Morgunblaðið - 11.08.2003, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 MÁNUDAGUR 11. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Heimsferðir bjóða nú síðustu
sætin til Mallorca þann 25. ágúst
á einstökum kjörum. Þú bókar
núna og 3 dögum fyrir brottför
tilkynnum við þér hvað þú gistir.
Hér nýtur þú sumarsins til hins
ítrasta við frábæran aðbúnað í
sólinni og að sjálfsögðu þjónustu
fararstjóra Heimsferða allan
tímann.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Stökktu til
Mallorca
25. ágúst
frá kr. 29.962
Verð kr. 29.962
M.v. hjón með 2 börn, vikuferð.
Stökktutilboð, flug, gisting, skattar.
25. ágúst. Almennt verð kr. 31.460.
Síðustu sætin
Verð kr. 45.950
M.v. 2 í íbúð, vikuferð.
Stökktutilboð, flug, gisting, skattar.
25. ágúst. Almennt verð kr. 48.250.
Ferðir til og frá flugvelli, kr. 1.800.
FLUGMÓDELFÉLAG Akureyrar
hélt síðastliðinn laugardaginn sína
árlegu flugkomu á Melgerðismelum
í Eyjafirði. Flugkoma þessi hefur
verið haldin svo til árlega síðan
1981, en þessi sýning er stærsta flug-
módelsýning sem haldin hefur verið
á landinu, bæði hvað varðar fjölda
módela sem voru til sýnis og einnig
stærð þeirra. Voru 74 keppendur
skráðir til leiks.
Einnig komu tveir Bretar, en þeir
voru samtals með tíu módel með sér
og var annar þeirra, Steve Holland,
heiðursgestur mótsins. Hann er
frægur módelflugmaður í sínu
heimalandi og þá sérstaklega fyrir
það hversu stór módel hans eru. Með
Steve kom vinur hans, Richard
Rawle.
Björn Sigmundsson, formaður
Flugmódelfélags Akureyrar, sagði
við Morgunblaðið að það hefði verið
frábært að fá Bretana hingað til að
sýna listir sínar.
1.200 til 1.500 gestir
„Við erum búnir að halda módel-
sýningu á Akureyri í 21 skipti og
hún hefur jafnframt verið stærsta
sýning á landinu. Það var einn Reyk-
víkingur, sem er áhangandi okkar,
erlendis á sýningu í fyrra og hitti
Steve Holland. Hann sagði þeim frá
mótinu okkar og Steve ákvað á
staðnum að mæta. Við tókum nú
ekki mikið mark á því í byrjun, en
niðurstaðan varð sú að hann mætti
og tók jafnframt vin sinn með sér.
Þeir eru á sérútbúnum bílum, enda
koma þeir með 10 módel með sér. Að
sjá þá fljúga var alveg ótrúlegt og
hreint með ólíkindum hvað þeir geta
látið vélarnar gera. Yfirleitt hafa
verið að koma á bilinu 150 til 200 á
sýningar hjá okkur, en nú mættu á
milli 1.200 til 1.500 sem er alveg frá-
bært,“ sagði Björn.
Steve Holland sagði við Morgun-
blaðið að sér litist mjög vel á aðstæð-
urnar sem í boði eru hér á landi. „Ég
ferðast um heiminn á milli sýning-
arsvæða og sýni vélarnar mínar og
sé aðrar. Um næstu helgi verðum við
í Reykjavík á flughátíð á Reykjavík-
urflugvelli,“ sagði Steve.
„Þristurinn“ á Akureyri
Flugvél Landgræðslunnar, Páll
Sveinsson eða „Þristurinn“ eins og
hún er oft nefnd, kom til Akureyrar í
gær. Vélin verður einnig til sýnis á
Akureyrarflugvelli í dag, mánudag,
á milli kl. 14 og 19:30, en flugsafnið
verður jafnframt opið á sama tíma.
Fjöldi manns hafði lagt leið sína inn
á flugvöll til að skoða gripinn og
margir nýttu tækifærið og fengu að
setjast í flugklefann.
Flugvélin er nú á hringferð um
landið, en það er liður í flughátíð
sem verður haldin í Reykjavík næst-
komandi laugardag. Þar verður ein-
mitt þess minnst að flugvélin sem er
af gerðinni Douglas C-47A verður
sextug á þessu ári.
