Morgunblaðið - 11.08.2003, Blaðsíða 7
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. ÁGÚST 2003 7
ÓHÆTT er að segja að mikið sé um skordýr á
Suðurlandi og veldur því vafalaust það fágæta
tíðarfar sem verið hefur í vor og sumar. Jó-
hannes Þór Ólafsson, framkvæmdastjóri hjá
Meindýravörnum Suðurlands ehf., telur að
aldrei hafi verið meira um hverskonar skordýr
og flugur.
„Geitungar bárust hingað á Suðurland fyrir
8 til 9 árum og er ekki annað að sjá en að sú
plága sé að aukast. Annarsvegar er um að
ræða trjágeitunga sem gera sér bú í trjám eða
þakskeggjum húsa. Geta sum búin orðið nærri
eins stór og fótbolti. Þá er einnig um að ræða
holugeitung sem gerir sér holu í jörðinni. Nú
síðsumars eru geitungarnir í búunum orðnir
mjög margir. Þá verða þeir árásargjarnari
þegar líður á sumarið ef komið er nærri búun-
um. Stungur þeirra eru sársaukafullar og jafn-
vel hættulegar,“ segir hann.
Jóhannes Þór bendir á að nú sé afar mikið af
húsflugu og köngulóin þrífist sem aldrei fyrr
enda hafi tíðarfarið verið eitt það hagstæðasta
sem menn muna.
Hann rekur meindýravöruverslun á Selfossi
og selur eingöngu vörur til meindýravarna, en
hann er eini meindýraeyðirinn á landinu sem
hefur opinbert sölu- og afhendingarleyfi á eit-
urefnum fyrir skordýr og meindýr.
Mikill skordýrafar-
aldur á Suðurlandi
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Jóhannes Þór Ólafsson með geitungabú en á veggnum má sjá þverskurð af geitungabúi.
ÁNÆGJA var meðal foreldra
í Árbæ með forvarnarnám-
skeiðið unglingur í vændum
sem haldið var í byrjun sum-
ars. Þar fengu foreldrar tólf
ára barna fræðslu um þroska-
breytingar barna á unglings-
árunum og hvernig breytt
þjóðfélag hefur áhrif á uppeld-
isskilyrði unglingsins. Einnig
var rætt samband foreldra og
barna á unglingsárunum þeg-
ar ábyrgð og frelsi færist í
auknum mæli í hendur barns-
ins um leið og það þroskast í
sjálfstæðan einstakling.
Margrét Héðinsdóttir,
hjúkrunarfræðingur á Heilsu-
gæslustöðinni í Árbæ, segir
námskeiðið vera þróunarverk-
efni sem fékk styrk frá heilsu-
gæslunni í Reykjavík og for-
varnarsjóði. Hún segir mikla
forvörn felast í því að styðja
við bakið á foreldrum þegar
þeir undirbúa sig undir þessi
ár í lífi barnsins og fólk vilji
afla sér fróðleiks um áhrifa-
ríkar uppeldisaðferðir.
Foreldrar setji skýrar
og einfaldar reglur
Margrét segir að svokölluð
leiðandi uppeldisaðferð hafi
skilað bestum árangri sam-
kvæmt íslenskum rannsókn-
um. Börn sem búi við hana
spjari sig að öllu jöfnu betur.
Leiðandi foreldrar setja ein-
faldar og fáar reglur sem eru
vel útskýrðar og öllum á
heimilinu ljósar. Oftast gilda
þær um flesta á heimilinu en
ekki bara börnin. Foreldrar
eru þá einnig virkir þátttak-
endur í lífi barna sinna.
Gerð var könnun meðal for-
eldra um gagnsemi nám-
skeiðsins og segir Margrét að
öllum þeim 50 foreldrum sem
sóttu námskeiðið hafi þótt
námskeiðið gagnlegt. Sérstak-
lega var fólk ánægt með að fá
mikið af upplýsingum í möppu
með sér heim.
Leitað hefur verið eftir því
að Margrét og samstarfsfólk
hennar færu í önnur hverfi
borgarinnar með þetta nám-
skeið. Hún segir að starfsfólk
heilsugæslunnar í Árbæ ætli
að einbeita sér að námskeiða-
haldi í því hverfi en efni nám-
skeiðsins sé auðvitað aðgengi-
legt öðru fagfólki á öðrum
heilsugæslustöðvum.
Framhald á næstunni
Framhald verður á þessu
námskeiði í Árbæ á næstunni
en áður er haldið námskeið
fyrir foreldra fimm ára barna
sem eru að hefja skólagöngu.
Einnig verður haldið nám-
skeið fyrir foreldra eins til
tveggja ára barna í septem-
ber.
Búa sig
undir ung-
lingsár
barnsins