Morgunblaðið - 05.08.2003, Side 23
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 2003 23
✝ Helgi Kristjáns-son sjómaður
fæddist á Húsavík
27. ágúst 1914. Hann
lést aðfaranótt 24.
júlí síðastliðinn á
dvalarheimilinu
Hvammi á Húsavík.
Foreldrar hans voru
hjónin Jóhanna
Númadóttir, hús-
móðir frá Tröllakoti
á Tjörnesi, f. 6. nóv-
ember 1885, d. 23.
desember 1980, og
Kristján Pétursson,
útvegsbóndi frá
Núpum í Aðaldal, f. 9. ágúst 1891,
d. 13. apríl 1951. Systkini Helga
voru Rósa, Aðalbjörg, Númi og
Stefán Pétur sem öll eru látin.
Hinn 4. júní 1938 kvæntist Helgi
Karítas Halldórsdóttur, f. í Trað-
argerði á Húsavík 7. desember
1917, d. 5. september 1993. For-
eldrar Karítasar voru Ingibjörg
Stefánsdóttir húsfreyja, f. 30. jan-
úar 1874, d. 11. mars 1951, og Hall-
dór Sigurjónsson, trésmiður og
þjóð, var ókvænt og barnlaus. 5)
Stefán bifvélavirkjameistari, f. 24.
maí 1951, kvæntur Ásdísi Skarp-
héðinsdóttur, f. 10. febrúar 1954.
Þau eru búsett á Húsavík og eiga
tvö börn og fimm barnabörn. 6)
Númi rafmagnsverkfræðingur, f.
10. maí 1960. Sambýliskona Júlía
Mynster, f. 4. september 1971, en
þau eru búsett í Danmörku. Númi
á eitt barn.
Helgi og Karítas bjuggu lengst
af í Sæbergi á Húsavík. Helgi hóf
sjómennsku um fermingu og
stundaði hana fram undir áttrætt.
Síðustu æviárin dvaldi hann á
dvalarheimilinu Hvammi á Húsa-
vík. Hann var einn af stofnendum
Íþróttafélagsins Völsungs á Húsa-
vík og tók þátt í starfi þess á yngri
árum. Einnig var hann einn af
stofnendum Fiskiðjusamlags
Húsavíkur og sat í stjórn þess um
tíma. Hann tók virkan þátt í stjórn-
málum og sat sem varamaður í
bæjarstjórn Húsavíkur í nokkur
kjörtímabil. Auk þess gegndi hann
ýmsum trúnaðarstörfum, bæði
fyrir Húsavíkurbæ, meðal annars í
hafnarnefnd, og var einnig um
tíma formaður Samvinnufélags út-
gerðar- og sjómanna á Húsavík.
Útför Helga fór fram frá Húsa-
víkurkirkju mánudaginn 28. júlí
síðastliðinn.
múrari á Húsavík, f.
22. desember 1868, d.
30. október 1936.
Börn Helga og Kar-
ítasar eru: 1)Kristján,
starfsmaður ÍSAL, f.
13. desember 1938,
kvæntur Steinunni
Jónasdóttur, f. 10.
ágúst 1941. Þau eru
búsett í Hafnarfirði og
eiga fjögur börn og tíu
barnabörn. 2)Halldór
ballettdansari, f. 26.
júní 1940, d. 5. júní
1987, kvæntist Eddu
Sigurðardóttur, f. 1.
desember 1938, en þau slitu sam-
vistum. Þau eiga saman þrjú börn,
fimm barnabörn og eitt barna-
barnabarn. Halldór var búsettur í
Sviþjóð. 3) Jóhann bifvélavirkja-
meistari, f. 29. apríl 1943, kvæntur
Helgu Þóreyju Jónasdóttur, f. 23.
júlí 1942. Þau eru búsett í Reykja-
vík og eiga sex börn og þrettán
barnabörn. 4) Ingibjörg sjúkraliði,
f. 2. mars 1946, d. 10. febrúar 1987.
Ingibjörg, sem var búsett í Sví-
Hver einstaklingur skilur eftir
minningu sem varir. Þessi einfalda
staðreynd yljar manni við fráfall
viðkomandi persónu. Eðlilega eru
minningarnar æði misjafnar frá ein-
staklingi til einstaklings.