Fjöldi manna skoðaði Pál Sveinsson þegar hún var sýnd á Akureyri og margir fóru líka í flugstjórnarklefann.
Stórar og
litlar flug-
vélar í
Eyjafirði
Morgunblaðið/Ásgrímur Örn
Steve Holland er hér með stærsta módelið sem flogið var á sýningunni og
jafnframt það stærsta sem hefur flogið á Íslandi.
STEFÁN Jón Hafstein borgar-
fulltrúi telur að Tómas Ingi Olrich
menntamálaráðherra sé á villigötum
þegar hann heldur því fram að
Reykjavíkurborg hafi ekki lagastoð
fyrir því að neita að greiða fyrir tón-
listarnám þeirra nemenda sem hafa
heimilisfesti utan Reykjavíkur. „Við
höfum baktryggt okkur lagalega með
áliti borgarlögmanns um ákvörðun
okkar um að hætta að greiða með
nemendum utan Reykjavíkur í tón-
listarskóla. Það liggur skýrt fyrir af
hálfu borgarlögmanns að til þess hef-
ur borgin fullan lagalegan rétt. Í
sama streng tekur Samband ís-
lenskra sveitarfélaga,“ segir Stefán
Jón.
Sveitarfélög hafa náð
samkomulagi um grunnnám
Tómas Ingi heldur því fram í
Morgunblaðinu á laugardag að sann-
girnisrök liggi fyrir því að sveitar-
félögin skipti með sér kostnaði við
tónlistarnámið. Stefán Jón segir að
nú þegar hafi sveitarfélögin komist
að samkomulagi um þetta atriði og að
engin lagalegur ágreiningur sé um
úrlausn þess. „Ég hef orðið var við að
þetta mæti miklum skilningi. Hvers
vegna ættum við að borga fyrir börn
úr Kópavogi á meðan börn úr Graf-
arvogi eru á biðlista? Menn hafa
skilning á þessu,“ segir hann.
Fundur um stöðu
framhaldsmenntunar
Í dag eiga fulltrúar sveitarfélaga
fund með fulltrúum menntamála-
ráðuneytis þar sem farið verður yfir
kröfur sveitarfélaga um að ríkið taki
að sér að standa straum af fram-
haldsnámi í tónlist. „Það má alveg
túlka núgildandi lög um tónlistarnám
í landinu þannig að framhaldsnám í
tónlist sé á höndum sveitarfélaganna.
En það skyldar ekki Reykjavík til að
sjá um það fyrir alla. Þess vegna eru
að hefjast viðræður milli sveitarfé-
laga og menntamálaráðuneytisins á
morgun [í dag],“ segir Stefán Jón.
Staða æðra tónlistarnáms
hefur breyst
Hann segir eindregna ósk hafa
komið fram frá tónlistarkennurum og
sveitarstjórnum um að ríkið axli
ábyrgð á framhaldsmenntun í tónlist.
Hann segir að frá því samið var um
það árið 1989 að sveitarfélögin tækju
þennan málaflokk yfir hafi orðið
miklar breytingar á stöðu æðra tón-
listarnáms, m.a. hafi staða þess innan
framhaldsskólanna breyst. Í ljósi
þessa telur hann að eðlilegt sé að far-
ið sé yfir þessi mál að nýju. Hann seg-
ir að meðal þess sem ræða þurfi sé
tekjuskipting ríkis og sveitarfélaga,
enda hafi samningar um tekjuskipt-
ingu grundvallast á því að sveitar-
félögin bæru þennan kostnað.
Nefnd um stöðu framhaldsnáms í tónlist hittist í dag
Sátt um greiðslu
fyrir grunnnám
Á SJÖTTA hundrað manns hefur
ritað nafn sitt á undirskriftalista þar
sem skorað er á borgaryfirvöld að
hætta við lokun gæsluvallarins við
Frostaskjól í Vesturbæ Reykjavík-
ur. Mikil andstaða er meðal foreldra
í hverfinu gegn fyrirhugaðri lokun
vallarins sem er sá eini sem er eftir í
Vesturbæ. Þorsteinn Siglaugsson,
íbúi í hverfinu, segir að stefnt sé að
því að safna 1.000 undirskriftum áð-
ur en listarnir verða afhentir borg-
aryfirvöldum síðar í vikunni.
