Morgunblaðið - 30.07.2003, Side 40
DAGBÓK
40 MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur. Skrif-
stofan er lokuð í júlí
og ágúst. Sími for-
manns er 892 0215.
Mannamót
Árskógar 4. Kl. 9–12
bað. Smíðastofan er
lokuð til 11. ágúst.
Handavinnustofan er
lokuð vegna sumar-
leyfa. Púttvöllur opinn
mánudag til föstudags
kl. 9–16.30.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–13 hárgreiðsla, kl.
8–12.30 bað, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 10–
10.30 bankinn, kl. 13–
16.30 bridge/vist.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9 að-
stoð við böðun, hár-
greiðslustofan opin, kl.
13.30 söngstund, kl.
14.30 bankaþjónusta,
kl. 14.40 ferð í Bónus.
Félagsstarfið Dal-
braut 27. Kl. 8–16 opin
handavinnustofan, kl.
9 silkimálun, kl. 13–16
körfugerð, kl. 10–13
opin verslunin, kl. 11–
11.30 leikfimi, kl. kl.
13.30 bankaþjónsuta.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16
opin vinnustofa, kl. 9–
12 hárgreiðsla, kl. 9–
16.30 fótaaðgerð. Pútt-
völlurinn opinn frá kl.
14.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl.
9.30 hjúkrunarfræð-
ingur á staðnum, kl. 10
hárgreiðsla, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13
föndur og handavinna.
Félag eldri borgara
Kópavogi. Skrifstofan
er lokuð frá og með
30. júní til 6. ágúst.
viðvera í Gjábakka
fellur niður á sama
tíma.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Félags-
heimilið Hraunsel
verður lokað til 10.
ágúst.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Lokað vegna
sumarleyfa til 12.
ágúst.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan op-
in, kl. 13 félagsvist, kl.
17 bobb.
Gullsmári, Gullsmára
13. Lokað vegna sum-
arleyfa til 5. ágúst.
Hárgreiðuslustofan og
fótaaðgerðarstofan
verða opnar.
Hraunbær 105. Kl. 9
opin handavinnustofa,
kl. 9 fótaaðgerð og
hárgreiðsla, kl. 10
pútt, kl. 11 banki, kl.
13 bridge.
Hvassaleiti 58–60. Kl.
10.30 ganga. Fótaað-
gerðir og hársnyrting.
Norðurbrún 1. Kl. 13–
13.30 banki, kl. 14 fé-
lagsvist, kaffi og verð-
laun.
Vesturgata 7. Kl.
8.25–10.30 sund, kl. 9–
16 fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 12.15–
14.30 verslunarferð í
Bónus, kl. 13–14
myndbandssýning.
Vitatorg. Kl. 9 hár-
greiðsla, kl. 10 morg-
unstund, fótaaðgerð,
kl. 12.30 verslunarferð.
Minningarkort
Samúðar- og heilla-
óskakort Gídeon-
félagsins er að finna í
anddyrum eða safn-
aðarheimilum flestra
kirkna á landinu, í
Kirkjuhúsinu, á skrif-
stofu KFUM&K og
víðar. Þau eru einnig
afgreidd á skrifstofu
Gídeonfélagsins, Vest-
urgötu 40, alla virka
daga frá kl. 14–16 eða
í síma 562 1870. Allur
ágóði fer til kaupa á
Nýja testamentum
sem gefin verða 10 ára
skólabörnum eða kom-
ið fyrir á sjúkrahúsum,
hjúkrunarheimilum,
hótelum, í fangelsum
og víðar.
Minningarspjöld
Kristniboðssambands-
ins fást á skrifstof-
unni, Holtavegi 28
(hús KFUM&K gegnt
Langholtsskóla) sími
588 8899.
Minningarkort Graf-
arvogskirkju.
Minningarkort Graf-
arvogskirkju eru til
sölu í kirkjunni í síma
587 9070 eða 587 9080.
Einnig er hægt að
nálgast kortin í
Kirkjuhúsinu, Lauga-
vegi 31, Reykjavík.
Líknarsjóður Dóm-
kirkjunnar, minning-
arspjöld seld hjá
kirkjuverði.
Minningarkort Stóra-
Laugardalssóknar,
Tálknafirði, til styrkt-
ar kirkjubyggingar-
sjóði nýrrar kirkju í
Tálknafirði eru af-
greidd í síma 456 2700.
Minningarspjöld Frí-
kirkjunnar í Hafn-
arfirði fást í Bókabúð
Böðvars, Pennanum í
Hafnarfirði og Blóma-
búðinni Burkna.
