Morgunblaðið - 08.11.2003, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 08.11.2003, Blaðsíða 26
SUÐURNES 26 LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Njarðvík | „Það var ekki á áætlun að selja núna en segja má að þessi möguleiki hafi dottið inn á borðið,“ segir Jón Norðfjörð, framkvæmda- stjóri Skipaafgreiðslu Suðurnesja ehf., um sölu á fyrirtækinu til Eim- skips. Hann segir að breytingar verði gerðar á flutningastarfseminni en fyrirtækið þó áfram rekið í svip- aðri mynd. Skipaafgreiðsla Suðurnesja (SAS) eru fjörutíu ára gamalt fyrirtæki. Það var upphaflega aðallega í eigu sjávarútvegsfyrirtækjanna á svæð- inu og annaðist landandir og af- greiðslu skipa. Það hefur breyst mjög á seinni árum með samdrætti í útgerð. Jón Norðfjörð, sem verið hefur framkvæmdastjóri í rúm tutt- ugu ár, eignaðist meirihluta hluta- fjár fyrir fáeinum árum og vöru- flutningar urðu aðalverkefni þess. SAS er með afgreiðslu og skrifstofur í Njarðvík. Jón getur þess að fyrirtækið hafi haft umboð fyrir Eimskip frá 1984 og séð um alla flutninga fyrir Flytj- anda á svæðinu frá árinu 2000. Mikil viðskiptatengsl hafi því verið milli fyrirtækjanna. Hann segir að Eim- skip sé með hugmyndir um að gera breytingar á vöru- og gámaflutn- ingum og nýta þá betur tæki og mannskap á Suðurnesjum. Þá hafi komið upp sú hugmynd að Eimskip keypti fyrirtækið og samningar náðst um það. Eigendaskiptin mið- ast við komandi áramót. Vonast Jón til að við breytingar á flutninga- starfseminni muni þjónusta við við- skiptamenn á Suðurnesjum aukast. SAS er með ýmsa aðra starfsemi og er að vinna fyrir ólíka aðila. Þess má geta að það annast afgreiðslu skipa Atlantsskipa í Njarðvíkurhöfn og vonast Jón til að það verði áfram, þrátt fyrir breytingar á eignaraðild. Þá er fyrirtækið nýlega búið að opna verslun fyrir ESSO sem nefnist ESSO Aðföng. Var ekki á áætlun að selja núna Eigendaskipti staðfest: Höskuldur H. Ólafsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs, Erlendur Hjaltason, framkvæmda- stjóri Eimskips, og Jón Norðfjörð, framkvæmdastjóri Skipaafgreiðslu Suðurnesja, við undirritun samninga. Norræna bókasafnavikan | Haf- ið og norðrið er yfirskrift Norrænu bókasafnavikunnar í ár. Vikan hefst mánudaginn 10. nóvember og lýkur hinn 16. sem jafnframt er dagur ís- lenskrar tungu. Bókasafn Reykja- nesbæjar, menningarfulltrúi bæj- arins og Suðurnesjadeild Norræna félagsins ætla í sameiningu að halda upp á vikuna og verður setninga- rathöfnin í sýningarsal Listasafns Reykjanesbæjar í Duushúsum í Keflavík næstkomandi mánudag, klukkan 18. Dagskráin hefst með því að lesinn verður inngangskaflinn í skáldsögu Alexanders Kielland, Garman og Worse, þar sem fjallað er um hafið. Síðan tekur við fjölbreytt dagskrá í tali og tónum, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Meðal annars verða ungum skáld- um í Reykjanesbæ veittar við- urkenningar, en Bókasafn Reykja- nesbæjar ákvað að verðlauna sérstaklega þau börn sem sendu inn ljóð í ljóðasamkeppnina Ljóð unga fólksins og komust áfram í úrslit á landsvísu. Barn fyrir bíl | Lögreglan fékk til- kynningu um umferðarslys á Faxa- braut í Keflavík síðdegis á fimmtu- dag. Barn hafði orðið fyrir bíl. Var barnið flutt á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja en meiðsli reyndust minniháttar, það hafði hruflast á fót- um. Íbúðir til sýnis| Íbúðir fyrir aldr- aða sem Gerðahreppur hefur byggt í nágrenni hjúkrunarheimilisins Garðvangs verða afhentar við athöfn sem fram fer í dag. Af því tilefni verða íbúðirnar til sýnis í dag, milli kl. 13 og 17.       Stefnt að af- hendingu lóð- ar í febrúar Helguvík | Nú er stefnt að því að framkvæmdir við lóð fyrirhugaðrar stálröraverksmiðju við Helguvík verði tilbúin í febrúar og að þá þegar hefjist framkvæmdir við byggingu verksmiðjuhúss fyrirtækisins. Fyrirtækið áformaði að hefja fram- kvæmdir á lóðinni í haust og síðan var talað um áramót. Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, segir að magnaukning hafi orðið á sprenging- um í Helguvík og samið um lengri verktíma við verktakann. Segir hann stefnt að því að það fari saman að Reykjaneshöfn geti afhent lóðina í febrúar og International Pipe and Tube geti þá þegar hafið fram- kvæmdir. Segir Árni að IPT vinni áfram að sínum undirbúningi. Aðal- verktaki við byggingu verksmiðjunn- ar og starfsmannaaðstöðu er Daewoo International í Suður-Kóreu og segist Árni hafa upplýsingar um það að Daewoo hafi lokið samningum við vélaframleiðendur. Þá sé allri hönn- unarvinnu lokið og muni það stytta byggingartímann um fjóra mánuði. Grindavík | Skipt verður um þurrkara í fiskimjölsverk- smiðju Samherja hf. í Grindavík á næstunni. Nýi þurrk- arinn er tvöfalt stærri en sá sem nú er og verður unnt að auka afkastagetu verksmiðjunnar verulega með frekari breytingum. Talsverðar endurbætur hafa verið gerðar á fiskimjöls- verksmiðjunni á undanförnum árum. „Með því að skipta út þurrkaranum er verið að halda áfram á þeirri braut,“ segir Óskar Ævarsson, rekstrarstjóri Samherja í Grindavík. Hann segir að ráðist sé í þessar fjárfestingar með hliðsjón af áætlunum hafnaryfirvalda um að endurbæta aðstöðu fyrir loðnuskipin í Grindavíkurhöfn. Þá sé framkvæmdin liður í hagræðingu í fiskimjölsiðnaðinum. Nýi þurrkarinn er kominn til Grindavíkur og er verið að undirbúa uppsetningu hans þar. Hann var áður í nýlegri verksmiðju Skeggeyjar á Höfn í Hornafirði. Óskar segir að hann hafi verið of stór fyrir þá starfsemi sem var í Hornafirði og verksmiðjan þar hafi í staðinn fengið minni þurrkara sem losnaði við lokun fiskimjölsverksmiðjunnar í Sandgerði. Eignatengsl eru milli fyrirtækjanna sem eiga þessar þrjár verksmiðjur. Þess má geta að mjölflutninga- skip var notað til að flytja þurrkarana á milli. Flutninga- skipið byrjaði á því að taka þurrkarann á Höfn, flutti hann til Grindavíkur og lestaði þar fiskimjöl, tók síðan þurrk- arann í Sandgerði og flutti hann til Hornafjarðar, lestaði loks mjöl í Neskaupstað og flutti mjölfarminn til útlanda. Minna hráefni í ár Verksmiðjunni verður lokað frá miðjum nóvember í hálfan annan mánuð á meðan þurrkaranum og tilheyrandi tækjum verður komið fyrir. Afkastageta verksmiðjunnar er nú 1.000 til 1.100 tonn á sólarhring. Nýi loftþurrkarinn getur afkastað 1.400 til 1.500 tonnum. Óskar tekur fram að gera þurfi fleiri lagfær- ingar í verksmiðjunni og fá nauðsynleg leyfi áður en af- köstin verði aukin. Búið er að vinna úr um 93 þúsund tonnum af hráefni í verksmiðjunni í Grindavík í ár og ljóst að lítið bætist við vegna fyrirhugaðrar lokunar. Er það talsvert minna en metið sem þar var sett á síðasta ári þegar brætt var úr 111 þúsund tonnum. Óskar segir að loðnukvótinn hafi minnkað verulega auk þess sem hann hafi verið nánast uppurinn þegar loðnan kom vestur með landinu. Þá hafi gengið verr að veiða kolmunna seinnihluta árs og því hafi minna verið landað í Grindavík en í fyrra. Unnt að auka afkastagetu fiskimjölsverksmiðju Samherja Tvöfalt stærri loft- þurrkari settur upp Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Uppsetning undirbúin: Iðnaðarmenn ganga frá nýja þurrkaranum áður en hann er hífður inn í verksmiðju. Veita stöðuleyfi | Skipulags- og byggingarnefnd Vatnsleysustrand- arhrepps hefur fyrir sitt leyti sam- þykkt umsókn Vélsmiðjunnar Norma um stöðuleyfi fyrir skemmu á lóð fyrirtækisins á iðnaðarsvæðinu við Vogaveg. Nefndin hafði krafist niðurrifs skemmunnar sem reist var á bak við verksmiðjuhús fyrirtæk- isins, án þess að sótt væri um leyfi. Sótt var um stöðuleyfi til tveggja ára en nefndin veitti leyfi til sex mánaða.   
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.