Morgunblaðið - 08.11.2003, Side 18
ERLENT
18 LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sölusýning í Hestheimum
í dag kl. 15.00
Úrval söluhrossa –
ótamin, keppnishross,
fyrstu verðlauna
hryssur.
CHANDRIKA Kumaratunga, for-
seti Sri Lanka, afturkallaði í gær
lög um neyðarástand eða í sama
mund og hundruð þúsunda manna
fagnaði heimkomu Ranil Wickr-
emesinghe, forsætisráðherra og
mikils andstæðings hennar frá
Bandaríkjunum.
Kumaratunga flutti sjónvarps-
ávarp síðdegis og sagði hún þá að
öryggi Sri Lanka hefði verið stefnt
í „mikinn voða“ vegna þess að
Wickremesinghe hefði leyft skæru-
liðum tamíla að komast upp með að
auka herstyrk sinn á undanförnum
tveimur árum. Sakaði hún stjórn
Wickremesinghes um að hafa á
sama tíma neitað að tryggja nægt
fé til handa sjóher og flugher Sri
Lanka. Þetta væri ástæða þess að
hún rak varnarmálaráðherrann í
stjórn Wickremesinghes fyrr í vik-
unni, sem og ráðherra innanríkis-
og upplýsingamála, auk þess sem
hún lýsti yfir neyðarástandi og
sendi þing landsins heim í hálfan
mánuð.
Þrátt fyrir þessa gagnrýni for-
setans á stjórn Wickremesinghes
stakk hún upp á því að mynduð yrði
þjóðstjórn allra flokka á Sri Lanka.
Reuters
Ranil Wickremesinghe (t.h.), forsætisráðherra Sri Lanka, var vel fagnað við komuna til Colombo í gær.
Neyðarástandslög afnumin
Wickremesinghe
vel fagnað við
heimkomuna
Colombo. AFP.
LIÐSMENN stjórnarandstöðuflokka í Georgíu
hófu í gær að safnast saman í mörgum helstu
borgum landsins til að mótmæla því hve hægt
gengur að telja atkvæðin í þingkosningum um sl.
helgi. Flokkur Eduards Shevardnadze forseta
tapaði miklu fylgi en stjórnarandstæðingar segja
að talningin tefjist vegna þess að verið sé í ör-
væntingu að falsa niðurstöðurnar, stjórnarliðum
í hag. Erlendir eftirlitsmenn segja einnig að
mörg dæmi hafi verið um misfellur á fram-
kvæmd kosninganna.
Ætlunin var að mótmæla á útifundum í gær og
enda aðgerðirnar með stórfundi í dag í miðborg
Tbilisi, höfuðborgar Georgíu. Stjórnarandstæð-
ingar krefjast þess margir að Shevardnadze segi
af sér þótt enn séu tvö ár eftir af kjörtímabili
hans. Óánægja vegna spillingar ráðamanna og
bágra kjara almennings hefur aukist hratt.
Segja sumir fréttaskýrendur að örlög Shevar-
dnadze geti ráðist um helgina. En aðrir efast um
að þátttakan verði mikil og benda á að stjórn-
arandstaðan sé margklofin.
Shevardnadze er 75 ára gamall og hefur verið
áhrifamestur í stjórnmálum Georgíu í þrjá ára-
tugi, hann þótti beita andstæðinga sovétvaldsins
mikilli hörku er hann var að klifra upp met-
orðastigann. Hann studdi hins vegar Míkhaíl
Gorbatsjov sovétforseta í umbótaviðleitni hans
og varð utanríkisráðherra Sovétríkjanna en
sagði af sér 1990. Ári síðar leystust Sovétríkin
upp.
Georgía hlaut sjálfstæði 1991 en ári síðar var
þar alger ringulreið, forseti landsins, Zviad
Gamsakhurdia, var hrakinn frá í vopnaðri upp-
reisn og uppreisnarmenn í héruðunum Abkhaziu
og Suður-Ossetíu börðust við stjórnarherlið.
Shevardnadze varð í reynd leiðtogi landsins og
var síðan kjörinn forseti 1995. Honum tókst að
koma á ýmsum umbótum, jók frelsi í efnahags-
málum og lét setja saman stjórnarskrá þar sem
staðfest voru grundvallaratriði vestræns lýðræð-
is.
Lífskjör betri á sovéttímanum
En lífskjör í Georgíu voru mun betri á sovét-
skeiðinu og gagnrýnendur forsetans segja að
hann hafi í reynd svikið landsmenn síðustu árin
með því að láta spillingarfursta fara sínu fram
gegn því að fá pólitískan stuðning þeirra. Glæpa-
fár þjakar Georgíumenn, mikið er um mannrán,
skattar eru ekki innheimtir, efnahagsumbætur
hafa stöðvast og ríkið er nær gjaldþrota.
Bandaríkjamenn og fleiri vestrænar þjóðir
hafa lengi stutt stjórn Shevardnadze, m.a. vegna
orðspors hans í tíð Gorbatsjovs en einnig vegna
þess að verið er að leggja mikilvæga olíuleiðslu
frá Kaspíahafi um Georgíu til Tyrklands. En
fyrr á þessu ári bundu Bandaríkjamenn enda á
aðstoðina, þeir gáfust upp á forsetanum og
spilltum liðsmönnum hans.
Dagar Shevardnadze á for-
setastóli í Georgíu taldir?