Krabbameinsfélagið.
Minningarkort félags-
ins eru afgreidd í síma
540 1990 og á skrif-
stofunni í Skógarhlíð
8. Hægt er að senda
upplýsingar í tölvu-
pósti (minn-
ing@krabb.is).
Hranfkelssjóður
(stofnaður 1931) minn-
ingarkort afgreidd í
símum 551 4156 og
864 0427.
Í dag er miðvikudagur 30. júlí,
211. dagur ársins 2003.
Orð dagsins: Daníel tók til máls
og sagði: „Lofað verði nafn Guðs
frá eilífð til eilífðar, því hans er
viskan og mátturinn.“
(Daníel 2, 20.)
Adam Smith, semstundur er nefndur
faðir hagfræðinnar,
fjallaði um skaðlega sam-
vinnu fyrirtækja í bók
sinni Auðlegð þjóðanna,
sem kom út árið 1776.
„Fólk sem stundar sömu
atvinnugrein fer sjaldan
hvert á annars fund, jafn-
vel sér til skemmtunar og
afþreyingar, svo að sam-
ræður þess endi ekki í
samsæri gegn almenningi
eða einhverju ráðabruggi
um að hækka verð.“
Þeir sem aðhyllast for-
sjárhyggju og eru
vantrúaðir á markaðinn
vitna oft í þessi skrif
Adams Smith til að afla
þeirri skoðun fylgi, að
ríkisvaldinu beri að efla
eftirlit með fyrirtækjum
og einstaklingum sem
keppa á frjálsum mark-
aði. Starfsmenn sam-
keppnisráðs hafa meðal
annars notað þessa til-
vitnun í skýrslu um
stjórnunar- og eigna-
tengsl á Íslandi til að
skjóta styrkari stoðum
undir tilvist samkeppnis-
yfirvalda.
En þar með er ekki öllsagan sögð, enda fá
þeir sem nota tilvitnun í
Adam Smith með þessum
hætti, orð sín fljótt aftur í
hausinn. Ef næsta setn-
ing er látin fylgja með,
sem hentar ekki öllum
sem eru fylgjandi
ströngu aðhaldi ríkis-
valdins, kemur kjarninn í
kenningu hans í ljós:
„Ógerlegt er að koma í
veg fyrir slíka fundi með
neinum lögum sem unnt
væri að framfylgja eða
samrýma frelsi og rétt-
læti. En þótt lögin geti
ekki hindrað fólk úr
sömu grein í því að safn-
ast stundum saman, ættu
þau ekki að auðvelda slík
fundahöld og enn síður
að gera þau nauðsynleg.“
Í nýjasta hefti Vísbend-ingar er þetta rifjað
upp og segir þar að
vandamálið við reglur,
sem eiga að koma í veg
fyrir ólöglegt samráð og
einokun, er að þær gera
oft illt verra. „Í staðinn
fyrir að auka samkeppni
hefta þær framgang við-
skiptalífsins. Þær hvetja
t.d. fyrirtæki til þess að
sameinast, svo þau þurfi
ekki að óttast að vera
ásökuð um ólöglegt sam-
ráð, án þess að samein-
ingin hafi nokkurn
hagkvæmnitilgang eða
koma í veg fyrir samein-
ingar sem raunverulegra
samlegðaráhrifa gætti.“
Það er því vand-meðfarið hvernig
eigi að bregðast við hætt-
unni á skaðlegri sam-
vinnu að mati Vísbend-
ingar. „Besta leiðin er að
reyna að skapa markaðs-
aðstæður þar sem slík
hringamyndun getur
ekki þrifist, t.d. með því
að auðvelda nýjum að-
ilum að koma inn á mark-
aðinn eða með óbeinum
afskiptum ríkisins.“ Í því
samhengi ber að hafa í
huga að aðgangs-
takmarkanir þrífast oft-
ast í skjóli stjórnvalda og
lögverndar.
STAKSTEINAR
Skaðleg
samvinna fyrirtækja
Víkverji skrifar...
SÍÐASTLIÐIÐ mánudagskvöldupp úr klukkan ellefu gekk Vík-
verji meðfram sjónum vestur í bæ
og dáðist að því sem fyrir augu bar.
Sólin var að setjast, litadýrðin var
ólýsanleg og það var stafalogn og
blíða. Það voru örfáar hræður á ferli,
nokkur ástfangin pör og á einum
bekknum meðfram göngustígnum
sátu útlendingar og mynduðu. Á
sandinum í fjöruborðinu hafði svo
maður komið sér fyrir á stólgarmi.
