Morgunblaðið - 08.11.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 303. TBL. 91. ÁRG. LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
VETRARSALA
Laugardag 10.00 til 18.00
Sunnudag 13.00 til 17.00
Unnið
inn í rými
Ólafur Elíasson undirbýr
sýningu í Hafnarhúsinu 11
Veröldin
er forrit
Hvernig ná íslenskar samtímabók-
menntir alþýðuhylli? Lesbók 8
ÁSTRALSKUR karlmaður
var úrskurðaður í gær í
tveggja vikna gæsluvarðhald í
Héraðsdómi Reykjaness að
kröfu lögreglunnar á Keflavík-
urflugvelli vegna meintra
brota á útlendingalöggjöfinni
og gruns um þátttöku í man-
sali.
Hinn grunaði er rúmlega
fertugur að aldri. Lögreglan á
Keflavíkurflugvelli stöðvaði
manninn í Leifsstöð síðastlið-
inn miðvikudag en hann var þá
á leið til Boston ásamt tveimur
kínverskum stúlkum. Við
vegabréfaskoðun framvísaði
maðurinn bresku vegabréfi
sem við nánari rannsókn
reyndist falsað. Stúlkurnar
tvær voru með japönsk vega-
bréf sem einnig voru fölsuð.
Tekinn ásamt þremur
stúlkum á leið til Íslands
Málið virðist teygja anga
sína út fyrir landsteinana. Í
framhaldi af vísbendingu sem
lögreglan á Keflavíkurflugvelli
gaf lögreglunni í Svíþjóð var
maður handtekinn þar í landi
grunaður um þátttöku í man-
sali, ásamt þremur meintum
fórnarlömbum. Voru þau öll á
leiðinni til Íslands.
Í gærmorgun handtók
finnska lögreglan svo mann
ásamt tveimur meintum fórn-
arlömbum. Í öllum þessum til-
vikum er um ungar kínverskar
stúlkur að ræða, sem höfðu
fölsuð japönsk vegabréf í fór-
um sínum.
Eru sterkar líkur taldar á að
þessi þrjú mál tengist. Gera
má ráð fyrir að lögregluyfir-
völd í löndunum þremur muni
vinna náið saman að rannsókn
þessara mála.
Allt að átta ára fangelsi ligg-
ur við broti á nýju ákvæði
hegningarlaganna um mansal.
Grunur
um
mansal
Ástralskur karl-
maður úrskurð-
aður í tveggja
vikna varðhald
STEINGRÍMUR J. Sigfússon, for-
maður Vinstri hreyfingarinnar –
græns framboðs, sagði í stefnuræðu
sinni við upphaf landsfundar flokks-
ins í Hveragerði í gær að Vinstri
grænir höfnuðu hugmyndum um
skólagjöld og settu fyrirvara við
styttingu framhaldsskólanáms.
Steingrímur sagði að VG yfirfæri
nú áherslur sínar á sviði mennta-
mála. „Þar tökumst við á við hug-
myndir eins og þær hvort leggja
eigi á skólagjöld í auknum mæli eða
stytta framhaldsskólann. Hinu
fyrra höfnum við og hinu síðara
mætum við með afdráttarlausum
fyrirvara um að við munum ekki ljá
máls á neins konar gengisfellingu
náms á framhaldsskólastigi,“ sagði
hann. „Heildstæð og samræmd end-
urskipulagning sem tæki til allra
skólastiga er vænlegri nálgun að
okkar dómi en það að bera ein-
angrað niður í framhaldsskólann og
stytta hann.“
Steingrímur lagði áherslu á það
að Vinstri grænir væru velferðar-
flokkur, sem teldi að menntakerfið
og heilbrigðiskerfið ættu að vera
rekin á samábyrgan hátt á opinber-
um grunni. „Í aðalatriðum erum við
sátt við þá verkaskiptingu sem þar
ríkir í dag.“
Eini kostur vinstri manna
Steingrímur sagði að Samfylking-
in hefði tekið stórt skref til hægri á
landsfundinum fyrir viku. „Það má
segja að þróun Samfylkingarinnar
inn að miðju, sem formaðurinn Öss-
ur [Skarphéðinsson] taldi til helstu
afreka sinna í blaðaviðtali fyrir um
ári, hafi náð í nýjan næturstað með
dekri Samfylkingarinnar við mark-
aðslausnir í heilbrigðismálum og
einnig því hvernig fjallað var, eða
öllu heldur ekki fjallað, um um-
hverfismál, utanríkismál og fleira.“
Hann sagði að víglínur í íslensk-
um stjórnmálum væru stöðugt að
skýrast og að nú væru Vinstri
grænir eini kostur vinstri manna.
„Vinstri hreyfingin – grænt fram-
boð hefur stærra og veigameira
hlutverki að gegna hvað snertir
varðstöðuna um samábyrgt velferð-
arkerfi í landinu í dag heldur en
fyrir viku.“
Vísa hugmyndum um
skólagjöld á bug
Fyrirvari settur
við styttingu fram-
haldsskólanáms
Flokkurinn eini/10
Morgunblaðið/Sverrir
Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, setti landsfund flokksins í gær.
