Morgunblaðið - 05.08.2003, Síða 36

Morgunblaðið - 05.08.2003, Síða 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ Fyndnasta Woody Allen myndin til þessa. Sjáið hvernig meistarinn leikstýrir stórmynd frá Hollywood blindandi. Sýnd kl. 5.50 og 10.. B i. 12 JOHN TRAVOLTA OG SAMUEL JACKSON I FYRSTA SINN SAMAN SIÐAN PULP FICTION Í ÞESSARI MÖGNUÐU SPENNUMYND. Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. Með ísl taliSýnd kl. 6, 8 og 10. B i. 16. Sýnd kl. 6. Ensk. texti with english subtitles Sýnd kl. 8. Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 12ára ÁLFABAKKI Sýnd kl. 5.45, 8.30 og 10.10. B.i.12 ára. „Líklegast best heppnasta ofurhetjumynd allra tíma! Sá græni rokkar.“ B.Ö.S. Fréttablaðið í l j ll í ! i . . . . l i  GH KVIKMYNDIR.COM "Besta hasarmynd sumarsins það sem af er" t r r i f r"  SG. DV  SG. DVÓ.H.T Rás2 ÁLFABAKKI Sýnd kl. 10.10. B.i. 12. KEFLAVÍK Sýnd kl. 10. b.I. 14 ára. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8. b.I. 12 ára. KRINGLAN Sýnd kl. 10. Sýnd kl. 8. Sýnd kl. 4. Sýnd kl. 4. KRINGLAN KRINGLAN ÁLFABAKKI VÁKORT Eftirlýst kort nr. 4741-5200-0002-4854 4507-4300-0029-4578 Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið ofangreind kort úr umferð og sendið VISA Íslandi sundurklippt. VERÐLAUN kr. 5000 VISA ÍSLAND Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Sími 525 2000. ÞEGAR MENN taka sig til og byrja að telja upp helstu reggískífur sög- unnar eru flestir sammála um höfuð- skífur eins og Natty Dread með Bob Marley og Wailers, Marcus Garvey með Burning Spear, Funky Kingston með Toots and the Maytals, Two Sevens Clash með Culture, Satta Massgana með Abyssinians, Blackheart Man með Bunny Livingstone, War Ina Bab- ylon með Max Romeo og svo fram- vegis. Nú er ekki ætlunin að efna til illdeilna, enda ræður smekkur eðli- lega mestu um slíkt val, heldur vildi ég bara tína til eina skífu sem vill gleymast þótt hún sé með bestu skíf- um sem komu út á Jamaica á átt- unda áratugnum og helsta verk þess mikla meistara Rainford Hugh Perry sem jafnan er kallaður Lee „Scratch“ Perry. Platan heitir Heart of the Congos og flytjendurnir köll- uðu sig einmitt Congos, félagarnir Cedric Myton og Roydel Johnson. Úr rocksteady í reggí Cedric Myton er fæddur í St. Catherine á Jamaica, en ólst upp í Kingston. Þar stofnaði hann söng- flokkinn Tartans með Devon Rus- sell, Prince Lincoln Thompson og Lindbergh Lewis. Þeir sungu rock- steady og nutu talsverðrar hylli und- ir lok sjöunda áratugar síðustu ald- ar. Þegar reggí leysti rocksteady af hólmi leystist sveitin upp. Myton tók upp með Russell og síðan með Lin- coln undir nafninu Royal Rasses. Á þeim tíma var hann kominn á kaf í rastafaritrú og vildi snúa sér alfarið að trúarsöngvum og sálmum. Um líkt leyti kynntist hann Roydel John- son sem var sama sinnis og þeir tóku að syngja saman undir nafninu Con- gos. Roydel Johnson fékkst við tónlist frá barnsaldri enda foreldrarnir tón- listarfólk. Hann var meðal annars í söngflokki Ras Michaels, Synir keis- arans (Sons Of Negus) og því á réttri bylgjulengd þegar fundum hans og Mytons bar saman. Fastur aðstoðar- maður þeirra félaga var síðan Watty „King“ Burnett sem söng bakraddir, en varð aldrei eiginlegur meðlimur. Áhrifamikill furðufugl Lee Perry þarf varla að kynna fyrir tónlistarvinum, enda hafa fáir upptökustjórar verið eins áhrifa- miklir í rokksögunni. Hann byrjaði sem upptökumaður hjá Clement „Sir Cosxone“ Dodd en fór síðan að vinna sem lausamaður. Perry var naskur á listamenn, uppgötvaði meðal annars Toots and the Maytals og starfaði með söngsveitinni The Wailers þar sem Bob Marley var fremstur meðal jafningja. Til að njóta sjálfur ávaxt- anna stofnaði hann útgáfu sem hann kallaði Uppsetter Records, en varð eftir sem áður að treysta á hljóðver annarra. Það kallaði á ýmsar tilfær- ingar til að fá inni með upptökur og þýddi líka að talsverður hluti af inn- komunni rann til annarra. Þegar við bættist að Perry fékk lítið svigrúm til tilrauna í hljóðtækni ákvað hann á endanum að setja saman eigin hljóð- ver þar sem hann gat krukkað í tæk- in að vild. Tuttugu rásir utan úr geimnum Hljóðverið kallaði hann Svörtu örkina, Black Ark, og treysti á ein- faldan búnað, fjögurra rása Teac upptökutæki, Soundcraft hljóðborð og Echoplex delay, en allt var hljóð- blandað niður á tveggja rása band. Sú vinnuaðferð átti reyndar sinn þátt í að skapa sérstakan hljóðvers- hljóm, en Perry var einnig sífellt að reyna nýja hluti; eins og hann lýsti því sjálfur hafði hann vissulega bara fjórar rásir í segulbandinu, en