Morgunblaðið - 08.11.2003, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 08.11.2003, Blaðsíða 56
DAGBÓK 56 LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Audre fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Selfoss kemur í dag. Mannamót Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Félags- heimilið Hraunsel er opið alla virka daga frá kl. 9–16. Gerðuberg, fé- lagsstarf. Á þriðjudög- um kl. 13 boccia, á föstudögum kl. 10–15 fjölbreytt handverk m.a. kortasaumur, s. 575-7720. Gönguklúbbur Hana- nú. Morgunganga kl. 10 laugardagsmorgna frá Gjábakka. Krummakaffi kl. 9. Gigtarfélagið. Leik- fimi alla daga vikunnar. Létt leikfimi, bakleik- fimi karla, vefjagigt- arhópar, jóga, vatns- þjálfun. Einn ókeypis prufutími fyrir þá sem vilja. Uppl. á skrifstofu GÍ, s. 530 3600. GA-Samtök spilafíkla, fundir spilafíkla, Höf- uðborgarsvæðið: Þriðjudag kl. 18.15, Seltjarnarneskirkju, Valhúsahæð, Seltjarn- arnesi. Miðvikudag kl. 18, Digranesvegi 12, Kópavogi. Fimmtudag kl. 20.30, Síðumúla 3–5, göngudeild SÁÁ, Reykjavík. Föstudag kl. 20, Víðistaðakirkju, Hafnarfjörði. Laug- ardag kl. 10.30, Kirkju Óháða safnaðarins, v/ Háteigsveg, Reykja- vík. Austurland: Fimmtudag kl. 17, Eg- ilsstaðakirkju, Egils- stöðum. Neyðarsími GA er opinn allan sól- arhringinn. Hjálp fyrir spilafíkla. Neyðarsími: 698 3888. Samtök þolenda kyn- ferðislegs ofbeldis, fundir mánudaga kl. 20 á Sólvallagötu 12. Stuðst er við 12 spora kerfi AA-samtakanna. OA samtökin. Átrösk- un / Matarfíkn / Ofát. Fundir alla daga. Upp- lýsingar á www.oa.is og síma 878 1178. Ásatrúarfélagið, Grandagarði 8. Opið hús alla laugardaga frá kl. 14. Kattholt. Flóamark- aður í Kattholti, Stang- arhyl 2, er opinn þriðjud. og fimmtud. frá kl. 14–17. Leið 10 og 110 ganga að Katt- holti. Blóðbankabíllinn. Ferðir blóðbankabíls- ins, sjá: www.blod- bankinn.is. Líknar- og vinafélagið Bergmál hefur Opið hús sunnudaginn 9. nóv. kl. 16 í húsi Blindrafélagsins í Hamrahlíð 16. Minningarkort Minningarkort Slysa- varnafélagsins Lands- bjargar fást á skrif- stofu félagsins í Skógarhlíð 14, Reykja- vík. Hægt er að hringja og panta minning- arkort í síma 570 5900 milli kl. 9–17 virka daga eða á heimasíðu félagsins www.landsbjorg.is. All- ur ágóði af sölu minn- ingarkorta rennur til styrktar björgunar- og slysavarnastarfi félags- ins. Styrktarfélag krabba- meinssjúkra barna. Minningarkort eru af- greidd í síma 588-7555 og 588-7559 á skrif- stofutíma. Gíró- og kreditkortaþjónusta. Samtök lungnasjúk- linga. Minningarkort eru afgreidd á skrif- stofu félagsins í Suð- urgötu 10 (bakhúsi) 2. hæð, s. 552-2154. Skrif- stofan er opin mið- vikud. og föstud. kl. 16– 18 en utan skrifstofu- tíma er símsvari. Einnig er hægt að hringja í síma 861-6880 og 586-1088. Gíró- og kreditkortaþjónusta. Minningarkort MS- félags Íslands eru seld á skrifstofu félagsins, Sléttuvegi 5, 103 Rvk. Skrifstofan er opin mánud.–fimmtud. kl. 10–15. Sími 568-8620. Bréfs. 568-8621. Tölvu- póstur ms@msfelag.is. FAAS, Félag aðstand- enda alzheimer- sjúklinga. Minning- arkort eru afgreidd alla daga í s. 533-1088 eða í bréfs. 