Reuters
Eduard Shevardnadze á fundi í Tbilisi. Mót-
mælafundir gegn honum eru boðaðir í dag.
Tbilisi. AFP.
SKRIFSTOFA Karls Bretaprins í
Clarence House í London vísaði því á
bug í gær að hann hefði orðið uppvís
að alvarlegu sið-
ferðisbroti fyrir
nokkrum árum en
breskir fjölmiðlar
hafa skýrt frá því
að starfsmaður
konungsfjölskyld-
unnar hafi orðið
vitni að umræddu
atviki. Ekki hefur
enn verið upplýst
hvers eðlis meint
siðferðisbrot var.
Prinsinn var í gær staddur í Óman.
Í yfirlýsingunni frá skrifstofu hans
segir að binda þurfi enda á vanga-
velturnar um meint siðferðisbrot.
„Látið hefur verið að því liggja að
prinsinn af Wales hafi tengst þessu
atviki. Þessar ásakanir eru uppspuni.
Atvikið, sem starfsmaðurinn fyrrver-
andi segist hafa orðið vitni að, átti sér
aldrei stað.“
Dómstóll í Lundúnum bannaði á
sínum tíma Mail on Sunday að birta
frétt þar sem nánari upplýsingar
komu fram um atvikið. Einnig bann-
aði dómstóllinn dagblaðinu The
Guardian að upplýsa hver það var
sem lagði fram lögbannskröfuna
gegn Mail on Sunday. Þessum úr-
skurði var hins vegar breytt á
fimmtudag og The Guardian upplýsti
þá á vefsíðu sinni, að heimildarmaður
Mail on Sunday væri Michael Fawc-
ett, fyrrverandi starfsmaður hirð-
arinnar. Hann sagði af sér í mars sl.
sem aðstoðarmaður Karls enda þótt
hann hefði þá verið hreinsaður af
ásökunum um fjármálamisferli.
Ásakanir Smiths um nauðgun
Í yfirlýsingunni frá skrifstofu
Karls segir að ásakanirnar hafi verið
bornar fram af fyrrum starfsmanni
konungsfjölskyldunnar sem hafi
þjáðst af áfengissýki og afleiðingum
geðsjúkdóms sem hann hafi fengið í
Falklandseyjastríðinu 1982.
Mail on Sunday hafði í nóvember
sl. eftir fyrrverandi þjóni við hirðina,
George Smith, að hann hefði tjáð
Díönu heitinni prinsessu, fyrrverandi
eiginkonu Karls, árið 1996 að nokkr-
um árum fyrr hefði einn af aðstoð-
armönnum Karls nauðgað sér. Um-
ræddur Smith barðist á sínum tíma í
Falklandseyjastríðinu.
Einn af talsmönnum Karls sagði í
tilefni af þessum ásökunum í nóv-
ember að málið hefði verið rann-
sakað af lögreglunni en engar sann-
anir hefðu verið lagðar fram um að
frásögn Smiths væri á rökum reist.
Karl prins
sakaður
um sið-
ferðisbrot
London. AFP.
Karl Bretaprins.
UMHVERFISSTOFNUN Samein-
uðu þjóðanna (UNEP) hefur boðað
fulltrúa tuttugu og þriggja Afríku-
og Suðaustur-Asíuþjóða á neyð-
arfund í París til að ræða til hvaða
aðgerða sé hægt að grípa til að
koma í veg fyrir yfirvofandi útrým-
ingu mannapanna. Frá þessu var
greint í Financial Times í vikunni.
„Klukkuna vantar eina mínútu í
miðnætti hvað mannapana varðar,“
sagði Klaus Töpfer, fram-
kvæmdastjóri UNEP, en umræddur
neyðarfundur verður haldinn í Par-
ís 26. nóvember nk.
Mannapar – þ.e. górillur, ór-
angútan-apar og simpansar – eru
skyldari manninum en nokkur önn-
ur dýr í lífríkinu. Er erfðaefni
manna og mannapa 96% það sama.
Umhverfisverndarsinnar segja
nú að mikil hætta steðji að mann-
öpunum og raunar eru hinar ólíku
tegundir ýmist skilgreindar sem „í
útrýmingarhættu“ eða „í bráðri út-
rýmingarhættu“. Hyrfu mannap-
arnir með öllu yrði tilteknum vist-
kerfum einnig stefnt í hættu en
t.a.m. leika mannapar mikilvægt
hlutverk við að tryggja heilbrigt og
fjölbreytt líf í regnskógunum.
Á fundinum í París er stefnt að
því að leita leiða til að spyrna við
fótum. Verða þjóðirnar, sem boð-
aðar hafa verið á fundinn, beðnar
um að framfylgja áætlunum, sem
ákveðnar verða í París, en um er að
ræða 21 Afríkuþjóð og tvö ríki í
Suðaustur-Asíu.
Vegagerð er meðal þess sem ógn-
ar mannöpunum en hún leiðir til
aukinna tækifæra í námu- og olíu-
vinnslu, veiða á villtum dýrum og
skógareyðingar. Benda nýlegar
rannsóknir til að górillur í Afríku
sjái árlega á bak sem samsvarar
2,1% sinna vaxtarstaða. Sambæri-
leg tala fyrir órangútan-apa í Mal-
asíu og Indónesíu er 5%.
Mannapar í útrýmingarhættu
Boðað til neyðar-
fundar í París 26.
nóvember nk.
Mannaparnir eru nánasti ættingi
mannsins í dýraríkinu.