Morgunblaðið - 11.08.2003, Síða 26
26 MÁNUDAGUR 11. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 6. Ísl. tal.
Sýnd kl. 8.
YFIR 22.000 GESTIR!
Kvikmyndir.com
SV. MBL
HK. DV
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Ef þú gætir verið
Guð í eina viku,
hvað myndir þú gera?
Sýnd kl. 10. B.i. 14 ára.
J I M C A R R E Y
Frábær
teiknimynd
með
íslensku
tali fyrir alla
fjölskylduna
t i i
í l
t li f i ll
fj l l
HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 15.30
YFIR 30.000
GESTIR!
Sýnd kl. 8 og 10.30.
YFIR 22.000 GESTIR!
Kvikmyndir.com
SV. MBL
HK. DV
Sýnd kl. 3.30.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.15.
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Ef þú gætir
verið Guð
í eina viku,
hvað myndir
þú gera?
Framhaldið
af hinni
frábæru
Legally
Blond
sem
sló í
gegn!
Sýnd kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20.
kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20.
Sýnd kl. 4 og 6. Ísl. tal. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14.
J I M C A R R E Y
Frábær
teiknimynd
með
íslensku
tali fyrir alla
fjölskylduna
B R U C E
21. SÝNING MIÐVIKUDAGUR 20/8 - KL. 20 UPPSELT
22. SÝNING FIMMTUDAGINN 21/8 - KL. 20 UPPSELT
23. SÝNING LAUGARDAGINN 23/8 - KL. 16 UPPSELT
24. SÝNING LAUGARDAGINN 23/8 - KL. 20 UPPSELT
25. SÝNING FÖSTUDAGINN 29/8 - KL. 20 ÖRFÆA SÆTI LAUS
26. SÝNING LAUGARDAGINN 30/8 - KL. 16 ÖRFÁ SÆTI LAUS
27. SÝNING LAUGARDAGINN 30/8 - KL. 20 ÖRFÁ SÆTI LAUS
28. SÝNING SUNNUDAGINN 31/8 - KL. 16 LAUS SÆTI
29. SÝNING SUNNUDAGINN 31/8 - KL. 20 LAUS SÆTI
ATHUGIÐ ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA!
ÞAÐ er slæmt þegar myndir eru
vondar, en verra þó þegar myndir
sem maður bjóst við að eitthvað yrði
spunnið í reynast alvondar. Slíkum
vonbrigðum veldur einmitt gaman-
smellurinn Brúsi almáttugur eða
Bruce Almighty, með
þeim Jim Carrey,
Jennifer Aniston og
Morgan Freeman í
aðalhlutverkum.
Leikaravalið virðist
skemmtilegt og
grunnhugmyndin
grípandi, en þar með
eru kostirnir upp tald-
ir. Í myndinni segir af
Bruce nokkrum Nol-
an (Jim Carrey) sem
býr í litlum bæ í New
York-ríki. Sá á indæla
kærustu (Jennifer
Aniston) og starfar
við fréttaflutning en
þráir að komast úr
mjúku málunum í
harðar fréttir. Þegar draumar hans
um stöðuhækkun verða að engu virð-
ist tilvera hans hrynja eins og spila-
borg, sem endar með því að Bruce
ávítar guð fyrir óréttlætið sem hon-
um er sýnt. Guð birtist honum
skömmu síðar í mynd Morgans
Freemans og býður honum vesgú að
taka við stjórntaumum í himnaríki
um stund og reyna að komast sjálfur
að því hversu erfitt það getur reynst
að uppfylla óskir allra. Og þar með
hefst hin firrta þroskasaga söghetj-
unnar sem á að lýsa vitundarvakn-
ingu hans um hin raunverulegu verð-
mæti í lífinu. Eftir að Bruce kemst að
því að hann er orðinn almáttugur
fellur hann í þá gildru að gleyma af-
ganginum af heiminum og hugsa að-
eins um sjálfan sig. Þannig notar
hann krafta sína til að kíkja undir
pilsið á konum, forðast polla á göt-
unni, losa sig út úr umferðaröng-
þveiti og stækka brjóst kærustu
sinnar. Sá gjörningur er reyndar sá
fyrsti af mörgum sem fá mann til að
spyrja hvort þessi maður geti ekki
bara átt sig, ef honum dettur ekkert
gáfulegra í hug til að gera við almátt-
ugheit sín. Söguhetjan er hreinlega
gerð of sjálfselsk til þess að nokkurt
vit sé í, og það sama einkennir alla
umsýslu hans á sviði stjórnunar
himnaríkis, jafnvel eftir að hann
ákveður að láta eitthvað gott af sér
leiða. Jim Carrey er frábær gaman-
leikari sem á vart sinn líka í útgeisl-
un, ekki síst þegar hann glímir við vel
skrifuð og áhugaverð hlutverk líkt og
í myndum á borð við the The Truman