533-1086. Heilavernd. Minning- arkort fást á eftir- töldum stöðum; í síma 588- 9220 (gíró) Holts- apóteki, Vesturbæj- arapóteki, Hafn- arfjarðarapóteki, Keflavíkurapóteki og hjá Gunnhildi Elías- dóttur, Ísafirði. Minningarkort Park- insonsamtakanna á Ís- landi eru afgreidd á skrifstofutími í síma 552-4440 frá kl 11–15. Kortin má einnig panta á vefslóðinni: http://www.park- inson.is/sam_minning- arkort.asp Minningarkort Sam- taka sykursjúkra fást á skrifstofu samtak- anna, Tryggvagötu 26, Reykjavík. Opið virka daga frá kl. 9–13, s. 562-5605, bréfsími 562- 5715. Í dag er laugardagur 8. nóv- ember, 312. dagur ársins 2003. Orð dagsins: Og þegar þér eruð að biðja, þá fyrirgefið, ef yður þykir nokkuð við einhvern, til þess að faðir yðar á himnum fyrir- gefi einnig yður misgjörðir yðar. (Mk. 11, 25.)     Ari Edwald, fram-kvæmdastjóri Sam- taka atvinnulífsins, skrif- ar leiðara í fréttabréf SA, Af vettvangi, um skóla- gjöld við ríkisháskóla.     Heimurinn er sífellt aðminnka og háskóla- fólk hefur æ betri mögu- leika til hálaunastarfa í mörgum löndum. Ekkert er eðlilegra en að nem- endur taki sjálfir ein- hvern þátt í þeim beina kostnaði sem háskólanám þeirra felur í sér og nýtist þeim á alþjóðlegum vinnumarkaði,“ skrifar Ari. „Það er í raun óskammfeilni af stúd- entum við ríkisrekna há- skóla að vilja ekki taka neinn þátt í beinum kostnaði við eigið nám, sem auka mun verðmæti þeirra á vinnumarkaði, en láta samfélagið bera allan þann kostnað. Er það eðlileg kostn- aðarskipting á milli þeirra og skattgreiðenda – þar á meðal láglauna- fólks? Hvað með þá sem vilja sækja sér annað nám en háskólanám? Ef verka- maður hyggst verða sér úti um réttindi til að aka vörubifreið getur hann þurft að reiða fram um 100.000 krónur. Hafi hann áunnið sér réttindi í starfsmenntasjóð stétt- arfélags fær hann e.t.v. um 30.000 króna styrk þaðan, en þarf að greiða afganginn sjálfur. Stúd- entar við HÍ greiða hins vegar einungis kr. 32.500 í skráningargjöld fyrir hvern vetur. Sex eftirmið- daga námskeið í lífsleikni við Endurmenntun HÍ kostar kr. 43.000. Fimm morgna námskeið í stjórnun kr. 35.000. Lærir fólk meira þarna en á heilum vetri í t.d. meist- aranámi við HÍ?“ Ari bendir á að lág- launafólk verði, eins og aðrir, að greiða á fjórða hundrað þúsunda í leik- skólagjöld fyrir börn sín. „Samt virðist fólki alvara með það að sífellt fjöl- breyttara nám við há- skóla, sem eigi að gefa af sér há laun, verði að vera algerlega gjaldfrjálst!“     Loks segir Ari: „Há-skólamenntun er fjár- festing. Öflugt mennta- kerfi er hagsmunamál einstaklinga, fyrirtækja og þjóðfélagsins alls. Það er hins vegar ekkert eðli- legra en að stúdentar taki sjálfir einhvern þátt í þeim beina kostnaði sem háskólanám þeirra felur í sér og nýtist þeim á al- þjóðlegum vinnumarkaði. Þar fyrir utan veita skóla- gjöld aukið aðhald og stuðla þannig að auknum kröfum, auk þess að gefa kost á meiri sjálfstýringu í uppbyggingu skólakerf- isins sem tryggir tengsl hennar við þá eftirspurn sem til staðar er. Krafan um gjaldfrjálst há- skólanám er hins vegar ekki í neinu sambandi við það umhverfi óþrjótandi eftirspurnar sem þróast hefur og fagna ber. Slík krafa byggist þvert á móti á forsendum fortíð- arinnar.