Víkverji er þess fullviss að þessir út-
lendingar sem áttu þess kost að eyða
kvöldstundinni á bekknum í Vestur-
bænum gleyma augnablikinu aldrei.
Hvar annarsstaðar í heiminum geta
þeir inni í miðri borg upplifað slíka
stund, fámennið, kyrrðina, fegurðina
og tærleikann?
x x x
DÓTTIR Víkverja hefur stundumheimsótt gæsluvöll undanfarið
þar sem leikskólinn er í fríi og hún
vill gjarnan fara á róló og hitta ein-
hverja krakka á sínum aldri.
Það er frábært að eiga kost á
þessum möguleika, að barnið geti
farið og leikið sér í nokkra tíma. Vík-
verji las að lögð hefði verið fram til-
laga hjá Leikskólaráði Reykjavíkur
um að leggja af núverandi starfsemi
gæsluvalla borgarinnar á næstu
tveimur árum. Tillagan nær til allra
gæsluvalla í borginni en sem stend-
ur eru tólf gæsluvellir í Reykjavík.
Það verða örugglega mikil viðbrigði
fyrir mörg börn og foreldra þeirra ef
af þessu verður.
x x x
VINUR Víkverja skrapp ágrænmetismarkaðinn í Mosfells-
dal um síðastliðna helgi til að kaupa
glænýtt klettasalat og sýna sig og
sjá aðra. Það var múgur og marg-
menni á markaðnum og verulega
erfitt að fá bílastæði svo hann var við
það að snúa við. Þetta sýnir svo ekki
verður um villst að það er áhugi á
svona grænmetismarkaði. Víkverji
hvetur eigendur þessa markaðar eða
aðra áhugasama til að að bjóða líka
vöru sem ekki er ræktuð hérlendis,
kaupa þegar uppskerutímabil stend-
ur yfir glænýtt grænmeti eða ávexti
og selja. Úvalið myndi endurspegla
uppskerutímabil hverrar tegundar.
Þegar uppskerutími strengjabauna
væri þá gætu viðskiptavinir t.d. gert
góð kaup á slíkri vöru. Markaðurinn
gæti verið opinn um helgar frá því
snemma á vorin og fram á haust.
Víkverji er viss um að það yrði nóg
að gera á svona markaði.
x x x
ÞEGAR Víkverji er á ferð umsveitir í útlöndum veit hann fátt
skemmtilegra en að stoppa við veg-
inn þar sem stendur á skilti að verið
sé að selja heimatilbúna sultu, brauð
eða eitthvað slíkt. Hann veltir fyrir
sér hversvegna ekki sé meira gert af
þessu hérlendis. Getur verið að ekki
megi setja upp slík skilti við veginn?
Morgunblaðið/Ómar
Guðrún, Elías Ýmir og Jökull Máni í
Leikskólanum Sæborgu.
Þakkir fyrir
gott námskeið
MIG LANGAR til að þakka
Fjörheimum og Vinnuskóla
Reykjanesbæjar fyrir frá-
bært námskeið sem dóttir
mín fór á 2–11 júlí sl.
Krökkum sem voru að
klára 7. bekk í Reykja-
nesbæ stóð til boða að fara á
sumarnámskeið í boði ofan-
greindra. Tilgangurinn var
að kakkar úr öðrum hverf-
um myndu kynnast betur.
Krakkarnir mættu kl.10 og
voru til kl 15–17 og höfðu
þau með sér nesti. Nám-
skeiðið samanstóð af eftir-
töldu: Rútuferð til Reykja-
víkur þar sem farið var í
Rauða kross-húsið og þeim
kynnt starfssemi þess, það-
an var farið í fjölskyldu- og
húsdýragarðinn og þar var
þeim boðið upp á grillaðar
pylsur, svo var endað í
Nauthólsvík. Farið var út í
Hafnir á Sæfiskasafnið, það
var farið í hjólreiðaferð til
Sandgerðis og skoðað
Fræðasetrið. Þau skoðuðu
lögreglu- og slökkvistöðina,
farið var í ratleik um allan
bæinn, þrisvar var farið í
sund, og einnig fengu þau
að prófa stomp. Endaði
námskeiðið með ferð í Bláa
lónið og útilegu, þar sem
þeim var boðið upp á grill-
mat og gistu þau í tjöldum í
Sólbrekkuskógi.