Helgi Kristjánsson er í huga mín-
um ljóslifandi og ég get ekki hugsað
mér frísklegri mann en hann. Það lá
svo augljóslega uppi hvaðan hann
fékk léttleikann og brosið sitt. Móð-
ir hans, Jóhanna Númadóttir, var
ætíð brosmild og hlý, sama á hverju
gekk, og smitaði alla viðstadda með
hlýju sinni. Kristján Pétursson,
einn af hinum frægu Heiðarbótar-
bræðrum, var bæði léttur í lund og
einstaklega viðmótsþýður maður.
Hann var aldrei með hangandi
hendi eða haus, göngulag sérstak-
lega frísklegt og allar hreyfingar lif-
andi.
Þegar þetta er haft í huga má
skilja eiginleika Helga Kristjáns-
sonar. Ég naut þess sem unglingur
að fá að fara á sjó með Kristjáni.
Faðir minn og Kristján reru saman
til fjölda ára. Vinarþel var ætíð á
milli heimilanna. Helgi byrjaði
kornungur að sækja sjóinn og það
varð ævistarf hans. Allmörg ár
gerði hann út báta á Húsavík og var
þá í samstarfi með öðrum. Hann var
formaður á þessum bátum en lengst
af, og þannig muna flestir Helga,
var hann með trillur. Þær báru
nafnið „Kristján“. Á þessum trillum
sótti hann manna mest. Útbúnaður-
inn var miklu einfaldari þá en nú er
og handaflið var „ómetanlegt“. Það
var og er ekki fyrir alla að sækja út
á opið íshafið eins og Helgi gerði.
Hann sótti sjó vestur um allan
Skjálfanda, út fyrir Brekin og djúpt
í Barminn, fór út fyrir Mánáreyjar
og út með hryggnum. Þessir róðrar
voru þrekvirki fyrir 40–50 árum.
Menn verða að hafa í huga að eina
hjálpartækið var áttavitinn. Helgi
var fengsæll og honum farnaðist
vel. Sú minning, sem enn er sem
lýsandi mynd af Helga, er þegar ég
með föður mínum er á leið í Fiski-
pollinn síðla sumars. Þá sjáum við
til hans og rennt er framhjá. Veður
er mjög gott, Skjálfandinn sem
spegill og sól á vesturhimini í heið-
ríkju. Helgi var á nærskyrtunni og
handdró línuna. Tilsýndar sáust
léttar armhreyfingar og verklega
var staðið að drættinum. Afli var
góður, Helgi afgoggaði snögglega
drætti og haldið var áfram af sömu
atorkunni og honum einum var lag-
ið. Faðir minn vakti athygli mína á
snerpunni.
Helgi var ekki aðeins einstakur
sjómaður heldur var hann var um
tíma ókrýndur besti maður Völs-
unga í fótbolta. Kornungur var
hann stofnandi og í stjórn íþrótta-
félagsins. Allir muna hversu Helga
var létt að hoppa hærra en aðrir
gerðu og „skalla“ með stæl. Jafnvel
Stefán bróðir hans, sem var þó
miklu fremri sem alhliða íþrótta-
maður, gat ekki leikið þetta eftir.
Helgi var sívinnandi, alltaf eitt-
hvað að „brasa“, tók menn tali við
höfnina og fylgdist mjög vel með.
Hann bjó á bakkabrúninni á Beina-
bakkanum og flóinn blasti við. Hafið
varð „leikvöllur“ Helga. Nú er þessi
dugnaðarforkur horfinn á önnur
mið. Ég veit að þar mun hann sóma
sér. Það var lífsstíll hans.
Blessuð sé minning Helga Kristj-
ánssonar. Innilegar kveðjur til af-
komendanna.
Jón Árm. Héðinsson.
HELGI
KRISTJÁNSSON
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
KRISTJÁN PÉTUR INGIMUNDARSON
blikksmíðameistari,
Suðurtúni 29,
Bessastaðahreppi,
sem lést laugardaginn 26. júlí síðastliðinn,
verður jarðsunginn frá Digraneskirkju mið-
vikudaginn 6. ágúst kl. 13.30.
