Morgunblaðið - 08.11.2003, Blaðsíða 24
AKUREYRI
24 LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
NOKKUR innbrot hafa verið tilkynnt
til lögreglu á Akureyri síðustu daga.
Þannig var innbrot í Eyrarlandsstofu
í Lystigarði Akureyrar tilkynnt á
þriðjudag en þar hafði verið farið inn
um glugga með því að brjóta hann.
Rótað var til á skrifstofu, en engu
stolið að séð varð segir í dagbók lög-
reglu. Þá var einnig brotist inn í
Skeifuna, félagsheimili hestamanna
og stolið þaðan myndbandstæki,
hljómflutningstækjum, fjórum skeið-
klukkum, tveimur talstöðvum og
fleiru. Um tilraun til innbrots í golf-
skálann að Jaðri var einnig tilkynnt í
vikunni. Þar hafði rúða verið brotin
og reynt að spenna upp glugga en
ekki tekist. Loks var tilkynnt um inn-
brot í Bakaríið við brúna. Þar hafði
verið farið inn í viðbyggingu við hús-
næði þaðan sem greið leið var um allt
hús. Nokkrum tugum þúsund króna í
peningum var stolið. Lögregla biður
þá sem einhverjar upplýsingar geta
gefið um innbrotin að láta vita
Nokkur inn-
brot í bænum
undanfarið
RONJA ræningjadóttir, Harry
Potter og Hringadróttinssaga
hafa átt hug og hjarta nemenda,
kennara og annars starfsfólks
Síðuskóla síðustu daga, en svo-
nefndir þemadagar hafa staðið
yfir í skólanum og fyrrnefndar
bækur þar í öndvegi. Yngstu
nemendurnir einbeittu sér að
Ronju. „Kennarinn las söguna
fyrir okkur á meðan við vorum
að borða nestið,“ sagði Sindri
sem er í 2. bekk. Hann upplýsti
einnig að krakkarnir væru búnir
að sjá bíómyndina og væru því
nokkuð vel heima í sögunni.
„Þetta er ágæt bók, en ég veit
ekki hvort hún er uppáhalds-
bókin mín,“ sagði Sindri sem var
ásamt félögum sínum að búa til
Matthíasarskóg, en aðrir voru að
búa til ræningjabúninga, boga,
örvar eða skálar. Þá mátti líta
myndarlegan ræningjahelli í
einni stofunni og þar byrja börn-
in daginn við kertaljós og spjall.
Öll börnin fengu líka að fara út
að grilla pylsur og sérstakt
Lovísubrauð, hið mesta hnoss-
gæti. Og létu kuldann ekki á sig
fá, „Maggi húsvörður er nú bara
oft á bolnum,“ sagði einn pjakk-
urinn og þótti hann greinilega
mikið hreystimenni.
Börnin á miðstiginu voru upp-
tekin við Harry Potter og allt
sem honum fylgdi, búnir voru til
skreyttir seyðpottar, furðujurtir
og furðudýr, töfraseyður og sæl-
gætisgerð var á fullu í einni stof-
unni. Þar var boðið upp á
„fjöldabragðabaunir“, eins konar
konfekt úr kartöflum og til allrar
guðs lukku var molinn sem
blaðamaður fékk ekki með ælu-
bragði, en að sögn eru þeir víst
til líka. „Þetta er miklu skemmti-
legra en venjulegur skóli,“ sögðu
nokkrir krakkar sem voru í óða-
önn að útbúa barmmerki og gler-
augu að hætti Harrys. „Það væri
gaman ef svona dagar væru sem
oftast, t.d. einu sinni í mánuði.“
Hringadróttinssaga var þemað
á unglingastiginu og þar var
margt í boði, útbúið var vegg-
teppi, eins konar myndasaga þar
sem barátta góðs og ills var í
fyrirrúmi. Eins var útbúið spil
upp úr sögunni, helstu persón-
urnar mótaðar í pappamassa,
skartgripir af ýmsu tagi gerðir
og þá var bakað Fróðabrauð að
hætti Hobbitana svo fátt eitt sé
nefnt af fjölbreyttum viðfangs-
efnum ungmennanna.
Næring: Börnin grilla sér pylsur og Lovísubrauð á skólalóðinni.
Gaman að hafa
svona daga
sem oftast
Nemendur mála Dobbý sem í framtíðinni verður húsálfur skólans.
Fallegt: Yngstu börnin búa til
Matthíasarskóg og skreyta grein-
ar trjánna með fallegum litum.
Morgunblaðið/Kristján
Eins og hin raunverulega Ronja: Að sjálfsögðu þurfti að búa til þartilgerð ræningjaföt og greiða stúlkunum í stíl við hárgreiðslu Ronju.