“ STAKSTEINAR Skólagjöld og óskammfeilni Víkverji skrifar... VÍKVERJA leiðast tilgangslaussamskipti og reyndar tilgangs- leysi almennt. Eftir því sem leiðum fólks til að eiga samskipti hvort við annað fjölgar, samanber SMS, spjallrásir og farsíma, virðist Vík- verja sem tilgangsleysi samskipt- anna aukist. Textaskilaboð (SMS) eru eitt af þeim samskiptatækjum sem eru í uppáhaldi hjá Víkverja. Formið á skeytasendingunum er einfalt og boðin ganga hratt á milli. Einmitt þess vegna angrar það Víkverja að fá skilaboð sem bera það með sér að sendandi hefur ekki náð að tileinka sér þessa einföldu tækni og tilgang hennar. Tilgangsleysi skeyta eins og til dæmis „hvað ertu að gera?“, „hvert ertu að fara?“ eða „hvar ertu?“ er algert. Farsímar eru ekki staðsetning- artæki (í það minnsta ekki ennþá, sem betur fer) og textaskilaboð á ekki að nota til að hnýsast. Kannski er það bara Víkverji sem lætur skila- boð eins og þau að ofan fara í taug- arnar á sér. Víkverja þykir jafnan sem honum sé stillt upp við vegg þegar slík skeyti berast. Ef sendandi hefur ekki mikilvægara erindi við Víkverja en að komast að því hvar hann sé niðurkominn, hvað hann fá- ist við þá stundina eða hvert hann sé að fara fær Víkverji ekki séð að SMS-skeytið þjóni nokkrum til- gangi. x x x VÍKVERJA er ekki vel við að aðrirhnýsist um ferðir hans, þótt þær séu sjaldnast grunsamlegar. Það kemur einfaldlega engum við hvar í veröldinni Víkverji er, hvert hann er að fara, hvað hann er að bralla eða hvaðan að koma. Víkverji lendir þó oft í vanda þegar kemur að því að svara hnýsni- og staðsetning- arskeytum. Oftar en ekki gengur sendanda gott eitt til, sendir bara (að hans mati) saklausa spurningu áður en hann ber upp erindið. Víkverji vill ógjarnan svara skeytum með dóna- skap og útúrsnúningum, þótt það sé honum skapi næst. Þá finnst Vík- verja líka erfitt að ljúga, enda vel upp alinn. Þriðja leiðin er svo að sniðganga hina asnalegu og óþægi- lega nærgöngulu spurningu og svara alls ekki. Ef Víkverji kýs að svara ekki skeyti með spurningum á borð við þær sem hér hafa verið nefndar þá gæti sendandi haldið að hann sé í fýlu, þótt það sé alls ekki raunin. Af þessum ástæðum þykja Víkverja til- gangslaus símasamskipti óþægileg og óþolandi. Víkverja þykir sem sendandi reyni að króa hann af með tilgangsleysinu sem í hnýsninni felst. Víkverji reynir að hafa það að leið- arljósi í sínum SMS-samskiptum að þau hafi alltént einhvern tilgang, hver svo sem hann er. Morgunblaðið/Þorkell SMS er frábær tækni, en það kunna ekki allir að nota hana. Betri Kópavogur FYRIR nokkrum dögum var bankað upp á hjá mér og mér boðið að skrá mig á mótmælalista vegna fyrir- hugaðra byggingafram- kvæmda í Lundi. Þarna var á ferðinni íbúi úr einbýlishúsahverfinu í Birkigrund sem var algjör- lega á móti þessu skipulagi. Helstu rökin voru þau að byggingarnar væru of há- ar, umferðarmálin í ólestri og útsýnið fyrir íbúana sem fyrir eru hyrfi. Þar sem þetta voru held- ur einhliða og neikvæð rök sagðist ég ætla að kynna