Show, Man on the Moon og Me, My-
self and Irene. En hin hamslausa lík-
amstjáning sem er einkenni Carreys
getur einnig gert það að verkum að
hann verður óþolandi í illa skrifuðum
hlutverkum, enda gera tilburðir hans
þá lítið annað en að ýkja upp það sem
þegar er misheppnað. Það er líka
ljóst að í stórum köflum í hinu illa út-
hugsaða handriti myndarinnar hefur
verið ákveðið að láta Carrey um að
fylla upp í eyður með nærveru sinni
einni. En væntingum um sanna Carr-
ey-takta er einungis svarað með yf-
irdrifnu látæði. Brúsi almáttugur átti
einnig að verða hið stóra tækifæri
Jennifer Aniston, sem er óðum að
undirbúa stórsókn sína inn á kvik-
myndasviðið nú þegar dregur að lok-
um gamanþáttaraðarinnar um Vin-
ina. Aniston hefur frábæra hæfileika
sem gamanleikkona og ólíkt svo
mörgum leikkonum í Hollywood (og
víðar) fær hún svigrúm til að vera
hvort tveggja í senn, kynþokkafull og
fyndin. Hlutverk Aniston í Brúsa al-
máttugum er því ekkert annað en
niðurlægjandi sóun á góðri leikkonu,
en þar leikur hún karakterlausa og á
endanum mjög svo brjóstumkennan-
lega kærustu hins sjálfumglaða
Bruce. Aniston er a.m.k. stórlega
ranglega skipað í hlutverk hér, sem
hin skilningsríka og þolinmóða fóstra
Grace, sem þráir ekkert annað en
blíðuhót hins augljóslega tillitslausa
kærasta síns, og bíður kjökrandi eftir
að hann sýni henni giftingarhring og
geti henni barn. Dæmisagan sem
sögð er í Brúsa almáttugum reynist
síðan, þegar öllu er á botninn hvolft,
merkilega þröngsýn og heimsk, í
merkingunni heimskt er heimaalið
barn. Unnið er með trúarspurningar
sögunnar á yfirborðskenndan hátt og
nær boðskapurinn um náungakær-
leik aldrei lengra en út fyrir garðs-
hliðið. Lausnin við sjálfselsku Bruce í
myndinni felur ekki annað í sér en
vitundarvakningu hans gagnvart því
að gefa blóð og vera góður nágranni.
Alvondur Bruce
KVIKMYNDIR
Brúsi almáttugur /
Bruce Almighty Laugarásbíó/Regnboginn/Smárabíó/
Borgarbíó
Leikstjórn: Tom Shadyac. Handrit: Steve
Koren, Mark O’Keefe, Steve Oedekerk.
Aðalhlutverk: Jim Carrey, Jennifer
Aniston og Morgan Freeman. Lengd: 100
mín. Bandaríkin, Universal Pictures,
2003.
Jennifer Aniston og Jim Carrey í hlutverkum
Grace og Bruce. Að mati gagnrýnanda er hlutverk
Aniston „niðurlægjandi sóun á góðri leikkonu“.
Heiða Jóhannsdóttir
DJASSDÍVAN Diana Krall heill-
aði á þriðja þúsund gesti Laugar-
dalshallar á laugardagskvöld.
Krall er afar hæfileikaríkur pí-
anóleikari og hóf raunar tónlist-
arferil sinn á píanóleik. Innlif-
unin leyndi sér ekki þegar Krall
hóf upp djúpa en þýða raust sína.
Uppselt var á tónleikana og 100
aukamiðar sem boðnir voru auk-
reitis í síðustu viku seldust allir
upp.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Krall lék við hvern sinn fingur
NÆRRI milljón manns marseraði um götur Zürich-
borgar í Sviss á laugardag á stærstu teknó-tónlistarhá-
tíð sumarsins. Hátíðin, eða reifið öllu heldur, var haldin
undir yfirskriftinni „Látum sólina skína,“ þótt eflaust
séu margir Evrópubúar búnir að fá sig fullsadda af
óhóflegu sólskini og hitasvækju síðustu vikna.
Aðstandendur reifsins, sem haldið hefur verið árlega
frá því 1991, voru í skýjunum yfir aðsókninni. Í frétt
Reuters er ýjað að því að götureifið í Zürich sé á góðri
leið með að taka við af Ástargöngu, eða Love Parade,
Berlínarbúa sem hingað til hefur verið álitin aðal-
teknóhátíðin. Á þá hátíð, sem haldin var fyrr á árinu,
lögðu hins vegar einungis 5-750 þúsund gestir leið sína
þetta árið en það er færra en í fyrra. Zürichhátíðin hef-
ur hins vegar aldrei verið fjölmennari.
Gestir gátu baðað sig í gosbrunnum og útisturtum
sem settar voru upp í tilefni dagsins. Reuters
Sólarreif í Sviss