hann hafi numið tuttugu rása útsetningar utan úr geimnum. Perry þótti ævinlega sérlundaður og ekki bætti úr skák að hann reykti gríðarlega mikið af hassi og drakk romm eins og vatn. Sú neysla ýtti svo undir vænisýki hans og endaði með því að hann kveikti í hljóðverinu sem honum fannst vera baggi á sér. Perry á hátindinum Þegar þeir Congos-menn voru að leita að upptökustjóra var Perry þó á hátindi ferils síns, enn nokkur ár í að hann kveikti í öllu saman, og því kom enginn annar til greina, enda Perry ekki bara skólafélagi Johnsons, heldur var Svarta örkin annað helsta hljóðver Jamaica. Perry kallaði til einvalalið; Med- itations, Chris Isaacs og Heptones sáu um bakraddir (þvílík söngsveit), Boris Gardiner og Geoffrey Chung léku á bassa, Sly Dunbar á trommur, Ernest Ranglin á gítar, Lee Scratch Perry og Uziah Sticky Thompson á slagverk og Winston Wright á orgel svo fáeinir séu nefndir. Nánast fullkomin skífa Eins og fyrr er getið átti Perry í talsverðum erfiðleikum undir það síðasta, áður en hann brenndi Black Ark hljóðverið, en þegar Congos- skífan var tekin upp var allt í himna- lagi, hljómurinn ótrúlega góður og öll tæki í lagi. Fyrir vikið varð til nánast fullkomin skífa, þrungin trúarhita og sannfæringu – hljóð- færaleikur allur fyrsta flokks og þeir Myton og Johnson syngja eins og þeir ættu lífið að leysa. Island-útgáfan breska, sem Chris Blackwell stýrði annars af mikilli smekkvísi, hafnaði skífunni fyrir ein- hverjar sakir, og á endanum gaf Perry plötuna út sjálfur á Black Ark-merki sínu. Nokkru síðar kom út önnur útgáfa á vegum Congos- félaga sjálfra og fleiri útgáfur hafa komið út síðar (ég á fleiri en eina, flestar með hörmulegum hljóm). Það var því mikið gleðiefni þegar Blood and Fire-útgáfan tók að sér að gefa út plötuna aftur og ekki bara það sem á skífunni var á sínum tíma heldur einnig nýsilegt aukaefni, söngparta sem ekki höfðu heyrst áð- ur, lengri útgáfur laga sem komu að- eins út á 12" á sínum tíma og svo má telja. Besta við allt saman er þó að hljómur á skífunni hefur verið end- urbættur til muna, leitað í frum- eintök þar sem þau hafa verið tiltæk eða tekið af vínilplötum þegar engin önnur eintök hafa fundist. (Ekki þarf að fara mörgum orðum um hljóminn á skífum Blood and Fire, menn beri til að mynda saman útgáfu Blood and Fire á lagasafni Gregory Isaacs, Mr. Isaacs, við aðrar útgáfur sem eru margar til.) Heart of the Congos er væntan- lega hægt að fá í nokkrum plötubúð- um hér á landi, en að minnsta kosti í 12 tónum á Skólavörðustíg sem flytja inn Blood and Fire-skífur. Nánast fullkomin skífa Í upptalningu á bestu reggískífum sögunnar telur Árni Matthíasson að mönnum hætti til að gleyma meistaraverki Congos og Lee Scratch Perrys, Heart of the Congos. Congos: Cedric Myton og Roydel „Ashanti“ Johnson. Sakleysi / Innocence Fyrst og fremst fyrir fólk sem er farið að velta fyrir sér lífsgátunni miklu en höfðar í raunsæi sínu og vitrænni umfjöllun um mannlífsins flókna eðli til allra aldurshópa. Leikin, skrifuð og gerð langt yfir meðallagi. (S.V.) Handan sólar / Abril Despedaç- ado/ Behind the Sun Þessi hæggenga en einkar ljóðræna mynd tekur verulega á áhorfand- ann, er glæsilega úr garði gerð, kröftug, sjóðheit og ögrandi. Alls ekki auðveld á að horfa en af- skaplega gefandi. (S.G.) Talaðu við hana / Habla con ella Frábær leikur og yndislegt meló- drama í mjög sérstakri ástarsögu Almodóvars. (H.L.) Litíl leyndarmál / Little Secrets  Fínasta fjölskyldumynd, bæði upp- byggjandi og skemmtileg, sem hef- ur að geyma þann boðskap að leyndarmál leiði sjaldan gott af sér. (S.G.) Bagdad í beinni / Live from Baghdad Trúverðug og óvenju fagmannleg mynd sem gerist í Persaflóastríð- inu 1990 og fjallar um álagið á fréttamönnum sem voru í borginni. Góður leikur gerir myndina með eftirminnilegri myndum af þessum toga. (S.V.) Hringurinn / Ringu Japanska frumútgáfan af Hringn- um er einfaldlega frábær hroll- vekja. Leigðu hana – ef þú þorir! (S.G.) Sólskinsríkið / Sunshine State  John Sayles er með vandaðri kvik- myndagerðarmönnum sem um get- ur í dag og það sýnir hann með þessari síðustu mynd sinni. Ekkert meistaraverk en samt betra en flest annað á leigunni í dag. (S.G.) Hundalíf 2: Depill í Lundúnum / 101 Dalmatians II  Dásamleg Disney-teiknimynd, sem búið er að sannreyna að gagntekur yngstu áhorfendurna. Er það ekki líka tilgangurinn? (S.G.) GÓÐ MYNDBÖND Heiða Jóhannsdóttir/Skarphéðinn Guðmundsson/Sæbjörn Valdimarsson  Meistaraverk  Ómissandi Miðjumoð  Tímasóun 0 Botninn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.