Morgunblaðið - 05.08.2003, Side 14

Morgunblaðið - 05.08.2003, Side 14
ERLENT 14 ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ STJÓRNVÖLD í Suður-Afríku hafa verið vöruð við því, að dauðsföllum af völdum alnæmis muni fjölga mik- ið í landinu á næstunni, verði ekki gripið til fáanlegra lyfja í barátt- unni gegn sjúkdómnum. Talið er, að 360.000 manns hafi fallið fyrir honum árið 2001 eða næstum 1.000 manns daglega. Kom þetta fram á alnæmisráðstefnu, sem nú er haldin í Durban í S-Afríku. Voru stjórn- völd í landinu harðlega gagnrýnd fyrir að draga lappirnar í stríðinu við þennan mikla vágest og láta við það sitja að ráðleggja fólki að borða hollan mat eins og hvítlauk og ólífu- olíu. S-afrískir baráttumenn söfn- uðust í gær saman fyrir utan ráð- stefnusalinn í Durban og minntu á það með sínum hætti hvaða afleið- ingar sinnuleysi stjórnvalda hefur fyrir íbúana. Reuters 1.000 manns falla daglega ÍSRAELAR munu ekki draga herlið sitt frá fleiri borgum á Vesturbakkanum fyrr en pal- enstínsk stjórnvöld hafa skorið upp herör gegn herskáum sam- tökum Palestínumanna, sagði varnarmálaráðherra landsins í gær en palestínskir byssumenn skutu á fjóra Ísraela í bíl í Jerúsalem á sunnudagskvöld. Al-Aqsa samtökin kváðust bera ábyrgð á ódæðinu en í árásinni særðust 39 ára gömul kona og dóttir hennar auk tveggja annarra barna. Utan- ríkisráðherra Palestínu, Nabil Shaath, fordæmdi árásirnar en sagði sveitir stjórnar sinnar ekki nægilega sterkar á Vest- urbakkanum til að geta haft hendur í hári byssumannanna. „Hefði þetta gerst í Gaza hefð- um við elt þetta fólk uppi og fangelsað það,“ sagði hann. Árásin á sunnudag var sú fyrsta síðan Ísraelar drógu her- lið sitt frá hluta Gaza-svæðisins og Betlehem í byrjun júlí. Endurskoða byggingu múrs Haft var eftir ísraelskum embættismönnum að stjórnin hygðist endurskoða byggingu girðingar og múrs, sem á að skilja á milli byggða Palestínu- manna og Ísraela, vegna þrýst- ings frá bandarísku og palest- ínsku stjórninni. Múrinn hefur hleypt illu blóði í Palestínu- menn og þykir stefna friðarvið- ræðum í hættu. Ísraelsstjórn birti í gær lista yfir 342 Palest- ínumenn sem hún hefur sam- þykkt að láta lausa þar af 183 sem sitja inni fyrir þátttöku í ofbeldisfullum aðgerðum. Herinn ekki frá Vestur- bakk- anum Jerúsalem. AP. COLIN Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, blæs á sögusagnir um að hann ætli sér ekki að sitja áfram í ríkisstjórn George W. Bush, forseta Banda- ríkjanna, fari svo, að Bush beri sigur úr býtum í kosningunum á næsta ári. Svo hefur verið haft eftir ónafn- greindum heimildamönnum. Washington Post flutti þá frétt, að Powell hefði þegar skýrt Hvíta húsinu frá því að hann ætlaði að hætta en talsmaður utanríkisráðuneytisins, Philip Reeker, vísaði því strax ákveð- ið á bug. Powell sagði sjálfur í útvarpsviðtali í gærkvöldi að frétt Washington Post væri algerlega byggð á slúðri. „Þetta er tóm vitleysa,“ sagði hann um frétt- ina, „Ég veit ekki um hvað þau eru að tala. [...] Ég og forsetinn höfum ekki rætt um neitt annað en að ég haldi áfram í embætti.“ Erfitt og slítandi embætti Aftur á móti var haft eftir heimild- armönnum nánum Powell, að hann ætlaði að sitja út kjörtímabilið en ekki lengur. „Það er ekkert leyndarmál, að hann ætlar ekki að sitja lengur. Hann lagði raunar á það áherslu þegar hann tók við embættinu, að hann ætlaði ekki að vera nema eitt kjörtímabil,“ sagði ónefndur heimildamaður og benti á, að sjaldgæft væri, að menn gegndu þessu erfiða embætti í tvö kjörtímabil. Þá á Powell að hafa lofað eiginkonu sinni að sitja ekki lengur í embætti en fjögur ár. Einnig hefur verið fullyrt að að- stoðarutanríkisráðherrann, Richard Armitage, hafi sagt Condolezzu Rice, öryggismálaráðgjafa Bush að hann og Powell myndu yfirgefa stjórnina hvort sem Bush sigraði eður ei. Pow- ell vísaði þessu á bug í gær og sagði að samtalið hefði aldrei átt sér stað. Segir