Morgunblaðið - 30.07.2003, Page 45

Morgunblaðið - 30.07.2003, Page 45
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2003 45 SKÍÐASAMBAND Íslands hefur gengið frá ráðningu landsliðs- þjálfara í alpagreinum. Nýr lands- liðsþjálfari er James Dunlop, fer- tugur Ástrali sem hefur þjálfað í Evrópu meira og minna síðastliðna tvo áratugi og býr í Danmörku. Hann hefur mikla reynslu, var að- alþjálfari hjá hollenska landsliðinu á síðasta tímabili og árin 2000–2002 var hann þjálfari hjá hollenska kvennalandsliðinu. Auk þess var hann landsliðsþjálfari Ástralíu í eitt ár. Haukur Bjarnason var síðast landsliðsþjálfari í alpagreinum en enginn slíkur starfaði síðasta vetur. Nýr þjálfari skíðalands- liðsins FÓLK  REYNIR Leósson, miðvörður knattspyrnuliðs Skagamanna, missir líklega af leiknum gegn KR á Akranesi í kvöld. Samkvæmt heimasíðu ÍA tognaði Reynir í læri þegar lið hans mætti Grindavík í bikarkeppninni á dögunum.  KNATTSPYRNULIÐ Leifturs/ Dalvíkur hefur séð á bak tveimur leikmönnum sem hafa snúið aftur til fyrri félaga. Helgi Þór Jónas- son er farinn til Þórs, þar sem Jónas Baldursson faðir hans þjálf- ar, og Gunnar Jarl Jónsson er snúinn aftur til Leiknis í Reykja- vík.  ANDRI Steinn Birgisson, sem Fylkir lánaði til 1. deildarliðs Aft- ureldingar í vor, er kominn aftur í raðir Árbæjarliðsins.  ÖSTEIN Rötne, 25 ára gamall norskur framherji, er genginn til liðs við KFS frá Vestmannaeyjum í 2. deildinni í knattspyrnu frá dönsku félagi. KFS er í 8. sæti 2. deildar með 14 stig.  JENS Lehmann, þýski landsliðs- markvörðurinn í knattspyrnu, lék í gær í fyrsta skipti í marki Arsen- al, sem keypti hann frá Dortmund í síðustu viku. Lehmann spilaði fyrri hálfleikinn og átti náðugan dag í 1:0 sigri á Besiktas frá Tyrk- landi en leikið var í Austurríki. Dennis Bergkamp skoraði sigur- mark enska liðsins í byrjun síðari hálfleiks.  RÜSTÜ Recber, tyrkneski markvörðurinn hjá Barcelona, slasaðist á æfingu með liðinu í Bandaríkjunum í gær. Hann togn- aði illa á ökkla og verður frá keppni næstu vikurnar. Tvísýnt er hvort Rüstü, sem Barcelona fékk frá Fenerbache í sumar, verði tilbúinn í slaginn þegar spænska deildakeppnin hefst þann 31. ágúst.  YOURI Djorkaeff, franski leik- maðurinn hjá Bolton, var fluttur á sjúkrahús á Möltu í gær með brák- að kjálkabein þegar lið hans vann Birkirkara, 2:1, á æfingamóti á Miðjarðarhafseynni. Djorkaeff slasaðist þegar hann skoraði sig- urmarkið. ÞÓ svo Tiger Woods og Ernie Else séu í tveimur efstu sæt- unum á heimslistanum dugði það skammt þegar þeir mættu Sergio Garcia og Phil Mickel- son í holukeppni fjögurra efstu kylfinga listans. Garcia og Mic- kelson sigruðu 3-1 eftir að Garcia setti niður langt pútt á 16. braut og kom þeim félögum tvær holur yfir og tvær holur eftir. Sjö holur þar á undan höfðu fallið en Woods og Else lentu þremur holum undir strax í upphafi og áttu því á brattann að sækja. „Það er erf- itt þegar aðeins eru leiknar átján holur að lenda þremur holum undir svona snemma leiks. Við hefðum hins vegar getað gert betur, ég fékk til dæmis þrjú góð tækifæri til að vinna holu á síðari níu hol- unum,“ sagði Woods. Sigurvegararnir fengu 45 milljónir króna hvor og gefa 8 þeirra til góðgerðamála. Tiger og Els fengu hins vegar tæpar 20 milljónir hvor og gefa 4 af þeim til góðgerðarstarfsemi. Woods og Els töpuðu Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100 Opn a Plús fer› a golfm óti› á Str anda velli Hel lu Kynningar á golffer›um haustsins á sta›num og á www.plusferdir.is Sunnudagur 3. ágúst • Punktakeppni me› forgjöf • Karla- og kvennaflokkur • Vegleg ver›laun Skráning í síma 4878208 Morgunblaðið/Arnaldur Atli Jóhannsson úr ÍBV og Sverrir Sverrisson úr Fylki eigast við í leiknum á Fylkisvelli í gærkvöld. Ólafur Páll var ánægður