Morgunblaðið - 08.11.2003, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 08.11.2003, Blaðsíða 54
54 LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. ÞAÐ hefur vart farið fram hjá mörgum að bæjarstjórnarmeiri- hlutinn í Kópavogi ráðgerir að reisa 8 steinþursa, allt að 14 hæða háa, á svokölluðum Lundarreit í Fossvogsdal. Þessu hafa bæði lærðir og leikir mótmælt hástöfum enda meiri háttar umhverfisslys í uppsiglingu ef áform þessi ganga eftir. Þetta myndi stórskemma heildarásýnd dalsins og færi þá fyrir lítið sú barátta allra þeirra fjölmörgu sem tókst að stöðva lagningu hraðbrautar um Foss- vogsdal á sínum tíma. Þessar fyrirætlanir eru í hróp- andi andstöðu við samþykktir bæj- arins í aðalskipulagi og við stað- ardagskrá 21. Það er ekkert nema sjálfsagt og eðlilegt að þétta byggð, en það er bara ekki sama hvernig það er gert. Á því svæði, sem hér um ræðir, á ekkert við nema lágreist byggð og þannig í eðlilegu framhaldi af þeim bygg- ingum, sem fyrir eru í dalnum. Samkvæmt skipulagi fyrir svokall- að bryggjuhverfi úti á Kársnesi á að byggja lágreist enda er það í samræmi við þá byggð sem fyrir er. Hvers á Fossvogsdalurinn og íbúar hans að gjalda? Hvers vegna á að múra fyrir hluta dalsins? Spyr sá sem ekki veit – eitt er þó víst að það er eitthvað sem ekki rekur laust á eftir. Það er fleira en ásýnd dalsins sem bíður skaða af turnunum háu. Á fundi sem áhugamenn um Betri Lund stóðu fyrir hinn 4. nóvember sl. kom fram hjá arkitektum og skipulagsfræðingum að byggingar af þeirri stærðargráðu sem hér um ræðir eru mjög skuggamyndandi og geta orðið til stórvandræða í hvössu veðri. Það er grafalvarlegt mál fyrir íbúa í nágrenni fyrirhug- aðra bygginga að eiga von á að búa í skugga risanna stóran hluta dags og stóran hluta ársins. Þó að bæj- aryfirvöld neyðist hugsanlega til að bæta húseigendum í nágrenni Lundar fyrirsjáanlegt verðfall eigna þeirra verður aldrei hægt að bæta þeim missi sólarinnar – birt- unnar. Einn ræðumanna á fyrrnefndum fundi, sem reyndi að sjá eitthvað gott við steypufjallið, sagði að íbú- arnir gætu þó hlakkað til þess að drekka sólarkaffið sitt þegar sólin birtist að nýju. Sem sagt fyrst drekka Ísfirðingar sitt sólarkaffi, síðan íbúarnir í neðanverðum Fossvogsdal. Ég hef búið í Kópavogi í liðlega 30 ár og fylgst með bænum mínum vaxa og dafna. Hér er gott að búa og margt hef- ur verið vel gert af bæjaryfirvöld- um á hverjum tíma og við höfum ekki þurft að búa við nein stórslys í skipulagsmálum. Þótt útlitið sé ekki bjart núna er vonandi enn tími til stefnu. Ég trúi því að með órofa samstöðu fjöldans gegn verstu skipulagsspjöllum sem þekkst hafa í Kópavogi megi koma vitinu fyrir bæjarstjórnarmeiri- hlutann. ÓLI GUNNARSSON, Fögrubrekku 42, Kópavogi. Sólarkaffi í Fossvogsdal Frá Óla Gunnarssyni GÓÐ vísa er aldrei of oft kveðin. Það er alltaf gaman að lesa það sem Guðmundur Guðmundsson hefur að segja um ljóðagerð. Föstudaginn 31. október birtist bréf eftir hann. Ég er að mörgu leyti sammála Guð- mundi. Það væri mikill skaði ef stuðluð ljóðagerð og áhugi á henni dytti alveg uppfyrir. Óhefðbundin ljóð (atómkveðskapur) geta þó stundum komið vel út og jafnvel verið auðvelt að læra þau utanað. Ekki get ég farið með eitt einasta erindi úr Passíusálmum Hallgríms Péturssonar, en ég kann Passíu- sálm nr. 51 eftir Stein Steinarr nokkurnveginn. Steinn orti einnig mikið hefðbundið með stuðlasetn- ingu og rími. Ég met Stein mikils sem ljóðskáld, jafnt hefðbundnu ljóðin sem þau óhefðbundnu. Það skiptir ekki máli hvort snillingar eins og Steinn yrkja hefðbundið eða óhefðbundið. Sum þau óhefðbundnu eru jafnvel betri og hefðu ekki batnað við að vera ort með stuðlum og rími. Ég ræði þetta hér sem leikmaður. Steinn var í alla staði ágætis maður. Ég kynntist honum dálítið þegar ég var sjö ára. Steinn og kona hans frú Ásthildur leigðu hjá foreldrum mínum í nokkra mánuði stóra stofu, en við bjuggum þá í Kópavogi. Ég var stundum með smáhrekki við skáldið. Virð- ingarleysið við skáldið er kannski hægt að afsaka með hversu ungur ég var. Ekki í fyrsta eða síðasta skipti sem skáldum hefur verið sýnd lítisvirðing á Íslandi í lifanda lífi. Hvernig var með Bólu-Hjálm- ar? Annað ljóðskáld sem orti óhefð- bundið og vert er að hafa í heiðri er Jón úr Vör. Kvæði eins og Útmán- uðir er eftirminnilegt. Annars get ég tekið undir með Guðmundi að mikið af því sem kallað er ljóð nú á tímum er bölvað kjaftæði. Ég vil þakka Guðmundi fyrir ágæt skrif. Það er full ástæða til að minna fólk á ágæti hinnar gömlu ljóðlistarhefð- ar. Þó er það engin trygging fyrir ágæti ljóðs að það sé með stuðlum og höfuðstöfum. Það er þó gott meðan einhver nennir að yrkja á ís- lensku, hvort formið sem notað er. Góð ljóð fljóta alltaf með ruslinu. PÁLMI INGÓLFSSON, Hraunbæ 128, 110 Reykjavík. Góð vísa Frá Pálma Ingólfssyni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.