Morgunblaðið - 05.08.2003, Side 28

Morgunblaðið - 05.08.2003, Side 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. AF HVERJU Björn Bjarnason er ráðherra eða yfirleitt nokkuð mikil- vægara en aðstoðaryfirsótari er mér ráðgáta. Þessi maður sem á að vera fulltrúi íslensku þjóðarinnar er á góðri leið með að stefna allri sérstöðu og öllu hlutleysi sem við höfum byggt upp endanlega í glötun með hug- myndum sínum um her á Íslandi. Hann er búinn að bíta það í sig að það sé svo ægilega góð hugmynd að hafa íslenskan her að hann er búinn að út- færa hugmyndina sérstaklega, rúm- lega sjöundi partur Íslendinga verður í hernum samkvæmt hans útfærslu. Frábært, þannig að einn sjöundi Ís- lendinga eyðir tíma í þjálfun í að skjóta á mark og tala á dulmáli. Vel með tíma fólks og peninga farið, Björn, glæsilegt. Fínt að taka bara upp alla þessa leiðindaunglinga og skella þeim í herinn. Þessir fjárans letingjar nenna hvort eð er aldrei að vinna. Góð hugmynd er líka að taka alla þá sem eru til vandræða í þjóð- félaginu, dópistana og rónana (við getum hreinsað upp Hlemm, Kaffi Austurstræti og svona), gefa þeim byssu og henda þeim út á Miðnes- heiði. Þeir verja árinu bara þar, lok- aðir inni í girðingu og bíða eftir að ar- abarnir hrynji í stórum stíl úr lausu lofti. Ég skil ekkert við þessa hugmynd. Ég skil ekki af hverju við erum búin að vera með her á landinu í 50 ár. Hver er ógnin búin að vera öll þessi ár og hvar? Varla fara bévítans komm- arnir að gera árásir lengur, né heldur nasistarnir. Nú er það hryðjuverka- ógnin, Osama bin Laden og allir hinir handklæðahausarnir eiga víst að hafa fengið þá flugu í hausinn að leggja undir sig Ísland, minnst 6.000 kíló- metra í burtu frá heimkynnum sínum. Ég hef líka heyrt að næst komi síðan Noregur og loks aðaltakmarkið: Finnland! Skrítið samt, því að hryðju- verkamenn hafa ekki verið mikið í því að hertaka heil lönd, meira svona í því að sprengja ákveðna staði án nokkurs fyrirvara. Og þeir þurfa víst ekki að vera með sítt, svart skegg, með túrb- an á hausnum, gangandi í kufli. Ætlar heimavarnarliðið þá að dvelja á hverju götuhorni, handtakandi alla þá sem ganga um með grunsamlegar íþróttatöskur? Af hverju efa ég að Björn Bjarnason hafi haft það í huga? Og af hverju í ósköpunum sjá ríku uppasjálfstæðismennirnir sem styðja hugmynd hans ekki að eina vörnin gegn því að fólk úti í heimi vilji sprengja sig í loft upp eða fljúga á Ís- land er ekki sú að sprengja allar flug- vélar sem hegða sér skringilega með fullkomnu loftvarnarkerfi eða að vera fyrri til að sprengja fólkið í loft upp heldur einfaldlega það að koma vel fram við alla íbúa heimsins, vera frið- samir og styðja ekki Bandaríkin. Bandaríkin urðu ekki fyrir árásum af einskærri tilviljun. Þau uppskáru eins og þau sáðu, þrátt fyrir öflugasta her á jörðinni. FINNUR GUÐMUNDSSON Skeiðarvogi 135, Reykjavík. Nokkur vel valin orð Eftir Finn Guðmundsson: UM leið og ég bið Morgunblaðið að skila þakklæti til starfsfólks Þjóð- skjalasafnsins fyrir að sinna margvís- legu kvabbi og leita staðreynda í gömlum skjölum leyfi ég mér að benda á það sem betur mætti fara í rekstri stofnunarinnar. Flestar opin- berar stofnanir hafa um langt skeið birt í dagblöðum upplýsingar um af- greiðslutíma sinn, sem nú er víða nefndur opnunartími (fengið að láni úr ensku: opening hours). Þjóðskjala- safnið var meðal þessara stofnana. Allmörg ár eru liðin síðan Þjóðskjala- safnið dró sig í hlé og hvarf í tómið. Fór með það eins og ríkisleyndarmál hvar það hefði aðsetur og hvenær dyrum þess væri slegið á gátt. Auk þess að hverfa frá því að birta vitn- eskju um aðsetur og afgreiðslutíma tók það upp þann ósið að selja sér sjálfdæmi og loka safninu í sumar- leyfum starfsmanna. Mun Þjóðskjala- safn Íslands að öllum líkindum hið eina safn sinnar tegundar í veröldinni, sem lokar vikum saman vegna sum- arleyfa og sviptir fjölda safngesta að- gangi að heimildum. Þetta gengur þvert á þá stefnu stjórnvalda sem segjast vilja greiða götu þeirra sem fræðast vilja um ættir sínar og for- feður. Vestur-Íslendingar eru hvattir til þess að leita ættartengsla og tengj- ast tryggðaböndum. „Lok, lok og læs“ mætir þeim við inngöngudyr fornra fræða. Ég hringdi í síma danska Þjóð- skjalasafnsins „Rigsarkivet“. Þar greindi símastúlkan frá afgreiðslu- tíma safnsins. Þar eru flestar deildir opnar eins og á öðrum tímum árs. Lestrarsalur „Landsarkivet“ þó lok- aður á laugardögum. Væri ekki rétt að veita ungmennum sem eigra at- vinnulaus um stræti borgarinnar starf á safninu meðan starfsfólkið er í sumarleyfi? Þau hljóta mörg hver að leggja stund á íslensk fræði í námi sínu. Kirkjumálaráðherrann, sem nú brýnir busa og vill efna til hnífakaupa og byssustingja handa íslenskum ungmennum og ráða Breddubeiti og Makka hníf til þess að verja föður- landið ætti að sjá sóma sinn í því að hlutast til um það að lögreglan verndi vegfarendur Hafnarstrætis fyrir vopnuðum ungmennum sem gegna herþjónustu hér og hundleiðist í hundsrassi og grípa til dúkahnífa eins og talibanar al-Qaeda. Hvers vegna fengu Magnús Leo- poldsson og Einar Bollason ekki sam- bærilega gæslu og vesalings dreng- urinn, sem réði ekki við skap sitt? Kanna þarf hans vegna hvort hér var um fjandskap í garð piltsins að ræða. PÉTUR PÉTURSSON, þulur. Skjalasöfn, herþotur og hnífstungur Frá Pétri Péturssyni:

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.