ÁRNI Þór Sigurðsson, borg-
arfulltrúi Reykjavíkurlistans og
forseti borgarstjórnar Reykjavík-
ur, lýsti því yfir við stjórnmála-
umræður á landsþingi Vinstri-
hreyfingarinnar – græns framboðs
í gærkvöldi að VG ættu að bjóða
fram í eigin nafni sinn eigin lista
sem allra víðast í næstkomandi
sveitarstjórnarkosningum 2006.
Aðspurður hvort hann væri að
mæla með því að VG byði fram und-
ir eigin nafni í borgarstjórnarkosn-
ingunum 2006, svaraði Árni: „Við
eigum að stefna að sjálfstæðu fram-
boði í eigin nafni sem allra, allra
víðast, en auðvitað í samstarfi við
aðra þar sem aðstæður eru hag-
stæðari til þess. Við höfum ekki
tekið neina ákvörðun um annað í
Reykjavík en að standa að þessu
samstarfi innan Reykjavíkurlistans
út þetta kjörtímabil, en það verður
auðvitað sjálfstæð ákvörðun
Reykjavíkurfélagsins hvað það ger-
ir fyrir næstu borgarstjórnarkosn-
ingar.“
VG bjóði fram
í eigin nafni
sem víðast
STJÓRN Tyrk-
lands tilkynnti í
gær að hún hefði
hætt við að senda
hermenn til frið-
argæslu í Írak
vegna andstöðu
íraska fram-
kvæmdaráðsins í
Bagdad. Sex
bandarískir her-
menn létu lífið í gær þegar herþyrla
hrapaði á hólma í Tígris-fljóti og talið
var líklegt að andstæðingar hernáms-
ins hefðu skotið hana niður.
Abdullah Gul, utanríkisráðherra
Tyrklands, sagði að tyrkneskir her-
menn yrðu ekki sendir til Íraks og
fregnir hermdu að sú ákvörðun hefði
verið tekin í samráði við Bandaríkja-
stjórn. Hún hafði beitt sér fyrir því að
Tyrkir legðu til um 10.000 hermenn
en er sögð hafa fallið frá því vegna
andstöðunnar innan íraska fram-
kvæmdaráðsins, einkum meðal
Kúrda, og komist að þeirri niður-
stöðu að þátttaka Tyrkja í friðargæsl-
unni gæti aukið spennuna í Írak.
Þessi niðurstaða er áfall fyrir
Bandaríkjastjórn sem hefur lagt
kapp á að fá fleiri ríki til að taka þátt í
friðargæslunni. Yfir 80% Tyrkja eru
andvíg því að tyrkneskir hermenn
verði sendir til Íraks.
Telja að þyrlan hafi
verið skotin niður
Bandaríkjaher sagði að ekki væri
vitað um orsök þess að herþyrla af
gerðinni Black Hawk hrapaði nálægt
Tikrit, heimaborg Saddams Huss-
eins, fyrrverandi forseta Íraks.
Heimildarmenn AP, sem vildu ekki
láta nafns síns getið, sögðust telja að
þyrlan hefði verið skotin niður. Sjón-
arvottar sögðust hafa heyrt spreng-
ingu skömmu áður en hún hrapaði og
fullyrtu að hún hefði orðið fyrir árás.
Alls hafa 32 bandarískir hermenn
beðið bana í Írak síðustu sjö daga og
er það mesta manntjón sem banda-
ríska hernámsliðið hefur orðið fyrir á
einni viku frá 1. maí þegar því var lýst
yfir að meiriháttar átökum væri lokið
í landinu.
The New York Times skýrði frá
því í gær að Bandaríkjaher hefði
komið á fót leynilegri skyndiárása-
sveit sem ætti að leita að Saddam
Hussein og hryðjuverkaforingjum,
m.a. Osama bin Laden. Gert væri ráð
fyrir því að hægt yrði að beita sér-
sveitunum hvar sem væri í Mið-Aust-
urlöndum og Afganistan ef upplýs-
ingar bærust um dvalarstaði þeirra
sem Bandaríkjamenn leggja mesta
áherslu á að ná.
Tyrkir hætta við að
senda herlið til Íraks
Sex bandarískir hermenn láta lífið er þyrla hrapar
Abdullah Gul
Ankara, Tikrit. AP, AFP.
Stöðugleiki/20
EVRÓPSKI seðlabankinn kann að
þurfa að gefa út milljónir nýrra
evruseðla vegna þess að Miðjarð-
arhafseyjarnar Kýpur og Möltu
vantar á Evrópukortið sem skreytir
seðlana.
Hefur þetta valdið óánægju með-
al ráðamanna á eyjunum. „Kýpur
hefði auðvitað alltaf átt að vera á
kortinu, en nú þegar við erum að fá
aðild að Evrópusambandinu hljót-
um við að komast á það,“ sagði
Marcos Kyprianou, fjármálaráð-
herra stjórnar Kýpur-Grikkja.
Í fyrstu tillögunni að útliti seðl-
anna vantaði Ísland en eftir að Evr-
ópusamtökin á Íslandi bentu á það
var landinu bætt við á kortið.
Vilja Kýpur
og Möltu á
Evrópukortið
Bratz leysir af Barbie og þykir
hæpin fyrirmynd Daglegt líf 1
Deilt um
dúkkur