Fyrir þetta námskeið var
allur kostnaður aðeins 3.000
kr. Þetta þykir mér frábært
framtak og ættu önnur bæj-
arfélög að taka sér þetta til
fyrirmyndar. Hægt er að
skoða myndir o.fl. á heima-
síðu Fjörheima sem er
www.fjorheimar.is. Dóttir
mín var mjög ánægð með
námskeiðið og þarna eign-
aðist hún nýja vini úr hinum
hverfunum. Takk kærlega
fyrir þetta framtak.
Ánægð móðir.
Offors barna-
verndarnefnda
ÉG, UNDIRRITAÐUR,
tek undir bréfið sem Laufey
sendi Velvakanda og var
birt 26. júlí 2003. Það hefur
nefnilega brunnið við að
barnaverndarnefndir hafi
farið fram með offorsi gagn-
vart einstaklingum, sam-
búðarfólki og hjónum, og oft
er það út af illum tungum.
Ég skrifaði bréf til allra
blaða um viss málefni
barnaverndarnefnda, en
það hefur ekki mátt birta
þau neinsstaðar, virðist því
miður ekki mega hallmæla
þessum nefndum. Það er
nefnilega þannig að fólk
getur sammælst um að
klekkja á náunganum því
miður með hörmulegum af-
leiðingum, hef sjálfur lent í
því að sú aðferð var notuð
gagnvart okkur hjónunum.
En það er ekkert verið að
athuga kærendur, þeir geta
verið með allskonar lygar
og þvætting, eitt af því sem
var notað gagnvart mér var
það ég væri alltaf fullur. En
það var ekkert tekið mark á
því sem við sögðum og ekki
var talað við atvinnurek-
anda og fleiri í kringum
okkur, bara búið að ákveða
málin að svona er þetta og
svona verður þetta. Því mið-
ur þá verður þetta svona
þangað til að gert verður
eitthvað róttækt í þessum
málum, td. samþykkja
Barnasáttmála Sameinuðu
þjóðanna, þar kemur fram
að það skuli hlusta á börnin.
En það er því miður ekki
gert. Kveðja,
Örn Ingólfsson,
Granaskjóli 34,
107 Reykjavík.
Gleraugu í óskilum
GLERAUGU fundust fyrir
framan Drafnarstíg 2, Rán-
argötumegin. Upplýsingar í
síma 552 5337.
Filmubox tapaðist
FILMUBOX með filmu í
tapaðist í síðustu viku. Eig-
anda er það mikið í mun að
endurheimta þessa filmu og
er finnandi vinsamlegast
beðinn að hafa samband í
síma 566 7611.
Jakki tapaðist
LJÓSBRÚNN herrajakki
úr flaueli tapaðist á Celtic
Cross þann 26. júlí sl. Ef
einhver hefur jakkann und-
ir höndum eða veit hvar
hann er niðurkominn, er sá
hinn sami vinsamlegast
beðinn að hafa samband í
síma 699 1896 eða 557 7799.
Dýrahald
Kassavanir kettlingar
fást gefins
ÞRÍR kettlingar fást gefins,
þeir eru kassavanir. Upp-
lýsingar í síma 698 4942.
Flosa er sárt
saknað
FLOSI týndist þann 26. júlí
sl. úr Seláshverfi. Hann er
svartur með hvítan maga og
hvítan depil aftan á aftari
fæti. Hann er háfættur,
grannur, fallegur og gæfur.
Heimilisfang Flosa er Vest-
urás 37. Þeir sem hafa orðið
varir við Flosa vinsamleg-
ast hafi samband í síma
567 0626 eða 868 8053.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Jim Smart
LÁRÉTT
1 spilabunka, 4 harpa, 7
tortímir, 8 ófagurt, 9 skolla,
11 þref, 13 þekkir,
14 fórnargjöf, 15 hranaleg,
17 bjargbúa, 20 heiður, 22
beygir sig, 23 látin af hendi,
24 fýldar, 25 miður.
LÓÐRÉTT
1 persónulegt mat, 2 heið-
ursmerki, 3 hrygluhljóð, 4
íþrótt, 5 hola, 6 að baki,
10 fljót, 12 pikk, 13 knæpa,
15 hirslu, 16 unir við, 18
meðalið, 19 niður, 20 gerir
óðan, 21 beitu.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 ritvillan, 8 lýjan, 9 mygla, 10 dóm, 11 tinna, 13 ann-
ar, 15 skraf, 18 ataði, 21 jag, 22 líkna, 23 aldni, 24 ritlistin.
Lóðrétt: 2 iðjan, 3 vanda, 4 lumma, 5 augun, 6 hlýt, 7 saur,
12 nía, 14 nit, 15 sull, 16 rukki, 17 fjall, 18 agans, 19 Andri,
20 iðin.
Krossgáta