Morgunblaðið - 30.07.2003, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 30.07.2003, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2003 41 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ Frances Drake LJÓN Afmælisbörn dagsins: Þú ert aðlaðandi og átt auð- velt með að heilla aðra. Þú veist hver markmið þín eru og veist sem er að þau eru ekki óraunhæf. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Það væri ekki úr vegi að koma samskiptum þínum við börn í betra horf. Þú þarft einnig að huga að ástinni í þínu lífi. Naut (20. apríl - 20. maí)  Hvað getur þú gert til þess að bæta heimili þitt? Í dag mun svarið við þessari spurningu liggja ljóst fyrir. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Nú er tilvalið að bæta sam- skiptafærni sína. Gerir þú einungis ráð fyrir því að aðrir skilji þig? Þú verður að sýna öryggi í samskiptum. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú þarft að hugsa alvarlega um hvað það er sem í raun skiptir máli í þínu lífi. Ef þú veist hvað skiptir máli þá veistu hvað þú átt að vernda og varðveita. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Staða himintunglanna gerir það að verkum að dagurinn í dag er tilvalinn til þess að bæta framkomu sína. Tími breytinga er runninn upp. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú þarft á tilbreytingu að halda. Forðastu allar venjur hins daglega lífs og gerðu eitthvað óvenjulegt. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Nú er tímabært að huga að því hvers konar vináttu þú býður öðrum. Ert þú góður vinur? Vinátta er mikilvæg og hana ber að taka alvar- lega. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Það er gríðarlega mikilvægt að setja sér markmið. Ekki láta gylliboð og skyndigróða afvegaleiða þig. Þú veist hver þín raunverulegu markmið eru. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú hugsar mikið um trúmál og heimspeki þessa stundina. Þú hugsar eflaust meira um fjarlæg lönd og framandi staði. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú getur ekki forðast það – þarfir annarra munu stang- ast á við þínar. Þetta þýðir það að á einhverjum tíma- punkti verður að gera mála- miðlun. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Vegna þess að vinátta skiptir þig miklu skaltu gera allt sem í þínu valdi stendur til þess að rétta vinum þínum hjálp- arhönd. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Hugsaðu um einn eða tvo hluti sem þú getur gert til þess að bæta heilsu þína. Veldu eitthvað til að byrja á og eitthvað til að hætta. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Í fjalladal Í fjalladal, í fjalladal er fagurt oft á vorin, er grænkar hlíð og glóa blóm og glymur loft af svanahljóm. Í fjallasal, í fjallasal er fagurt oft á vorin. Guðmundur Guðmundsson skólaskáld LJÓÐABROT ÁRNAÐ HEILLA 60 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 30. júlí, verður sextug Dolly Níelsen, Furugrund 56, Kópavogi. Hún og eigin- maður hennar, Pétur Sveinsson, taka á móti vin- um og vandamönnum á heimili sínu á afmælisdag- inn frá kl. 20–23. Blóm og gjafir eru vinsamlega af- þökkuð, en söfnunarbaukur til styrktar Hjúkrunarheim- ilinu Sunnuhlíð verður á staðnum. 