mér málið betur áður en ég skrifaði undir lista með eða á móti skipulaginu. Nú hef ég aðeins kynnt mér málið og sé að nokkuð hefur verið rætt og ritað um þetta nýja skipulag og sýnist sitt hverjum. Það er hiti í umræðunni enda um töluverða breyt- ingu að ræða á ásýnd bæj- arins. Þó finnst mér um- ræðan frekar einhæf og miðast við hagsmuni heldur fárra einstaklinga. Í mínum huga er Lund- arsvæðið einskonar inn- gangur inn í bæinn. Lund- ur er það svæði sem mætir manni fyrst þegar komið er úr Reykjavík og í dag er sjónin ekki fögur. Það má næstum líkja því við að koma bakdyramegin heim til sín. Frekar rislítið og laust við glæsileika. Kannski hafa endalausar deilur um Fossvogsbraut, golfvelli í Fossvogsdal o.s.frv. orðið til þess að þetta er að verða eins kon- ar einskismannsland? Það má vel vera að byggingarn- ar séu of háar eins og deilan virðist aðallega snúast um, en eitt veit ég að þetta er frábært svæði á einum besta stað á höfuðborgar- svæðinu sem við verðum að nýta. Hvað sem þessu líður hef ég ekki í hyggju að taka af- stöðu með eða á móti. Ég er þó með því að eitthvað verði gert á þessum flotta stað. Stór og umfangsmikil framkvæmd eins og sú sem kynnt hefur verið getur haft jákvæð áhrif á um- hverfi sitt, s.s. Auðbrekku- svæðið og Kársnesið sem ekki hefur þótt ýkja glæsi- legt. Rúsínan í pylsuendanum fyrir okkur Kópavogsbúa er þó sú, að við myndum losna við ónýt útihús og litabolta sem nú mætir okk- ur á leið inn í bæjarfélagið. Íbúi í Kópavogi. Áskorun VARÐANDI mál Birkis Emils og Mosfellsbæjar finnst mér skömm hvernig bæjarfélagið og TR hefur komið fram við barnið og móðurina. Ég skammast mín fyrir að búa í Mos- fellsbæ eða í landi sem get- ur ekki séð fötluðum og veikum börnum farboða. Drengurinn er kominn á leikskólaaldur og í Mos- fellsbæ fá einstæðar mæð- ur niðurgreiðslur á leik- skólagjöldum. Skora á ég Mosfellsbæ að borga móð- urinni fyrir að vera heima hjá sínu barni það sama og kostar fyrir bæjarfélagið að hafa barn á leikskóla 8 tíma á dag. Með von um að bæjar- stjórn sjái ljósið. Kristín Ívarsdóttir. Tapað/fundið GSM-sími í óskilum GSM-sími fannst 16. októ- ber á bílastæði við Ármúla- skóla. Upplýsingar í síma 663 4855. Regnhlífakerra í óskilum CHICCO-regnhlífakerra er í óskilum í Máli og menn- ingu á Laugavegi 18. Upp- lýsingar í síma 515 2580. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT 1 skopvísa, 8 snúin, 9 skýjaþykkni, 10 elska, 11 les, 13 mannsnafn, 15 hringiðu, 18 svipað, 21 rekistefna, 22 gleðjast, 23 óalið, 24 rifin í tætlur. LÓÐRÉTT 2 báran, 3 fífl, 4 komast við, 5 hnötturinn, 6 sárt, 7 skordýr, 12 vond, 14 gervitanngarð, 15 róa, 16 reika stefnulítið, 17 sori, 18 gróði, 19 gauragang- ur, 20 tómt. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 hikar, 4 fákur, 7 glatt, 8 kúlan, 9 tún, 11 reit, 13 kimi, 14 ærinn, 15 slór, 17 ásjá, 20 hló, 22 ormar, 23 ljúfa, 24 aðrar, 25 geiga. Lóðrétt: 1 hagur, 2 krapi, 3 rétt, 4 fíkn, 5 kuldi, 6 runni, 10 úrill, 12 tær, 13 kná, 15 slota, 16 ólmar, 18 skúti, 19 ábata, 20 hrár, 21 ólag. Krossgáta 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.