Jóhanna Margrét Axelsdóttir,
Sævar Kristjánsson, Sigurbjörg Vilmundardóttir,
Jónína Kristjánsdóttir, Úlfar Albertsson,
Pétur Kristjánsson, Inga Rós Skúladóttir,
Guðmunda Kristjánsdóttir, Sigurður Már Andrésson
og barnabörn.
Konan mín, móðir, amma, langamma og langa-
langamma,
GUÐRÚN ERLENDSDÓTTIR,
Borgarhrauni 4,
Grindavík,
verður jarðsungin frá Grindavíkurkirkju fimmtu-
daginn 7. ágúst kl. 14.00.
Hjalti Jónsson,
Kristín Hjaltadóttir,
Birna Sverrisdóttir,
Björk Sverrisdóttir, Magnús Arthúrsson,
Hjalti Allan Sverrisson, Lísa Ásgeirsdóttir,
Ólöf Viðarsdóttir, Andrés Ottósson,
Laufey Viðarsdóttir,
Kjartan Viðarsson, Björg Guðmundsdóttir,
barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
Okkar ástkæra,
SIGRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
Huldubraut 23,
Kópavogi,
lést þriðjudaginn 29. júlí.
Verður jarðsungin frá Kópavogskirkju þriðju-
daginn 5. ágúst kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á
Hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð (s. 560 4100).
Snorri Karlsson,
Agla Snorradóttir, Friðrik Sigurjónsson,
Sigrún Snorradóttir, Gunnar Ásgeirsson,
Snorri Freyr Ásgeirsson,
Freydís Halla Friðriksdóttir,
Freyja Hrönn Friðriksdóttir.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR KR. GUÐMUNDSSON
fyrrv. verkstjóri frá Hafnarfirði,
Þorláksgeisla 6,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju
miðvikudaginn 6. ágúst kl. 13.30.
Jóhanna Þorbjörnsdóttir,
Dagbjört Guðmundsdóttir, Sigurður Kjartansson,
Lovísa Guðmundsdóttir, Arnþór Bjarnason,
Þorbjörn Guðmundsson, Anna Linda Steinarsdóttir,
Vilborg Guðmundsdóttir, Loftur Jónasson,
barnabörn og langafabörn.
Ástkær bróðir okkar,
ELVAR ÖRN GUNNARSSON,
Frostafold 20,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu í dag,
þriðjudaginn 5. ágúst, kl. 15.00.
Bergþór Gunnarsson,
Margrét Gunnarsdóttir,
Magnús Guðmundsson,
Sjöfn Guðmundsdóttir,
Hellen Kolbrún Condet,
Ólafur Friðrik Baldursson.
Minningarathöfn um elskulega eiginkonu mína,
móður okkar, systur, tengdamóður og ömmu,
ÖNNU SOFFÍU AXELSDÓTTUR GUEST,
Brinkworth,
Englandi,
áður til heimilis á Vesturgötu 61,
Reykjavík,
verður í Kristskirkju í Landakoti við Túngötu-
miðvikudaginn 6. ágúst kl. 18.00.
Roy Arthur William Guest,
Signý Karen de Verenne,
Paul Kristján (Nonni) Guest,
Rögnvaldur Jón Axelsson,
Ólafur Axelsson,
tengdabörn og barnabörn.
Ástkær móðir, tengdamóðir, systir, amma og
langamma,
SIGRÚN ÓLAFSDÓTTIR,
Hrefnugötu 1,
lést á Droplaugarstöðum föstudaginn 1. ágúst.
Útför hennar verður gerð frá Fríkirkjunni í
Reykjavík föstudaginn 8. ágúst kl. 13.30.
Jóhanna Ottesen, Þórir Oddsson,
Vilborg Ólafsdóttir,
Jóhann Ottesen Þórisson,
Oddur Þórisson, Dagbjört Reginsdóttir,
Gunnhildur Sif Oddsdóttir, Þórir Oddsson.
Lundi V/Nýbýlaveg
564 4566 • www.solsteinar.is
Minningarkort
Krabbameinsfélagsins
540 1990
krabb.is/minning