80ÁRA afmæli. KristínAxelsdóttir, kirkju- organisti og ferðaþjón- ustubóndi í Grímstungu á Fjöllum, verður áttræð föstudaginn 1. ágúst nk. Kristín verður að heiman á afmælisdaginn, en tekur á móti gestum á heimili sínu í Grímstungu að lokinni guðs- þjónustu í Víðirhólskirkju kl. 16 laugardaginn 2. ágúst nk. HINDRUNARSAGNIR eru daglegt brauð við spila- borðið en oftast ná þær ekki lengra en upp á þriðja eða fjórða þrep. Hér er meira í lagt: Suður gefur; NS á hættu. Norður ♠ ÁG108 ♥ Á93 ♦ Á3 ♣Á852 Suður ♠ KD932 ♥ -- ♦ KD102 ♣7643 Vestur Norður Austur Suður -- -- -- 1 spaði 6 hjörtu ! 6 spaðar Pass Pass Pass Stangarstökk vesturs upp á sjötta þrep ber með sér að hann eigi hjörtu í metravís og því ákveður norður að taka „örugga“ slemmu á hættunni frekar en að dobla í viðskiptaskyni. Vestur kem- ur út með hjartakóng, lítið úr borði og austur hendir tígli. Það var og, vestur hefur byrjað með tílit. Slemman er augljóslega sterk, en spurn- ingin er þessi: Er hægt að tryggja 12 slagi? Tígultían er lykilspilið og svíning fyrir gosann er mjög „heit“, en ekki fullkomlega örugg í öllum tilfellum. Und- ir þann leka má þó setja með blöndu af öfugum blindum og þvingun. Sagnhafi spilar trompi á blindan og stingur hjarta. Tekur svo trompin svo lengi sem hann þarf og dúkkar lauf: Norður ♠ ÁG108 ♥ Á93 ♦ Á3 ♣Á852 Vestur Austur ♠ -- ♠ 7654 ♥ KDG10876542 ♥ -- ♦ G6 ♦ 98754 ♣10 ♣KDG9 Suður ♠ KD932 ♥ -- ♦ KD102 ♣7643 Þetta er hættulega legan þar sem vestur á aðeins eitt svart spil og þar með tvo tígla. Með því að stinga hjarta tvisvar heima hefur sagnhafi tryggt sér sex trompslagi. Hann á fimm örugga til hliðar og fær úr- slitaslaginn sjálfkrafa með upplýsingaþvingun. Í loka- stöðunni verður austur að valda laufið og getur því ekki verið nema á þremur tíglum, sem þýðir að það er óþarfi að svína tíunni. Slemman er því 100%. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson 1. d4 c5 2. d5 e5 3. e4 d6 4. Rc3 Be7 5. Bd3 Bg5 6. Rge2 Bxc1 7. Dxc1 Re7 8. 0–0 0–0 9. f4 exf4 10. Dxf4 Rg6 11. Dg3 De7 12. Rb5 Re5 13. Rf4 Kh8 14. Rh5 Bg4 15. Rf4 a6 16. Rc3 b5 17. h3 Bc8 18. a4 b4 19. Rd1 a5 20. Re3 b3 21. Hae1 bxc2 22. Bxc2 g6 23. Hf2 Rbd7 24. Rg4 Rxg4 25. hxg4 Re5 26. g5 Rg4 27. Hfe2 De5 28. Bd3 Staðan kom upp í A- flokki skákhátíðarinnar í Pardubice í Tékklandi. Veniamin Shty- renkov (2.514) hafði svart gegn Jacob Sylvan (2.275). 28. ...c4! 29. Bb1 hvítur myndi tapa manni eftir 29. Bxc4 Dd4+. 29. ...f6! 30. gxf6 Hxf6 31. Hf1 g5 og hvítur gafst upp enda fátt til varnar eftir 32. Rh5 Dd4+. Margir Íslendingar tóku þátt í mótinu og varð lokastaða þeirra þessi: 52.–103. Stefán Kristjáns- son 5½ vinning af 9 mögu- legum. 104.–148. Jón Viktor Gunnarsson og Bragi Þorfinnsson 5 v. 149.–204. Sigurbjörn Björnsson og Ingvar Jó- hannesson 4½ v. 205.– 262. Dagur Arngrímsson og Sigurður Páll Stein- dórsson 4 v. 263.–289. Guðmundur Kjartansson 3½ v. 290.–323. Jón Árni Halldórsson 3. Tékkneska skákkonan Lenka Ptácn- íková, sem er búsett á Ís- landi, fékk 4½ v. en alls tóku 350 skákmenn þátt í A-flokki. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. KIRKJUSTARF Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10. Léttur Málsverður á eftir. Prestarnir taka við fyrirbænum í síma 530 9700. Hallgrímskirkja. Morgunmessa kl. 8. Hug- leiðing, altarisganga, léttur morgunverður. Háteigskirkja. Bænaguðsþjónusta kl. 11. Súpa og brauð borið fram í Setrinu kl. 12. Kvöldbænir kl. 18. Eldri borgarar. Pútt alla morgna ef veður leyfir frá kl. 10. Félagsvist mánudaga kl. 13, brids miðvikudaga kl. 13. Þátttaka tilkynnist til Þórdísar í síma 511 5405. Laugarneskirkja. Mömmumorgunn kl. 10 undir stjórn Aðalbjargar Helgadóttur. Gönguhópurinn Sólarmegin leggur af stað frá kirkjudyrum kl. 10:30 alla miðviku- dagsmorgna undir stjórn Arnar Sigurgeirs- sonar. Allir velkomnir að slást í hópinn. Neskirkja. Fyrirbænamessa kl. 18. Prest- ur sr. Frank M. Halldórsson. Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúkum. Allir velkomnir. Tekið á móti fyrirbænaefnum í kirkjunni í s. 567 0110. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10–12 ára börn í safnaðarheimilinu Strandbergi, Vonarhöfn frá kl. 17–18.30. Vídalínskirkja. Í sumar verður opið hús á vegum kirkjunnar fyrir eldri borgara í safn- aðarheimilinu Kirkjuhvoli kl. 13–16. Spil- að og spjallað. Þorlákur sér um akstur fyrir þá sem óska. Garðakirkja. Kl. 10–12 Foreldramorgunn. Heitt á könnunni. Foreldrar deila með sér reynslu af barnauppeldinu. Grindavíkurkirkja. Foreldramorgnar alla þriðjudaga kl. 10–12. Borgarneskirkja. Helgistund í kirkjunni kl. 18.30–19. Þorlákskirkja. Fermingarfræðsla í dag kl. 13.40. Landakirkja. Kl. 11. Helgistund á Hraun- búðum. Allir velkomnir. Sr. Þorvaldur Víðisson. Kristniboðssalurinn, Háaleitisbraut 58. Samkoma í kvöld kl. 20. „Það sem ekki má“, Lúk. 6,1–11. Ræðu- maður Skúli Svavarsson. Kaffiveitingar eftir samkomuna. Allir vel- komnir. Krossinn. Almenn samkoma kl.20.30 í Hlíðasmára 5. Allir velkomnir. Kefas. Samverustund unga fólksins kl. 20.30. Lofgjörð, lestur Orðsins, fróðleikur og samvera. Allt ungt fólk velkomið. Morgunblaðið/Ómar Neskirkja Safnaðarstarf 85 ÁRA afmæli. Í dag30. júlí er Kristinn Óskarsson, fyrrverandi lögreglumaður, Hæðar- garði 35 Reykjavík 85 ára. Eiginkona hans er Bjarney Ágústa Jónsdóttir. 80 ÁRA afmæli. Vil-borg Kristófers- dóttir, húsfrú á Læk í Leir- ár- og Melasveit, er áttræð í dag, miðvikudaginn 30. júlí. Hún verður að heiman á af- mælisdaginn og frábiður sér allar gjafir. Súlumót frá formaco ● úr pappa ● einföld og þægileg í notkun ● fæst í mörgum lengdum og breiddum Gylfaflöt 24-30 • 112 Reykjavík Sími 577 2050 • Fax 577 2055 formaco@formaco.is • www.formaco.is Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. - www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30. Hef verið beðinn að leita eftir góðri 3ja herbergja íbúð í Kópavogi, Lindum, Smárum, Hjöllum og víðar. Verðhugmynd 10-14 millj. Allar nánari upplýsingar veitir Bárður Tryggvason, sölustjóri, gsm 896 5221 eða á Valhöll fasteignasölu. 3ja herbergja íbúð óskast í Kópavoginum Afmælisþakkir Hjartans þakkir til allra þeirra, sem glöddu mig á afmæli mínu þann 10. júní sl. Hörpukórnum á Selfossi vil ég þakka fyrir þessa fallegu gjöf sem þau sendu mér. Einnig vil ég þakka Ríkisútvarp- inu fyrir þá miklu virðingu sem það sýndi mér með því að gefa út tvo geisladiska með söng- rödd minni, sem komu út á sjálfan afmælisdag- inn og glöddu mig innilega. Einnig vil ég þakka öllum sem stóðu að því að gefa út þessa diska. Sigurveig Hjaltested, óperusöngkona.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.