Léttir 75 ára | Hestamannafélagið
Léttir á Akureyri fagnar 75 ára afmæli
um þessar mundir og af því tilefni verð-
ur afmælisfagnaður félagsins haldinn í
Íþróttahöllinni í kvöld og hefst kl.
20.30. Þar verður matur, skemmtun og
dansleikur, sem og happdrætti með veg-
legum vinningum. Félagsmenn eru
hvattir til að fjölmenna í Höllina og
gera sér glaðan dag í tilefni þessara
merku tímamóta.
Hádegistónleikar |
Björn Steinar Sól-
bergsson, organisti í
Akureyrarkirkju, held-
ur hádegistónleika í
kirkjunni í dag, laug-
ardaginn 8. nóvember,
kl. 12.
Á tónleikunum flytur
hann Ciacona í f-moll
og Partítu eftir Johann
Pachelbel og Konsert í h-moll eftir
Walther/Vivaldi. Lesari á tónleikunum er
Heiðdís Norðfjörð.
Aðgangur að tónleikunum er ókeypis
og eru allir velkomnir.
Björn Steinar
Áhætta barna í umferðinni | Málþing
um umferðarfræðslu í skólum og áhættu
grunnskólabarna í umferðinni verður
haldið í Háskólanum á Akureyri, Þing-
vallastræti 23, næsta þriðjudag, 11. nóv-
ember, og hefst það kl. 12.30. Benedikt
Sigurðarson sérfræðingur mun kynna
niðurstöður rannsókna á umferð-
arfræðslu í skólum og könnun á ferða-
háttum grunnskólabarna. Þá flytja þau
Sigurður Helgason hjá Umferðarstofu og
Ásdís Guðmundsdóttir hjá Vegagerðinni
einnig erindi sem tengjast umferð-
armálum. Skráning á málþingið fer fram
hjá Rannsóknastofnun Háskólans á Ak-
ureyri.
SKAUTAKENNSLA hefst hjá tveimur
bekkjardeildum í grunnskólum Akureyrar í
næstu viku. Um tilraunakennslu er að ræða
og munu nemendur í 3. og 4. bekk ríða á
vaðið. Gunnar Gíslason, deildarstjóri skóla-
deildar, sagði að skautakennslan tengdist
íþróttakennslu þessara nemenda. Þau munu
mæta í eina klukkustund á viku næstu fjór-
ar vikurnar, þar sem kennararnir fara með
þeim og kenna þeim á skauta.
starfið,“ sagði Gunnar. Eins og fram hefur
komið sendi Skautafélag Akureyrar erindi
til skólanefndar fyrir skömmu, þar sem
leitað var eftir stuðningi skólayfirvalda og
Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands, VMÍ, við
að koma á skautakennslu í grunnskólum
bæjarins. Skólanefnd tók vel í erindið og
nú hefur verið ákveðið að setja slíka
kennslu af stað til prufu með áðurnefndum
hætti.
„Næstu vikurnar mun íþróttakennslan
færast að nokkru leyti yfir í þetta form.
Það verður gaman að sjá hvernig þetta
kemur út og um leið hvernig þetta skilar
sér í aðsókn að Skautahöllinni.“
Gunnar sagði að eftir áramót yrði einnig
horft til Hlíðarfjalls með skíðakennslu í
svipuðu formi í huga, þ.e. ef aðstæður
leyfa. „Það er fullur vilji til þess að skoða
hvernig hægt er að flétta þetta inn í skóla-
Skautakennsla í grunnskólunum
Tímamót hjá FSA | Fjórðungssjúkra-
húsið á Akureyri, FSA, á 130 ára afmæli
í ár, tók til starfa í nóvember árið 1873 í
húsi sem var gjöf Friðriks C.M. Gud-
manns. Húsið gekk jafnan undir nafninu
Gudmanns minde eða Guðmanns minni
upp á íslensku. Þá eru í ár 50 ár liðin frá
því starfsemi fjórðungssjúkrahússins
hófst í því húsnæði sem enn er í notkun,
en þar var handlækningadeild opnuð 15.
desember árið 1953.
Þessara merku tímamóta í sögu
sjúkrahússins verður minnst með ýmsum
hætti á næstunni. Fyrsti liðurinn er opn-
un sýningar í verslunarmiðstöðinni Gler-
ártorgi í dag, laugardaginn 8. nóvember
kl. 14. Þar verða til sýnis munir og
myndir sem tengjast sögu sjúkrahússins.
Sýningin verður opin á sama tíma og
verslunarmiðstöðin fram til sunnudagins
16. nóvember næstkomandi.
Afmælisblað verður svo gefið út í des-
ember þar sem tímamótanna verður
minnst en að auki má nefna að síðar
verður opið hús þar sem starfsemin
verður kynnt og efnt verður til fyr-
irlestra.