með leiksinna manna enda fór hann á kostum framan af en minna sást af honum eftir hlé. „Við spiluðum mjög vel og það gekk allt upp sem við lögðum upp með svo að ég er mjög ánægður með leikinn. Við ætl- uðum að keyra hratt á þá fyrstu tutt- ugu mínúturnar og láta finna fyrir okkur á heimavelli, því við eigum þennan völl og látum ekkert vaða ofan í okkur hérna. Við ætluðum að skora strax í byrjun og það gekk eftir en svo bökkuðum við eins og gerist alltaf en sóttum svo með skyndisóknum þegar Eyjamenn þurftu að koma framar. Það er ekki alltaf skipulagt að bakka svona aftar en vill til þegar menn skora en þegar kom fram í síðari hálf- leikinn ætluðum við að bíða eftir þeim og það gekk mjög vel eftir auk þess að við skoruðum í lokin,“ bætti Ólafur Páll við en telur að hvergi megi slaka á þó vel gangi nú. Fylkismenn eru í efsta sæti deildarinnar en reynslan ætti að hafa kennt þeim að það dugir ekki til. Skemmst er að minnast þeg- ar þeir misstu af titlinum í fyrra með tapi fyrir KR á lokasprettinum. Þeir hafa unnið alla heimaleiki sína en að- eins einn leik á útivelli. „Við ætluðum okkur að vera í baráttunni á toppnum og það er að ganga eftir en það er nóg eftir af mótinu. Við leggjum því ekki árar í bát, gefum okkur alla í leikina sem eftir eru og ef við spilum svona áfram verður erfitt að stöðva okkur.“ Fúll yfir að við vorum ekki betur á verði í byrjun Magnús Gylfason, þjálfari Vest- mannaeyinga, var ekki eins ánægður enda mátti hann eiga von á miklum sprettum þegar Ólafur Páll, Haukur Ingi Guðnason og Sævar Þór Péturs- son stilltu sér upp í fremstu víglínu Fylkis. „Ég er fúll yfir að við skyldum ekki vera betur á verði í upphafi því við vissum hvað þeir ætluðu sér að gera og mörkin voru eiginlega gjafir til þeirra. Ég var með skipulag þeirra á hreinu, þeir spila alveg eins og þeir gerðu á móti okkur heima – stinga boltanum fram með löngum sending- um úr vörninni og í öðru markinu gef- um við boltann eftir á miðjunni og þeir fara strax á bak við vörnina, því þeir eru snöggir frammi,“ sagði Magnús þjálfari eftir leikinn en hann sagði síðari hálfleik betri hjá sínum mönnum en þar hafi jafnvel mótherj- ar þeirra slakað aðeins á. „Eftir hlé náðum við að hægja á Fylkismönnum en þeir jafnvel slógu aðeins af. Við ætluðum að fara hægar inn í síðari leikinn og síðan freista þess að pressa á þá. Okkur tókst að skapa nokkur færi en ekki að nýta þau.“ Eyjamenn eru enn á róli um miðja deild en það munar aðeins fjórum stigum á þeim og Val, sem er í öðru af fallsætum deildarinnar. „Við erum enn um miðja deild og vonandi verð- um við þar eða ofar. Það er stutt í báða enda og hver einasti leikur er brjáluð barátta. Fylkismenn eru með stemningslið og spila mun betur hér en á útivelli. Hérna gírast þeir allir upp og við áttum ekkert svar við því í fyrri hálfleik,“ sagði þjálfarinn. „ÉG get nú farið að raka mig eftir að hafa safnað skeggi í margar vikur,“ sagði Ólafur Páll Snorrason, sem skoraði sitt fyrsta mark fyrir Fylki í sumar þegar lið hans vann ÍBV, 3:0, í gærkvöld. Ólafur Páll lék sinn 10. deildaleik fyrir félagið og hafði fengið nokkur færin en markið látið bíða eftir sér og drengurinn orðinn loðinn í framan. „Ég var í smá veðmáli við Ólaf Inga Skúlason um að ég mætti ekki raka mig fyrr en ég skoraði. Ég klúðraði víti á móti Fram og fékk ekki að raka mig eftir það og það var víst ekki nóg að fá víti í síðasta leik svo ég varð að skora í þessum. Ég er búinn að safna svo lengi að mig er hætt að klæja undan skegginu en það voru ýmsir farnir að setja út á það og ég varð að fara svona í brúðkaup hjá bróður mín- um.“ Stefán Stefánsson skrifar „Ég get loksins farið að raka mig“ Ólafur Páll Snorrason með sitt fyrsta mark fyrir Fylki

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.