Morgunblaðið - 05.08.2003, Síða 8
FRÉTTIR
8 ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
hefur fengið nýtt og glæsilegt útlit og býðst nú betur búinn en
áður. Öflugar vélar, tölvustýrð spólvörn, þriggja punkta bílbelti
og höfuðpúðar fyrir alla farþega. Flex-7 sætakerfið gerir þér kleift
að breyta bílnum eftir þínu höfði á svipstundu. Zafira er glæsilegur
án þess að slá af öryggiskröfum.
Einstaklega rúmgóðar innréttingar en þó nett útlit gera Opel
Zafira að hinum fullkomna fjölskyldubíl.
Komdu, skoðaðu og prófaðu!
Opel Zafira
7 mann
a
Nýtt útlit – meira öryggi
Nú hefur fjölskyldan enn fleiri ástæður til
þess að fá sér splunkunýjan Opel Zafira.
-Þýskt eðalmerkiSævarhöfða 2a · sími 525 9000 · bilheimar@bilheimar.is · www.bilheimar.is
Ingvar
Helgason
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
0
7
5
7
5
Öflugar vélar í boði:
• 1,8 ltr. 125 hestöfl• 2,0 ltr. dísilvél meðsjálfskiptingu
Þú misskilur mig læknir, mig vantar ekki gleraugu, bara litlinsur, svo það sjáist ekki hvað
ég er agalega bláeygður.
Handverkshátíð á Hrafnagili
Baulaðu nú
Búkolla mín
HIN árlega hand-verkshátíð áHrafnagili í Eyja-
fjarðarsveit verður sett af
Guðna Ágústssyni þann 7.
ágúst næstkomandi. Þema
hátíðarinnar í ár er kýrin
en hátíðin stendur yfir til
10. ágúst. Dögg Árnadóttir
er framkvæmdastjóri há-
tíðarinnar.
Hvaðan kom hugmyndin
að handverkshátíðinni?
Eyjafjarðarsveit ætlar
hátíðinni að vekja athygli á
þeirri ríku handverkshefð
sem áður var til staðar og
að skapa handverksfólki
vettvang til að sýna og
selja vöru sína ásamt því að
standa að fræðslutengdu
handverki.
Hvað verður til sýnis á
hátíðinni?
Sýningar tengdar þema hátíð-
arinnar standa yfir alla helgina.
Meðal annars munu leiðbeinendur
á þeim námskeiðum sem haldin
eru í tengslum við hátíðina sýna
vörur sínar auk þess að vera með
eitthvað verklegt. Í þemabás verð-
ur unnið með kýrhúðir og kálf-
skinn, kýrhorn og bein. Norður-
mjólk verður með sýningu á
nútíma tækjum til mjólkurvinnslu
en Laufáshópurinn verður með
mjólkurvinnslu upp á gamla mát-
ann. Þá getur hver sem vill tekið
þátt í spunakeppninni „Taktu hár
úr hala mínum“. Rokkur verður til
staðar og er viðfangsefnið frjálst
en spunnið verður úr kýrhalahár-
um.
Hvað er á skipulagðri dagskrá
helgarinnar?
Á föstudaginn verður haldin há-
tíðin „Kýr 2003“ sem er nokkurs
konar fegurðarsamkeppni kúa.
Framkvæmdaraðilar þeirrar sýn-
ingar eru Búgarður, ráðgjafar-
þjónusta á Norð-Austurlandi í
samstarfi við Leiðbeiningarmið-
stöðina ehf. á Sauðárkróki, ráðu-
nautaþjónustu Húnaþings og
Stranda, Landssamband kúa-
bænda og aðildafélög þess á Norð-
urlandi. Dómnefnd skipuð dómur-
um sem vit hafa á þessum málum
munu velja fallegustu kúna.