fréttirnar vera slúður Washington. AFP. Colin Powell Sögusagnir um að Powell vilji hætta ÞING Azerbaíjans staðfesti í gær tilnefningu Ilhams Alievs, sonar Geidars Alievs, í embætti forsætis- ráðherra. Þar með er leiðin greið fyrir Ilham að taka við forsetaemb- ætti af föður sínum en Geidar, sem er áttræður, hefur legið á tyrknesku hersjúkrahúsi í tæpan mánuð. Geidar Aliev hefur lengi átt við vanheilsu að stríða. Hann ætlar samt að bjóða sig fram til endur- kjörs í forsetakosningunum í októ- ber en margir telja að hann sé að undirbúa að afhenda syni sínum völdin. Ilham hefur einnig boðað fram- boð sitt í kosningunum en sagði í sjónvarpsviðtali um helgina að það væri eingöngu í þeim tilgangi að geta aðstoðað föður sinn með áhrifaríkari hætti. Ilham Aliev, sem er 41 árs, hefur orðið stöðugt meira áberandi í Azerbaíjan á undanförnum árum. Hann er aðstoðarforstjóri ríkisolíu- félagsins, formaður ólympíunefndar landsins og varaformaður Yeni Azerbaíjan, stjórnarflokks landsins. Geidar Aliev, sem er fyrrverandi embættismaður í sovésku leyniþjón- ustunni KGB og stjórnaði Azerbaíj- an meðan það var hluti af Sovétríkj- unum, tók við völdum þegar ríkið varð sjálfstætt árið 1993. Honum er þakkað að friðsamlegt er nú í land- inu en þar börðust áður uppreisnar- menn gegn stjórnvöldum og einnig var mikill rígur innan ríkisstjórn- arinnar. Sonur forseta verður forsætisráðherra Baku. AP. LEIÐTOGAR biskupakirkjunnar í Bandaríkjunum frestuðu að greiða atkvæði um hvort Gene Robinson, sem hefur viðurkennt að vera sam- kynhneigður, yrði gerður biskup í New Hampshire en til stóð að greiða atkvæði í gær. Ástæðan var sögð ásakanir um að hann hefði snert mann á ósæmilegan hátt og mælt með klámsíðu á netinu. Á sunnudag hafði fulltrúadeild kirkjunnar, skipuð lærðum og leik- um frá öllum biskupsumdæmum landsins, samþykkt með tveimur þriðju hlutum atkvæða að mæla með Robinson í embættið. Robinson var kjörinn biskup í sínu umdæmi í júní en þess er krafist að meirihluti full- trúa í biskupadeildinni samþykki valið. Mjög sjaldgæft er að biskups- val einstakra sókna sé ekki sam- þykkt. Íhaldssamir meðlimir kirkjunnar hafa brugðist harkalega við og marg- ir hótað að segja sig úr henni verði Robinson biskup. Þannig sagðist Ameríska biskupakirkjuráðið þar sem íhaldssamir prestar og biskupar eiga sæti, „harma innilega“ að niður- staðan hefði orðið þessi og hyggst ráðið kalla saman fund í október þar sem tekin verður ákvörðun um hvort íhaldssamir kljúfi sig úr kirkjunni eða grípi til annarra aðgerða. Vali hans hefur einnig verið mótmælt af trúarleiðtogum um heiminn, sér- staklega í þróunarlöndunum. Alþjóðaráð biskupakirkjunnar segist einnig muni skoða hvort það vilji kljúfa sig frá Amerísku kirkj- unni en um 77 milljónir manna um allan heim tilheyra biskupakirkj- unni. Ef svo verður gætu skapast harðar deilur um eignir og sjóði kirkjunnar. Frjálslyndir segja hins vegar að hótanirnar séu ýktar og minna á að íhaldssamir hafi einnig hótað að kljúfa kirkjuna þegar rætt var hvort leyfa ætti konum að gegna embættum innan hennar. Talaði til andstæðinga sinna Robinson hvatti andstæðinga sína til að segja sig ekki úr kirkjunni en sagðist ekki bera ábyrgð á því ef þeir gerðu svo. „Það sem bindur okkur saman er trúin,“ sagði hann. „Engin málefni eiga að vera mikilvægari en trú okkar á Jesú Krist.“ Valið á Robinson kemur stuttu eft- ir að páfi efndi til herferðar gegn hjónaböndum samkynhneigðra og George Bush Bandaríkjaforseti lét hafa eftir sér að hjónaband samkyn- hneigðra gæti aldrei jafnast á við hjónaband á milli karls og konu. Söguleg atkvæðagreiðsla í Bandarísku biskupakirkjunni Gæti orðið fyrsti sam- kynhneigði biskupinn Íhaldssamir hóta að kljúfa kirkjuna AP Gene Robinson fær hér koss eftir að fulltrúadeildin samþykkti að til- nefna hann sem biskup á sunnudag. Minneapolis. AP.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.