Morgunblaðið - 30.07.2003, Side 38
38 MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FLEST eigum við góðar minningar
frá verslunarmannahelgum: Útihá-
tíð eða útilega með vinum, uppá-
haldshljómsveitirnar að spila og
margt fleira skemmtilegt að gerast.
En því miður eiga sumir mjög slæm-
ar – eða jafnvel engar – minningar
frá samkomum verslunarmanna-
helgarinnar. Í nær öllum tilfellum er
þar um ungt fólk að ræða og að þar
hafa vímuefni komið við sögu.
Ekki eftirlitslaus á útihátíð
SAMAN-hópurinn, samstarfshóp-
ur um forvarnir, hefur á undanförn-
um árum beint kröftum sínum að því
að hvetja til jákvæðra samskipta
fjölskyldunnar og vekja athygli for-
eldra á að þeir beri ábyrgð á börnum
sínum allt til 18 ára aldurs. Skila-
boðin eru alltaf skýr og jákvæð og
meginstef þeirra er: „Fjölskyldan
saman.“
Núna er verslunarmannahelgin á
næsta leyti, en samkomur henni
tengdar hafa því miður átt þátt í að
ungmenni hafa leiðst út í vímuefna-
notkun, með þeim skelfilegu afleið-
ingum sem henni fylgir. SAMAN-
hópurinn vill því beina því til allra
aðstandenda unglinga 18 ára og
yngri að leyfa ekki eftirlitslausa ferð
á útihátíð. Ennfremur að fullorðnir
kaupi ekki eða bjóði unglingum
áfengi.
Fjölskyldan er
besta forvörnin
Reynslan og rannsóknir hafa sýnt
að þeim börnum farnast best sem
verja sem mestum tíma með fjöl-
skyldu sinni. (Sjá www.vimuvarn-
ir.is). Þau eru mun ólíklegri en önnur
börn til að neyta vímuefna og tengsl
þeirra við fjölskyldu sína og aðra eru
yfirleitt mjög góð og jákvæð. Gott
framboð er af útihátíðum um þessa
helgi þar sem allir aldurshópar geta
fundið eitthvað við sitt hæfi. Margt
ungt fólk langar til að fara á úthátíð
en þau eru smeyk við það vegna
þeirra slæmu atburða sem orðið hafa
á mörgum þessara útihátíða. En
þegar fjölskyldan fer saman getur
unga fólkið tekið þátt í þeirri
skemmtun sem því býðst og jafn-
framt fundið fyrir þeirri öryggis-
kennd sem því fylgir að vita af fjöl-
skyldunni á sama svæði. Fullorðna
fólkið veitir einnig ákveðið aðhald
sem stuðlar að því að mótshaldið fari
fram á þann hátt sem bæði móts-
haldarar og þátttakendur vonast eft-
ir. Skilaboðin eru: „Verum með
börnunum okkar um verslunar-
mannahelgina.“
GUÐMUNDUR GÍGJA,
lögreglufulltrúi í forvarnadeild
lögreglunnar í Reykjavík.
R. MARÍA ÞORSTEINSDÓTTIR,
verkefnastjóri hjá
Félagsþjónustu Kópavogs.
Verum saman
um verslunar-
mannahelgina
Frá Guðmundi Gígju og
R. Maríu Þorsteinsdóttur:
Morgunblaðið/Ómar
„Reynslan og rannsóknir hafa sýnt að þeim börnum farnast best sem verja
sem mestum tíma með fjölskyldu sinni,“ segir í greininni.
Guðmundur
Gígja
R. María
Þorsteinsdóttir
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.