Krakkar munu líka sýna kálfana
sína sem þau hafa tamið. Kepp-
endurnir eru frá Skagafirði, Eyja-
firði og Þingeyjarsýslu. Á föstu-
dag stendur einnig til að halda
svokallað „sveitafitness“ þar sem
bændur og fitnessfólk munu mæt-
ast. Keppnin verður með grínívafi
þó tekið verði á, böggum, lyft og
annað slíkt. Á laugardaginn klukk-
an þrjú verður skemmtidagskrá
þar sem Anna Katrín Guðbrands-
dóttir sigurvegari Söngvakeppni
framhaldsskólanna í ár mun
syngja, auk þess sem fleiri tónlist-
aratriði verða á dagskránni. Að
henni lokinni hefst hópspuna-
keppni þar sem keppt er í hópum
og fær hver hópur ákveðið magn
efnis. Á hann síðan að vinna eitt-
hvað ákveðið úr efninu, í fyrra átti
t.d. að búa til bikiní. Uppskeruhá-
tíð verður haldin á laugardags-
kvöldinu þar sem veitt-
ar verða
viðurkenningar og
verðlaun í spunakeppn-
unum. Að henni lokinni
tekur við skemmtidag-
skrá á vegum Menningarmála-
nefndar Eyjafjarðarsveitar sem
Freyvangsleikhúsið sér um.
Hvað er kálfstak?
Kálfstaki má líkja við það sem
flestir þekkja sem Grettistak.
Hægt verður að reyna krafta sína
með slíku kálfstaki á hátíðinni en
þar verður komið upp nokkrum
misþungum steinum sem ígilda
þyngd nýfædds kálfs upp í sex
mánaða aldur. Gamalt húsráð er
að lyfta sama kálfinum einu sinni á
dag og þá eykst styrkur manns í
samræmi við aukna þyngd kálfs-
ins.
Hvað verður í boði fyrir börnin ?
Sýningin „Börn og handverk
2003“ mun hanga uppi á hátíðinni.
Þar gefur að líta teikningar og
málverk af kúm eftir krakkanna í
leikskólunum hérna á svæðinu.
Einnig verðum við með barnabás
þar sem börnunum gefst tækifæri
á að vinna með íslenskt handverk.
Á sunnudaginn klukkan þrjú verð-
ur barnastund þar sem Saga Jóns-
dóttir leikkona mun lesa söguna af
Búkollu. Einnig verða fimm
heppnir þáttakendur í sýningunni
„Börn og handverk 2003“ dregnir
út í happdrætti.
Hvaða námskeið verða haldin í
tengslum við hátíðina ?
Þar ber helst að nefna námskeið
Theresu Johanson, nýkrýnds
Norðurlandameistara í eldsmíði 5.
og 6. ágúst. Eftir hátíðina, 11. til
13. ágúst verða tvö námskeið. Curt
Bengtson verður með námskeið í
blöndukönnugerð en um hana seg-
ir svo: Blöndukanna var það ílát
sem stóð við útidyr bæja á Íslandi
og svalaði þorsta þeirra sem
þyrstir voru. Þá mun Sigga á
Grund halda námskeið í útskurði á
spæni. Hún hefur haldið sig við
gamlar hefðir í lögun spónanna og
útskurðarmunstra jafn-
vel með fangamörkum
og nafni eigenda líkt og
gert var áður fyrr.
Hvernig hefur að-
sóknin verið?
Hátíðin hefur verið mjög vel
sótt og aðsóknin aukist ár frá ári.
Nú í ár sýna á annað hundrað
manns víðs vegar af á landinu
handverk sitt á sýningunni. Það er
skemmtilegt hvað það hefur skap-
ast mikil hefð fyrir hátíðinni
hérna, öll sveitin tekur þátt og
enginn vill missa af þessu. Gest-
irnir koma víða að og alltaf er eitt-
hvað um erlenda ferðamenn.
Dögg Árnadóttir
Dögg Árnadóttir er fædd á
jóladag 1976, hún ólst upp á
Kirkubæjarklaustri en flutti það-
an til Reykjavíkur og útskrif-
aðist með stúdentspróf frá
Kvennaskólanum í Reykjavík
vorið 1996. Dögg er nú búsett á
Akureyri og er að ljúka námi af
Rekstrar- og viðskiptafræði-
deild, ferðaþjónustubraut, Há-
skólans á Akureyri. Hún hefur
síðastliðin fjögur ár starfað sem
þolfimikennari í World Class,
Akureyri. Dögg er fram-
kvæmdastjóri Handverk 2003 á
Hrafnagili. Sambýlismaður
Daggar er Ásgeir Leifur Hösk-
uldsson.
Kálfatak ekki
ósvipað Grett-
istaki.