástand til að taka á móti laxa-
göngum.
Smálaxa-
þurrðin veldur
þeim sem hafa
áhyggjur af
stórlaxinum
gremju, því
meira er af stór-
laxi en oft áður,
en þar sem lítið
er af smálaxi,
sem er þvert á spár sérfræðinga,
lendir sá stóri í mun meira veiði-
álagi.
Stórrigning
Guðmundur Viðarsson, kokk-
ur við Norðurá, staðfesti í gær
að áin væri alveg um þúsund
laxa og að veiðin hefði verið góð
síðustu daga. Svo mikið hefur
rignt síðasta sólarhringinn, með
þrumum og hamagangi, að blás-
in var af ferð til að handmoka út
ósinn á Gljúfurá.
Bendir flest til að manns-
höndin þurfi ekki að hjálpa lax-
inum upp ána þar að þessu sinni.
Hugsanlega dregur úr mokveiði
í Straumunum fyrir vikið, en þar
voru komnir 230 laxar á land í
gær, hátt í hundrað meira en
alla síðustu vertíð.
Góðar göngur í Stóru-Laxá
Vel veiðist í Stóru-Laxá í
Hreppum þessa dagana og er
laxinn sem veiðist nær allur
grálúsugur. Á efsta svæðinu
veiddust tíu laxar frá föstudegi
til sunnudags, alls þá komnir 48
á land á svæðinu og 17 laxar
hafa veiðst síð-
ustu ellefu dag-
ana á miðsvæð-
inu. Hefur á
umræddum
tíma aðeins
verið einn lax-
laus dagur. Þá
eru komnir 17
laxar af neðstu
svæðunum, þar af sjö um
helgina. Stærsti laxinn var 19,5
punda af miðsvæðinu.
Þá er Sogið líflegt, t.d. komu 7
laxar úr Bíldsfelli tvo síðustu
daga og tíundi lax sumarsins
veiddist í Syðri-Brú á mánudag,
sem er góð útkoma þar. Menn
hafa einnig verið að fá’ann í
Þrastarlundi, Alviðru og Ás-
garði. Fjör á bökkum Sogsins og
stórar bleikjur í bland.
Vestur í Djúpi
Nærri 50 laxar hafa veiðst í
Langadalsá við Djúp og ná-
grannaáin Laugardalsá er kom-
in fast að 200 löxum. Besta holl-
ið í Langadalsá var með 13 laxa
á tvær stangir.
Hressir kappar með fallega veiði úr Soginu, m.a. rúmlega 18 punda
lax og bleikjur upp í 5 pund.
Norðurá að
rjúfa múrinn
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
♦ ♦ ♦
ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122