Meiri eftirspurn en
gert var ráð fyrir
Á föstudag samþykkti hverfisráð
Vesturbæjar einróma tillögu borg-
arfulltrúa D-lista um að hvetja leik-
skólaráð til að endurskoða þá
ákvörðun ráðsins að loka vellinum
frá og með 15. ágúst nk. Telur
hverfisráðið nauðsynlegt að Vest-
urbæingar eigi áfram kost á þeirri
þjónustu sem felst í starfsemi
gæsluvallar í hverfinu.
Borgarráð hafði hins vegar áður
greitt atkvæði með því að hætta
rekstri gæsluvalla í núverandi
mynd.
Árni Þór Sigurðsson, forseti
borgarstjórnar og formaður hverf-
isráðs Vesturbæjar, segir að komið
hafi í ljós að eftirspurnin eftir þjón-
ustu gæsluvalla í Vesturbæ sé meiri
en menn gerðu sér grein fyrir. „Mér
finnst fyrst og fremst í ljósi þess að
menn eru að leggja fram undir-
skriftarlista að það eigi að fara yfir
málið á nýjan leik og við höfum
hvatt leikskólaráð til að gera það,“
segir hann.
Gæsluvöllum fækkað
úr 10 í 5 haustið 2004
Tólf gæsluvellir voru í Reykjavík í
vor en gert er ráð fyrir að tíu vellir
verði starfandi fram á haustið 2004
þegar þeim verður fækkað niður í
fimm. Árið 1990 voru 27 starfandi
gæsluvellir í Reykjavík. Á sama
tíma hefur heimsóknum fækkað um
nær 100 þúsund með auknu fram-
boði af leikskólaplássum. Heimsókn-
ir á gæsluvelli voru 163 þúsund árið
1990 en 63.500 árið 2002.
Samkvæmt hverfaskiptingu borg-
arinnar þyrftu a.m.k. átta gæsluvell-
ir að vera starfræktir í borginni til
að einn gæsluvöllur væri í hverju
hverfa borgarinnar. Þess má geta að
kostnaður borgarinnar vegna rekst-
urs gæsluleikvalla á síðasta ári nam
rúmum 76 milljónum króna eða lið-
lega 1.200 krónum á hverja heim-
sókn.
Mikil óánægja
með lokun
gæsluvallar
Hverfisráð hvetur leikskólaráð
til að fara yfir málið á nýjan leik
ÖKUFERÐ manns, sem grunaður
er um ölvunarakstur á stolnum bíl,
lauk í fjöru í botni Eyjafjarðar í gær-
morgun eftir bíltúr um sveitir innst í
firðinum.
Lögregla kom að manninum um
klukkan 5:15 þar sem hann hafði ekið
þvert yfir hringveginn er hann kom
inn á hann austan við Leirubrúna af
Eyjafjarðarbraut eystri og niður í
fjöru. Manninn sakaði ekki og bíllinn
er ekki talinn hafa skemmst en hann
hélst á réttum kili allan tímann uns
hann staðnæmdist úti í sjó.
Maðurinn er talinn hafa tekið bíl-
inn ófrjálsri hendi á Akureyri í fyrri-
nótt. Auk hans var annar maður
stöðvaður við almennt umferðareft-
irlit í bænum upp úr klukkan eitt í
nótt. Grunur féll á hann og tekið var
úr honum blóð til rannsóknar vegna
meints ölvunarakstursbrots.
Ók ölvaður á
stolnum bíl
niður í fjöru
BÍLL valt í Kollafirði á Ströndum
eftir hádegi á laugardag. Slysið bar
þannig til að ökumaður missti bílinn
út í lausamöl með þeim afleiðingum
að hann valt, að sögn lögreglunnar á
Hólmavík. Engin meiðsl urðu á þeim
þremur farþegum sem voru í bílnum,
en þeir voru allir með bílbelti og talið
er að það hafi forðað þeim frá
meiðslum. Bifreiðin er hins vegar
gjörónýt.
Bílvelta
í Kollafirði
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